Morgunblaðið - 06.02.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.02.1963, Blaðsíða 24
„LÚGBIRTINGUR" HVARF í LEIGUBIFREIÐ frá BSR var stolið nokkru eftir hádegí í gær, þar sem hún var fyrir framan pósthúsið í Reykjavík. í bifreiðinni voru hlaðar af Lögbirtingarblaðinu, sem vérið var að flytja í pósthúsið. Ökumaðurinn hafði farið inn með fangið fullt af Lögbirting. Þegar hann kom út aftur var bifreiðin horfin með allan blaða- bunkann. Hafin var leit að biíreiðinni, sem fannst síðdegis á bifreiða-1 stæðinu á móts við Sænsika, frystithúsið. Lögbirtingiarblaðið var enn í ÍSLENDINGARNIR KOMAST EKKI HEIM FRÁ KANADA B.S.R. BIL Akraborg kom í gær til Rvík- ur með 450 tunnur af milli- síld, sem hann hafði fengið á miðunum austur af Vest- mannaeyjum. Það tók Akraborg 30 klst. að sigla með síldina af mið- unum til Reykjavíkur. fsing mikil hlóðst á bátinn á leiðinni, eins og sjá má. Ljósm. Mbl. Sv. Þ. Eörn kveiktu í olíunni SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt að Skálagerði 15 kl. 16 í gærdag. Þar var eldur í loftpressu. Olía hafði lekið af loftpress- unni og safnazt í poll undir henni. Böm báru eld að og og kveiktu í olíunni. Fljótlega tókst að slökkva eld- inn, en loftpressan skemmdist töluvert. MARGIR íslendingar, sem flutzt hafa til Kanada undan- afrin ár, vilja komast aftur heim til íslands, en geta það ekki sökum fjárskorts. Þetta kemur m.a. fram í við- tali, sem Morgunblaðið hefur átt við íslenzkan smið, Guðmund Jóhannsson, sem fór með fjöl- skyldiu sina til Kanada og starf- aði þar í 4 ár. Guðmundur ráðleggur íslend- ingum frá því, vegna reynslu sinnar, að flytjast búferlum tii Kanada, sökum þess að mikið atvinnuleysi sé í landinu ag það sé á margan hátt skemmra á veg komið en ísland. Hann segir, að öryggisleysi sé mikið meðal Kanadabúa og flestir íslendingar þar hafi orð- ið fyrir skakkaföllium, a.m.k. fyrstu ár sín í landinu. Miklu meiri Mkur séu fyrir þvd að menn verði óheppnir. Þungt haldinn af eitrun „Énginn ætti að fara þangað nema hafa 'tryggt sér fasta at- vinnu áður og helzt húsnæði. Fari rruenn til Kanada settu þeir skilyirðislaust að búa svo um hnútana fyrst, að þeir kom- ist til baka hvenaar sem þeim sýnist“, segir Guðmundur í við- t&linu. Sjá „Hvað segja þeir í frótt- unum“ á blaðsíðu 10. henni ,en kveikjiulyklarnir Ihiorfn ir. Vonir standa til að kaupenid- ur Lögbirtings fái blað sitt með skilum innan tíðar . MAÐUR BREMINIIST slla t rúmi sínu SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt að húsinu Bjarnastaðir við Tómas- arhaga kl. 23.24 í gærkvöldi, en þar hafði kviknað í rúmfötum og dívan í kjallaraherbergi. Maðurinn, sem býr í herberg- inu, Sæmundur Guðmundsson, hafði sofnað út frá sígarettu að því að talið er og eldur komizt þannig í rúmfötin. Maður af efri hæð hússins var á leið út og varð var við reyk- inn. Hann gerði slökkviliðinu þegar aðvart og tókst honum ennfremur að bjarga Sæmundi út úr herberginu. Sæmundur var fluttur í Slysa- varðstofuna og síðar í sjúkra- hús. Hann brenndist illilega á fótum, brjósti og síðu, þó ekki lífshættulega að því að læknar töldu í gærkvöldi. Rúmfötin og dívaninn eyðilögð- ust, en ekki urðu aðrar skemmd- ir í herberginu. ÞÝZKA HJÚKRUNAR- KONAN LÉZT / GÆR Þakkað fyrir „sleggjuhamar“ „SÍLDVEIÐIBÁTAR við Vest- mannaeyjar“ — Vinsamlega var- izt hvers konar aðskotahluti í samhandi við síldarlöndun. Ein- hver af bátunum hefur sýnt þá hugulsemi að láta okkur í té sleggjuhamar með síldinni. Þetta þýðir sólarhringsstöðvun á verk- smiðjunni með bráðabirgðavið- Götjnin nú komin til Eyga Vestmannaeyjum, 5. fehrúar. RÉTTARHÖLD í máli skipstjór- anna af Djúpavogsbátnum Sæ- valdur SU-2 og Vestmannaeyja- bátnum Björn riddari hófust kl. 1.30 í dag, en þeir voru teknir fyrir ólöglegar togveiðar út af Hjörleifshöfða á laugardag. Leiguflugvél landhelgisgæzl- unnar stóð bátana að veiðunum og komu til Eyja í dag með Herjólfi gögn frá Landhelgisgæzl unni sem miálið varðar. Búizt er við, að réttarhöld- uniim muni ljúka í dag. — FréttaritarL gerð. — Fiskimjölsverksmiðjan, V estmannaey jum. Þannig hljóðar auglýsing, sem var tvílesin í Ríkisútvarpinu í gærkvöldi. Vinnsla síldar í Fiskimjölsverk smiðjunni í Eyjum stöðvaðist klukkan 3 í fyrrinótt eftir að hamarinn hafði lent í press- unni. T. d. kengbognaði 114 tommu þykk styrktarplata af völdum hamarsins. Búizt er við, að sólarhringstöf verði af þessu. Vonast var til að með bráðabirgðaviðgerð kæm ist verksmiðjan aftur í gang sl. nótt. Meðalafköst verksmiðjunnar eru 3000 tunnur á sólarhring. í fyrri lenti % kíló lóð í press- unni og var tjónið á henni metið 35 þúsund krónur. Skemmdirnar núna urðu tals- vert meiri. Stöðin bilaði RAFMAGNSLAUST varð í 15— 20 mínútur í nokkrum hverfum í Reykjavík í gærkvöldi, svo og Akranesi og Keflavíkurflugvelli. Ástæðan var, og rofi rauf sam- band við spenni í Eiliðaárstöð- inni, sem var yfirhlaðinn. Fyrir nokkrum dögum var send sjúkraflugvél til Ólafs- víkur til að sækja þangað veikan mann, Guðbjörn Gunn- laugsson, sem fluttur var á Landsspítalann. Guðbjörn liggur þungt hald inn á lyflæknisdeild spítalans, en álitið er, að hann hafi drukkið vökva sem innhélt kvikasilfur. Hann mun hafa verið á háti, sem gerður er út frá Ólafs-Í vík. / Stígandi aflahæstur Vestmannaeyjum,, 5. febrúar. EFTIRTALDIR línubátar voru aflaihæstir hér laugardaginn 2. febrúar: Stígandi VE 132 tonn, Snæfugl SU 127 tonn, Júlía VE 109, öðlingur VE 102 og Kap VE 100 tonn. — Fréttaritari. ROSMARIE Kunze, yfirhjúkrnn- arkona við Heilsuhælið í Hvera gerði, sem höfuðkúpubrotnaði er hún féll af hestbaki sl. laugar- dagskvöld, lézt í gær í Landa- kotsspítala. Hún kom aldrei til meðvitundar eftir slysið. Ros- marie var fædd 24. júlí 1925 í Berlín. Hj úkrunarkonan koan frá Ham borg til íslands 4. október s.L, en systir hennar Susie stariaí' við Heilsuhæli NáttúrTulækninga- félagsinis í Hveragerði . Með Rosmarie kom 11 ára sonur hennar til landsins og er hann nú fyrir austan. Ekki er vitað með vissu hvem- ig slysið bar að höndum, en eins og Morgunblaðið skýrði frá í gær, fóru þær systur í reiðtúr á laugardag, en Susie á tvær hryss ur, aðra skjótta, sem ekkii er allra meðfæri. Rosmarie átti að fara með skjóttu hryssuna í hesthús á íaugardags’kvöld. Fann Susie systur sína nokkru síðar skammt þar frá meðvitundarlausa og illa slasaða. Var hún fyrst flutt til Selfoss og síðar á Landakots- spítala, þar sem höfuðaðgerð var gerð á henni. Rosmarie komst aldrei til meðvitundar eftir slysið. Rosmarie Kunze. «1 BREZKUR TOGARI IMÆR AIMIMAM HVERM DAG TIL ÍSAFJARÐAR FLEIRI en 150 brezkir tógar- ar komu til hafnar á fsafirði árið 1962 og voru þeir nærri 100 fleiri en árið áður. Þeir greiddu tvær milljónir króna í gjöld og viðgerðarkostnað þar auk verulegrar fjárhæðar fyrir sjúkrahúslegu brezkra sjómanna. Árið 1962 tóku íslenzk varð skip 12 brezka togara fyrir landhelgisbrot og voru flestir þeirra frá Fleetwood. Brezku togaramir greiddu rúmlega 3,1 milljón króna í sektir og auk þess voru veiðar færi og afli gert upptækt í hverju máli. Þetta kemur fram í grein, semi brezka blaðið Fishing News birtir um fsland og ber fyrirsögnina „Leyndarmálið nm velmegun fslands". Greinin f jallar að mestu um síldveiðar við fsland og sagt er frá hinni nýju tækni, sem beitt er við síldveiðarnar hér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.