Morgunblaðið - 06.02.1963, Síða 13
Miðvikudagur 6. febrúar 1963
MORGVTSBL AÐIÐ
13
Fugladauðinn og
olían á héfunum
| """ jT'fi JT- - “ I. *- ,TT'
OLÍUBRÁKIN á heimshöfunum
er orðin alþjóðavandamál, því
hún drepur sjófugla víðsvegar
um heim þúsundum og aftur þús
undum saman. Oft hefir borið á
þessu fuglafári hér við land, fyrst
og fremst við Faxaflóa og hér í
kringum hö-fuðborgina. Börn hér
í Reykjavík hafa oft fundið hálf-
dauða æðarfugla, sem verið hafa
að velkjast í fjörunum, kaldir og
olíublautir. Þau hafa borið þá
heim og baðað þá úr þvottaböl-
um, látið þá þorna og borið þá
síðan aftur niður að sjó, en árang
urinn hefir jafnan reynzt hæp-
inn.
Albert í Gróttu og æðarfuglinn.
Albert vitavörður í Gróttu, sá
höfðingsmaður, sem á marga vini
hér í Reykjavík, þekkir líka
þessa sögu. Hann hefir marg-
sinnis fundið ósjálfbjarga fugla
í víkinni við bæ sinn og reynt
að líkna þeim, en oft með litlum
árangri. Æðarfuglar, sem eru í
hjúkrun, þurfa mat sinn og eng-
ar refjar. Albert hefir skorið úr
kræklingi og gefið þeim, en hver
fugl þarf um eitt kíló af mat
á dag, ef vel á að vera. — Það er
því tafsamt að eiga mörg slík
fósturbörn.
Nágrenni höfuðborgarinnar er
ekki hið eina svæði, sem goldið
hefir afhroð á þessu sviði. Fyrr
á tímum var t. d. ströndin úti
fyrir Mýrum morandi af fugli, en
á síðari árum hefir orðið stór-
breyting þar á. Tvennt hefir
valdið, minkaplágan og olían á
sjónum. f sumar sem leið sá bónd
inn á Ökrum eitthvað skreiðast
áfram úti á leirunum í Akraósi.
Gekk hann þangað til að forvitn
ast um hvað væri. Rakst hann
þar á hálfdauðan himbrima,
blautan í olíu og ataðan í leir,
svo fuglinn gat varla hreyft sig.
Slíkur er endir margra fugla þar
um slóðir.
Nýtt ráð fundið.
Þess hefir nýlega verið getið
í erlendum blöðum, að brezk
stúlka, sem mikið hefir að því
gert, að bjarga olíublautum fugl
um í sínu byggðarlagi, hafi gert
þá tilraun, með ágætum árangrj,
að baða fugla, ekki úr vatni, held
ur úr þurru krítardufti, þ. e.
mulinni krít. Krítin loðir ekki
við fiðrið, en drekkur í sig oMuna.
Svnoa krít fæst í málningarbúð
um víðsvegar um heim, einnig
hér á landi. Hún er auk þess
mjög ódýr.
Hvað verður um olíuprammann?
í sumar sem leið, kom það ó-
happ fyrir, að oMuprammi Olíu
félagsins h.f. rakst, fullhlaðinn
hráolíu, á sker í Hvalfirði og
sökk. Mun farmurinn alls hafa
verið 200 smálestir. TaMð er, að
um 20 tonn af olíunnir hafi flot-
ið upp og rekið víðsvegar um
Hvalfjörð. Þarna rétt hjá, þar
sem pramminn sökk er æðarvarp
á bænum Hvammi, sem fólkið
befir um margra ára skeið reynt
að hlynna að og rækta. Þegar
oMan flaut upp, blotnuðu hópar
af æðarfugM, sukku og drukkn-
uðu. — Ekki verður þó úr því
skorið að sinni, fyrr en eftir
næstu varptíð, fyrir hvað miklum
skaða fólkið á þessum bæ hefir
orðið, en öll sanngirni mælir
með, að réttar skaðabætur verði
greiddar. Á það má minna, .að
fyrir utan nokkrar heimiMstekj-
ur af eggjum, kostar hvert kiló
af æðardún nú 1600 krónur.
Hér var um slysaóhapp að
ræða, og ekkert við því að segja
Oddssknrð óiært
nú fyrsl í vetur
NORÐFIRÐI, 4. febr. — Hér
byrjaði að snjóa í gær og er
Oddsskarð nú ófært. Hefur það
ekki áður borið við að vegur-
inn hafi haldizt fær öllum bif-
reiðum svo lengi.
Fjárhagsáætlun Neskaupstað-
ar liggur nú fyrir. Hækka niður-
stöðutölur úr kr. 7.124.000 í kr.
8.913.000. Útsvör eru áætluð kr.
4.959.500 og aðstöðugjöld kr. 1,6
millj. í fyrra voru útsvör kr.
4.916.200 og aðstöðugjöld kr.
1.147.400. Framlag jöfnunarsjóðs
er áætlað kr. 1.832.000. —
Hér hefur verið mikill vatns-
skortur í vetur. Vatnsveita bæj-
arins býggist eingöngu á rennsli
yfirborðsvatns og dregur fröstið
strax úr rennslinu. Reynt hefur
verið að bæta úr brýnustu þörf-
um með því að flytja vatn innan
úr Norðfjarðará.
Norðlendingar hér í bæ héldu
þorrablót um síðustu helgi í
Egilsbúð. Á blótinu voru uim
270 manns og fór það hið bezta
fram. Eru ^þessi árlegu þorra-
blót talin einhver bezta skemmt
un. Blót þetta var hið 20. í röð-
inni. — Jakob.
Breytingar hjá
Kaupfélagi
Þingeyinga
HÚSAVÍK, 4. febr. — Járn og
glervörudeild Kaupfélags Þing-
eyinga hefur verið lokuð frá ára-
mótum vegna gagngerðra breyt-
inga. Búðinni hefur nú verið
breytt í samræmi við kröfur tím
út af fyrir sig. Pramminn stakkst
á nefið og sökk á 30 m dýpi. Gat-
ið, sem á hann kom, er hann rakst
á skerið, snýr niður. Þar sem
hann Mggur í leirnum í fjarðar-
botninum. En 180 smálestir af
hráolíu eru þar eftir, og ef ekkert
ar að gert, hlýtur flakið á sín-
um tíma að ryðga í sundur, svo
hver einasti dropi af olíu, sem
það hefir að geyma, mun fljóta
upp á yfirborð sjávar og dreifast
um Hvalfjörð og víðsvegar um
Faxaflóa.
Hér skal ekkert um það dæmt,
hver hafi eignarrétt á þessu
flaki, eða beri á því ábyrgð, hvort
heldur það sé olíufélagið sjálft,
eða vátryggjendur. Hitt er víst,
að flakið má ekki gleymast. Það
hlýtur þá að verða til bölvunar
á sínum tíma. Mið tilliti til þeirra
tækja, sem menn hafa til köfun-
ar, er þétta dýpi á engan hátt ó-
viðráðanlegt. Ríkisstjórninni ber
því að ganga ríkt eftir því, að
prammi þessi verði því tekinn
upp, þegar á næsta sumri. .
K. S.
Haraldur Jensson, skipstjóri, í brúnni á Reykjafossi. Myndin
birtist í Fædrelandsvennen í Kristiansand.
Eimskip gerir tilraun
með fastar Noregsf erðir
Fædrelandsvennen ræð/r v/ð skipstióra Reykjafoss
EIMSKIPAFÉ1.AG Islands
gerir um þessar mundir til-
raun með fastar mánaðarleg-
ar áætlunarferðir milli fs-
lands og Noregs. Slíkar ferð-
ir hafa ekki verið milli land-
anna frá þvi Lyra hætti þeim
skömmu eftir stríð.
Viðskipti milli fslands og
Noregs hafa aukizt og því
þægilegra fyrir marga aðila
að fastar áætlunarferðir séu
fyrir hendi.
Tilraunin hófst í nóvember-
mánuði og hefur verið siglt
til Kristianssand. Þetta fyrir-
komulag verður reynt í 6
mánuði til að byrja með.
Þessi tilraun Eimskipafé-
Iags íslands hefur vakið at-
hygli í Noregi. Blaðið Fædre-
landsvennen í Kristianssand
átti fyrir skömmu viðtal
við skipstjórann á Reykja-
fossi, Harald Jensson, er skip-
ið var þar í Höfn.
Morgunblaðið birtir hér
kafla úr viðtalinu. Blaðamað-
ur frá Fædrelandsvennen
spyr:
— Og hvað komið þér með
í þetta skipti?
— Hér eigum við að losa
145 tonn af stykkjavöru og
höldum svo áfram til Moss
með 320 tonn.
— Hverjar eru helztu vör-
urnar, sem við flytjum inn
frá íslandi?
— Fyrst og fremst fiskaf-
urðir. f þessari ferð flyt ég
lýsi. En það er alls ekki svo
lítið af síld eða kjöti sem fer
frá íslandi til Noregs.
— Og hvað sendum við til
íslands?
— Það eru ýmis konar
vefnaðarvörur og veiðarfæri
— auk trjávöru og pappírs
sem eru hinar venjulegu
norsku útflutningsvörur.
— Og nú eigið þér að hafa
fastar Kristianssandsferðir?
— f auknum mæli, já. En
annars eru það margar hafnir
á meginlandinu, sem við höf-
tam fastar ferðir til, í Þýzka-
landi, Hollandi og Eelgíu —
Gautaborg og Kaupmanna-
höfn. í þessari ferð eru
Gdynia og Rostock einnig
með í áætluninni.
— Hvaða íslenzkar hafnir
eru með í spilinu?
— í rauninni allar — og
það er ekki eins lítið og þér
haldið. f þessari ferð komum
við á 18 hafnir, fóru . um-
hverfis allt ísland, áður en
við héldum til Evrópu.
ans og er björt og vistleg. Frek-
ari breytingar eru fyrirhugaðar
á kjötbúð og nýlenduvörubúð.
Bnímognsbilanir d Suðurlnndi
vegnu veðurs um helginu
í ÓVEÐRINU sem gerði á sunnu
dag uxðu rafmagnstruflanir á
nokkrum stöðum á Suðurlandi.
Um hádegi á sunnudag brotnaði
t.d. slá á Kjalarneslínunni í
mýrinni fyrir ofan Álfsnesmela.
Varð við það rafmagnslaust í
Kjósinni. Veður var ofsalegt um
það leyti, og tafði það -viðgerð.
Urðu viðgerðarmenn að ráðast í
viðgerðina í þremur lotum, en
stóðu í höm á milli. Tókst Jjó að
koma línunni í lag um mið-
nætti.
Tvær aðrar bilanir urðu á
Kjalarneslínunni og bæir á Kjal-
arnesi og í Kjós rafmagnslausir
meðan viðgerð fór fram.
Smávegis truflanir urðu í gær-
morgun vegna kraps við Ljósa-
foss og írafoss, sem stafaði af
veðrabreytingu, er skyndilega
kólnaði samfara roki. Varð að
stöðva vélar og hreinsa ristar og
taka álag af nokkrum hverfum
í Reykjavík á meðan. Olli það
nokkrum truflunum í bænum kl.
8—9 um morguninn. Þessar upp-
lýsingar fékk blaðið hjá Indriða
Einarssyni, verkfræðingi.
Þak sleit háspennustreng
Austur í Villingaholtshreppi
fauk þak af útihúsi í Bár á há-
spennustrenginn og sleit hann.
Var gert við hann og var raf-
magnslaust á bæjum í 1—2 tíma
af þeim sökum. Aðrar bilanir
urðu austur undir Eyjafjöllum
og var verið að gera við þær i
gær.
Þá var samsláttur á línum f
Ölfusinu, og urðu af því truflan-
ir á rafmagni á sunnudag.
París, 4. febrúar. (NTB)
Skoðanakönnun hefur farið
fram í Frakklandi um álit í-
búanna varðandi aðild Breta
að Efnahagsbandalagi Evrópu.
Leiddi könnunin í ljós að 22)4
voru móttfallnir aðild Breta,
35)4 voru fylgjandi Bretum,
en 43)4 höfðu ekki myndað
sér álkveðna skoðun.