Morgunblaðið - 06.02.1963, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐ1Ð
MiBvíkudagur 6. febrúar 1963
PATKICIA WENTWORTH:
KEMUR I HEIMSÓKN
XXVII.
Lðgreglustjórinn lagði frá sér
skjölin, sem Drake fulltrúi hafði
komið með til hans. Hann sá
fram á leiðinlegan og annasam-
an dag. Honurn fannst Drake
áhugasamur og afkastamikill, en
afskaplega ólíklegur til góðrar
samvinnu. En engar þessar hugs
anir komu fram í svip hans.
Drake, sem var jafnan reiðu
búinn til að rjúfa .þögnina, tók
upp þráðinn á ný:
— Eins og þér sjáið, sýnir
læknisrannsókn, að hann hefur
dáið einhverntíma milli klukkan
níu og ellefu. Nú vitum við, að
hann var lifandi klukkan níu,
af því að þá heyrði frú Mayhew
hann tala. Ef við vissum, hve-
nær hann borðaði síðast, gætum
við komizt ennþá nær um tím-
ann, en það er ekki hægt um
vik, þegar kaldur matur var skil-
inn eftir handa honum. En þeir
halda, að það geti ekki hafa
verið síðar en klukkan ellefu.
Jæja, en nú sá frú Mayhew
þessa regnkápu blóðuga klukkan
kortér fyrir tíu. I>að sýnir, að
hann hefur verið dáinn innan
hálftíma frá því, að ungfrú Cray
var hjá hónum, samkvæmt eigin
játningu. Ef hann hefur verið
dáinn á þessum tíma, gefur
framburður ungfrú Moore Rob-
ertson fjarverusönnun — hann
var hjá henni þangað til tíu
mínútum fyrir tíu. En ég hef
hitt frú Mayhew aftur, og ég get
ekki verið viss um, sai.ikvæmt
framburði hennar, að það hafi
verið svona mikið blóð á erm-
inni, þegar hún sá hana. En þeg-
ar ég gekk betur á hana, þá
sagði hún, að ermin hefði ekki
verið gegnvot en aðeins blettótt.
Og það gæti komið heim við
þessa rispu, sem ungfrú Cray
talar um. Samkvæmt þessu lít
ég þannig á málið: Ungfrú Cray
fer heim til sín, eins og hún seg-
ir, klukkan kortér yfir níu. Ung
frú Bell staðfestir þetta. Við vit
um ekki, hversvegna hún skildi
regnkápuna eftir, en hitt er víst,
að hún skildi hana eftir. Mín til-
gáta er sú, að þau nafi farið að
rífast og hún hafi þotið af stað í
reiði sinni og alveg gleymt
kápunni, eða þá, að hann hafi
farið að gerast nærgöngull við
hana og hún hafi orðið hrædd
Og tekið til fótanna. Að ég held,
hefur svo annað tveggja skeð:
Annaðhvort hefur ungfrú Cray
munað eftir þessari erfðaskrá,
sem 'gat fært henni heila milljón
í hendurnar, og um leið man
hún eftir regnkápunni og fer til
að ná í hana. Hr. Lessiter situr
við borðið sitt þarna, Hún fer
í kápuna, gengur yfir að arnin-
um, eins og hún ætlaði að fara
að hita sér, grípur skörunginn
— og síðan .. Svo kemur hún
heim til sín og þvær kápuna. Það
var víst full þörf á því!
Lögreglustjórinn hristi höfuð-
ið.
— Kemur ekki til rrfekkurra
mála!
—• Ekki vil ég nú segja það.
Þetta er annað tveggja, sem hlýt
ur að hafa gerzt. Hitt er, að hr.
Robertson hafi komið við í Mell-
ing húsinu á leið sinni frá Lent-
on. Hann kemur þar um hálf-
ellefu, gengur inn og sér regn-
kápuna — þér munið, að það
var hann, sem átti hana. Hann
þekkir hana, alveg eins og frú
Mayhew gerði, á fóðrinu. Þér
verðið líka að muna, að hann
var ekki í neinni yfirhöfn sjálf-
ur. Hann tekur kápuna og fer í
hana. Hann þarf ekki mikið til
að gera sér erindi að arninum.
Það var nístingskalt, og hann
hafði verið úti í kuldanum, svo
að þetta lá ekki nema beinc við.
Jæja, þarna er hann þá með
skörunginn í hendinni, svo að
segja.
Randal March hallaði sér aft-
ur í sætinu.
— Er þetta alltsaman ekki
eitthvað of auðvelt, Drake? Vitið
þér hvað mér finnst eftirtektar-
vert?
— Nei.
— Þá skal ég segja yður það.
Það er þetta einkennilega mót-
stöðuleysi, ef ég mætti svo segja,
hjá hr. Lessiter. Þarna er ungur
maður með þungar sakir á hend
ur honum. — ég geng hér út
frá, að það hafi raunverulega
verið James Lessiter, sem tældi
Marjorie Robertson — það er
líka yðar skoðun, ekki satt?
Jæja, ef yið göngum út frá því,
má líka ganga út frá, að erindi
ungfrú Cray þarna hafi verið að
aðvara James Lessiter. Nú, ef við
göngum út frá, að Carr hafi ver-
ið nýbúinn að komast að leynd-
armáUnu og Lessiter nýbúinn að
frétta um þessa vitneskju hans,
haldið þér þá virkilega, að sam-
tal þeirra hafi getað farið fram
á þnn hátt, sem þér sögðuð —
Carr Robertson komið labbandi
inn, farið í kápuna, gengið að
arninum til að hita sér, en á
meðan hafi James Lessiter bara
setið -við borðið og snúið baki
að honum? Ég er skolli hræddur
um, að ég eigi bágt með að trúa
þvi.
—• Ja, þá hefur það verið ung-
frú Cray.
— Sem var komin heim
stundarfjórðung yfir níu og svo
er frú Mayhew, til að sanna, að
kápan hafi bara verið blettótt,
stundarfjórðungi fyrir tíu.
— Það gefur henni meira en
32
rNú er rétti tíminn ad panta
20ára reynsia hérlendis
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON «CO HF
klukkutíma til að fara aftur,
drepa hann og taka kápuna með
sér.
— En það er engin sönnun
fyrir því, að hún hafi gert neitt
því líkt.
Drake horfði á hann hálflukt-
um augum.
— Þessi regnkápa hékk í
ganginum hjá henni. Ekki hefur
hún komið heim sjálf.
Nú varð stutt þögn. Drake
hugsaði: Hann hugsar ekiki um
annað en koma henoni út úr
þessu. En það er nú ekki lengur
til siðs að hlífa fólki og þagga
allt niður. Hann hélt því áfram
skýrslu sinni.
— Hr. Holdemess — hann var
lögfræðingur hr. Lessiters og
hann er nú fyrir hr. Robertson
og líklega líka fyrir ungfrú
Cray.
— Já, ég þekki hann.
— Hann sneri sér til mín í
morgun. Svo virðist sem hr.
Robertson hafi bent honum á
•atriði. sem hann telur okkur lika
þurfa að vita. Mayhewhjónin
eiga son, pilt um tvítugt. Hann
hefur verið í atvinnu í London.
Hr. Robertson sá hann koma út
úr 6.30-lestinni í Lenton, sama
kvöldið og morðið var framið.
Hann og ungfrú Bell vOru lílka
með lestinni. Jæja, þetta getur
verið misskilningur, og svo gæti
hann lika hafa fundið það upp
sjálfur, en það vill bara svo til,
að þetta hefur verið staðfest.
Mayhewhjónin fara að heim-'
sækja skyldfólk sitt í Lenton,
þegar þau eiga frídag — það er
maður, sem heitir White og hef-
ur þarna tóbaksbúð. Við töluð-
um -við þau um þetta. Þér mun-
ið, að frú Mayhew kom heim
fyrr en vant var — með lestinni
6.20. Þarna er drengu, sem heitir
Ernie White og hjálpar föður
isínum í búðinni. Ég sendi Whit-
eombe til að fá að vita, hvort
Ernie hefði hitt frænda sinn.
Þér skiljið, að ef hann héfur
komið með þessari lest, þá þurfti
hann annaðhvort að komast til
Melling eða fá gistingu hjá ein-
hverjum í Lenton. Og það kom
í Ijós, að Ernie hafði léð honum
hjólið sitt. Cyril sagði honum,
að pabbi- sinn hefði,bannað sér
aðgang að heimilinu, en hann
ætlaði að skreppa heim og hitta
mömmu sína.
Lögreglustjórinn rétti úr sér.
— Hversvegna hafði Mayhew
bannað honum aðgang að heim-
ilinu?
-----Jú, hann hafði komizt i
einhverja bölvun. Þetta er eftir-
lætisbarn, alið upp í stóru húsi.
Hann fékk atvinnu í London.
Stal víst úr kassanum og fékk
skilorðsbundinn dóm. Svo var
honum útveguð önnur vinna, en
Mayhew vildi ekki sjá hann fram
ar — hann er heiðvirður maður
og almennt virtur í Melling.
Jæja, seim sagt, Cyril Mayhew
kom á miðvikudaginn og fékk
hjólið hans frænda síns að láni.
Og frú Mayhew kom heim með
vagninum kl. 6.40. Það getur
ekki verið mikill vafi á, hvers
vegna hún kom svöna snemma
heim. Hr. Holderness og skrif-
arinn hans eru núna í húsinu
til að athuga, hvort nokikurs sé
saknað. Ég kom þar við í leið-
inni og þeir segja, að það vanti
fjórar myndir í skrifstofuna.
— Myndir?
Drake leit í minnisblaðið sitt.
— Já, fjórar styttur — Árstíð-
irnar.
— Það er nú hálfskrítið að
ágirnast þær. Úr hverju voru
þær — postulíni?
— Nei, gylltar. Ég spurði frú
Mayhew um þær og hún segir,
að þær hafi verið á sínum stað
á miðvikudagsmorgun. Hún seg-
ir, að þær hafi verið líkastar
þessum standmyndum, sem mað-
ur sér í söfnum — ekki mikið
klæddar. Hér um bil tíu þuml-
ungar á hæð.
Lögreglustjórann langaði til
að brosa, en tókst að stilla sig.
Hann sagði:
— Þær gætu vitanlega verið
verðmætar, en ekki fyrir aðra
en þá, sem hafa vit á list, og þá
KALLI KUREKI
*
Teiknari: Fred Harman
TH’í?UESTOM IS.-‘
WHATAMITONNA
VO WtTH YOLl AN'
THAT WOM'T BE AMV j
PR06LEM FOEA RAT L
l THAT KILLS FOR. PAV/
YOÚLL PROS’LV BUHGLE
IT LIKE VOU PIP WITH r'
PAVE MORSAM ,'J
Kalli og Litli Bjór hafa náð þeim
árangri af eftirförinni að þeir erii
veiddir í gildru byssubófans, sem
skaut Davíð sýslumann.
— Stígðu varlega af baki.
— Ég bjóst við að einhver mundi
ná mér eftir að ég missti hestinn. Það
var fallega gert af ykkur að koma
með annan handa mér.
— Spurningin er bara, hvað ég á
að gera við þig og strákinn.
— Það er ekki erfitt vandamál fyr-
ir leigumorðingja eins og þig. Þú ger-
ir sjálfsagt það sama við okkur og
Davíð sýslumann.
er markaðurinn mjög þröngur.
Vitanlega eru til menn, sem hafa
slíkt sem sérgrein. Og einhver
slíkur getur hafa gert strákinn
út. En hvað segir frú Mayhew
um, hvort drengurinn hafi verið
þarna á miðvikudagskvöld?
— Því neitar hún auðvitað,
eins og von er til. Grætur og
segist ekki hafa séð hann í hálft
ár. En allir vita, að það er eklki
satt. Það er almennt vitað, að
hann hefur verið hér að flækj-
ast hvað eftir annað, og Ernie
White játaði, að þetta hafi
hreint ekki verið í fyrsta sinn,
sem hann léði honum hjólið sitt.
March hleypti brúnum. ,
— Sjáið þér nú til, Drake.
Frú Lessiter hlýtur að hafa
brunatryggt eignir sínar, o.g það
hefur sennilega verið nötað sem
grundvöllur fyrir uppgjöri í bú-
inu. Hvaða upphæð var þessi
trygging?
Drake lifnaði við. Ég nefndi
þetta atriði við hr. Holderness,
en það varð ekkert gagn í þvL
Einu atriðin, sem voru sérstak-
lega tekin fram, voru nokkur
gömul húsgögn og svo skartgrip-
ir. Allt annað var tekið í einu
lagi og ekki hátt tryggt. Heildar
upphæðin, að húsinu meðtöldu,
var tíu þúsund pund.
Mareh sagði: — Ég held, að
við ættum að spyrja ungfrú
Cray um þessar myndir. Hún
veit sennilega, hvort þær voru
þar, þegar hún fór, klukkan
kortér yfir níu.
SHUtvarpiö
Miðvikudagur 6. febrúar
8.00 Morgunútvarp
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum": Jó
hanna NorðfjÖrð les úr ævi-
sögu Gretu Garbo (15).
15.00 Síðdegxsútvarp.
17.40 Framburðakennsla í dönskU
og ensku.
18.00 Útvarpssaga barnanna:
„Todda frá Blágarði" eftir
Margréti Jónsdóttur, XI. lestur
(Höfundur les).
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þing-
fréttir — 18.50 Tilkymiingar,
19.30 Fréttir.
20.00 Varrraðarorð.
20.05 frskir dansar, leiknir af
Paddy Killoran og hljómsveit
hans.
20.30 Kvöldvaka:
a) Lestur fornrita: Ólafs saga
helga, XIV. (Óskar Halldórs-
son cand mag.) b) fsl. tónlist:
Lög eftir Árna Björnsson. c)
Dr. Stefán Einarsson prófessor
flytur erindi: Brezka Edda. c)
Sigurður Jónsson frá Hauka-
gili flytur vísnaþátt
21.45 fslenzkt mál (Ásgeir Blöndal
Magnússon cand. mag.).
22.00 Fréttir og veðurfregnir
2210 Þýtt og endursagt: „UmsátriS
mikla um Khartúm 1885“ eftir
Alan Moorehead, fyrri hluti
(Hjörtur Halldórsson mennta
skólakennari)
22.30 Næturhljómleikar:
Sinfónía nr. 9 í e-moll eftir
Bruckner (Fílharmoníusveit
Vínarborgar leikur, Carl Schu
richt stjórnar).
23.30 Dagskrárlok.