Morgunblaðið - 22.02.1963, Síða 24

Morgunblaðið - 22.02.1963, Síða 24
 Mií HIBYLAPRYÐI HF Hallarmúla mlml 38 177 LUMAJERUÓSGJAFl|= 44. tbl. — Föstudagur 22. október 1963 Þrír listar í kjöri í Iðju Listi lýðræðisslnna er B>listinn 1 G Æ R á hádegi var útrunninn framboðsfrestur til stjórnarkjörs í Tðju — félagi verksmiðjufólks í Reykjavík. Þrír listar bárust: A-listi kommúnista, borinn fram af Birni Bjarnasyni o. fl., B-listi lýðræðissinna, borinn fram af stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins og listi framsóknarmanna, C-listi, borinn fram af Einari Eysteinssyni o. fl. Á undanförnum árum hafa framsóknarmenn stiltt lista kommúnista í Iðjukosningum. Hafa þeir ekkert farið dult með þetta, heldur beitt öllu sínu flokksvaldi, ótakmörkuðu fjár- magni, blaðkosti og öðru er þurfti til þess að styðja við bak þeirra og fella stjórn lýðræðis- sinna, sem unnu félagið á sínum Jökulfell tók niðri á Raufarhöfn Raufarhöfn 21. febrúar — MS. Jökulfell tók niðri í höfn I inni hér um hádegisbilið í dag. Lá það ekki við Bæjar- bryggjuna þar eð Reykjafoss átti aðgang að henni, heldur við bryggju söltunarstöðvar- innar Borga. Er skipið var að sigla út úr höfninni lenti það á sandrifi beint fyrir framan þessa bryggju og stóð fast. Lá skipið þar þangað til í kvöld er flæddi en þá losnaði það af eigin rammleik. Skipið er tal ið óskemmt enda botninn mjúkur, sandur og leir. — E.J. tíma úr höndum Björns Bjarna- sonar og annarra harðsvíraðra línukommúnista. Lýðræðissinnar hafa hins veg- ar verið í stöðugri sókn í félag- inu og styrkt aðstöðu sína við hverjar kosningar og var svo komið við síðustu ASÍ-kosning- ar að andstæðingar þeirra treyst ust ekki til að bjóða fram gegn þeim. Nú þykir hentistefnuforingjum Framsóknar hins vegar ráðlegast að bjóða fram sérstakan lista til þess m. a. að drepa niður sívax- Framhald á bls. 23. Erlendur Patursson nflúenzan út BóIuefrtMð ókomlð frá Ameríku INFLÚENZAN í Reykjavík breið ist út. Borgarlæknir tjáði Mbl. í gær að enda þótt áreiðan- legar heimildir um útbreiðsluna Xægju ekki fyrir, væri ljóst að talsverð aukning hefði orðið, eink um á ákveðnum vinnustöðvum, og mætti því búast við að veikin færi að breiðast örar út. Ekkiværi þó vitað um að fólk hefði veikst alvariega né um dauðsföll af völd um inflúenzunnar, sem lýsir sér eins og aðrir inflúenzufaraldar, sem hér hafa gengið. Borgarlækn ir sagði að ekki virtist bera á auknum vitjunum næturlækna vegna veikinnar. Unnið er að því á Tilrauna- stöðinni að Keldum að ákvarða af hvaða stofni inflúenzan er. Ekki er búizt við niðurstöðu fyrr en síðdegis í dag, en sterkar líkur benda til þess að veikin sé af stofninum A 2, þ.e.a.s. Asíuin- flúenza, sem nefnd hefur verið og hér geisaði 1957 og hefur breiðst út í Ameríku sl. 5 vikur. Ekkert hefur frétzt af bólu- efni því, sem pantað var frá Ameríku í byrjun vikunnar, en skeyti með fyrirspurn var sent út í gær. Ekki er til bóluefni í eina sprautu á landinu. Ekki er Mbl. kunnugt um að komið hafi til tals að framleiða bóluefni að Keldum nú líkt o.g gert var með góðum árangri 1957. Prófessor Kristinn Stefánsson tjáði Mbl. í gær að Lyfjaverzlun ríkisins hefði í byrjun vikunnar pantað bóluefni frá Ameríku með flugvél. Skeyti hefði verið sent í gær og spurst fyrir um hvað liði pöntuninni, en svar við skeytinu væri ekki væntan- legt fyrr en í fyrsta lagi í dag. Sagði hann að ástæðan til þess að bóluefni væri ekki fyrir hendi væri sú að það entist tak- markaðan tíma, og erfitt væri að segja til um fyrirfram hvaða stofntegund af inflúenzu kynni að berast hingað hverju sinni. Bóluefnissendingunni frá Amer- íku yrði hraðað sem kostur værL Birgir Einarsson, formaður Lyfsalafélagsins, tjáði Mbl. að lyfsalar hefðu yfirleitt ekki pant að bóluefni, enda sæi ríkið yfir- leitt um það og bæri kostnaðinn af því. Mbl. hefur hinsvegar fregnað að a.m.k. ein lyfjaverzl- Framhald á bls. 8 í fyrradag var byrjað að pakka saltfisksendingu, sem á að fara til Bandaríkjanna. Saltfiskur þessi er sérverk- aður og pakkaður i mjög snyrtilegar Vi kg. umbúðir, og fiskurinn seldur þannig beint til neytenda. Hér sjást pakkarnir á borðinu, og ver ið er að ganga frá kassa, eins og fiskinum verður dreift í. Nánari frásögn af þessari útflutningsvöru er á bls. 3. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Kvikmynd um björgun flugvélar af Vafnajökli Á AÐALFUNDI Jöklarannsókna félags íslands, sem haldinn var í Breiðfirðingabúð sl. miðviku- dag, voru sýndar tvær kvikmynd ir, annað mynd sem Magnús Jó- hannsson tók í fyrrasumar af skíðanámskeiði í Kerlingarfjöll- um, en hitt ný 20 mín. kvik- mynd, sem Loftleiðir hefur látið gera af björgun skíðaflugvélar af Vatnajökli 1951, og hefur sú mynd ekki sézt á opinberum stað hér á landi áður. Kvikmynd þessi heitir á ensku „The Glacier Adventure" og er gerð með ensku tali, þar sem hún er aðallega notuð til sýninga er- lendis. Segir þar frá því er flug- mennirnir Kristinn Olsen og Al- freð Elíasson fóru með' fjölda manns upp á Bárðarbungu, þar sem bandarísk Douglasflugvél hafði orðið eftir og fennt í kaf, er reynt var að bjarga Geysisfólki úr lífshættu á Bárðarbungu, en ekkert frá Geysisslysinu sjálfu. Sést hvernig hópurinn stritar með tvær jarðýtur við að grafa upp flugvélina, koma henni nið- ur af jöklinum og síðan er henni flogið til Reykjavíkur. Myndin er samansafn af film- um, sem þeir Alfreð og Kristinn tóku meðan á björguninni stóð, Guöslukka ef Bretar settu á löndunarbann segir Eriendur Palurson f GÆR birtist í blaðinu frétt um að viðræðurnar í London um fiskveiðiréttindi Breta við Færeyjar hefðu farið út um þúfur, og fréttastofur hafa upplýst að Haakon Djurhus, forsætisráðherra Færeyja, hafj lagt af stað heim með togara frá Grimsby á þriðjudag, og ferðin tæki 5 daga. Mbl. hefur átt símtal við Er lend Patursson, sem ekki var í sendinefndinni í London, og spurði hvað hann hefði um málið að segja á þessu stigi. — Ja, hvað á að segja. Það hafa engar fréttir borizt nema þær sem sendar voru út í gær og þið hafið. — Færið þið fiskveiðimörk- in út í 12 mílur eftir 27. apríl, þegar samningurinn við Breta rennur út? — Já, okkar ákvörðun var tekin fyrir löngu, í maímánuði 1960 og breytist ekkert nú. En auðvitað er þetta undir Dönum komíð, því þeir fara með utanríkismál okkar, þar á meðal þessi mál. — En hvað um hótun brezkra togaraeigenda um að færeyskir togarar fái ekki að lenda í Bretlandi? — Það væri nú bara guðs- lukka ef þeir gerðu það. ^ — Af hverju? — Af því þá mundum við hætta þeim taprekstri sém á því er að selja Bretum hrá- vöru fyrir ekki neitt. Þá mund um við skera niður í flök, pakka fiskinum, og láta frysta hann og selja hann löndum sem vilja kaupa fisk á almenni legu verði. — Hafið þið útbúnað til að gera það? — Við höfum það að nokkru leyti. Við erum alltaf lítilshátt ar að byggja og ætlum að byggja mikið. Nýja stjórnin leggur einmitt áherzlu á bygg- ingu frystihúsa. Okkur fynd- ist bara ágætt ef þeir bönnuðu löndun. Framhald á bls. 8 myndum frá Eðvarð Sigurgeirs- syni, sem var í björgunarleið- angri Norðanmanna til móts við Geysi og kvikmyndum frá Magn úsi Jóhannssyni, sem var með fjugvélum er flugu yfir til að varpa niður birgðum, og einnig skeytt inn í jökulmyndum frá honum. Hafa þeir Magnús Jó- hannsson og Sigurður Magnús- son búið til úr þessu eina heil- lega og skemmtilega kvikmynd. Herfeio flkur- eyrorlöpegiu Akureyri, 21. febrúar. — Akur- eyrarlögreglan og bifreiðaeftir- litsmenn hafa síðan um áramót hert mjög eftirlit með ljósabún- aði bifreiða í bænum. Hefur fjöldi bifreiða verið stöðvaður og til athugunar teknar margar með gallaðan eða ófullkominn Ijósa- búnað. Hefur eigendum bifreið- anna verið gert að láta lagfær* ágallana umsvifalaust. Nokkrir hafa hlotið sekt fyrir að óhlýðn ast þeim fyrirmælum. Undanfarin kvöld hefur enn verið hert á eftirliti þessu og hafa 60 bifreiðir sætt athugun að þessu leyti. — Sverrir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.