Morgunblaðið - 06.02.1963, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.02.1963, Blaðsíða 16
16 MORGini BL AÐIÐ Miðvlkudagur 6. febrúar 1963 O. MUSTAD €r SÖN, Oslo REGISTERID TRADE MARK M USTAD t' Key I Brand riSH HOOKS hafa framleitt fiskiöngla fyrir margar kynslóðir íslenzkra fiskimanna. Yfirburðir Mustadönglanna hafa alltaf reynzt ótvíræðir. Úrvals hráefni og þrotlaus nákvæmni í framleiðslu- háttum með áratuga reynslu að baki, gerir stöðug gæði Mustad önglanna örugg og trygg. Þannig hafa bátaformenn á Islandi áratug eftir áratug notað svo að segja eingöngu. MUSTAD ÖNGLA AF ÞVÍ AÐ: 1) þeir eru sterkir herðingin er jöfn og rétt húðunin er haldgóð lagið er rétt verðið er hagstætt 2) 3) 4) 5) Vertíðin bregzt ekki vegna önglanna, ef þeir eru frá Osló. Mustad önglar fást hjá öllum veiðai fœraheildsölum og kaupmönnum á landinu Ingimar Guðmunds- son kaupmaður 50 ára MERKISÁFANGA fimmtugs manns nær í dag vaskur og vin- sæll Vestfirðingur: Ingimar Guð- mundsson, kaupmaður í verzl- uninni Fáfni á Skólavörðustíg. Hann einn fjögurra systkina sinna er fæddur á móðurslóð norðut í Skagafirði — sonur merkishjónanna Jónínu Sveins- dóttur og Guðmundar Snorra Finnbogasonar kaupmanns, sem lengst af bjuggu í ÞVerdal í Aðalvík. Það má með sanni segja, að Ingimar hafi á margt lagt gjörva hönd. í uppvexti urðu honum töm algeng störf til sjós og lands. Seinna varð hann nokkra vetur smiða- og söngkennári á Hvann- eyri og síðar eftir hendinni bíl- stjóri, ökukennari, húsvörður hjá SÍS, verkstjóri, framkvæmda stjóri skátaheimilis, kjallara- meistari í hinu flottasta veitinga húsi, húsgagnasmiður og kaup- maður. Öll þessi sundurleitu störf hafa farið manninum vel úr hendi; hann ávallt sýnt dugn- að og samvizkusemi og allsstað- ar verið vinsæll og virtur af yfirmönnum, félögum og undir- mönnum. Er slíkt engan veginn á allra færi. Félagsmaður er Ingimar ágæt- ur. Hef ég einkum í huga for- ystu hans í einu sérstæðasta heimbyggðarfélagi landsins — Atthagafélagi Sléttuhrepps — en þar hefur hann og hans fólk alla tíð verið lifið og sálin. Veit ég hvorki fjölþættara né fjör- ugra líf í nokkru slíku félagi, Japanskar prjónavélar Öndvegis vara. — Undra verð Fyrsta sending uppseld. Önnur sending væntanleg fljótlega. Vinsamlegast talið við okkur, sem allra fyrst. Hngt_KiilUiU Eirlkur Ketilsson Garðastræti 2 — Símar: 23472 & 19155. Iceland Vömmerkið ..CEI10PHM“ Hér með tilkynnist, að framleiðslufyrirtækið British Cellophane Limited, Bath Road, Bridg- water, Somerset, Englandi, er skrásettur eigandi á íslandi að vörumerkinu: „CELLOPHANE“ sem er skrásett Nr. 175/1947 fyrir arkir úr cellu- lose og celluloseumbúðir og innpökkunarpappír og nr. 164/1956, sem er skrásett fyrir cellulosepappír í örkum og rúllum, skorin stykki, ræmur undnar á kefli; poka og umslög, allt til umbúða- og inn- pökkunar notkunar. Notkun orðsins „CELLOPHANE" um ofanskráð- ar vörur, merkir, að þær séu framleiðsla British Cellophane Limited, og notkun þess um sérhverja aðrar vörur er því brot gegn rétti British Cello- phane Limited. AÐVÖRUN Komið mun verða í veg fyrir slík réttarbrot með lögsókn til verndar hagsmunum viðskiptavina og notenda, og eiganda ofangreinds vörumerkis. Verzlunarhúsnæði Viljum taka á leigu verzlunarhúsnæði í Reykjavík um mánaðamótin september— október- Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 25. febrúar merkt: Húsgögn — 6140. Veðskuldarbréf Höfum kaupendur að fasteignatryggðum veð- skuldarbréfum 4 til 10 ára og ríkistryggðum veð- skuldarbréfum til 15 ára. MÁLFLUTNINGS- OG FASTEIGNASTOFA Agnar Gústafsson hrl. Björn Pétursson, fasteignaviðskipti. Austurstræti 14 — Símar 17994, 22870. 3ja herbergja íbúð til sölu Til sölu er rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í sambýlishúsi við Safamýri. íbúðin er nú þegar. tilbúin undir tréverk, sameign inni múrhúðuð, húsið fullgert að utan, tvöfalt gler í gluggum, handrið á stiga. íbúðin er tilbúin til afhendingar strax. " ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur — Fasteignasala Suðurgötu 4. — Sími: 14314. Gœruúlpur verð aðeins kr. 990.— en í því hefur Ingimar verið formaður á annan áratug, og er enn. Er ótalið það fé og sú fyrir- höfn, sem hann hefur þarna lagt fram, en víst á hann hlýjan þakklætishug margra innan þeirra samtaka, ekki sízt gamla fólksins, sem bezt finnur, hví- líkan hauk það þarna á 1 horni. Fórnfýsi formannsins og ósér- hlífni tel ég til mikillar fyrir-' myndar. f Frímúrara- og Kaup- mannasamtökunum starfar Ingi- mar einnig, og er gallharður sjálfstæðismaður, eins og flestir hans núverandi stéttarbræður. Ingimar er hinn bezti dreng- ur, “ góðviljaður og hverjum manni hjálpsamari. Hann er grandvar maður til orðs og æðis og ætlar engum illt. Söngvinn og músíkalskur er hann vel, svo sem fleira hans fólk, og er ó- sjaldan tekið lagið þar, sem þau systkin eru saman komin, oftast við undirleik Ingimars. Þá get ég ekki látið vera að geta þess, hversu innilega barngóður Ingi- mar er. Hef ég oft dáðst að því, hve auðvelt honum er að vinna tiltrú barna og af hvílíkri „hjart- ans lystisemd" þau una leik hans og atlæti. Á ég margar slíkar stundir að þakka vegna barnabarna minna. Kvæntur er Ingimar hinni á- gætustu konu, Sigþrúði Helga- dóttur. Þau eiga tvo mannvæn- lega syni: Háuk, 19 ára, við nám í Menntaskólanum, og Ingimar Snorra, 15 ára, í gagnfræðaskóla- námi. Heimili þeirra að Dal- braut 3 er rómað fyrir myndar- skap, gestrisni og hlýtt Viðmót. Mun þar nú vera glatt á hjalla í dag, ef ég þekki rétt, mikið borð- að og drukkið — og mikið sung- ið! Eins og sjá má, eru þessi orð engin æviminning. Hvort tveggja er, að vonandi er langur starfs- dagur framundan, og svo hitt. að Ingimar mun lítt kæra sig um mikla opinbera „útmálun". Ég get þó ekki stillt mig um að senda afmælisbarninu og ást- vinum þess hugheilar árnaðar- óskir í tilefni af náðum áfanga, og þakka ánægjuleg vinakynni við mig og fólk mitt um margra ára skeið Heill þér, ungi maður! „Hin gömlu kynni gleymast ei....“ B. Þ. Kr. Svissneskir náms- styrkir SVISSNESK stjórnarvöld bjóða fram tvo styrki handa íslend- ingum til háskólanáms í Sviss háskóiaárið 1963 — 1964. Ætlazt er til þess, að umsækjendur hafi stundað nám í háskóla um að minnsta kosti tveggja ára skeið. Styrkfjárhæðin er 450 — 500 svissneskir frankar á mánuði fyrir stúdenta enn allt að 700 frankar fyrir þá, sem lokið hafa kandidatsprófi. — Þar sem kennsla í svissneskum háskól- um fer annað hvort fram á þýzku eða frönsku, er nauðsynlegí, að umsækjendur hafi nægilegi þekkingu á öðru hvoru þessara tungumála. Umsóknum um styrk þennan skal komið til menntamálaráðu- neytisins, Stjórnaráðshúsinu við Lækjartorg, eigi síðar en 10. marz n.k., og fylgi staðfest af- rit prófskírteina, svo og meðmæli. Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu. Miinchen, 1. febr. (NTB) MAX Frauendorfer, sem á stríðsárunum var aðstoðarmaður Heinrichs Himmlers, yfirmanna SS-sveita Hitlers, hefur sagt lausu sæti sínu í vestur þýzka sambandsþinginu. Hefur kjör hans til þings sætt mikilli gaga- rýni að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.