Morgunblaðið - 17.11.1962, Page 9

Morgunblaðið - 17.11.1962, Page 9
Laugardagur 17. nóv. 1962 WORCr/TV Bf 4 ÐIÐ 9 Skeldýrafána blands Skeldýraíána íslands, II. Sæ- sniglar meS skel. Eftir Ingimar Óskarsson. 167 bls. með 156 myndum. Útg. Prentsmiðjan I.eiftur. 1962. í'YRIR 10 árum kom út fyrsta ibindi þessa handhæga leiðarvísis um skeldýrin í sjónum kringum Island eftir Ingimar Óskarsson og fjallaði um samlokur, eða það sem við í daglegu tali köllum skeljar. Árni Friðriksson fiski- fræðingur fylgdi bókinni úr hlaði og spáði því að hún mundi verða góður félagi margra, ekki sízt skólaaesku yg sjómanna. — Reynslan hefur sýnt, að bókin átti mikið erindi til almennings, kveikti hjá fjölmörgum áhuga fyrir þessum sævarbúum og gerði þeim kleift að kynnast þeim nánar, jafnvel koma sér upp söfnum. Einnig á annan hátt xiáði hún merkilegum árangri: Að gera almenning að þátttak- anda í leit og könnun og hafa ýmsar merkilegar nýungar fylgt í kjölfarið, meira að segja upp- götvanir nýrra tegunda. í öðru bindinu, sem nú er ný- komið út, er fjallað um kuðunga sjávarins og má það vera áhuga- mönnum mikið gleðiefni. Hér eru taldar 146 tegundir og í báðum bindunum samanlagt er getið 240 tegunda á 286 blaðsíðum. Til samanburðar má geta þess, að í fyrstu útgáfu af Flóru ís- land eftir Stefán Stefánsson eru taldar 360 tegundir jurta á tæp- lega 400 blaðsíðum. Útkoma Flóru hefur jafnan verið talið mikið menningarlegt framlag. Mér sýnist, að verki Ingimars megi jafna langleiðina vlð Flóru Stefáns, enda er ljóst, að bak við iþað liggux ævilöng söfnun, grein ing og mælingar og loks heim- ildakönnun. Ingimar var á sínum tíma laeri sveinn Stefáns og ætla má, að fáir eða engir hafi betri skilyrði en hann til að dæma um þýðingu þess fyrir fróðleiksiþyrsta ung- linga að Flóra kom út og hvílíka grózku í grasafræðirannsóknum hefur af henni leitt. Með riti sínu um skeldýrin hefur Ingimar gef- ið almenningi lykil að hluta dýraríkisins, skeljum og kuðung- um, sem eru jafn-nátengd fyrstu mynd okkar af heiminum og blóm in. Hann hefur greitt skuld sína með vöxtum og vaxtavöxtum. Ingimar Óskarsson er mjög al- hliða náttúrufræðingur og kunn- ur fyrir nákvæmni og glögg- skyggni bæði sem grasafræðing- ur og dýrafræðingur og fyrir langt og merkilegt starf á þessum sviðum kjöri Náttúrufræðifélag- ið hann heiðursfélaga sinn fyrir nokkrum árum. í grasafræði er hann kunnur langt út fyrir ís- land fyrir lærdóm sinn á sviði undafífla og í dýrafræði hefur hann gert skeldýrin í sjónum að sérgrein sinni. Ég sakna þess, að hann skuli ekki einnig fást við rannsóknir á fornskeljum; á því sviði eigum við nú engan mann síðan þeir Guðmundur G. Bárðarson og Jóhannes Áskelsson féllu frá. En óbeint er þó rit Ingimars þarft framlag einnig á þessu sviði, því ýtarleg greinar- gerð fyrir tegundum nútímans og útbreiðslu þeirra hlýtur að koma þeim að miklu gagni, sem í fram- tíðinni fást við túlkun skeldýra í jarðlögum íslands. Eg óska þessu bindi sömu vinsælda og hinu fyrra og að margir noti þennan lykil að heimi kuðunganna. Trausti Einarsson. S.l. MIÐVIKUDAG tóku tvær nýjar verzlanir, Vera og Rafglit, til starfa í Hafnar- stræti 15. þar sem áður var kaffistofan Hvoll. Innan skajmms mun einnig taka til starfa minjagripaverzlun á sama stað. Verzl. Vera hefur á boðstól- um ýmsan kvenfatnað og fatnað á börn fram að 6 ára aldri. Eigendur þeirrar verzl- unar eru þær frú Fríða Jóns- dóttir, sem rekur snyrtivöru- verzlunina Dömutízkuna á Laugavegi og frú Anna Árna dóttir. — Er verzlun þeirra mjög smekkleg. — Borð verzl unarinnar smíðaði trésmiðjan Kvistur, Óskar Þorvarðsson, en Alúmíníumiðjan sá um hill ur og sýningargluggann. Vera Tvær nýjar verzlanir opna í Hafnarstræíi hefur til umráða helminginn af verzlunarhúsnæðinu. Hinum megin er verzl. Raf- glit, sem hefur á boðstólum lampa og minni heimiiistæki, m.a. hefur verzlunin söluum boð fyrir Krupp-verksmiðj- urnar í Þýzkalandi sem farn- ar eru að framleiða rafmagns tæki. Eigendur Rafglits eru þeir rafvirkjarnir Eiríkur Garðar Gislason og Eiríkur Eyþórsson. — Kváðust þeir mundu hafa á boðstólum gott úrval af íslenzkri lampa framleiðslu sem væri mun ódýrari en erlend og gæðin alveg sambærileg. Eru lamp- arnir smíðaðir af Kristni Magnússyni, Skipholti 17. og Þórði Hafliðasyni í Polyto. Innréttingu verzlananna smíðaði Hörður Haraldsson trésmíðameistari, en Gunnar Ingibergsson gerði teikningar að henni. Um raflögn sá Ósk- ar Hansson. OPNUM í DAG NÝJA BENZÍNAFGREIÐSLU OG GREIÐASÚLU VIÐ MIKLUBRAUT Á boðstólum: wShell“ benzín og smurningsolíur Ymsar aðrar vörur til biíreiða. Margs konar vistir afgreiddar beint í biíreiðir, Ýmiss tilbúinn matur Ö1 og gosdrykkir o. m. fL OLÍUFÉLAGIÐ SKEUUNGUR H.F.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.