Morgunblaðið - 13.12.1962, Síða 13

Morgunblaðið - 13.12.1962, Síða 13
Fimmtudagur 13. des. 1962 MORCUNBLAÐIÐ 13 Ólafía Guðmunds- dóttir frá Hjallárseyri Fædd 27. júní 1898 Dáin 7. nóveml>er 1962. „Hver er mestur yðar allra? Ekki sá, sem mest á til, Iheldur sá, sem Guði geðjast, gjörir honum flest í vil. Sá á mest af sönnum auði, sem á mestan kærleikann. Sá er mestur sem er beatur, sannarlega það er hann. við Arnarfjörð. Þar fæddist hiún 27. júní 1898 í stórum systkina- hóp. Þar ólst hún upp á fátæku heimili þeirra, þar sem mann- kostir og manngæzka máttu sín mezt. Dugnaður og nægjusemi, ráðvendni og þrifnaður voru eðliskostir þessara heiðurshjóna. Og börnin urðu eins. — Það er sönn gæfa að kynnast slíku fólki. Ólafía var með foreldrum sín um meðan þau bjuggu, en eftir að móðir hennar hafði fengið aðkenningu að slagi og misst heils una, svo þau urðu að hætta bú- skap, fluttist hún með þeim að 'Hrafnseyri til séra Böðvars, sem var þar prestur þá, og síðari konu hans Margrétar Jónsdóttur, og voru þau þar um tveggja ára tímabil. Fór hún þá til Reykja- víkur og gekk undir uppskurð hjá Halldóri Hansen þeim mikla og góða lækni, sem hún dáði æ síðan. Kom svo vestur til Hrafns eyrar aftur og var þar enn um 1 skeið. Eftir það fluttist hún til Reykja víkur. Var hún tvö sumur ráðs- kona hjá Sigvalda Jónssyni greiðasölumanni á Geithálsi og átti með honum dóttur fallega og vel gefna. Heitir hún Guð- mundína Lilja og er gift Svafari Bjarnasyni rafirkja. Búa þau í Kópavogi og eiga tvær dætur mjög efnilegar. Blessuð viníkona! Bg vildi geta sent þér hinztu kveðju út yfir gröf og dauða. Og þakkað þér fyrir allt, alla þína umlhyggju og- vinsemd eftir að ég varð ekkja og svo f jarri mínum nánustu. Guð launi þér það á efsta degi. Og honum, sem sendi þig inn í þessa tilveru og nú hefir kallað þig heim, þakka ég fyrir þig og fyrir alla góða menn og konur, sem ég hefi fengið að kynn- ast á lífsleið minni. Blessuð sé minning þín. Margrét Jónsdóttir Athugið! að borið saman við útbreiðslw er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. ENPURNÝJIP RAFMWI farip ariiEa meu RAFTftKI! Húseigendafélag Reykjavíkur Hver er mestur allra yðar? Ekki sá, sem stendur hæst; Iheldur sá, sem hógvær reynist, Ihann er sínum Guði næst. Sá á mestan sóma skilið, sem á anda hógværan. Sá er mestur, sem er beztur, sannarlega það er hann. Hver er yðar allra mestur? ekki sá, sem vit ber mest; heldur sá, sem hjartaprúður hagar sér og reynist bezt; sé, sem blíður elskar alla, einkum Guð og frelsarann. Sá er mestur, sem er beztur, sannarlega það er hann.“ Þessi fagri sálmur eftir séra Valdimar Briem kemur mér í huga þegar ég hugsa til minnar horfnu vinkonu Ólafíu Guð- mundsdóttur. Hún dó 7. nóv. í Landakotspítala. — Enga mann eskju þekkti ég, sem betur hefur mátt heim færa þessi vers upp á. Hún var svo vönduð til orðs og æðis. Hún var trúuð kona og elskaði — ekki bara Guð föður og þann, sem hann sendi Jesús Krist — heldur líka mennina, eins og þeir eru upp og niður, misjafnir og misgóðir. — „Það eru allir menn góðir“, sagði hún, ef hún heyrði hallað á einhvern Hún átti ekki veraldarauð, en hún hafði yndi af að gleðja aðra og gera þeim gott, sem hún náði til og vissi að vantaði. — „Mér þykir svo gaman að gefa,“ var svar hennar, þegar ég sagði við hana: „Þú verður að gæta þín elskan. Þú getur misst heilsuna og þá þarftu á þínu að halda.“ — „Eg er ekki að hugsa um það. Eg á nóg, (Já, nóg á sá sér nægja lætur“ sannaðist þar) og Guð sér fyrir mér eins og öðrum. — Það eiga allir svo gott núna það eru spítalar og læknar og hjúkr- unarlið og sjúkrasamlög og tryggingar, sem hjálpa mönnum í veikindum. Það er eitthvað öðru visi en áður var.“ Ekki stóð hún hátt í metorða- 6tiganum. Var verkakona, sem vann verk sín af trú og dyggð, eamvizkusöm og glöð í geði. — Alltaf kurteis og vingjarnleg við alla æðri sem lægri. „Sá á mest- an sóma skilið, sem á anda hóg- væran.“ Ekki var hún skólagengin. Hafði aðeins lært í barnaskóla og skóla lífsins. — En henni var það meðfætt og eiginlegt, það var hennar eðli, að vera blíð og góð við alla. Enda var hún af góðu fólki komin. Poreldrar henn ar voru gæðahjónin Guðmundur Friðriksson og Guðmundína Jóns dóttir, sem voru náskyld og í ættlegg við Jón Sigurðsson for- eeta. Þau bjuggu á Hjallkárseyri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.