Morgunblaðið - 10.04.1963, Blaðsíða 8
8
MORCUIVBLABI9
Miðvikudagur 10. apríl 1963
Diefenbaker beiö mikinn
kosningaósigur í Kanada
Lester Pearson líklegur forsætísráðherra
Nýja
Ottawa og Toronto, 9. apríl.
— AP-NTB —
ÞINGKOSNINGAR fóru
fram í Kanada í gær. Taln-
ingu atkvæða er ekki að fullu
lokið, en augljóst að íhalds-
flokkur Diefenbakers for-
sætisráðherra hefur beðið
mikinn ósigur, en Frjáls-
lyndi flokkurinn, sem Lester
B. Pearson veitir forstöðu,
hætt mikið við sig. Enginn
flokkur fær þó meirihluta á
þingi. Allt bendir til þess að
John Diefenbaker láti af
embætti og Pearson myndi
stjórn með stuðningi
demókrataflokksins.
Úrslit eru enn ekki kunn í
tveimur kjördæmum af 265, en
staðan er þannig, að Frjálslynd-
ir hafa fengið 126 menn kjörna
(höfðu 100), íhaldsflokkurinn
96 (hafði 118), Sósíal-kredit-
flokkurinn 24 (hafði 30) og Nýi
demókrataflokkurinn 17 (hafði
19). Eftir er að telja atkvæði
fjarstaddra hermanna, og geta
þau haft einhverjar breytingar
á sætaskipun, en ekki teljandi.
Fráfarandi stjórn Diefenbak-
ers var minhihlutastjórn, en
naut stuðnings Sósíal-kredit-
flokksins. Nú þarf Diefenbaker
hinsvegar stuðning beggja minni
/ PASKA-
BAKSTURINN
Bökunarvörur
Matarsóti
(natron)
Hjartasalt
Eggjagult
Matarlimsduft
Súkkat
Möndlur
(saxaðar)
Valhnetur
Hnetukjarnar
Skrautsykur
Vanillusykur
Sítrónusykur
Lyftiduft
Brúnkökukrydd
Hunangskrydd
Ailrahanda
Engifer
Kardemommur
Kanell
Kúmen
Múskat
Negull
Pipar Sýróp
HEILDSÖLUBIRGÐIR
Skipli«lt Vr
Skipholti 1. — Sími 23737.
SKEMMTIFERÐ
Páskadag kl. 10:00
Farið verður til Keflavíkur (Flugvöllur)
— Sandgerðis — Hafnir — Reykjanesvita
— Grindavíkur.
LÖMD & leiðir
Aðalstræti 8.
Sími 20-800.
flokkanna til að hafa meirihluta
á þingi, og eru engar líkur á því
að það takist. Hinsvegar er
sennilegt að Nýi demókrata-
flokkurinn styði stjórn Pearsons
með vissum skilyrðum.
Diefenbaker var sjálfur end-
urkjörinn í Saskatchewan, en
sex fyrrverandi meðráðherrar
hans féllu. Að kosningu lokinni
sagði Diefenbaker að sér þætti
það sérstaklega leitt að Howard
Green, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, náði ekki endurkosningu
í Vancouver. Hann hefði látið
svo mikið til sín taka á alþjóða-
vettvangi.
Douglas Harkness, fyrrverandi
varnarmálaráðherra, sem sagði
af sér embætti fyrir kosningar
vegna ágreinings við Diefenbak-
er, var endurkjörinn. George
Green, sem einnig sagði af sér
ráðherraembætti, bauð sig ekki
fram nú, og hlaut Frjálslyndi
flokkurinn sæti hans í Toronto.
Diefenbaker, sem er 67 ára,
hefur verið forsætisráðherra
Kanada frá 1957, en það ár
myndaði hann minnihlutastjórn
fram að kosningum 1958. — í
kosningunum 1958 vann flokkur
Diefenbakers mesta stjórnmála-
sigur í sögu Kanada, og hlaut
209 þingsæti, en Frjálslyndir að-
eins 48.
Lester Pearson er 65 ára.
Hann var um skeið utanríkis-
ráðherra auk þess sem hann hef-
ur verið sendifulltrúi og sendi-
herra. Hann hlaut Friðarverð-
laun Nobels 1957.
Eftirlitsnefnd
til Krukkusléttn
Reynir að siilla til íriðor í Laos
Vientiane, 9. apríl (AP-NTB):
Bardagar hafa nú staðið í viku
í Laos og hafa Pathet Lao komm
únistar náð tveimur borgum á
sitt vald að mestu. Fulltrúar al-
þjóða eftirlitsnefndarinnar í Laos
fara á morgun flugleiðis til
Krukkusléttu til að reyna að stilla
til friðar milli kommúnista og
hiutlausra, og hefur Souvanna
Phouma forsætisráðherra farið
þess á leit að eftirlitsnefndin hafi
fast aðsetur á sléttunni, þar sem
bardagar hafa verið að undan-
förnu.
Formaður eftirlitsnefndarinnar,
Xndverjinn Avtar Singh, sagði
fréttamönnum að minna hafi ver
ið um bardaga á Krukkusléttu
í dag en í gær, en kommúnistar
hefðu náð á sitt vald borgunum
Xieng Khouang og Khang Khang.
Sagði Singh að kommúnistar
fengju öflugan stuðning frá Nor3
ur Vietnam.
Fulltrúar Suðaustur Asíubanda
lagsins (SEATO) sitja fund i
París um þessar mundir, og komu
þeir saman í dag til að ræða á-
standið í Laos. Einnig hafa fulltrú
ar Sovétríkjanna og Bretlands,
sem voru formenn Genfarráðstefn
unnar um Laos 1962, verið í stöð
ugu sambandi hvor við annan að
undanförnu.
Rekstrarstyrkir til
sjukrahúsa hækki
Á LAUGARDAG gerði Kjartan
J. Jóhannsson grein fyrir þings-
ályktunartillögu, sem hann
ásamt Gísla Jónssyni er flutn-
ingsmaður að. Hún er þess efnis,
að sjúkrahúslögin verði endur-
skoðuð með tilliti til þeirra
tekna, sem sjúkrahúsin fá til að
standa undir rekstri sinum en
hafa reynzt ónógar. Verði endur-
skoðuninni lokið svo snemma, að
hægt verði að taka tillit til þess
á næstu fjárlögum, ef það verð-
ur ofan á, að rekstrarstyrkir
ríkisins hækki.
Kjartan J. Jóhannsson (S) hóf
mál sitt með því, að eins og
veðurfari og samgöngum væri
háttað hér á landi, væri óhjá-
Isienzkir piltar til
Evrópukeppni í París
FYRIRKOMULAG Evrópumeist-
arakeppni unglinga í körfu-
knattleik er nú ákveðið. island
er meðal þátttökuþjóða og lend-
ir í undankeppni í riðli með Sví-
þjóð, Luxemborg frlandi, og
Frakklandi. Keppnin í undanrás-
'um fer fram í París 15.—20.
september nk. og sigurvegari í
þessum riðil mætir siðan í 8 liða
úrslitakeppni á ítaliu vorið 1964.
MIKILL ÁHUGI
ísl. piltar hafa sýnt þessari
keppnisför mikinn áhuga og lagt
á sig margar sérstakar æfingar
til undirbúnings. Valdir hafa
verið 12 piltar til æfinga sem
æft hafa aukalega (auk félags-
æfinga) undir stjórn landsliðs-
þjálfarans Helga Jóhannssonar.
SÉRSTAKAR ÆFINGAR
Þegar æfingum félaga sleppir
í vor efnir KKÍ til sérstakra
æfinga fyrir utanfararflokkinn
með mörgum æfingum vikulega
bæði þrekæfingar og knattæf-
ingar.
Meðal piltanna ríkir sem fyrr
segir mikill áhugi. Þeir kosta
sjálfir ferð sína að mestu leyti,
en KKÍ ber þó nokkurn kostnað
vegna þjálfunar og mun vænt-
anlega stofna til happdrættis til
að standa straum af þeim kostn-
aði.
Listamenn
boðaðir á
flokksfund
Moskvu, 9. apríl (NTB)
Miðstjórn kommúnistaflokks
Sovétríkjanna hefur verið kvödd
saman til fundar í Moskvu 28.
maí n.k. til að ræða ýms hug-
sjónamáll flokksins. Auk mið-
stjórnarinnar mæta á fundinum
flokksleiðtogar frá ýmsum hér-
uðum og fulltrúar bókmennta og
lista, vísinda, skóla og háskóla.
Frummælandi á fundinum
verður Leonid Ilyichev, formað-
ur áróðursdeildar miðstjórnar-
innar.
Að undanförnu hefur kommún
istaflokkurinn barizt eindregið
fyrir því að fá rithöfunda og
listamenn til að fylgja hefð-
bundinni flokkslínu í túlkunum
sínum, en verið algjörlega mót-
fallinn „vestrænum áhrifum“,
sem fram hafa komið. Fjöldi
funda hefur verið haldinn þar
sem bæði skáld og málarar hafa
verið sakaðir um formalisma og
fleiri syndir. Nokkrir þeirra
hafa viðurkennt syndir sínar og
lofað betrun og bót, aðrir hafa
kosið að þegja. Er gert ráð fyrir
að þetta verði eitt aðal umræðu-
efni þingsins.
kvæmilegt að hafa allmörg vel
búin sjúkrahús dreifð um land-
ið. Á annan veg er ekki unnt að
tryggja ■ sæmilega líf og heilsu
íbúanna. Þetta hafa landsmenn
skjlið og hafa kaupstaðir og hér-
uð því viða lagt hart að sér til
að koma upp dýrum og vel bún-
um sjúkrahúsum og fengið til
þess styrk úr ríkissjóði, eins og
lög mæla fyrir um.
En þótt erfitt hafi verið að
reisa sjúkrahúsin, hefur þó verið
enn erfiðara að standa undir
rekstri þeirra.
Tekjur þeirra
eru daggjald,
sem ákveðið er
af heilhrigðis-
málast j órninni,
og rekstrarstyrk
ir úr rikissjóði,
10—25 kr. á
legudag e f t i r
stærð, búnaði og
þjónustu. Daggjöldin hafa undan
farið hækkað minna en til-
kostnaður, en rekstrarstyrkur-
inn, sem er lögbundinn, verið
óbreyttur frá 1958.
Hallinn hefur því farið vax-
andi og er að verða mjög þung-
bær flestum þeim kaupstöðum
og héruðum og öðrum, sem eiga
og reka sjúkrahúsin, því að I
lengstu lö.g er reynt að veita þá
þjónustu, sem búnaður þeirra og
aðrar aðstæður framast leyfa.
Kvað alþingismaðurinn það
alloft koma fyrir, að kostnaður
við sjúkling er margfalt meiri
en daggjaldið, sem sjúkrahúsið
fær. Kvaðst hann t. d. minnast
þess, að eitt sinn reið líf
sjúklings á því, að unnt yrði að
fá handa honum lyf, sem aðeins
var til í einni lyfjaverzlun I
Reykjavík. Veður var svo vont,
að ekki var lendandi á staðnum
og ekki fært nema stórri flugvél,
sem flaug með iyfið og kastaði
því niður.
Sem dæmi þess, að kostnaður
hafi vaxið meir en hækkun
daggjalda má gæta þess, að dag-
gjöldin á Landsspítalanum námu
60% kostnaðar, er þau fyrst voru
ákveðin, en nú ekki nema helm-
ing eða tæplega það. Við dag-
gjöld Landsspítalans eru svo
daggjöld hinna sjúkrahúsanna
miðuð og er því augljóst, að
verulega hefur þyngzt sá baggi,
sem eigendur þeirra verða að
bera, en þeir eru ekki að öllu
leyti hinir sömu og notendurnir,
A sumum sjúkrahúsum úti i
landi er ekki nema helmingur
sjúklinganna úr þeim kaupstað,
sem á að bera og ber hallann á
sjúkrahúsinu. Til að fá þetta mál
undirbúið, svo að unnt sé að fá
þetta misrétti leiðrétt á næsta
Alþingi, er tillagan flutt