Morgunblaðið - 20.02.1963, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.02.1963, Blaðsíða 15
MiðvIktidagUT 20. februar 1963 MORCVNBLAÐ1Ð — Oddur Kristjánsson Framhald af bls. 10. þau eru flest í „rollubókinni", sem kölluð var. Öll þessi lög finn ast mér falleg síðan, þau urðu svo fögur í hans meðferð. — Viltu segja nokkuð sérstakt að lokum. — Ekkert nema það að ég þakka liðnar ánægjustundir og sendi öllum vinum, söngbræðrum og systrum söngkveðju. Það er áliðið kvölds og ég býst til heimferðar. Oddur fylgir mér til dyra og ég kveð þennan 80 ára unga mann og held heim 1á leið ríkari en ég fór. Oddur er góður fulltrúi þeirra manna er sungu í Geysi hans bernsku ár og sungu af þeirri hjartans lyst að enn sveipast söng menn hans hlýjum en hressandi andblæ þeirra óra. Við erum öll í þakkarskuld við þessa frumbyggja sem.í sönggleði sinni stofnuðu og starfræktu kóra víða um land og byggðu þá grunna sem karlakórar standa á í dag. Ingimundur Árnasqn og Oddur Kristjánsson eru dæmigerðir full tru'ar þessara manna sem nú eru flejtir horfnir til upphafs tón- anna. Ingimundur þeirra er „spil- uðu á kórinn eins og hljóðfæri“. Oddur hinna er sameinuðust í hljóðfærinu, er leikið var á. Mann hlýnar öllum þegar hinn aldni og lífsreyndi söngmaður segir af hógværð sinni „Það er hægt að syngja svo margt frá 6ér“. í þessum orðum fellst mikil lífsspeki. Hann er ekki að vola né víla yfir erfiðleikum lífsins, sem sist hefur farið mýkri hönd- um um h'ann en aðra. Söngurinn á að vera sem bæn er stígur til seðri heima og féllur þaðan aftur margfölduð yfir söngmanninn og áheyrendur hans, bætandi sér- hvert böl og mein. „Það er hægt að syngja svo margt frá sér“. Allir Geysisfélagar senda Oddi! hugheilar þakkir fyrir langt og gotrt samstarf og innilegustu árn- aðaróskir í tilefni af þessu merk- isafmæli. St. Ei. ★ Oddur Kristjánsson er fæddur að Dagverðareyri við Eyjafjörð 14. febrúar 1883. Foreldrar hans voru Kristján Jónsson og Guð- rún Oddsdóttir, er lengi bjuggu í Glæsibæ. Þar ólst Oddur upp og við þann bæ er hann kenndur síðan. Hann kvæntist 1912 Mar- gréti Jóhannsdóttur frá Bragholti. Þau eignuðust 3 börn sem öll eru á lífi. Ný barnabók eftir Hugrúnu Sagan af Snæfríði prins- essu og Gylfa gæsasmala eft- ir Hugrúnu. Útgefandi prent- smiðjan „Leiftur'. ÞESSI barnabók kom út núna fyrir jólin. Margt hefir Hugrún skemmtilegt skrifað en þetta nýja ævintýri hennar er ekki sízt gott lestrarefni fyrir börnin. Henni er svo eiginlegt að skrifa fyrir þau og segja þeim sögur, eins og þeir vita sem hlustuðu á barná tímana sem hún hafði í útvarp- inu í fyrravetur, en þar kom þetta ævintýri. í barnatímunum ætti hún að koma oftar fram. svo prýðilega tekst henni á þeim vettvangi. Barnabækur þurfa að vera vandaðar að efni og frágangi þá verða þær einn þátturinn í að móta og þroska ungar sálir. Það ættu allir uppalendur að hafa opin augu fyrir- að fá ekki börn um sínum hvaða bókarusl sem er í hendur. En það er óhætt að vekja athygli á þessari bók og þeim bókum, sem skrifaðar eru i j líkum anda sem þessi. S.M. IngiLprg Guð- mundsiótlír m frú Kefluvík Fædd 1. maí 1871 Dáin 13 febrúar 1963 Kveð,ja frá stofusystrum á. Elli- heimilinu Grund Þín er búin þrautaganga, 'þung oft eru reynslu spor, erfitt, var um ævi langa þó ei þig skorti kjark né þor. Alltaf glöð þú vildir vera vingjarnleg, með bros á vör öllum hjálpa — og gott að gera gáfuð, skýr — með hmittin svör. Ömmur okkar oft ei áttu aura að kaupa dagsins brauð ótal þó svanga m.unna máttu metta — af þeirra sáru nauð. Erfitt var sjúkum oft að sofa við ósandi stó og grútarljós. Á götótta rúðu í gömlum kofa gaddurinn steypti hélurós. En — nú er önnur orðin öldin enginn fær nóg af valdi og auð. Amma var svöng og köld á kvöldin af kærtLeik þó gaf sitt eina brauð. Nú heimtum við völd á hknni og jörðu hendiuimst í „tungli" — um geim og haf. í ginninganna greipum hörðu og gleymum Drottni, sem allt oss gaf. Kynslóð fer — og kynslóð kemur — kveðjan aldrei sundruð er. Æsku og elli — oft ei semur alltaf 'heim.ur versna fer — I þér var mergur sterkra stofn* stæltur af hörku ísalands. Guðstrú þína í glitvoð ofna — geymdir — af ást til Frelsar- ans. Guðrún Jónnvindsdóttir. EFNT hefur verið til ráðstefnu í N-Borneo, til þess að reyna að efla samstöðu þeirra landa, er hyggjast mynda Malaya-sam- bandið síðar á þessu ári. Fulil- trúar allra fimm ríkjanna, sem hlut eiga að máli, sitja ráðstefn- una, og er einkum um það rætt, á hvern hátt megi koma í veg fytir sundrungaröfl, sem talið er að eigi rót sína í Indónesíu. Þar hefur þó verið lýst yfir, að engin afskipti verði höfð af stofn un sambandsiiis — Indónesar eigi nóg verkefni innaniands. Ástarhringurinn verður sýnd- ur í síðasta sinn í kvöld kl., 8.30. — Aðsókn hefur verið góð, en sýningum verður nú að hætta vegna þess að 'ein leikkonan er á förum til út- landa og nýtt leikrit mun að öllum líkindum verða frum- sýnt' í næstu viku. Á með- fylgjandi mynd eru Helga Bachmann og Erlingur Gísla- son í hlutverkum leikkon- unnar og greifans. LESBÓK BARNANNA 5 Ber'.eI Thorvaltlsen 1. f fátæklegu húsi við götu eina í Kaupmanna- höfn bjó, fyrir næstum 200 árum, myndskeri ttokkur, ásamt konu sinni, sem var kennara- dóttir frá Jótlandi. Mynd skerinn var tslendingur, *em settist að í Kaup- mannahöfn, Gottskálk (Þorvalds-) Thorvaldsen eð nafni. Kona hans hét Karen Dagnes. Þau hjónin áttu son, §em hét Bertel, og seinna varð einn frægast mynd höggvari í heimi. Bertel litli bjó við mik lð frjálsræði í uppvext- inum, og hann var að mestu látinn sjá um sig íjálfur. í skóla fór hann ekki fyrr en hann var orðinn ellefu ára gamall. í>á var hann samt orðinn pokkurn vegin læs og •krifandL f skólanum kom það brátt í ljós, að Bertel var óvenjulega duglegur að teikna, og-hann vakti svo mikla athygli. að honi/m var komið á Iústaskólann til þess að fullnuma sig í þessari grein. 2. Bertel tók fljótlega miklum framförum og pabbi hans komst að raun um, að sonurinn var orð- inn duglegri, en hann sjálfur. Bertel var þá far inn að hjálpa föður sín- um við myndskurðinn. Þegar að því kom, að Bertel átti að fermast, varð hann að ganga til prestsins. Hann var þá neðstur í röðinni því að skólalærdómur hans var ennþá heldur af skorn um skammti. Dag nokkurn las prest- urinn í dagblöðunum, að silfurverðlaun Listaskól- ans hefðu verið veitt nem anda sem hét Thorvald- sen. Thorvaldsen var ekki algengt nafn í Danmörku enda af ^íslenzkum upp- runa «og presturinn spurði því spurningadrenginn: „Ert þú eitthvað skyld- ur þessum Thorvaldsen?" „Nei, ég er nú ekkert skyldur honum, ég er hann sjálfur," svaraði Bertel. Orðalaust flutti presturinn drenginn efst í röðina og eftir það sagði hann alltaf „herra Thorvaldsen“, þegar hann ávarpaði Bertel. Framhald næst. »14(1 7. árg. ♦ Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson tIt 20. febr. 1963. Það er leikur oð læra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.