Morgunblaðið - 06.02.1963, Blaðsíða 1
Mynd þessa tók Bjöm Pálsson um hádegisbil í gær í ís könnunarfluginu, sem farið var á vegum landhelgisgæzl-
unnar. Myndin sýnir ísrönd um 14 sjómílur austur af Galtarvita. Fleiri myndir og frásögn af hafísnum er á bls. 3.
RUSSAR
IUÚT-
MÆLA
samningum
Þjóðverja og
Frakka
Moskvu, 5. febrúar — (NTB)
ANDREI Gromyko, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, kallaði
í dag sendiherra Vestur-Þýzka-
lands og Frakklands á sinn fund
og afhenti þeim mótmælaorð-
sendingar Sovétstjórnarinnar
gegn samningi þeim um sam-
vinnu, sem 'Adenauer kanzlari
undirritaði nýlega í Farís. Efni
orðsendinganna verður ekki hirt
í Moskvu, að því er haft er eftir
áreiðanlegum heimildum, og fást
því ekki öruggar fregnir um inni
hald þeirra fyrr en viðkomandi
ríkisstjórnir hafa fengið þær í
hendur.
Talið er fullvíst að í orðsend-
ingunum séu harðorð mótmæli
gegn fransk-þýzka samstarfs-
samningnum og Þýzkalands-
Framh. á bls. 2
Gaulle
víttur
Straslbourg, 5. felbr. NTB.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Efna-
hagsbandalagsins, Walter Hall-
stein prófessor, réðist í dag
Iharkalega á Frakka á fundi Ev-
rópu-þingins í Strasbourg. Sagði
Hallstein að viðræðumar við
Breta um aðild að EBE hefðu
gengið vel, og getað borið ár-
angur, ef Frakkar hefðu ekki
gripið inn í viðræðurnar og
hindrað framhald þeirra. Sakaði
Hallstein Frakka um að hafa haft
að engu skuldbindingar banda-
lagsins. Einnig benti hann á að
beiting neitunarvalds í banda-
laginu væri skilyrðum háð.
Hallstein kvaðst feginn því að
fulltrúi Breta við viðræðurnar,
Edward Heath aðstoðarutan-
ríkisráðherra, hafi lýst því yfir
að Bretar muni ekki snúa baki
við Evrópu. — í>ví verðum við
að svara á þann hátt að við
munum ekki snúa baki við Bret-
um, sagði hann. Rakti Hallstein
nokkuð gang samningaviðræðn-
anna við Breta, og sagði það ein
Framh. á bls. 23.
DIEFENBAKER ER FALLINN
Stjórnarandstaðan sameinaðisft
um vantraust á Kanadastjórn
kosningar innan tveggja mánaða
OTTAWA, Kanada, 5. febrúar — (AP) —
S T J Ó R N Diefenbakers forsætisráðherra Kanada féll í
gærkvöldi þegar stjórnarandstaðan sameinaðist um van-
trauststillögu, sem borin var fram af Sósíal-kredit flokkn-
um. Verður þing því rofið og nýjar þingkosningar fara
væntanlega fram innan 60 daga. Miklar deilur hafa staðið
yfir í Kanadaþingi um varnarmálastefnu stjórnarinnar, og
lauk þeim með því að bæði Frjálslyndi flokkurinn, undir
íorustu Lesters B. Pearsons, og Sósíal-kredit flokkurinn
undir leiðsögn Roberts Thompsons, báru fram vantraust á
stjórnina. íhaldsflokkur Diefenbakers hefur ekki meirihluta
á þingi, og féll stjórnin þegar allir þrír andstöðuflokkarnir
stóðu einhuga að vantraustinu.
Deilurnar í Kanadaþingi
hófust í síðustu viku, eftir að
bandaríska utanríkisráðuneytið
T shombe f arinn f rá Kongó
Elisabethville, 5. fefer. (AP)
MOISE Tshombe, forseti Kat-
anga fór í dag flugleiðis til
Rhodesiu. Tilkynnti hann áður
en hann fór að tilgangur ferð-
arinnar væri að leita „nauðsyn-
legra lækninga“. Ekki sagði
Tshombe hvenær hann færi, en
meðan hann var að ræða við
fréttamenn ,beið hans ferðbúin
flugvél.
Á blaðamannafundi sínum i
dag vildi Tdhombe ekkert um
feað segja hvort hann yrði lengi
erlendis. „Læknarnir verða að
ákveða það“, sagði hann, og
kvaðst hafa þjáðst af augnveiki,
sem farið hafi versandi frá 1947.
Fréttamenn lögðu hart að
Tshomibe að skýra. frá því hve-
nær hann kæmi aftur til Kat-
atnga, en hánn svaraði engu. öðru
en að vísa til læknanna. Leiddi
•þetta til þess að raddir eru uppi
um að hann sé alfarinn úr landi.
Fjölskylda Tshombe býr sem
stendiur í Briissei.
krafðist þess að Kanadastjórn
samþykkti að búa eldflaugar sín-
ar og orrustuþotur kjarnorku-
sprengjum. Orsakaði krafa þessi
ákafar deilur í Kanada, og sak-
aði Diefenbaker Bandarikin um
frekleg afskipti af innanríkismál
um landsins. Varnarmálaráð-
herra Kanada, Douglas Harkness,
lýsti því svo yfir á mánudag, að
hann hafi ætíð verið þeirrar
skoðunar að búa bæri varnar-
kerfi Kanada kjarnorkuvopnum,
og reiknað með að það yrði gert.
Vegna ágreinings við Diefenbak-
er um þetta mál, kvaðst Hark
ness ekki geta starfað áfram
ríkisstjórninni, og sagði af sér
embættL
Á mánudagskvöld, eftir að
Harkness hafði tilkynnt aisögn
sína, bar Lester Pearson, leiðtogi
frjálslyndra, fram vantraust á
stjórnina. Seinna flutti svo leið-
togi Sósíal-kredit flokksins breyt
ingartillögu við tillögu Pearsons,
og er breytingartillagan sérstak-
lega orðuð á þann veg að allir
þrír stjórnarandstöðuflokkarnir
geti fallizt á hana.
Atkvæðagreiðsla átti að hefj-
ast skömmu eftir miðnætti í nótt
(ísl. tími).
Á Kanadaþingi eru alls
þingsæti, en tvö þeirra eri
265
skipuð. Þarf því vantrauststil-
lagan 132 atkvæði til samþykkt-
ar. íhaldsflokkur Diefenbakers
hefur 115 þingsæti, og er stjórn-
in því, minnihlutastj órn, en hef-
ur þingað til notið stuðnings
Sósíal-kredit flokksins, sem hef-
ur 30 þingsæti. Flokkur Pear-
sons, Frjálslyndi flokkurinn, hef
ur 99 þingsæti, og Nýi demó-
krataflokkurinn 19.
Berliín, i febrúar
austur-iþýzkir landa-
(AP).
TVEIR
mæraverðir notuðu sér vetrar-
ríkið í Evrópu til að flýja til
Vestur-Berlínar. Verðirnir tveir
áttu að gæta Oberbaum brúar-
innar y.fir ána Spree á borgar-
mörkunum. Skyndilega skiall
á kafaldsbylur, og gripu verð-
irnir þá tækifærið og hlupu yfir
til Vestur-Berlínar.
Færeyska nefndin á
leið til Danmerkur
í EINKASKEYTI frá frétta-
ritara blaðsins í Færeyjum
segir að þeir Hákon Djurliuus
lögmaður, Erlendur Paturs-
son, sem á sæti í landsstjórn-
inni, og Johan Djurhuus,
skrifstofustjóri, hafi um sex
leytið í gærkvöidi lagt af stað
með danska eftirlitsskipinu
Niels Ebbesen áleiðis til Ler-
wick á Shetlandseyjum. Það-
an fara þeir flugleiðis til
Kaupmannahafnar, sam-
kvæmt ósk dönsku stjórnar-
innar, til að ræða væntanleg-
ar aðgerðir varðandi fisk-
veiðilögscguna við Færeyjar.
Ákveðið hafði verið að
færeyská nefndin færi með
Catalina-flugvél frá Færeyj-
um til Kaupmannahafnar og
kom flugvélin til Torshavn á
mánudagskvöld. En flugvélin
komst ekki af stað frá Fær-
eyjum fyrir „kavaroki", eins
og segir í skeytinu.