Morgunblaðið - 06.02.1963, Síða 23
MiSvikudagur 6. febrúar 1963
MORGXJ N BL AÐIÐ
23
Pessi skemmtilega mynd er tekin í Ferðafélags-ferðalagi á annan vetrardag. Myndin er tekin
undir Markarfljótsbrú, og í baksýn er Stóri Dímon. (Ljósm. Páll Pálsson).
Skálholti berst guð-
fræðibókasafn að gjðf
Kennedy vill stö&va
siglingar til Kúbu
SÍRA Finn Tulinius, prestur í
Strö á Sjálandi, hefur fyrir
mokkru tilkynnt mér, að hann
hefði í hygg'ju að gefa Skáliholti
mikinn hluta bókasafns síns.
Hefur hann nú gengið formlega
frá þessu og eru bækurnar komn
ar til landsins. í gjafabréfi sínu
skrifar hann á þessa leið:
„Lengi hefur það verið setlun
imín að arfleiða Skálholt að
guðfræðibókum mínum. Og nú
hef ég ákveðið að gefa þessar
beekur meðan ég er á lífi, svo
að ég geti veitt sjálfum mér
þá gleði að vita þær niður
ikomnar á helgasta stað íslancbs
........Ef bækurnar mættu
verða að notum við kyrrlátt
nám í Skálholti, þar sem saga
aldanna talar á helgum grunni
í umhiverfi stórfenglegrar nátt
úrufegurðar, fjarri óró, asa og
Iháreysti veraldar, þá væri til-
gangi mínum náð, ósk mín upp
Tveir seldu í
Bremenhaven
TVEIR íslenzfkir togarar seldu í
Bremerhaven í gærmorgun.
Egill Skallagrímsson seldi 72,9
tonn af síld fyrir 29.080 mörk og
111 tonn af fiski yrir 73,920
mörk. Sala hans var því samtals
fyrir 103 þúsund mörk.
Freyr seldi nokkurn hluta
farmsins í gærmorgun, en lýkur
sölu í dag. f gær seldi togarinn
1<6 tonn af ýsu og nokkuð af
síld.
Pressuleikur
I KVÖLD fer fram aS Háloga-
landi leikur milli handknattleiks-
liðs þess, sem er á förum til
Frakklands og Spánar, og liðs er
íþróttafréttaritarar hafa valið.
Verður án efa um skemmtilegan
leik að ræða.
Á undan leik þessum fer fram
leikur í kvennaflokki milli
tveggja liða, er stjóm H.S.Í. hefur
valið. Liðin era þannig skipuð:
Lið I Arndís Gísladóttir Á, Her
dís Björnsdóttir Br.blik, Sig-
ríður Sigurðardóttir Val, Guðrún
Helgadóttir Vík., Valgerður Guð
mundsdóttir FH, Sigrún Ingólfs-
dóttir Br.blik, Sylvía Hallsteins-
dóttir FH, Sigurlína Björgvins-
dóttir FH, Steinunn Hauksdóttir
Á, Guðbjörg Ágústsdóttir Vík.,
Ingibjörg Jónsdóttir Fram.
Lið H Jónína Jónsdóttir FH,
Margrét Jónsdóttir Vík., Liselotte
Oddsdóttir Á, Jóna Þorláksdótt-
ir Á, Sigrún Guðmundsdóttir Val,
Díana Óskarsdóttir Á, Gerða
Jónsdóttir KR, Unnur Færseth
Fram, Ása Jörgensdóttir Á, Elín
Guðmundsdóttir Vík., Halldóra
Jóhannsdóttir Vík.
fyllt og bæn mín heyrð.“
Síra Finn Tulinius er kunnur
maður hér á landi, af íslenzku
bergi brotinn, góður og tryggur
vinur ættlands síns og vinmarg-
ur hér. Hann hefur jafnan sýnt
Skálholti mikinn áhuga og fylgzt
vel með miálum þess, eins og öðr-
26. JANÚAR sl. var stofnað í
Reykjavík félag, sem nefnist
Fuglaverdnarfélag íslands. Eins
og nafnið greinir, eru það sam-
tök áhugamanna um fuglavernd.
Aðalverkefni félagsins er að
hindra að fuglategundir deyi út
hér á landi af mannavöldum. —
Einkum er hér um að ræða ís-
lenzka örninn, sem er komiim
ískyggilega nærri því, að verða
útdauður. Samtökin munu reyna
að annast eftirlit með þeim fáu
varpstöðum, sem eftir eru. Þau
munu reyna að standa undir
kostnaði, sem slíku eftirliti fylg-
ir, og stuðla að því, að bændur
sem verða fyrir tjóni af völdum
arnarins, fái það bætt og jafnvel
að veita verðlaun fyrir hvern
þann arnarunga, sem upp kemst.
Samtökin hafa í hyggju að
reyna að fá breytt lögum um
eyðingu refa og minka, þar sem
lögboðið er að bera út strychnin.
Það er vitað að eitrið er aðal-
óvinur arnarins og mun gjör-
eyða honum sé það ekki bann-
að. Á sl. ári er vitað um 3 erni,
sem dóu af eitri og vitað er um
2 aðra, en það er um 12% af
Mýrarsýsla
FÉLAG ungra Sjálfstæðismanna
heldur aðalfund miðvikudaginn
6. febrúar að Hótel Borgarness
og hefst hann kl. 21.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa í kjördæmis-
ráð, fulltrúaráð og á landsfund.
3. önnur mál.
4. Kvikmynd.
Allt ungt Sjálfstæðisfólk er
beðið að fjölmenna.
EGGERT CLAESSEÞ og
GUSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn
Þórshamri. — Sími 11171.
Málflutningsskrifstofa
JON n sigurðsson
Símj 14934 — Laugavegi 10.
um íslenzkum kirkjumálum.
Hann hefur ritað bók um helgi-
dagaprédikanir Árna biskups
Helgasonar í Görðum og eru 50
eintök af því riti meðal gjafa-
bókanna. En alls er gjötf þessi
hátt á annað hundrað bindi guð
fræðilegra rita af ýmsu tagi.
Þetta er fyrsti Tfísir að væntan-
legu bókasafni Skálíholtsstaðar
og má vænta þess, að hann sé
miikils vísir og að fordæmi þessa
ágæta drengs örvi til eftir-
hreytni.
Biskup fslands.
Sigurbjörn Einarsson.
stofninum. Stjórn félagsins álít-
ur einnig, að viðurstyggilegt sé
að deyða dýr með strychnini,
þar eð dauðdaginn af þess völd-
um er kvalafyllri en nokkur ann
ar dauðdagi. Það er einkennilegt
að almenningur skuli geta keypt
strychnineitur í kílóavís, þar eð
annars þarf recept upp á sama
eitur í milligrammatali, sem af-
greitt er í lyfjabúðum. Að þeirra
áliti hæfir það ekki siðuðu þjóð-
félagi að levfa að bera út eitur,
hvað þá heldur að lögbjóða það.
Auk arnarins eru nokkrar aðr-
ar fuglategundir, sem vaka þarf
yfir að ekki verði útrýmt. Er hér
um að ræða nokkrar tegundir,
sem hafa verið eftirsóttar af
eggjasöfnurum, bæði innlendum
og erlendum. Samtökin munu
leitast við að hafa eftirlitsmenn
og trúnaðarmenn á vissum stöð-
um, og munu þá gera nauðsyn-
legar ráðstafanir í því sambandi.
Allir geta orðið meðlimir fé-
lagsins 21 árs eða eldri, árgjald-
ið er kr. 250.00.
Stjómina skipa: Úlfar Þórðar-
son, læknir, formaður, Svavar
Pálsson, gjaldkeri, Hákon Guð-
mundsson, ritari. í meðstjóm og
varastjórn eru Birgir Kjaran,
Agnar Koefod-Hansen, Björn
Þorsteinsson, Broddi Jóhannes-
son, Björn Guðbrandsson og
Dagur Jónasson.
— De Gaulle
Framh. af bls. 1
feldni að álíta að það, sem gerzt
hefur, muni ekki hafa alvarleg
áhrif á Efnahagsbandalagið. —
Vísði Hallstein á burt óskum
Frakka um að Evrópa ætti að
vera þriðja stórveldið milli
Austurs og Vesturs, og lagði
áherzlu á nauðsyn samstöðu Ájt-
lantshaf srík j anna.
Miklar umræður urðu að lok-
inni ræðu Hallsteins og voru
allir nema fulltrúi Frakklands
á einu máli um að fordæma
aðgerðir de Gaulle forseta. —
Margir ræðumanna bentu á að
de Gaulle hafi fyrst látið frétt-
ast um afstöðu sína varðandi
aðild Breta á fundi með frétta-
mönnum, en ekki látið banda-
menn sína vita um málið fyrir-
fram.
Washingbon, 5. fdbr. (AP).
TALSMENfs bandarísku
stjórnariimar .vjgðu í dag að
Framboðslisti
Framsóknar
í Reykjavík
FULLTRÚARÁÐ Framsóknar-
félaganna í Reykjavík hefur
gengið frá framboðslista Fram-
sóknarmanna í Reykjavík við
næstu alþingiskosningar. Er
hann skipaður þessum mönnum.
1. Þórarinn Þórarinss., ritstjóri
2. Einar ÁgústssOn, sparisjóðstj.
3. Kristján Thorlacius, deildstj.
4. Kristján Benediktss., kennari
5. Sigríður Thorlacius, húsfrú.
6. Jónas Guðmundss., stýrim.
7. Hjördis Einarsd., húsfrú..
8. Kristján Friðrikss. iðnrekandi
9. Jón S. Péturss. verkamaður.
10. Stefán Magnússon, flugstjóri
11. Hannes Pálsson, bankafulltr.
12. Bjarney Tryggvad., hjúkrun.
13. Benedikt Ágústsson, skipstj.
14. Binar Eysteinsson, vérkam.
15. Magnús Bjarnfreðss. blaðam.
16. Kristín Jónsd. flugfreyja.
17. Ásbjörn Pálsson, trésmiður.
18. Sæmund'ur Símonars. simr.
19. Sigurður Sigurjónss., rafv.
20. Sigurður Þórðarson, vélsm.
21. Lárus Sigfúss. bifreiðarstj.
22. Unnur Kolbeinsd., húsfrú.
23. sr. Kristinn Stefánss. áfvn.
24. Sigurjón Guðmundss. frkvstj.
— Þorskveiðar
Framhald af bls. 6.
er beitan, fer til frystihúsanna og
skapar markað fyriraflasíldveiði
skipanna. Sá kostnaður fer því til
greiðslu á innlendri framleiðslu.
Með þeirri miklu fjölbreytni,
sem er í fiskiðnaði okkar, er nú
orðið hægt að gera góðar mark-
aðsvörur úr öllum fisktegund-
um. Það er því þjóðhagslega hag
stætt og sjálfsagt að veiða sem
flestar tegundir jöfnum höndum,
eftir því sem kostur er á.' Þegar
notuð eru þorskanet, veiðist svo
til eingöngu þorskur, einstöku
sinnum lítils háttar af ufsa. En
þegar lína er notuð, veiðast auk
þorsksins flestar fiskitegundir,
sem á miðunum eru, t. d. ýsa,
langa, keila, lúða, steinbítur,
skata, karfi o. fl.
Ég tel, að ég hafi nú fært rök
að því, að það sé til hagsbóta
fyrir alla aðila að taka upp línu-
veiðar hér við Faxaflóa, en
þorskanetaveiðar lagðar niður.
Og ég held, að fleiri og fleiri séu
að komast á þá skoðun. Ég vil
nú að lokum alvarlega skora á
alla aðila, sem geta haft áhrif á
þessi mál, að beita þeim í þá átt
að þessi þróun komist á sem
fyrst.
á morgun, miðvikudág,
væri væntanleg yfirlýsing frá
Kennedy forseta, sem miðaði
að því að draga úr siglingum
til Kúbu. Yfirlýsing þessi
hefur lengi verið í deiglunni,
og áður hafði verið búizt við
birtingu hennar í dag.
Nú mun Bandaríkjastjórn vera
að leggja síðustu hönd á yfirlýs-
inguna. Gert er ráð fyrir að
bannað verði að flytja vörur á
vegum Bandaríkjastjórnar með
skipum, sem siglt hafa til Kúbu
eftir 1. janúar sl.
Tilgangurinn með banni þessu
er að hvetja skipaeigendur vest-
an járntjalds til að hætta sigl-
ingum til Kúbu og styðja þann-
ig Bandaríkin í einangrun komm
únistastjórnar Castrós. Segja tals
menn stjórnarinnar að ef komm
únistaríkin neyðist til þess í rík-
aui mæli að nota eigin skip, verði
þeim aðstoðin við Kúbu kostnað-
arsamari en ella.
— Albingi
Framhald af bls. 8.
sameining tveggja eða fleiri smá<
jarða í eina, góða jörð, seim gæfi
meira af sér en smábýlin áður
hvert í sínu lagi.
Þá sagði ráðherra verðgrund-
völlinn vera bændum hagkvæm-
ari nú en fyrir 3 — 4 árum. Nú
fengju þeir t. d. vexti af eigin fé
í grundvöllinn, að vísu ekki nema
5%, en ekkert áður.
★
Með lögum um Stofnlánadeild
landbúnaðarins hefði verið lagð-
ur öflugur grundvöllur að öflugri
lánadeild. Ekki væri nema ár
liðið frá stofnun hennar, og því
hefði hún ekki enn getað leyst
það hlutverk, sem henni er ætlað,
að kaupa veðbréf af veðdeild
Búnaðarbankans. Því væri veð-
deildin enn févana, en úr því
væri mikil þörf að bæta á ein-
hvern hátt, svo að veðdeildin
gæti lánað fé til jarða- og bú-
stofnskaupa.
★
Björn Pálsson svaraði .ræðu
ráðherra. Kvaðst hann hafa farið
með réttar tölur, enda hefði
hann miðað við annað ártal og
eldra en landbúnaðarmálaráð-
herra.
Að lokum svaraði Ingólfur
Jónsson Birni. Björn hefði vitn-
að til skýrslu Arnórs Sigurjóns-
sonar um það, að bændur vatn-
aði 30% til þess að fá sömu laun
og hinar þrjár stéttir, sem miðað
er við, verkamenn, sjómenn og
bændur. Þetta stæði alls ekki í
skýrslu Arnórs, enda væri hann
þekktur að nákvæmri skýrslu-
gerð.
★
Síðasta mál á dagskrá var fram
hald 1. umræðu um „Áætlunar-
ráð ríkisins“. Hélt Einar Olgeirs-
son (K) áfram ræðu sinni, unz
þingfundi var slitið, er líða tók
á daginn.
Laugarásvegur - Hjallavegur
Duglega krakka eða unglinga vantar nú
þegar til að bera Morgunblaðið til kaup-
enda við þessar götur.
Gjörið svo vel að tala við skrifstofuna
eða afgreiðsluna.
ilúrgmlblaxíilí
sími 22-4-80.
Fuglaverndurfélag stofnað
Hyggst hindra að fuglategundir deyi
út hér á landi af mannavöldum