Morgunblaðið - 10.04.1963, Síða 20
20
MORCUNBLAÐI9
Miðvikudagur 10. apríl 1963
— Nú hef é.g vcrift hér í viku og enn hefur mér ekki tekizt að
komast n>ður að sjónum.
Nú kom eitt andartak þagnar
Og skelfingar, en sir Daniel stóð
og horfði á rennvota buxnaskálm
sína, en þá kom fagnaðaróp frá
Tígrisdýrinu: — Ég hitti! En þá
öskraði Daniel: — Izzy, rektu
þessa drísildjöfla heim. Svo þaut
hann upp í stigann og hrópaði!
Meaker! Skósvdlnn hans kom
hlaupandi. — Komdu upp í
svefnherbergið mitt, skipaði Dan
og úr miðjum stiganum, bætti
hann við: — Og þú líka, Alec.
Komdu upp.
Það var ekki um að villast, að
veizlunni var lokið.
4.
Alee dokaði við stundarkorn
til að horfa á Izzy afgreiða fimm
skelfda drísildjöfla og einn sigri-
hrósandi út í kuldann og dimm-
una. Nú yrðu þeir að ganga.
Vagninn, sem átti að flytja þá
heim átti ekki að koma fyrr en
eftir klukkustund, En þeir hefðu
að minnsta kosti tónlist sér til
skemmtunar, því neðan af stígn-
um mátti þegar heyra í munn-
hörpu foringjans.
Laurie var horfinn. Alec
glotti til Isambards. — Jæja,
sagði hann, — nú er víst tími
til kominn að tala við blessaðan
(húsbóndann!
— Ég öfunda þig ekkert af
því, svaraði Izzy. — Sjálfur er
ég búinn að fá meirá en nóg.
Alec gekk upp, hægum skref-
um. Eldur logaði glatt í svefn-
herbergi sir Daniels og fyrir
framan hann sat sir Daniel í
hægindastól. Meaker hafði þeg-
ar fært hann úr buxunum og
síðu ullarnærbuxunum og hann
teygði nú skanka'na að eldinum.
Svo kom Meaker með þurr föt,
en sir Daniel veifaði honum frá.
— Farðu útt sagði hann snöggt.
Hann tók vindlaveski úr vas-
anum, kveikti sér í vindli, hægt
og vandlega, og sagði: — Alec,
ég vil, að þú hættir við rit-
stjórnina á „Dunkerleys“.
Það datt alveg ofan yfir Alec.
Hann hafði búizt við einu þess-
ara frægu reiðikasta húsbónd-
ans, í sambandi við slysin, sem
þarna voru orðin. En það var
sýnilega langt frá huga sir
Daniels. Það var horfið og hann
hafði snúið sér að öðru. Nú, en
það var svo sem í góðu sam-
ræmi við Dunkerley-ævintýrið.
Sir Daniel horfði einbeittum
augum á glóðina í vindlinum
sínum og kreppti tærnar að eld-
inum.
— Það er kominn tími til að
reyna fyrir sér á nýju sviði,
sagði hann. — Mér hefur verið
að detta í hug að fara að gefa
út bækur.
Það var ekki nema einn þægi-
legur stóll þarna inni og á hon-
um sat Dan. Alec skellti sér því
á bjarnarfelldinn, sem var á gólf
inu, við fætur hans. Hann gerð-
ist svo djarfur að taka í stóru
tána á sir Daniel og kreista hana
dálítið. En sir Daniel spurði ön-
uglega og kippti að s,ér fætinum:
— Hlustarðu ekki á það, sem ég
er að segja? Hver djöfullinn er
meiningin?
Alec glotti til hans. — Jæja,
þá get ég borið til baka orðróm
sem gengur um, að þú gangir á
brauðfótum.
Það snörlaði í Daniel. — Æ,
reyndu nú einu sinni að tala eins
og maður með viti.
— Gott og vel. En mér er bara
ekki vel ljóst, hvað þessi bóka-
útgáfa þín snertir mig.
— Hún snertir þig að öllu
leyti. Þú mátt ekki verða of ein-
'haefur. Þú ert núna í þaagilegri
stöðu sem ritstjóri, enda ertu
þegar farinn að hringa þig upp
eins og snigill í kuðung. Þú þarft
að hafa áhuga á öllum fyrir-
tækjum mínum.
Alec horfði á hann, letilega.
Honum var hlýtt og leið þægi-
lega þarna við eldinn. Og
búrgundarvínið, sem hann hafði
fengið með matnum gerði það
að verkum, að hann var ekkert
uppnæmur fyrir einu kasti hjá
húsbóndanum.
— ,Gott og vel, Dan, sagði
hann rólega. — Víst hef ég
áhuga á öllum þínum fyrirtækj-
um — að vissu leyti. Og hver
ætti fremur að hafa það en ég,
sem hef þekkt þig siðan þú áttir
ekki bót fyrir rassinn á þér í
Mandhester.
Sir Daniel spratt á fætur, stór-
móðgaður, en áttaði sig strax á
því, að hann var ekki vel undir
það búinn að sýna af sér virðu-
leika. Hann þreif teppi, sem
þarna lá og breiddi það yfir ber
hnén og settist síðan niður aftur.
— Hlustaðu nú á mig og taktu
ekki fram í, sagði hann. — Ég
ætla að fara að stofna útgáfu-
fyrirtæki, og þegar Laurie er bú-
inn í Oxford, á hann að standa
fyrir því. En þangað til verður
að koma því á fæturna. Og það
gerir þú. Þú hefur allnokkurn
smekk. Þú þekkir góða bók, ef
þú lest hana. Jæja þá! Það á að
verða þitt hlutverk. En hvað
reksturinn snertir, þá vona ég
að geta boðið nógu góð kjör,
til þess að geta svælt einhvern
kunnáttumann frá gamalgrónu
fyrirtæki. En eitt atriði verðum
við að hafa fyrirfram ákveðið:
Ef við tökum framhaldssögur
fyrir tímaritið af einhverjum
nýjum höfundum, verður það
atriði í samningnum, að bókar-
rétturinn gangi sjálfkrafa til
okkar. Þannig hefðum við átt að
fara að við Hesbu Lewison. Nú,
en að minnsta kosti lætur hún
okkur hafa „Órabelgina" með
ánægju. Enda stendur hún í
nokkurri þakklætisskuld við
Dunkerleys.
— Ekki eins mikilli og
Dunkerleys við hana, sagði Alec.
Það var hún, sem bjargaði tíma-
ritinu, sem annars lapti dauðann
úr skel. Og auk þess er hún þeg-
ar búin að selja söguna öðrum,
til útgáfu. >
— Hvað segirðu? Hvernig
veiztu það?
— Af því að ég seldi hana
fyrir hana.
— Sir Daniel var þögull, and-
artak. Síðan sagði hann: — Það
gæti breytt afstöðu okkar hvers
til annars. Ég vissi fekki, að þú
værir farinn að reka verzlun
bak við mig.
Alee stökk á fætur. — Talaðu
ekki svona bölvaða vitleysu!
Hvað vissi ég um þínar fyrir-
ætlanir? Þarf ég að koma til þín
og biðja leyfis fyrir hverja mína
hreyfingu, ef hún skyldi koma
í bága við einhverja fyrirætlun
þína? Ef þú heimtar það, get-
urðu haldið áfram að heimta.
— Dillworth, sagði sir Daniel.
— Ég hef þolað þér sitt af
hverju, síðustu tíu árin. Og samt
þætti mér það leitt ef þú neydd-
ir mig til að segja sambandi
okkar slitið.
-— Sir Daniel, svaraði Alec,
með háðshreimnum, sem hann
var vanur að leggja í titilinn.
— Ég er í engum vafa um, að
samband okkar varir alla þá
stund, sem þú þykist hafa eitt-
hvað upp úr því.
— Leýfðu mér — áður en þú
segir eitthvað, sem ekki verður
aftur tekið, að þú og systir þín
hafa líka haft sæmilega upp úr
því.
Það stríkkaði á andlitinu á
Alec. — Nú, jæja, svo að Elsie er
þá líka einn af þínum brauð-
þegum? Ég held, að þú ættir að
flýta þér að strika yfir það. Allt,
sem fyrir hana hefur verið gert,
hef ég gert. Þú hefur fengið
fullt andvirði þinna peninga frá
mér — og það mikið andvirði
fyrir litla peninga. Hvorugt okk-
ar hefur þegið neina ölmusu af
þér.
Sir Daniel hefði gjarna viljað
.standa upp og geisa, en áttaði
sig fljótt á því, að slíkt var
ekki hægt um vik. Þess í stað
fleygði hann vindlinum í eldinn
og sagði: — Jæja, úr því að við
erum komnir út í þessa sálma
á annað borð, er bezt, að við
höfum allt skellt og fellt, hr.
Dillworth. Ef út í það er farið,
þá er ég eigandi ritsins, sem þér
stýrið, og ég vil benda yður á
það, að hver ritstjóri, sem er í
minni þjónustu, gæti haft gott
af að fara varlega. Útgáfur mín-
ar fara inn á heimili skikkan-
legs fólks um land allt og ég vil
ekki hafa neitt hneykslisorð í
sam/bandi við ritstjórana mína.
— Haldið þér áfram, sagði
Alec. — Ég veit að vísu ekki
um hvað þér eruð að tala, en
haldið þér áfram samt.
Sir Daniel stóð upp og hélt
utan um sig teppinu. Síðan stik-
aði hann að náttborðinu. Þar tók
hann upp Gulu bókina og veif-
aði henni framan í Alec. — Eng-
inn ritstjóri í minni þjónustu,
•skal hafa leyfi til að láta nefna
sig í sambandi við svona saur-
útgáfur. Það þefjar af Oscar
Wilde og það er nú þegar nægur
óþefur kring um þann herra-
mann, upp á síðkastið. -
Alec hvítnaði af reiði. Þið,
'þessir andskotans túskildings-
hræsnarar! æpti hann. — Þið
vitið ekki einu sinni, hvað þið
eruð að blaðra! Gula bókin hef-
ur ekki flutt einn stafkrók eftir
Wilde.
SHtltvarpiö
Miðvikudagur 10. apríl
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum": Sig»
urlaug Bjarnadóttir les sög-
una „Gesti" eftir Kristínu Sig-
fúsdótttir (17) — Sögulok.
15.00 Síðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla í dönsku
og ensku.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Börn-
in í Fögruhlíð" eftir Halvor
Floden; VII. (Sigurður Gunn-
arsson).
18.30 Þingfréttir. — 18.50 Tilkynn-
ingar. — 19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Varnaðarorð: Pálmi Friðriks-
son bifreiðaeftirlitsmaður tal-
ar um umferðarmál. ,
20.05 Sabicas leikur á gítar.
20.20 Kvöldvaka: a) Lestur fom-
rita: Ólafs saga helga; XXIII
(Óskar Halldórsson cand.
mag.) b) íslenzk tónlist: Lög
eftir Björgvin Guðmundsson
c) Erindi: Sjö furðuverk forn
aldar; síðara erindi (Jóhann-
es Teitsson, Hraungerði,
Garðahreppi). d) Snorri Sigf
ússon les ljóð eftir Fornólf.
e) Smásaga: „Sá bleiki" eftir
Geir Kristjánsson (Höf. les)
21.45 íslenzkt mál (Dr. Jakob Bene
diktsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir. —•
Frá skíðalandsmóti á Siglu-
firði (Sigurður Sigurðsson).
■— Passíusálmar (49).
22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið"
eftir Fred Hoyle; XV. (Örn-
ólfur Thorlacius).
22.40 Næturhljómleikar: a) Frá
franska útvarpinu: Sálmar
fyrir tenór, kór og hljóm-
sveit, eftir Tansman. — Jean
Giraudeau, kór og fílharmon
íusveit franska útvarpsins
flytja. Charles Bruck stjórnar
b) Frá útvarpinu í ísrael:
„Miðnæturvaka"; óratóría
fyrir útvarp eftir Mordecai
Seter. — Flytjendur: Ovadi-
ah Tuviah, Moshe Hovav, kór
og Sinfóníuhljómsveit Kol
Israel. — Stjórnandi: Garry
Bertini.
23.45 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 11. apríl
(Skírdagur)
9.00 Fréttir.
9.10 Morguntónleikar. (10.10 Veð-
urfregnir).
11.00 Messa í Elliheimilinu Grund
(Prestur: Séra Sigurbjörn Á,
Gíslason. Organleikari: Gúst-
af Jóhannesson).
12.15 Hádegisútvarp.
12.45 „Á frívaktinni": sjðmanna*
þáttur í umsjá Sigríðar Haga-
lín.
14.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Kaffitíminn (tónleikar).
16.30 Veðurfregnir. —- Færeysk
messa (Hljóðr. í Þórshöfn).
17.00 Erindi: Ónáttúra, flókin sam*
setning og orðaleikir í drótt-
kvæðum og tízkulist Picassos
(Stefán Einarsson prófessor).
18.00 Fyrir yngstu hlustendurna
(Margrét Gunnarsdóttir og
Valborg Böðvarsdóttir).
18.20 Samson Francois leikur píanó
lög eftir Debussy.
19.00 Tilkyningar. — 19.20 Veðurfr.
19.30 Fréttir og Iþróttaspj all
frá skíðalandsmóti á Sigiu-
firði (Sigurður Sigurðsson).
20.00 „Paganini", söngleikur í 3
þáttum, eftir Paul Knepler og
Bela Jenbach. — Tónlist eftir
Franz Lehar. Þýð. Þorsteinu
Vadimarsson.
22.00 Fréttir og veðurfregnir .
22.10 Svipast um ó suðurslóðum!
I. (Séra Sigurður Einarsson),
22.25 Kvöldtónleikar.
23.35 Dagskrárlok.
ÁLLTAF FJÖLGÁR YOLKSWÁGEH
® © © © ©
VORIÐ ER I INiÁND
Eruð þér farinn að hugsa til sumarferða?
Er það þá ekki einmitt VOLKSWAGEN,
sem leysir vanda'nn?
FANTIÐ TÍMANLEGA
VOLKSWAGEN er ódýr
í innkaupi og rekstri.
Verð frá kr; 121.525,—
©
VERIÐ HAGSYN
VinsæJdir VOLKSWAGEN hér á landi
saima ótvírætt kosti hans við okkar stað
hætti. — VOLKSWAGEN er ekkert tízku
fytirbæri það sannar bezt hið háa endur-
söluverð hans.
VELJIÐ VOLKSWAGEN.
HEILDVERZLUNIN HEKLA HF
Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275.
KALLI KUREKI
K
tK —
TeiknarL Fred Harman
— Láttu mig hafa skyrtuna þína
og hattinn. Vertu snar. Farðu svo í
skyrtuna mína og vestið og láttu
hattinn á hausinn.
— Og heyrðu svo. Ef þú ferð eitt-
hvað að hafa þig í frammi þegar lög-
reglustjórinn kemur skýt ég þennan
rauðhærða vin þinn.
— Ég er búinn að tæma öll skot
úr byssunni þinni og beltinu líka,
svo þér er óhætt að setja það á þig.