Morgunblaðið - 21.12.1962, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.12.1962, Blaðsíða 21
Föstudagur 21. des. 1962 MORCV IS BL AÐIb 21 4 úrvals jdiabækur i FYRSTA FERÐABÓKIN • UM VATNAJÖKUL NORÐUR YFIR V Á TNAJÖKUL 187 5 eftir W. L. WATTS JÓN EYÞÓRSSON íslenzkaði og samdi formála tJt er komin ferðabókin „Norður yfir Vatnajökul 1875“ eftir Englendinginn W. L. Watts, sem fyrstur manna fór ásamt íslenzka fjallamanninum PALI JÖKLI um Vatnajökul þveran. 1 þessari afar skemmtilegu og á köflum bráðspennandi bók segir frá einu mesta land- könnunarafreki á íslandi. Fjöldi gamalla mynda prýðir bókina. Norður yfir Vatnajökul er kjörin jólabók handa öllum, sem unun hafa af góðum ferðasögum og fegurð íslenzkrar náttúru. Sérstætt rit eftir sérkennilegan mann Út kemur nú í fyrsta sinn frásögn Magnúsar Stephensen, kon- ferensráðs af ferð hans til Kaupmannahafnar árið 1825 og dvöl hans við dönsku hirðina. 1 bók þessari, sem rituð er með hinum sérkennilega stíl og stundum skringilega frásagnarmáta Magnúsar eru alveg bráðskemmtilegar lýsingar á hirðlífinu og aldarhætti þessara tíma, nákvæmar myndir dregnar upp af kóngsböllum, veizluhöldum fyrirfólks, klæðabúnaði og heimilisháttum. Auk þess hefur bókm að geyma fróðleik um íslandsmálin á fyrsta fiórðungi síðustu aldar. Áður hefur forlag okkar gefið út verkið Merkir Is- lendingar í 6 bindum, sem var 30000 blaðsíður að stærð og hafði að geyma 100 ævisögur Islendinga frá ýmsum löndum. M€RKIR ÍSL€NDINGAR Út er komið ritið MERKIR ÍSLENDINGAR. Er þetta fyrsta bindi í NÝJUM FLOKKL í þessu fyrsta bindi, sem er 340 blaðsíður að stærð eru eftirtaldir: Skafti Þóroddsson, lögsögumaður Björn Einarsson, Jórsalafari Jón Arnason, biskup Snorri Björnsson, prestur Þorleifur Guðmundsson Repp Hannes Stephensen, prófastur Jörgen Pétur Havstein, amtmaður Jón Borgfirðingur, fræðimaður Jón Stefánsson, — Þorgils gjallandi, skáld Pétur Jónsson, á Gautlöndum Guðmundur Magnússon, prófessor Magnús Guðmundsson, ráðherra Bókin er hafsjór af fróðleik og sérstaklega er vanctað til frágangs hennar og útlits. Merkir íslendingar er rit, sem vekur heilbrigðan þjóðarmetnað og er prýði á sérhverju bókelsku heimili. Meö Valtý Stefánssyni Út er komin bókin „Með Valtý Stefánssyni“. Bjarni Benediktsson, ráðherra, ritar formálsorð fyrir bók- inni. Matthías Johannessen, ritstjóri, segir í sam- talsþáttum frá æsku og uppvaxtarárum Valtýs. Svo eru í bókinni fjöldi frásagnaþátta eftir Valtý og viðtöl við þjóðkunna menn. Bókin er í senn mjög fróðleg og skemmtileg aflestrar eins og fyrri bækur Valtýs, sem allar hafa verið metsölubækur. Með Valtý Stefánssyni er jólabók fyrir alla, jafnt karla, sem konur, unglinga, sem eldra fólk. Bókfellsútgáfan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.