Morgunblaðið - 20.02.1963, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.02.1963, Blaðsíða 12
12 MORCVIS BL AÐIÐ Miðvikudagur 20. febrúar 1963 Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. T?'tstjórar: Valtýr Stefánsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arm Garðar Kristínssc Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreíðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakib. OFAGUR FERILL Ollum þjóðum er það að sjálfsögðu mikilsvirði að festa og öryggi ríki í stjómarfari þeirra. í stjómarskipun lýð- ræðislanda er yfirleitt gert ráð fyrir því, að almenna reglan sé sú, að ríkisstjórnir sitji heilt kjörtímabil og að dómur fólksins, uppkveðinn í frjálsum kosningum, valdi fyrst og fremst stjórnarskipt- um. Islenzka þjóðin hefur fyllstu ástæðu til þess að fagna því, að á því kjörtíma- bili, sem nú er að líða, hefur hún búið við öruggt og gott stjórnarfar. Tveir lýðræðis- flokkar, Sjálfstæðisflokkur- inn og Alþýðuflokkurinn mynduðu í upphafi kjörtíma- bilsins ríkisstjórn saman. — Þessi ríkisstjórn hefur reynzt samhent og framtakssöm. — Hún hefur komið í veg fyrir það hrun, sem yfir vofði, þeg- ar vinstri stjórnin hröklaðist frá völdum á miðju kjörtíma- bili, og hún hefur jafnframt beitt sér fyrir víðtækum við- reisnarráðstöfunum og náð að skapa með þeim jafnvægi í efnahagsmálum lands- manna. Árangur þessarar stefnu er meiri velmegun og hraðari uppbygging og fram- farir í landinu en nokkru sinni fyrr. * Það er ómaksins vert að athuga feril Framsóknar- flokksins í samsteypustjórn- lun undanfarinna ára. I ársbyrjun 1947 gekk Fram sóknarflokkurinn í samstjórn með Sjálfstæðisflokknum og Alþýðuflokknum. Þá stjórn- arsamvinnu rauf Framsókn- arflokkurinn sumarið 1949, eða áður en kjörtímabili lauk. I ársbyrjun 1950 gengu Fram- sóknarmenn til stjórnarsam- vinnu við Sjálfstæðisflokk- inn, undir forystu Steingríms Steinþórssonar. Snemma á ár inu 1953 lýsti Framsóknar- flokkurinn því yfir að þessari ríkisstjórn bæri að segja af sér strax að kosningum lokn- um þá um sumarið. En kosn- ingarnar reyndust Framsókn armönnum óhagstæðar og þeir gengu strax að kosning- um loknum í nýja samsteypu stjórn með Sjálfstæðis- flokknum, að þessu sinni und ir forystu Ólafs Thors. En óróinn hélt áfram í blóði Framsóknarmanna. — Vorið 1956, ári áður en kjör- tímabili lauk rufu þeir stjóm arsamstarfið við Sjálfstæðis- flokkinn og að loknum kosn- ingum myndaði Hermann Jónasson vinstri stjórn sína. I Mætti þá ætla að Framsókn- armenn hefðu fengið frið í sín bein. En því var ekki að heilsa. Haustið 1958 rauf Her mann Jónasson vinstri stjórn ina og sagði af sér á rúmlega hálfnuðu kjörtímabili! Þessi ferill Framsóknar- flokksins er vissulega ófagur. Hann sýnir að erfitt er fyrir samstarfsflokka Framsóknar- manna að treysta þeim. Þeir rjúfa svo að segja alltaf sam- stjómir áður en kjörtímabili er lokið. Þeir láta blöð sín halda uppi stöðugum illindum og ádeil- um á samstarfsflokka sína. Þeir þakka sér ævinlega allt það, sem vel fer af hálfu sam- steypustjórna, er þeir eiga sæti í, en kenna andstæðing- um sínum um allt sem mið- ur fer. Afleiðingin af þessu atferli Framsóknarmanna hefur ó- hjákvæmilega orðið sú, að þátttaka þeirra í samsteypu- stjórnum hefur mótazt af ó- heilindum og undirferli. Af því hefur aftur leitt öryggis- leysi og skort á festu í stjórnarfarinu. Það er af þessu ljóst að það er síður en svo æskilegt að Framsóknarflokkurinn kom- ist enn á ný til aukinna á- hrifa um stjórn landsins. Ef íslenzkir kjósendur vilja ör- uggt og heilbrigt stjórnarfar ættu þeir að gæta þess, að gera áhrif Framsóknarflokks ins sem minnst. ' SINFÓNÍAN í SÓKN Oin íslenzka Sinfóníuhljóm- sveit er 'í sókn. Aðsókn að hljómleikum hennar fer sívaxandi og almenningur í höfuðborginni og út um land kann stöðugt betur að meta það menningarhlutevrk sem hún rækir. Hljómsveitin hef- ur á þessum vetri haldið 1 marga tónleika, sem flestir eða allir hafa verið haldnir fyrir fullum sölum í stærstu samkomuhúsum borgarinnar. En áhrif Sinfóníuhjlóm- sveitarinnar ná langt út fyr- ir veggi hljómleikasala henn- ar. Hún hefur þegar átt veru- legan þátt í að örfa áhuga al- mennings á góðri hljómlist og þroska tónlistarsmekk fólksins, Er það vissulega vel farið að slíkt skuli gerast ein- mitt á þeim tímum þegar „Rlue Steel“ eldflaugar Breta Brezki fiugherinn fær eldflaugar búnar kjarnorkuspr engjum INNAN skamims1 verður ein deild brezka fluglhersins búin eldflaugum, sem bera kjarn- oirkuspi'engj ur. Unnið hefur verið að smáði eldflauganna, sem nefndar eru „Btue Steel“, nokkur undanfarin ár. Kjarn- orkusprengjurnar, sem eld- flaugarnar bera, bafa meira sprengjumagn en eitt mega- tonn. Flugvélarnar, sem bera eldflaugarnar eru þotur af gerðinni Vuloan Mk. II. Eftir að eldflaugunum hef- ur verið skotið frá flugvél- unum, fara þær með marg- földum hraða hljóðsins. í þeim eru sjálfstýritæki, sem stýra þeim í mark. Sameiginlegur yfirmaður þeirra deilda brezka fluglhersins, sem bún- ar eru sprengjuflugvélum, sir KenneSh Cross, skýrði frétta- mönnum frá því, er þeim var boðið að skoða eldflaugarnar, að tilraunir, sem gerðar hefðu verið með þaer sýndu, að þær væru mjög nákvæmar og eins langdraegar og nauðsyn bæri til fyrir Breta. Vísindamenn rannsaka sjálfs ýritæki „Blue Steel“ eldflaugar I i I 1 ! dægurlagaflóðið streymir um allar gáttir og fyllir eyru fólksins frá morgni til kvölds. Ríkisútvarpið verðskuldar þakkir og heiður fyrir að hafa endurreist Sinfóníu- hljómsveitina og sett hana upp á sinn eigin eyk, ef svo mætti að orði komast. Reykja víkurbær, ríkisvaldið og aðr- ir aðilar, sem átt hafa þátt í að byggja hina ungu hljóm- sveit upp hafa unnið merki- legt brautryðjendastarf í þágu menningarlífs íslenzku þjóðarinnar. Og síðast en ekki sízt ber að þakka stjórn- endum og listafólkinu í hljóm sveitinni. Erlendir og inn- lendir hljómsveitarstjórar hafa lagt hönd á plóginn í uppbyggingarstarfinu, en ís- lenzkir tónlistarmenn hafa sýnt að þeir eru færir til mik- illa afreka, og af þeim má mikils vænta í framtíðinni. LANDHELGIS- BROT ÍSLENDINGA TJinar tíðu handtökur tog- veiðibáta fyrir ólöglegar veiðar í landhelgi eru dap- urlegur vottur um skeyting- arleysi gagnvart reglum, sem íslendingar hafa sett til verndar eigin hagsmumun. Öll þjóðin veit að það hefur kostað harða baráttu að fá hin nýju fiskveiðitakmörk viðurkennd. Á því fer þess vegna illa að íslendingar sjálfir skuli fótum troða þær reglur, sem þeir hafa sett til vemdar fiskimiðum sínum. Skipstjórarnir á togveiðibát- unum ættu að koma fram af meiri varfærni en þeir hafa gert undanfarið. Landhelgis- brot íslendinga eru ekki til þess fallin að styrkja þá í bar áttunni fyrir vemd land- grunnsins gagnvart fiski- mönnum annarra þjóða. Hjálparbeiðni EINS og getið var um í fréttum fyrir stuttu brann íbúðarhúsið á Borg í Skriðdal og bjargaðist sem sagt ekkert úr brunanum. Hjónin stóðu uppi allslaua með 6 börn elzta 10 ára að aldri, og auk þess öldruð móðir bónda. Vátrygging var mjög lág og erfitt um allar ástæður. Það væri því mjög vel gjört, ef einhverjir sem hafa allsnægt- ir, gætu rétt þessu bágstadda fólki hjálparhönd á einhvern hátt. Mundi Morgunblaðið veita framlögum viðtöku. Árelíus Níelsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.