Morgunblaðið - 08.11.1962, Side 23
Fimmtuaagur 8. nóvember 1962
MORGV1SBL4Ð1Ð
23
Nefnd gerir frumdrög
að leikhúsi L. R.
Miklar breytingar á Iðnó
Jökull Jakobsson á sviðinu í Iðnó, við leiktjöldin í „Hart í bak“,
L. R. frumsýnir „Hart
í bak“ á sunnudagskvöld
Nýtt leikrit eítir Jökul Jakobsson
MIKLAR breytingar hafa að
undanfömm verið gerðar á Iðnó.
Verða ný :<æti sett í húsið, upp-
hækkaííii pallar og svalir stækk-
aðar að mun. Verður aðstaða öll
að mun betri en áður var.
Helgi Skúlason, formaður Leik
félags Reykjavíkur, sagði frétta-
mönnum í gær að ekki þyrfti að
skýra hvernig á breytingunum
stæði. Þróunin hefði verið sú und
anfarin ár að Leikfélag Reykja-
víkur hefði jafnvel tapað trygg-
um vinum sínum á brott vegna
ástands hússins. „Við sáum að
með þessu áframihaldi myndum
við á endanum standa uppi með
tómt hús“, sagði Helgi.
„Við fórum þá á fund borgar-
stjóra, sem hefur verið okkur
Ihin mesta stoð og stytta í þessu
máli, og hann fól Einari Sveins-
eyni, húsameistara bæjarins að
gera teikningar, en Einar fylgd-
ist síðan með verkinu öllu og
hafði með því yfirjimsjón.
„I>á hljóp borgarstjóri undir
bagga með okkur varðandi
kostnaðinn“ sagði Helgi. „Mælti
hann með því við borgarráð og
borgarstjóm, að "Reykjavikur-
borg kostaði verkið að miklu
leyti og var það einróma sam-
þykkt. Fyrir þetta erum við
mjög þakklát. Þá tók hússtjórn
Iðnó á sig stóran lið, en það er
breytingin á svölunum. Þær
voru stækkaðar að mun og var
það nauðsynlegt því að sætum
fækkar í sal við breytingamar
þar. Á svölunum eru nú 56 sæti
og alls í húsinu 230, og hefur sæt
unum fækkað um 74 þar sem hin
nýju sæti eru breiðari og lengra
er á milli bekkja en áður. Gunn-
ar H. Guðmundsson, húsgagna-
arkitekt, teiknaði stólana, en Stál
SPARIFJÁRSÖFNUN skólabarna
hefur starfað frá árinu 1954, og
er rekið sem deild í Seðlabank-
anum. 1954 gaf Landsbankinn
öllum islenzkum börnum á aldr-
inum 7—12 ára ávísun að upp-
hæð 10 krónur og hefur síðan
gefið öllum þeiin, er í barna-
skóla setjast sömu upphæð, til
þess að hefja sparifjársöfnun.
Ávísun þessa má leggja inn á
sparisjóðsbók í hvaða íslenzka
innlánsstofnun sem er.
Forstöðumaður Sparifjársöfn-
unarinnar, Guðjón Jónsson, bauð
fréttamönnum að horfa á kvik-
myndina „Kláus Klifurmús", eft-
ir Thorbjöm Egner. Fjallar mynd
in um, hvernig Kláus eignaðist
bankabók, og er ætluð til þess
— Kennedy
Framhald af bls. 1.
Len Jordan sæti repúblikanans
Henry Dworshak, sem er látinn.
í Indiana sigraði demókratinn
Birch Bayh repúblikanann Hom-
er E. Capeheart, en hann hefur
átt sæti í öldungadeildinni sl. 8
ár. 1 Maryland vann demókrat-
inn Daniel B. Brewster sæti
repúblikanans Johns M. Butlers.
í New Hampshire vann demó-
kratinn Thomas J. Mcintyre
sæti repúblikanans Styles
Bridges, sem nú er látinn. — 1
Wisconsin sigráði demókratinn
Gaylord A. Nelson repúblikan-
ann Alexander Wiley, en hann
er 78 ára. I Wyoming sigraði
repóbiikaninn Wilward Tomp-
són demókratann J. J. Hicey. í
Arizona var demókratinn Cárl
Havden kjörinn" öldióigadeildar-
maðui- í 7. sinn. Hann er 85 ára.
húsgögn smíðaði þá. Áklæði eru
frá Álafossi“.
í sal hagar nú svo til að 8
fremstu bekkirnir eru á sléttu
gólfi en sætin ganga á misvíxl.
Fyrsta upphækkunin er á 9. bekk
og eru á henni tveir bekkir.
Vegna þess að dansað er í húsinu
mátti ekki byggja fasta palla
þannig að lyftuútbúnaður Iyftir
tveimur siðustu upphækkunum
upp úr gólfinu.
Á fundi með fréttamönnum í
gær sagði Helgi Skúlason að L.R.
hefði áhuga á því að gerast at-
vinnuleikhús. Ýmsir leikarar fé-
lagsins vildu gera starfið að at-
vinnu og væru sumir þegar farn-
ir að reyna þetta. Sagði Helgi að
þessi hópur þyrfti að stækka til
þess að unnt yrði að koma upp
atvinnuleikhúsi. Sagði Helgi að
hann áliti að rúm væri fyrir tvö
atvinnuleikhús í Reykjavík og
annað leikhús yrði hollt fjrrir
leikhúslífið 'i bænum og myndi
veita Þjóðleikhúsinu nauðsyn-
legt aðhald.
Helgi skýrði frá því að nefnd
starfaði að því að gera undir-
búningsathuganir vegna fyrir-
hugaðrar leikhúsbyggingar fé-
lagsins. í nefndinni eru Aðal-
steinn Riohter, skipulagsstjóri,
Gústav E. Pálsson, borgarverk-
fræðingur, Jón Haraldsson, arki-
tekt og Þorsteinn ö. Stephensen
leikari. Jóh. Haraldsson skal gera
útlitsteikningu af Ieikhúsinu á
Klambratúni, en Leikfélagið hef-
Ur mikínn áhuga á því að fá
þá lóð. Verður útlitsteikning síð-
an lögð fyrir viðkomandi yfir-
völd. Helgi Skúlason sagði að
L.R. vonaði að með þessu væri
leikhúsmálið komið á nokkurn
rekspöl.
að glæða áhuga barna á spari-
fjársöfnun. Verður hún sýnd í
skólum víðs vegar um land.
Guðjón skýrði svo frá að höfuð-
markmiðið væri ekki það, að fá
börnin til þess að safna veruleg-
um fjármunum inn á bankabók,
heldur, að kenna þeim snemma
Þessi mynd er úr kvikmynd-
inni „Kláus klifurmús og hin
dýrin í Hálsaskógi“.
að fara með peninga og skilja
gildi þeirra, t. d. að ekki er hægt
að kaupa tvisvar fyrir sömu
krónuna o. s. frv. Skrítin svör
fást oft, þegar börn eru spurð
að því, hvað peningar séu, eitt
er svona: „Peningur er flöt kúla
með gati, og þegar við höfum
enga peninga, grætur mamma og
við fáum aðeins kartoflur áð
horSa“«
NÆSTKOMANDI sunnudags-
kvöld, kl. 20.30, frumsýnir Leik-
félag Reykjavikur nýtt íslenzkt
leikrit eftir Jökul Jakobsson,
„Hart í bak“, en þetta er annað
leikrit Jökuls, sem félagið setur
á svið. Var hitt „Pókók“, sem
sýnt var í hitteðfyrra.
Leikstjóri er Gísli Halldórsson,
sem ennfremur fer með hlutverk
í leiknum, en aðrir leikarar eru
Helga Valtýsdóttir, Brynjólfur
Jóhannesson, Birgir Brynjólfs-
son, Guðrún Ásmundsdóttir, Guð-
mundur Pálsson, Steindór Hjör-
leifsson, Karl Sigurðsson og
tveir nýliðar ,útskrifaðir frá leik-
skóla LR, Gerður Guðmundsdótt-
ir og Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir. Leiktjöld hefur gert Stein
þór Stgurðsson en tónlist á milli
þátta er eftir Jón Þórarinsson.
„Hart í bak“ er leikrit í þrem-
ur þáttum' og er annar þáttur í
tveimur atriðum.
Jökull Jakobsson sagði á blaða-
mannafundi í gær að hann hefði
unnið að leikriti þessu í tvö ár.
Leikritið er að mestu alvarlegs
eðlis, og gerist í Vesturbænum
skammt frá Slippnum. Fjallar
það m. a. um gamlan skipstjóra
sem beðið hefur skipbrot í Hfinu,
dóttir hans, sem er á miðjum
aldri, spáir í sþil ,og bolla og er
lífsþyrst mjbg. Á hún því marga
aðdáendur, og þó einkum einn,
brotajárnssala. 19 ára sonur spá-
konunnar kemur og við sögu. Er
hann misheppnaður slæpingi, en
með stóra drauma.
Næsta viðfangsefni L.R. verður
La Ronde, austurrískur gaman-
leikur í þýðingu Emils Eyjólfs-
sonar. Leikstjóri verður Helgi
Skúlason. Þá mun L.R. sýna í
UMBOÐSMAÐUR vegamála-
stjórnarinnar hér bauð í dag þau
kostakjör að Siglufjarðarskarð
skyldi rutt að snjó, ef Siglu-
fjarðarkaupstaður bæri helming
kostngðarins. Nú er það svo, að
ríkinu ber lögum samkvæmt, að
bera allan kostnað við þennan
snjóruðning, sVo þessi liðlegheit
koma heimarríönnum hér spánskt
fyrir sjónir. Annaðhvort borga
vetur „Eðlisfræðingana“ eftir
Durrenmatt, en það leikrit er nú
leikið víða um lönd. Halldór Stef-
ánsson hefur þýtt leiritið en
leikstjóri verður Lárus Pálsson.
París 7. nóv. (NTB)
Stjórnarskrárbreytingin, sem
de Gaulle Frakklandsforseti
beitti sér fyrir, og felur í sér að
forseti Frakklands verði fram-
vegis kjörinn af allri þjóðinni,
en ekki kjörmönnum, gekk i
gildi í dag. Sem knnnugt er fór
fram þjóðaratkvæðagreiðsla um
stjórnarskrárbreytinguna 28. okt.
sl. og var hún samþykkt.
Forseti öldungadeildar franska
Moskvu, 7. nóvember. —
(NTB — AP)
Pekingblöðin láta frásagnir af af
mælisdegi októberbyltingarinnar
í Sovétríkjunum víkja fyrir yfir
lýsingum um stuðning við kröf
ur Castros, forsætisráðherra
Kúbu, á hendur Bandarikja-
mönnum.
Stjórnmálafréttaritarar benda
á það, að undanfarin ár hafi mik
ið verið sagt frá afmæli októ-
berbyltingarinnar í Sovétrikjun
um á forsíðum blaða í Kína, en
nú sé aðeins skýrt frá helztu
staðreyndum. Aðalfregnir blað-
Siglfirðingar það sem ríkinu ber
að borga, eða þeir sitja áfram
með sína einangrun.
— Hverjum var gert tilboð
hr. vegamálastjóri, er Austur-
vegur var ruddur?
Hér er nú bezta veður, snjór
tekinn upp í byggð, og ríflega
dagsvinna að ryðja Siglufjarðar-
skarð. en margir þílar bíða þess
að komast leiðar sinnar yfir
skarðið.
— Stefán.
Áðalfundur
AÐALFUNDUR Stefnis, féftkgs.
ungra Sjálfstæðismanna í Hafn-
arfirði, verður haldinn næstk.
sunnudag kl. 4 í Sjáifstæðishús-
inu í Hafnarfirði.
— Krúsjeff
Framhald af bls. 1.
Þegar fréttamennirnir spurðíl
Krúsjeff hvort hann teldi gagn-
legt að hann ræddi við Kennedy
forseta, sagði hann:
— Ég var aldrei hlynntur
fundi æðstu manna. Þá minntu
þeir forsætisráðherrann á það,
að hann hefði sagt að fundur
æðstu manna væri æskilegur í
bréfi sínu til brezka heimspek-
ingsins Bertrand Russel. Þá
sagði Krúsjeff, að hann teldi
fund æðstu manna gagnlegan,
þegar friðinu mværi ógnað, en
bætti við, að þannig væri ekki
ástatt nú.
Krúsjeff var spurður hvort
hann væri hlynntur áframhald-
andi tilraunum til samkomulags
um bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn. Sagði hann, að
hann teldi, að nú væri góður
jarðvegur fyrir slíkt samkomu-
lag.
Krúsjeff lagði áherzlu á það,
að flýta þyrfti samningum um
Berlín. — Við viljum ekki Berlín,
við þörfnumst hennar ekki, en
við viljum frið og friðarsamning,
sagði Krúsjeff.
Krúsjeff ræddi um hersýning-
una á Rauða torginu og sagði,
að það myndi gleðja Sovétríkin,
ef allar þjóir heims sameinuðust
undir merki kommúnismans. —
Við vitum ekki hvenær að þvl
kemur, sagði Krúsjeff, en þang-
að til . verðum við að lifa við
sömu aðstæður og við lifum nú.
þingsins, Gaston Monnerville,
hélt því fram að þjóðaratkvæða
greiðslan hefði verið ógild og
krafðist þess, að stjórnarskrár-
breytingin yrði ekki framkvæmd
en stjórnarskrámefndin visaði
kröfu hans á bug
Þingkosningar fara fram I
Frakklandi 18. og 25. þm. og er
mikil harka i kosningabarótt-
unni.
anna fjalli um hinn mikla stuón
ing Kínverja við málstað Kúbu.
„Dagblað Alþýðunnar“ er alltaf
hefur birt ritstjórnargrein um
byltingarafmælið á forsíðu birti
hana nú á annarri síðu. I grein-
inni segir m.a., að vinátta Sovét
ríkjanna og Kína sé mikilvæg,
en einnig er lögð áherzla á það,
að eining verði að ríkja milli
kommúnistaríkjanna.
Ný!! penicillin
LEITIN að nýjum penicillin-
lyfjum heldur stöðugt áfram
Fyrir skömmu kom nýtt pen-
icillin á markaðinn frá Beech
am Research Laboratories, og
er það 1621. penicillinefnið
sem þar hefur verið framleitt
(af þeim hafa aðeins örfá
reynzt notliæf).
Hið nýja lyf hefur .fengið
vörumerkið „Orbenin", en
ekki er búið að gefa því lyfja-
fræðilegt nafn enn.
Áhrifum Orbenin svipar
mikið til áhrifa methicillins,
en ekki þarf að dæla hinu
fyrmefnda inn í vöðva eins
og metchillin, og er það því
miklu þægilegra í notkun.
Lyfið vinnur á graftasýkl-
um, sem kljúfa venjulegt pen
icilíin og mefchicillin.
Sparifjársöfnun
skólabarna
T ilboð um ruðning
Sigl ufjarðarskarðs
Siglufirði 7. nóv.
Stjórnarskrárbreytingin
í Frakkl. gengur í gildi
Kúba ú forsíða Pekingblaða,
en ekki byltingarafmælið