Morgunblaðið - 06.02.1963, Blaðsíða 14
14
MORGVlSBLAÐlb
Miðvikudagur 6. febrúar 1963
Ábyggilegur piltur
eða stúlka óskast til afgreiðslustarfa nú þegar.
XUlieUZUli
Langholtsvegi 49
Innilegt, hjartans þakklæti færi ég öllum vinum mín-
um og vandamönnum sem heiðruðu mig á 70 ára af-
mæli mínu þann 20. f.m., með gjöfum, heimsóknum og
hlýjum kveðjum. Ég bið góðan guð að launa ykkur fyrir
mig og blessa ykkur framtíðina.
Sigurður Símonarson, Akranesi.
Sonur okkar og bróðir
ÞORKELL ALFREÐ ÞORKELSSON
húsasmiður
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness, 2. þ.m.
Jarðarförin fer fram laugardaginn 9. þ.m. kl. 2 e.h.,
frá Lágafellskirkju.
Húskveðja að heimili hans Krossamýrarbletti 14,
kl. 1,15.
Alfa Ásgeirsdóttir, Þorkell Einarsson
og systkini.
Jarðarför föður míns
VIGFÚSAR GUTTORMSSONAR
frá Stöð,
sem andaðist 26. þessa mánaðar, fer fram í dag mið-
vikudaginn 6. febrúar frá Fossvogskirkju, kl. 13,30.
Hermann Vigfússon.
Útför mannsins míns,
RAGNARS GUÐMUNDSSONAR,
verður gerð frá Fríkirkjunni, fimmtudaginn 7. febrúar
kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Þeir sem vilja minnast hins látna, eru vinsamlega
minntir á Minningarsjóð systkinanna frá Hrafnabjörgum
Kristín Sveinbjömsdóttir.
Útför föður okkar
MAGNÚSAR SKÚLASONAR
Þverveg 2 E,
sem 'lézt 31. jan í Landsspítalanum fer fram frá Foss-
vogskirkju, föstudaginn 8. febrúar kl. 3 e.h.
Elsa Magnúsdóttir og systkini.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem við
andlát frú
SIGRÍÐAR FJELSTED
sýndu minningu hennar virðingu og hlýjan hug og
vottuðu okkur samúð.
Ásta Fjelsted, Kristjana Blöndahl
Sveinn Ingvarsson, Sigfús Blöndahl.
Þakka hjartanlega öllum þeim er sýndu samúð og
vinsemd við andlát og útför konunnar minnar
KRISTÍNAR HAFLIÐADÓTTUR
Gísli Narfason
Innilegar þakkir færum við hinum fjölmörgu vinum
okkar og félagssamtökum sem vottuðu okkur vinsemd
og samúð vegna sviplegs fráfalls sonar okkar og
bróður,
MAGNÚSAR einarssonar,
búfræðikandidats.
Einar Ásmundsson,
Ragnar Einarsson,
Ingveldur Höskuldsdóttir,
Geir Zoega,
Dóra Sigurjónsdóttir,
Margrét Kjartansdóttir,
María Gísladóttir.
Jakobína H. Þórðardóttir,
Björn Einarsson,
Óskar Einarsson,
Sigríður E. Zoega,
Þórður Einarsson,
Ásmundur Einarsson,
Ásgeir Einarsson,
Samkomustaður æskufólksins
HERRA RITSTJÓRI.
Undanfarið hefur verið rætt og
ritað nokkuð um þá virðingar-
verðu tilraun, sem forráðamenn
samkomuhússins Lídó hafa gert,
með það fyrir augum að breyta
Lídó í sérstakan fyrirmyndar
skemmtistað handa æskufólki
Reykjavíkur og þá auðvitað gæta
þess vandlega, að áfengisneyzla
væri þar algerlega útilokuð.
Flestir, sem á þetta mál hafa
minnzt opinberlega, hafa fagnað
þessari tilraun og ég er einn í
þeirra hópi.
Eg vil jafnvel taka svo djúpt
í árinni að telja það höfuð-nauð-
syn að tilraunin mistakist ekki.
Enda þótt samkomuhús þetta
uppfylli ekki allar þær kröfur,
sem gera verður til slíks sam-
komustaðar, þá ræður það þó yfir
ýmsum góðum skilyrðum, og eftir
samtal, er ég hef átt Við hinn dug
mikla eiganda þess, Þorvald Guð-
mundsson veitingamann, trúi ég
þvi fastlega, að fyrir honum vaki
í einlægni hinn rétti tilgangur
með þessari tilraun. Og þó þeir
séu til, er vantreysta honum,
vegna þess að hann hefur stað-
ið fyrir og stendur enn fyrir
áfengisveitingum í öðrum greiða
sölustöðum í borginni, þá treysti
ég honum fyllilega.
Nokkuð hefur viljað bera á
því, að kastað hafi verið hnútum
að okkur templurum í þessu sam-
bandi og okkur álasað fyrir að
verða ekki fyrri til. Virðist þár
hafa gleymzt, að við höfum í
meir en 30 ár haft svona áfengis-
lausar skemmtanir fyrir alla,
yngri sem eldri, í G.T.-húsinu í
Reykjavík og viðar, og um tíma
einnig í Listamannaskálanum. Og
nú í nokkrar undanfarna vetur
höfum við um hverja helgi haft
sérstakar skemmtanir fyrir ungl-
inga í þessu húsi.
Að sjálfsögðu hefur öflugt eft-
lit verið haft þar með algerri úti
lokun áfengis. Við höfum meira
að segja gengið svo langt að af-
nema þar reykingar á unglinga-
skemmtunum okkar. Til þess hef-
ur Lídó þó ekki treyst sér, að því
er mér skilst.
Ekki' hafa ýkja margir orðið
til þess, opinberlega eða í blöð-
um, að láta þessa margra ár»
þakkarverðu viðleitni okkar
njóta viðurkenningar. Aftur á
móti hefur illvígur rógur og rætni
ómerkilegra blaða um Regluna og
þetta starf herinar hlotið öllu
betri uridirtektir. Hafa þó margar
húsmæður, með ánægju leyft ung
mennum sínum að fara út að
skemmta sér að kvöldi dags, ef
þau hafa lofað að fara í „Gúttó“.
Hinsvegar er þetta gamla hús
okkar, nú, orðið lítt samkeppnis-
fært, sökum aldurs og þess, að
það fær ekki að hýsa í einu, nema
á 2. hundrað ..íanns. Er því engu
verulegu hægt til að kosta í hljóm
sveit og annað til skemmtunar,
sem þó þarf engu að síður, ef ekki
öllu fremur, á slíkum skemmti
stöðum ungs fólks, sem er með
fullri dómgreind og því kröfu-
harðara um skemmtanagæði,
heldur en hálf- og al-drukkið
fólk á vínveitingastöðunum.
Eg hef oft óskað mér þess, að
ég ætti, eða hefði yfir að ráða,
40 til 50 milljónum króna. Þá
léti ég verða mitt fyrsta verk
að byggja, fyrir þær, fyrirmyndar
samkomustað fyrir æsku Reykja-
víkur, — þannig stað, sem Þor-
valdur Guðmundsson og menn
hans eru að reyna að benda á
með tilraun sinni í Lídó.
Því miður er þessi tilraun van
megnug á meðan ungmenni inn
an 21 árs hafa frjálsan aðgang
að vínveitingastöðunum, þar sem
þau geta hindrunarlítið, ef þau
vilja, fengið fullorðið fólk til
þess að kaupa fyrir sig áfengi,
eða að þessi ungmenni geta kom-
izt með áfengi með sér inn á
ýmsa aðra „áfengislausa“! staði
og drukkið sig ölvaða þar. svo
sem dæmin hafa margsannað.
Það er því höfuð-nauðsyn, að
hið opinbera komi þeim Lídó-
mönnum til hjálpar nú, bæði með
eftirgjöf skemmtanaskatts o. fl.
svo tilraun þeirra heppnist. E£
hún mistekst, lamar það kjark
og vilja annarra til þess að gera
aðra tilraun, og langt virðist enn
í land, að Góðtemplarareglunni
takist, vegna fjárskorts, að koma
upp hinni langþráðu byggingu
sinni á Skólavörðuhæðinni, —
en þeirri byggingu er, meðal ann
ars, ætlað það hlutverk, sem
byrjað hefur verið að fram-
kvæma í Lídó.
Samtímis því, sem hið opinbera
verður að rétta tilrauninni í
Lídó hjálparhönd nú þegar, verð-
ur með öllu að banna aldursflokk
um innan 21 árs aðgang að vín-
veitingahúsunum og loka slíkum
stöðum, vægðarlaust, sem brot-
legir reynast, — auka þess utan,
að miklum mun, eftirlitið og að-
haldið á þeim stöðum öðrum, er
berir hafa orðið að ölvun á
skemmtunum sínum.
Á meðan áfengisverzluninni
líðst að eyðileggja líf manna í
Reykjavík svo hundruðum og
jafnvel þúsundum skiptir árlega,
með skefjalausri áfengissölu, er
það að sjálfsögðu skylda yfir-
valdanna að styðja af fremsta
megni, með rífleguan fjárframlög
um, hverja vel meinta tilraun til
að stemma stigu við eyðilegging
unni.
Hér varðar mestu, hvað dóms-
málaráðuneytið og lögreglustjór-
inn í Reykjavík vilja gera í þess
um málum, þó fleiri geti að sjálf
sögðu stutt þessa aðila í góðu
verki.
Bréioskriftir - Bóbhuld
Ungur magjpr með haldgóða reynslu í viðskipta-
störfum óskar eftir að taka að sér bréfaskriftir eða
bókhald fyrir lítið innflutnings- eða iðnfyrirtæki.
Þeir sem áhuga hefðu á þessu leggi nöfn sín á
afgr. Mbl. merkt „1737“.
B ifvél avirkjar
eða menn vanir bílaviðgerðum eða
réttingum óskast strax.
Góð vinnuskilyrði. —
Upplýsingar í síma 15450.
V olks wagen umb oðið.
Unglingsstúlka
óskast til sendiferða á skrifstofu vora.
íbúð til sölu
í ágætu standi í sambýlishúsi á Melunum.
Upplýsingar í síma 15941 eða 36813.
Nýtt símanúmer
Framvegis verður símanúmer mitt á læknisstof-
unni 12811.
Árni Guðmundsson, læknir
Hverfisgötu 50.
Jörð til sölu
Jörðin Borgarfell III. í Skaftártungu, V.-Skafta-
fellssl., fæst til kaups og ábúðar, á vori komandi.
Byggingar góðar, rafmagn til ljósa, og sími. Jörð-
inni fylgir veiðiréttur í Tungufljóti.
Áhöfn og vélar getur fylgt ef óskað er. Leiga
getur komið til greina.
Nánari upplýsingar gefa eigandi og ábúandi jarð-
arinnar.
Jón Gunnarsson, Borgarfelli,
e ð a
Kristmundur Gunnarsson, Vík.
Freymóöur Jóbannsson