Morgunblaðið - 13.12.1962, Page 7

Morgunblaðið - 13.12.1962, Page 7
Fimmtudagur 13. des. 1962 MORGUNBLAÐIb 7 „Og ég er þakklát fyrir að hafa fengið leyfi til að dvelja um sinn á þessari blessuðu jörð.“ Þriðja konan, sem segir frá, er Margrét Halldórsdóttir. Hún er Austfirðingur, fædd í Út- mannasveit á Fljótsdalshéraði. Föðurlaus fluttist hún tíu ára með móður sinni til Suðurlands, og lengst sinnar ævi hefur hún búið í Reykjavík, hefur að segja langa sögu strits, ranglætis og óhappa, en verið gædd lítt skilj- anlegri seiglu, hóglátri, en stað- fastri einurð og ótrúlegum vilja til að standast hverja þá raun, sem lífið legði á hana. Jafnvel nú, þegar hún getur með góðri samvizku litið yfir farinn veg og gæti lagt hendur í skaut, finnur hún það skyldu sína að leggja fram krafta sína og lífsreynslu til varnaðar og til velfarnaðar, ekki aðeins sínum nánustu, held- ur öllum, sem nú vantar hvorki föt né fæði og ekki rétt og að- stöðu til að njóta sín, en hins vegar jafnvægi og ábyrgðartil- finningu til að nota sér til heilla breyttar aðstæður og aukdð lífs- öryggi. Saga fjórðu konunnar, sem bókin fjallar um, Ingibjargar Gissurardóttur frá Gljúfurholti í Ölfusi, endar á þessum orðum hennar: „Starfsdagurinn hefur oft verið langur. En hver dagur hefur verið mér sigurdagúr. Ég held, að þessi tilfinning mín lýsi betur en mörg orð lífshamingju minni.....Þetta segir kona, sem unnið hefur baki brotnu allt frá því að hún fékk nokkru valdið, kona, sem fram yfir þrítugt strit- aði á heimili fátækra foreldra fyrir yngri systkinum sínum, þó að hún vissi, að sá maður biði hennar, sem hún hefur einum unnað. Jú, hann beið, þóttist ein- hvers hafa að bíða — enda varð honum að því: Hún varð svo sem ekki verklaus, dóttirin frá Gljúf- urholti, þó að systkini hennar kæmust upp. Nú er bóndi henn- ar látinn fyrir rúmum tveimur árum. Hann var bílstjóri sein- ustu árin, og gerð hans lýsa þessi orð Ingibjargar: „En oft, þegar Símon kom heim, eftir að hann var farinn að aka fólki, var hann svo þreyttur, að hann ætlaði ekki að geta sofnað. Þarna var ekki um að ræða afleiðingar af líkamlegu erfiði, heldur andlegu. Þessum mikla dugnaðar- og reglumanni sveið svo mjög að kynnast næturlífinu." Ingibjörg á fimm börn og átján barnabörn og hún á sín áhugamál, þjóðfé- lagsleg og kirkjuleg, — enn er nóg verkssvið. Og Símon bíður ekki síður nú en áður. Loks er það Helga Níelsdótt- ir. Hún er fulltrúi hins ævintýra- lega í þessari bók, gædd álíka lífslyst og fjöri og þori til fram- kvæmda og þar væri holdi klædd sjálf hin jákvæða framvinda til- verunnar. Og svo er henni það þá ekkert fyrirhafnarmeira eða óeðlilegra en að líkna konu í barnsnauð að þeytast um óslétt- ar götur á mótorhjóli, aka möl og sandi á flutningabíl og hreinsa mótatimbur á vökunóttum. „Ég stend báðum fótum meðal fólks- ins sjálfs,“ segir hún í þáttar- og bókarlok, „og ég held það sé hin mesta lífsuppfylling fyrir hvern og einn. Það er lífið sjálft. Annað er hjóm og hégómi.“ Og hvort er það ekki ljóst, hvað höfundur bókarinnar vill með henni annað en að fá til- efni til að ræða við þessar fimm heiðurskonur, skrifa eftir þeim og sjá eftir sig nýja bók? Hann hefur aldrei náð betur en að þessu sinni því, sem fyrir honum hefur vakað með þáttum sínum, bæði nú og áður. Guðm. Gíslason Hagalín. Guðmundur G. Hagalín skrifar: Ævisögu afreksdraugs Halldór Pétursson: Ævisaga J Eyjasels-Móra. Safnað, skráð og saman fært. Bókaverzlun ísafoldar. Reykjavík 1962. Margar ævisögur hafa verið skrifaðar hér á landi seinustu tvo áratugina, og hefur þar verið safnað miklum fróðleik um lífs- háttu og aldarfar, og fram komið ýmsar eftirminnilegar mannlýs- ingar. Margar þessar sögur eru af alþýðumönnum, sem lifað hafa í bernsku við bág Jkjör, en sýnt dug og dáð í lífsbaráttunni og átt sinn þátt í sókn þjóðarinnar til bættra kjara. Færra hefur verið skrifað af ævisögum þjóð- kunnra menntamanna, oftast aðeins birt ágrip af ævi þeirra og störfum. Nú er út komin ævisaga, sem má teljast all nýstárleg. Það er saga eins hins tilþrifamesta draugs af öllum þeim mikla fjölda slíkra persóna, sem sagn- ir hafa verið skráðar um hér á landi. Er það saga Austfirðings ins Eyjasels-Móra, en höfundur hennar er Halldór Pétursson, sem áður hefur skrifað nokkra þætti, er birzt hafa hér og þar á prenti. Halldór kenndi sig lengi við Geirastaði í Hróars- tungu, og er hann að því leyti nákominn söguhetju sinni, að Móri hefur fylgt ætt hans allt til þessa dags, meðal annans þeim bræðrum, Halldóri og Runólfi, reyndist svo ættrækinn við Run- ólf, að hann fylgdi honum til Danmerkur og sýndi sig þar, gerðist jafnvel til að villa menn milli bæja á Jótlandi. Halldór tiieinkar bóikina minningu Sig- fúsar Sigfússonar þjóðsagnarit- era, sem kenndi sig við Eyvind- ará í Eiðaþinghá, og er það vel til fallið, þvi að Sigfús mun hafa verið draugfróðastur Aust- firðinga um sína daga og það var nú síður en svo, að hann drægi úr verðleikum Eyjasels- Móra, helzt að honum fyndist, að Skála-Brandur þyldi við hann nokkurn samjöfnuð. Halldór ritar bæði formála og eftirmála, slær þar úr og í, en auðsjáanlega treystist hann ekki til að draga í efa, að Móri hafi verið meira en missýning og hugarburður, enda hæg heima- tökin til allnáinnar vitneskju um aðgerðir Móra. Og greini- lega kemur fram, að ekki telur Halldór aðra menn skilorðari en ýmsa þá, sem hermt hafa frá þeim voðaskelfi. Halldór getur þess í eftirmála, að Jón alþingis maður Jónsson, sem kenndur var við Sleðbrjót, þjóðkunnur gáfu- maður, hafi fyrstur orðið til að geta Móra og atgerða hans á prenti. Jón taldi sig ekki trúa á tilveru Móra, en tilnefnir þó sögumenn, sem hann vissi valin kunna og gerðist ekki til að rengja frásagnir þeirra. Halldór segir frá ærið furðu- legum upptökum draugsins — og liggur við að hann hallist helzt að því, að frásögnin um þau sé ekki fjarri sanni, sem sé, að Móri hafi verið tilbúinn úr kynja efnum — verið svokallaður með aladraugur! En hvað sem því líð- ur, gerðist hann svo magnaður, að hann drap menn og skepnur, ærði fólk og meiddi og hafði í frammi margs konar skálkapör, en hafði einnig til að vera gam- ansamur og greiðvikinn, sótti til dæmis hesta, og þó að hann bekktist við þá, e'r hann fylgdi, tók hann illa upp misgerðir ann- arra við slika menn. Hann fór allvítt um, og notaði hann ýmis farartæki, renndi sér á fjóssleða, sat fyrir aftan menn, sem voru á ferð ríðandi og tók sjálfur hesta og reið þeim á þanspretti. En eitt var furðulegast af farar tækjum hans. Hinn alræmdi Þor geirsboli slangraði austur á land, og sá maður nokkur, að sá vom- ur' þeyttist yfir svellað landið, dró að vanda á eftir sér húðina, og á henni sat Móri og knúði bola áfram. En það höfðu menn fyrir satt, að Móri hefði verið að reka Þorgeirsbola úr ríki sínu, ekki kært sig um að hann legði í vana sinn að flækjást þar um og draga athygli frá draugajöfri Austfirðinga. Halldór notar margar heimild- ir og fylgir þeim mjög nákvæm- lega, og gefur bókin fulla vissu um það, að merkir menn, bæði karlar og konur, hafa í meira en hálfa aðra öld talið sig hafa miklar og oftast æiið óþægileg- ar sannanir fyrir tilveru Eyjasels Móra. Halldór segir frá mjög blátt áfram en það hygg ég, að sagan sem heild hefði orðið líf- legri og skemmtilegri, ef hann hefði unnið meira úr heimildun- um og gert söguna samfelldari, án þess þó að ýkja eða raska neinu, sem heimildarmenn hans hafa frá skýrt. Eitt að lokum: Ég tel, að þó „hausarnir séu tinnur" eins og skáldið segir, þá verði þeir ekki margir, sem berji til lengdar höfðinu við steininn og neiti því, blákalt, að dulræn fyrirbrigði hafi gerzt og gerist. En ýmsir geta alls ekki, hvaða sannanir, sem fram eru bornar, fellt sig við að, dular- fullar verur, sem sjást eða gera vart við sig á annan hátt, séu framliðnir menn. Mundi ekki skynsamlegt, að minnsta kosti viðunandi úrræði hjá slíkum mönnum, að halla sér að því, að slíkar verur séu til orðnar eins og Eyjasels-Móri, búnar til úr efnum kostulegrar náttúru — séu svokallaðir meðaladraugar? Að minnsta kosti virðist mér, að sú skýring á tilveru þessara furðu kinda geti frekar en aðrar sam- ræmzt virðingu vísindalega hugs andi og lærðra manna jafnt í læknisfrœði sem sálfræði. Guðm. Gíslason Hagalín. HÁLSFESTAR OG SKART- GRIPASKRÍN SMEKKLEGAR JÓLAGJAFIR Benedikt Blöndal nerðasdomslögmaður Ausiurstrætj 3. Sími 10223. Sigurg. 'r Sigurjónsson hæstaréttarlögmaður Málflutningsskrifsoia. Austurstrætj ÍJA. Sími 11043. Yður til únægju fallegt endingargott hreinlegt þægilegt Leitið upplýsinga hjá G. Þorsteinsson & Johnson hf. Grjótagötu 7 — Sími 24250. Dri Brite sjálfgljáandi, fljótandi bónvax ER EITT MEST NOTAÐA BÓN LANDSINS! Dri Brite sparar erfiði og fyrirhöfn — sparar dúka og gólf. Það sparar einnig fé, því það er drjúgt. BINKAUMBOÐ : Agnar IMorðfjörð & Co. hf. Loksins! gceðapenni sem allir geta eignast! Verð „Imperial“ við allra hæfi Sheaffers, sem þegar er heimskunn- ur fyrir „Hvít-oddpenna“, bjóða nú „Imperial“. Þessi nýi frábæri penni er í stíl við fle'sta af hinum beztu „Hvít-odd-pennum“ . . . og kostar þó mun minna en þér haldið. HINN FRÆGI SHEAFFEBS STÍI.I, Fegurð „Imperial“ sker sig úr hvar og hvenær sein pér beitið honum. IIÓLKLAGA GULL- PENNl ER SEREIN- KENNI SHEAFFERS! Með gullpenna ImperiaJ getið þér skrifað leng- ur án þreytu og betur. ÞRÝ STIFYLLIN G SHEAFFERS ER NÝ Með því að þrýsta einu sinni, þá tæmið þér, fyllið og hreinsið „Im- perial“ og hann e«- var- anlega rithæfur aftur Einnig fæst. .. Sheaffer's „Gull lmperial“ með guíihettu. Sheaffer’s umboðið: EGILL GUTTORMSSON Vonarstræti 4, Reykjavik

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.