Morgunblaðið - 20.03.1963, Síða 2
«
2
MORCUNRl. 401 Ð
Miðvikudagur 20. marz 1963
Skíðin reyndust ve! á Gljáfaxa
Kom úr fyrstu ferðinni í gærkvöldi
KLUKKAN 8.45 í gærkvöldi
kom Gljáfaxi Flugféiags ís-
lands úr fyrstu ferð sinni til
Grænlands fyrir dönsku veð-
urathuganastöðvarnar. Með
vélinni komu fjórir danskir
handverksmenn, sem hafa
dvalið í stöðinni í Danmarks-
havn síðan í haust við húsa-
smíðar. Danmarkshavn liggur
miðja vega milli Reykjavíkur
og Norðurpólsins og þar var
27 stiga frost, þegar Jóhannes
Snorrason lenti Gljáfaxa þar
á skíðum kl. 10 í gærmorgun
og þótti óvenju hlýtt.
Fréttamaður og ljósmynd-
ari Mbl. voru úti á flugvelli
er Gljáfaxi lenti laust fyrir
kl. 9 í gærkvöldi og fyrstur
gekk út úr vélinni eftirlits-
maður dönsku veðurathugun-
arstöðvanna, Winther, kulda-
lega búinn. Komu síðan Dan-
irnir hver af öðrum og loks
áhöfn vélarinnar.
Við náðum tali af Jóhannesi
Snorrasyni inni í vistarverum
flugmannanna og inntum
hann eftir hvernig ferðin
hefði gengið.
— Ferðin gekk öll eftir á-
ætlun. Við fórum héðan í gær-
I
ur. Hins vegar fékk ég tæki-
færi til að stjóirna hunda&leða.
Það var reglulega gaman.
— Þú hefur lent á skíðum
áður?
— Ekki síðan á námsárun-
um í Kanada og þá bara á litl-
um vélum.
— Hvernig voru viðtökum-
ar norður frá?
— Þetta er i fyrsta skipti,
sem flugvél lendir þar, nema
ef vera kynni að sjóflugvél
hafi lent þarna fyrir langa
löngu, svo það má nærri geta
að þeir hafi verið ánægðir.
Það er mikill léttir fyrir þá
að vita að þarna geti lent flug
vél, því þeir eru læknislaijsir
og 400 km sleðaferð til næstu
veðurathugunarstöðvar, sem
líka er læknislaus. Ég heyrði
hjá þeim, að þeir væru núna
búnir að fá fyrirmæli um að
hafa samband við Flugfélagið
ef þeir þyrftu á læknishjálp
að halda. Annars hafa þeir
misst talsvert af hundunum
hjá sér í emnverri fjárans
pest, svo það var orðið bágt
ástand í samgöngumálum
þeirra á landi.
★
Næst snúiun við okkur að
Dönunum, sem komu með vél
inni úr langri útlegð.
Ahöfn Gljáfaxa fyrir framan farkostinn. Frá vinstri Oddur
Pálsson, vélamaður, Jóhannes Snorrason, flugstjóri, og Jón
Ragnar Steindórsson, aðstoðarflugmaður.
Helge Rekslov
Anker Hansen
|
1
Jóhannes Snorrason er að leggja upp í „aukan úmerið“ í ferðinni, sleðaferð með 8 hundum
fyrir.
John Hegner
— Þið erum búnir að vera
lengi í fámenmnu?
— Allt of lengi. Við fórum
þangað í september og höfum
ekki getað hreyft okkur neitt
úr nágrenninu?
— Hvað kom til að þið fór-
uð út í þetta ævintýri?
— Þetta gefur góða mögu-
leika á að eiga einihverja pen-
inga, þegar heim kemur. Það
reyndist útilokað meðan við
vorum heiima.
— Hvernig er svo dvölin
þarna?
— Það væsir svo sem ekk-
ert um mann. Vistarverurnar
eru eins og nýtízku hótel, allt
undir einu þaki, miðstöðvar-
hitun og rennar.di heitt og
kalt vatn. Eini gallinn er að
við verðum að sjá um að
bræða snjóinn og það þari
mikið vatn yfir daginn.
— Hvað gerið þið I frístund
tim ykkar?
— Við spilum borðtennis,
lesum og spilum á spil. Það
Leif Eriksen
er einkennilegt hvað hægt er
að finna sér til dundurs. Svo
reynum við að samræma og
safna fríunum þannig að við
Framh. á bls. 23
Fjölmenn jarðar-
f ör f rú Margrétar
Auðuns
f GÆR fór fram frá Dómkirkj-
unni útför frú Margrétar Auð-
uns að viðstöddu fjöhnenni.
Sunginn var sáimurinn „Allt
eins oig blóimstrið eina“, séra Þotr-
steinn Jóttiannesson fyrrv. práf-
astur í Vatnsfirði flutti minning-
arræðu og jarðsöng, Þuríðuir
Pálsdóttir óperusöngkona söng
einsöng og að lokum var sung-
inn sálmurinn „Fögur eir foldin“,
Vinir hinnar látnu frá ísa-
firði og Djúpi báru kistu hennar
úr kirkjiu.
morgun og lentum á skíðum ■
í Meistaravík í snjó upp á
miðja kálfa. Þar vorum við
svo um kyrrt í nótt og héld-
um af stað með birtingu í
morgun til Danmarkshavn og
lentum þar kl. 10.35. Þar var
27 stiga gaddur þegar við lent
um og 22 hnúta vindur og
við urðum að ræsa vélarnar
af og til meðan við stóðum
við. Við fórum þaðan rúmlega
2 og flugum svo hingað með
stutta viðkomu í Meistaravík
til að taka eldsneyti.
— Hvernig var um að litast
þarna norður frá?
— Það var endalaus snjór
og ís hvert sem litið var. Við
sáum hvergi í auðan sjó fyrr
en fyrir sunnan 73. brgr. og
það var aðeins lítil vök. í
Danmarkshavn hefur verið
vindasamt undanfarið, og
snjórinn á vellinum hefur bar
izt saman í hjarnöldur, svo
það var dálítið óþyrmileg lend
ing þar. Annars reyndust skíð
in eins vel og við var hægt að
búast. Það þurfti að gefa vél-
inni talsvert mikið inn til að
hún losnaði í startinu, en hún
rann prýðilega eftir að hún
komst af stað.
— Skauztu nokkurn hvíta-
björn í ferðinni?
— Nei, það var það eina
sem mistókst, en ekki vantaði
að ég væri nógu vel vopnað-
NATO veitir Eyþóri Einarssyni
430 þúsund króna styrk
MORGUNBLAÐINU barst í
gær þessi frétt frá Náttúru-
gripasafni íslands:
„Nefnd sú í París,. sem
annast úthlutun styrkja
úr rannsóknastyrkjasjóði
Atlantshafsbandalagsins
(Nato Kesearch Grants
Programme), hefur nýlega
veitt Eyþór Einarssyni,
mag. scient., deíldarstjóra
Grasafræðideildar Náttúru
gripasafns íslands, styrk að
upphæð $ 10.000, þ.e. um
430.000 íslenzkar krónur, til
að rannsaka útbreiðslu og
líffræði æðri fjallaplantna
á íslandi. Styrkurinn er
veittur til þriggja ára, og
úthlutunarnefndin tekur
fram, að öll vísindatæki og
önnur áhöld, sem kunni að
verða keypt fyrir styrkféð,
teljist eign Grasafræði-
deildar Náttúrugripasafns-
ins.“
ir
Morgunblaðið hringdi til
Eyþórs Einarssonar í gær og
óskaði honum til hamingju
með styrkinn. Kvað hann það
mikla uppörvun fyrir vísinda-
menn hér að fá slíkan styrk,
þar eð aðstaða til vísinda-
legra rannsókna væri heldur
bágborin, og oft væri takmark
aður skilningur á gildi rann-
sókna, sem ekki gæfu tafar-
laust peninga í aðra hönd.
Eyþór hefur farið um land-
ið til þess að kanna útbreiðslu
og líffræði æðri fjallaplantna.
Sagðist hann nú vera að gera
sér áætlun um að rannsaka
landið allt að þessu leyti á
skipulagsbundinn hátt. Mundi
hann gera samanburð á jurtá-
lífi staða, sem væru í sömu
hæð yfir sjávarmáli, víðs veg
ar um landið. Væri oft tölu-
verður munur þar á milli.
Einnig mundi hann gera sam-
anburð á stöðum, sem eru um-
kringdir jöklum, svo sem
Esjuíjöllum, og öðrum stöðum
í sömu hæð. Gætu slíkar
rannsóknir gefið einhverja
vísbendingu um það, hvernig
lífsskilyrðum hefur verið hátt
að á ísöld, eða a.m.k. hver
áhrif nærvera jökla hefur á
útbreiðslu jurta. Rannsóknir
þær, sem Eyþór hefur þegar
gert í Esjufjöllum í Vatna-
jökli, virðast ekki benda til
þess, að nábýlið við jökulinn
hafi nein áhrif á pölnturnar.
Tæki, sem hann þyrfti að
kaupa, væru allt frá jeppa og
til smá-áhalda. Eyþór kvaðst
fara í sumar austur í Skafta-
fellssýslur, og mundi hann
m.a. hafa samflot við jarð-
fræðinga, sem færu að Græna
fjalli við Grænalón.
Eyþór Einarsson, mag. scient.