Morgunblaðið - 10.04.1963, Síða 6
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. apríl 1963
6
Úr þriðja þætti: Tessie (Guðrún Erlingsdóttir) og Billy
Bartiett (Ólafur Ólafsson).
Leikfélag Selfoss:
GRÆNA LYFTAN
Gamanlekiur eftir Avery
Hopwood.
l»ýðing: Sverrir Thoroddsen.
Leikstjóri: Gísli Alfreðsson.
MIÐVIKUDAGINN 3. apríl s.l.
hafði Leikfélag Selfoss frumsýn-
ingu á „Grænu lyftunni“ eftir
bandaríska rithöfundinn, Avery
Hopwood í þýðingu Sverris Thor
oddsen. Leikstjórn annast Gsíli
Alfreðsson og kona hans, Juliane.
Er þetta í annað sinn, sem þau
stjórna leikriti fyrir Leikfélag
Selfoss, hið fyrra var s.l. haust,
er þau sviðsettu „Hokus pokus“
eftir Curt Goetz með ágætum ár-
angri nákvæmrar vinnu.
Leikritið „Græna lyftan" er
gamanleikur í þrem þáttum, fjall
ar fyrst og fremst um vandamál
hjónabandsins, eða við skulum
segja vissa þætti þess. í staðinn
fyrir hinn eilífa þríhyrning í með
förum höfunda um þetta vanda-
mál, stillir Avery Hoppwood upp
fimmhyrning á mjög svo skemmti
legan hátt, og gamanið, sem
stundum virðist ærið grátt, verð-
ur að lokum anzi græzkulaust
án þess, að það skaði alvöruna,
sem að baki býr. Höfundur tekur
þannig á efninu, að það á erindi
til allra, jafnvel harðsvíraðs pip-
arfóíks, sem að sjálfstögðu hug-
leiðir þessi vandamál engu síður
en verandi og verðandi hjóna-
bandsaðilar.
Þau hjónin Juliane og Gísli
hafa greinilega tekið leikstjómar-
hlutverk sitt alvarlega og föstum
tökum og náð að skapa misfellu
litla heild úr verkinu. Hreyfingar
og staðsetningar em eðlilegar og
fastmótaðar, framsögn góð og
áherzlur mátulegar og á réttum
stöðum, en á hinu síðastnefnda
sérstaklega vill stundum verða
misbrestur hjá „amatörum', og
reynir þá á leikstjórnina.
Aðalhlutverk, hinn samvizku-
sama, fullkomna eiginmann, Billy
Bartlett leikur Ólafur Ólafsson
af mikilli innlifun. Nýtir hann
mjög vel möguleika hlutverksins
að kitla hláturkirla áhorfenda án
þess, að persónan verði um of
hjákátleg, en slík leið milli skers
og bám er dálítið vandrötuð, en
nauðsynleg, til að túlkunin verði
sannfærandi.
Kona Billys, Laura Bartlett,
leikin af Elínu Arnoldsdóttur, er
fjörug og kenjótt, aðsópsmikil, ef
því er að skipta. Leikur Elín
hlutverk þetta af miklu öryggi
sviðsvans leikara, hvort sem um
er að ræða fínleik hins kvenlega
eða þegar syrtir í álinn hjá þeim
hjónum.
Hin hjónin í fimmhyrningnum,
Jack og Blanny Vheeler em leik-
in af Axel Magnússyni og Erlu
Jakobsdóttur. Jack er hinn lífs-
reyndi eiginmaður, úrræðagóður,
nema kannski helzt, þegar á reyn
ir, en Blanny hin trygga og góða
eiginkona. Gera þau bæði hlut-
verkum sínum góð skiL
Staka aðilann í fimmhyrningn-
um, Phillip Evans, vin frú Bartl-
etts, leikur Sigurður Símon Sig-
urðsson á geðþekkan hátt. Þjón-
ustustúlkan Tfessie er lítið hlut-
verk, en vel af hendi leyst af
Guðrúnu Erlingsdóttur. Ennfrem
ur koma fram burðarkarlarnir
Harrigan og Petz leiknir af Hall-
dóri Magnússyni og Gunnari
Granz,
Leiktjöld gerði Carl Granz, leik
sviðsstjóri er Halldór Magnússon
og ljósameistari Magnús Hákon-
arson.
Þetta 8. viðfangsefni Leikfélags
Selfoss á 5 ára starfsferli þess er
mjög vel af hendi leyst, leik-
stjórum og leikurum til álits-
auka.
Benedikt Bogason.
Söluörðugleikar
á niðurlagðri sild
Á FUNDI sameinaðs þings á
laugardag kvaddi Gunnar Jó-
hannsson (K) sér hljóðs utan
%%%%%%%%%
ÍSLANDSMÓTIÐ í bridge hélt
áfram 1 fyrrakvöld og vom þá
spiluð 32 spil af 64 í 3. umferð
í landsliðsflokki. Að þessum 32
spilum loknum hafði sveit Einars
36 stig yfir sveit Jóns. Sveit
Laufeyjar hafði 20 stig yfir sveit
Ólafs og sveit Þóris hafði 53 stig
yfir sveit Agnars. 3. umferðinni
lauk í gærkvöldi. í dag hefst
keppni kl. 2, og spila þá saman
sveitir Þóris og Ólafs, Jóns og
Laufeyjar og Agnars og Einars.
4. umferð lýkur síðan í kvöld.
Á morgun hefst keppnin einnig
kl. 2 og verður þá spiluð síðasta
umferðin. Spila þá saman svéitir
Einars og Þóris og bendir allt
til, að það verði úrslitaleikurinn
á mótinu. Einnig spila þá saiman
sveitir Laufeyjar og Agnars og
sveitir Ólafs og Jóns. Tvær neðstu
sveitirnar í landsliðsflokki flytj-
ast niður í meistaraflokk.
Tvímenningskeppnin hefst n.k.
laugardag og verða þá spilaðar
2 umferðir og lýkur keppninni
2. páskadag.
Sýningartaflan er notuð á móti
þessu og hafa áhorfendur haft
mikla ánægju af og eru bridge-
unnendur hvattir til að sækja
mót þetta og fylgjast með þeim
spilum, sem sýnd em á töflunni.
Allar keppnirnar fara fram í
Skátaheimilinu við Snorrabraut.
dagskrár ©g spurðist fyrir um
orsakir þess, að starfrækslu nið-
urlagningarverksmiðjunnar á
Siglufirði hefði verið hætt í
bilL
Sigurður Ágústsson (S) kvaðst
sem stjórnarmeðlimur í Síldar-
verksmiðjum ríkisins vilja gefa
eftirfarandi upplýsingar. Ástæð-
an fyrir þvi, að framleiðsla nið-
urlagningarver'ksmiðj unnar hef-
ur stöðvazt í bilí er sú, að tals-
vert af óseldum birgðuim er fyrir
hendi og þess vegna hefur ekki
verið talið fært að halda fram-
leiðslunni áfram, nema söluhorf-
ur bötnuðu.
Ekki má rugla saman niður-
soðinni og niðurlagðri sáid, nið-
urlögð síld hefur miklu minna
geymsluiþol en niðursoðin síld,
en verksmiðjan á Siglufirði er
tilraunaverkstmiðja til að leggja
niður síld. Þess
vegna er ekki
hægt að fram-
Leiða nema tak-
markað magn án
þess að örugg
sala sé fynr
hendi.
Verksmiðja-n hef
ur sent sýnis-
horn til ýmissa
-aðila í Evrópu og Bandarílkjun-
um og einnig leitað aðsboðar hjá
útflutningsfyrirtækj um SH, SÍS
og O. Johnson og Kaaber, en ár-
angur orðið mjög rýr og ekki
tekizt að selja neitt verulegt
-magn á erlendum markaði.
Loks upplýsti Sigurður Ágústs
son, að Síldarverksmiðj urnar
hefðu fyrir nokkru ráðið sér-
stak-an sölumann til að fara í
söluferð til Evrópu og Banda-
rfkjanna á vegum verksmiðjunn-
ar siðar í þessum mánuðL
Lög iró Alþingi
EFTIRFARANDI frumvörp
hafa verið samþykkt sem lög frá
Alþingi: Um byggingarsjóð aldr-
aðs fólks. um happdrætti Dval-
arheimilis aldraðra sjómanna,
um heimilishjálp fyrir a-ldrað
fólk, um bændaskóla, um sigl-
ingalög, um sjómanna-lög, um
sölu Utanverðuness, um Sbofn-
lánadeild landlbúnaðarins, um
lámsibeimild til vatnsiveitufram-
kvæmda í Vestmannaeyjum, um
ábyrgð á láni fyrir Slippstöð-
ir.a h.f. Akureyri, um Tónlistar-
skóla, um innflutning og gjald-
eyrismál, um lögreglum-enn og
um veitingasöl-u, giBtistaðahaid
oTL
Tollskráin til
neðri deildar
NÝJA tollskráin var sam-
þykkt við 3. umræðu í efri deild
í gær. S-íðdegis í gær var hún
síðan tekin til 1. umræðu í neðri
deild og vísað til 2. umræðu og
fj áhhagsnef ndar.
Við uimræðurn-ar lýsti Gunn-
ar Thoroddsen fj-ármál-aráðherra
því yfir, að væntanlegt væri
frumvarp frá ríkisstjórninni á
þessu þingi um hlut sveitarfé-
laganna af aðflutningsgjöldum
ti-1 að bæta upp niðurfellingu
8% söluskattsins, en af honum
fengu sveitarféilögin 20%.
Bíllinn fannst
benzínlaus
CHEVROLETBÍLNUM G—
922 var stolið í fyrrinótt frá
bíilasölu Guðmundar við Berg-
þórugötu, en bíllinn var þar til
sölu. Eigandinn býr í Keflavíik.
Leit v-ar hatfin að bílnum, sem
fannst skömmu eítir hádegi í
gær við Rauðlhóla. Bíllinn var
benzínlaus og hliðarrúða brotin.
Þjófamir hafa líklega brotið
rúðuna til að komast inn í bil-
inn.
• Stór vinningur
S skrif-ar okkux á þessa leið:
„Velvak-andi!
Menn ræða um happdræ-ttis-
auglýsingu DAS um húsið með
bílnu-m og öllu til alls. Þykir
flestum sem þessi vinningur sé
svo mi'kill, að mönnum hrjósi
hugur við að hreppa slíka eign.
Eðlilegra sé að dreifa vinning-
unum og því fé sem varið er
ti-1 þessa eina vinnings yfir á
fleirL
• Reykingar
T-------------
skólaæskunnar
Um daginn sat ég með nokkr-
um kunningjum og rædd voru
allskonar mál sem til bjargar
mega verða þjóð vorri og fóst-
urjörð. Þar bar m.a. á góma
leiðir til að stöðva reykingar
skólaæskunnar. Taldi einn í
hópnum sig hafa lesið það í
blöðum borgarinnar að borgar-
læknir eða landlæknir, jafnvel
báðir, hafi ætlað að beita sér
fyrir því, að tafarlaust yrði
stöðvuð lausasala á sígarettum.
Frá því þetta gerðist er mikið
vatn runnið til sjávar en í öll-
um „sjoppum" er allt fullt af
skólakrökkum svælandi sigar-
ettur, sem keyptar eru í stykkja
talL
Krabbameinsfélagið ætti að
beita sér á þessu sviði og er ég
þess fullviss að þá myndi þessi
ósómi verða stöðvaður.
S.“
• Byrgja verður
brunninn
Móðir skrifar;
,,Kæri Velvakandi!
Ég hefi lengi ætlað að skrifa
þér, um það málefni, sem ég
skrifa um nú, en mér fer sem
öðrum, að láta reka á reiðan-
um, rneðan ekkert skeður, en
nú er það skeð sem ég hefi
óttast mest, og það er slys á
börnum á Leið yfir Suðurlands-
braut úr skóla og er það Guðs
rnildi að ekki fór ver. En er
hægt að bíða eftir að ver fari,
það er hvort sem er aldrei gert
neitt fyrr en eitthvað hefur
gerat tvö börn verði fyrir
bíl í einu ætti að nægja til þess
að eitthvað verði gert til bjarg-
ar.
Það þurfa skilyrðislaust að
vera ijós, ekkert annað er full-
nægjandi. En á meðan þau eru
ekki þyrfti að hafa lögreglu-
vörð, í það minnsta þá diaga
sem sköli er frá því á morgn-
an-a og þangað til kennslu lýk-
ur á daginn. Þá og fyrr ekki
gseti maður verið nokkurn veg-
inn óttalaus um börnin sín, sem
þurfa að fara þarna yfir fjór-
um sinnum á dag, því að á
hverjum degi eru aukatímar.
Það er algjörlega óviðunandi
að vita af börnunum sínum í
þessari hættu á mestu umferða-
götu borgarinnar, án alls ör-
yggis. Þetfca skipti, sem slysið
varð á telpunum, er ekki eina
skiptið sem bílar hafa farið
fram úr öðrum bílum sem
stoppað hafa til þe-ss að hleypa
börnum yfir götuna, mitt barn
'kom heim ekki alls fyrir löngu
og sagðist naumlega hafa slopp-
ið frá bíl sem var svona, og
það hafa áreiðanlega fleiri sömu
eögu að segja. Því verður að
■hefjast handa og gera eitfchvað
til bjar-gar áður en verra hlýzt
af en það sem kotmið er.
Ég vona Velvakandi mi-nn,
að þú komir þessu á framfæri
fyrir mig, og okikur öll sem hlut
eigurn að máli, því hér er alvara
á ferðum.
Mó3ir.“
BOSCH
Mikið úrval
af BOSCH bílflautum
6, 12 og 24 volta.
BBÆBURNIR ORMSSON hf
Vesturgötu 3. BOSCH