Morgunblaðið - 10.04.1963, Page 23
Miðvíkudagur 10. apríl 1963
UORCTJNBLAÐIÐ
23
- Ræða Jóns G.
Maríussonar
Framhald al bls. 13.
meginatriðum svipar henni mjög
til ársins 1961, enda voru ytri
aðstæður svipaðar, mikil aukn-
meginatriðum svipar henni mjög
ing bæði í framleiðslu og pen-
ingatekjum og hagstæður
greiðslujöfnuður við ótlönd. —
Spariinnlán jukust árið 1962
meir en nokkru sinni fyrr, og
þrátt fyrir mikla útlánaaukn-
ing í batnaði staða bankakerfis-
ins gagnvart Seðlabankanum
stórlega. Verður nú rætt um
helztu þætti peningamálanna, en
síðan vikið að stefnunni í pen-
ingamálunum í heild og þeim
vandamálum, sem nú blasa við.
Batnandi staða innlendra
a'Vila við Seðlabankann
Staða innlendra aðila við
Seðlabankann batnaði mjög veru
lega á árinu, sérlega vegna stór-
aukinna innstæðna bankakerfis-
ins í Seðlabankanum. Aðstaða
banka og annarra peningastofn-
ana við Seðlabankann batnaði
um 592 millj. kr. á árinu 1962,
og sundurliðast sú upphæð í að-
alatriðum sem hér segir:
Skuldir bankanna vegna enduT
kaupa á afurðavíxlum lækkuðu
um 112 millj. kr., og stafaði sú
lækkun að nokkru leyti af minni
vörubirgðum í árslok 1962, én
að mestu leyti af því, að Lands-
bankinn tók á árinu 170 millj. kr.
stutt lán í Bandaríkjunum í sam-
bandi við sölu á freðfiski þang-
að, og voru lán þessi endurlánuð
íslenzkum útflytjendum. 1 pen-
Ingamálaskýrslunum eru þessi
lán talin með útlánum íslenzkra
banka og sem stutt skuld bank-
anna við útlönd og koma þannig
til frádráttar gjaldeyrisstöðunni
og hafa engin áhrif á hana til
hækkunar eða lækkunar. Fyrir
utan endurkaupin batnaði staða
banka og sparisjóða við Seðla-
bankann um 514 millj. kr. á ár-
inu,N en staða fjárfestingalána-
stofnana versnaði um 34 millj.
kr. Hinar auknu skuldir fjár-
festingalánastofnana s t ö f u ð u
fyrst og fremst af starfsemi Stofn
lánadeildar sjávarútvegsins, en
útlán hennar á árinu námu 55
millj. kr., sem komu til lækk-
unar á útlánum bankanna. Er nú
hinum miklu útlánum Stofn-
lánadeildarinnar, sem hófust á
árinu 1961, að mestu lokið, en
tilgangnr þeirra var að breyta
stuttum skuldum sjávarútvegs-
ins í löng lán. Þessi útlán voru
í heild orðin 354 millj. kr. í lok
ársins 1962, en þá hafði verið
endurgreitt af Jánum 21 millj.
kr., svo að heildarútlán í árslok
voru 333 millj. kr.
Hin stórbætta staða banka og
sparisjóða gagnvart Seðlabank-
anum, en hún nam, eins og áður
segir, 514 millj. kr. á árinu 1962,
stafaði bæði af innlánsbinding-
unni og bættri lausafjárstöðu
bankanna. Reglur um innláns-
bindingu voru óbreyttar á árinu
1962, og voru bindiskyld 30 % af
aukningu innlána hjá innláns-
stofnunum, en lágmarksbinding
var 3% af heildarinnstæðu. Alls
jukust innstæður á bundnum
reikningum um 272 millj. kr. á
árinu 1962, en höfðu aukizt um
253 millj. kr. á árinu 1961. Átti
innlánsbindingin þannig megin-
þátt í því að bæta stöðu banka-
kerfisins gagnvart Seðlabank-
anum á árinu 1962 og þar með
í þeirrf aukningu gjaldeyrisforð-
ans, sem þá átti sér stað. Auk
þess hækkuðu almennar óbundn-
ar ínnstæður banka og annarra
innlánsstofnana um 153 millj. kr.,
en jafnframt voru lausaskuldir
þeirra við Seðlabankann að
mestu greiddar. Víxlar gegn verð
bréfum, sem verið höfðu 41 millj.
kr. í árslok 1961, greiddust að
fullu á árinu, og aðeins einn við-
Ekiptabanki var í skuld á reikn-
ingi sínum við Seðlabankann í
érslok, og nam hún rúmum 4
millj. kr.
Staða ríkissjóðs og ríkisstofn-
ana gagnvart Seðlabankanum
batnaði verulega á árinu 1962.
1 lok ársins 1961 var innstæða
á aðalviðskiptareikningr ríkis-
sjóðs 39 millj. kr. Eins og venja
er til, breyttist þessi innstæða
brátt í skuld, og varð skuld
ríkissjóðs við Seðlabankann á
þessum reikningi í lok ágúst-
mánaðar 85 millj. kr., og er það
meira en helmingi lægri upphæð
en hæsta skuld ríkissjóðs á árinu
1961. í lok ársins nam innstæða
á aðalviðskiptareikningi 86 millj.
kr. og hafði þannig batnað um
47 millj. kr. á árinu. Sé litið á
heildarviðskipti ríkissjóðs og
ríkisstofnana við Seðlabankann,
þar á meðal verðbréfakaup, sem
meira eða minna eru tengd starf-
semi ríkisins, batnaði staðan um
53 millj. kr. á árinu.
Þensla í viðskiptum banka
Mikil þensla átti sér stað í við-
skiptum bankakerfisins á árinu
1962, og jukust útlán og peninga-
magn mjög verulega. Aukning
spariinnlána nam samtals í bönk
um og sparisjóðum 762 millj. kr.
á móti 557 millj. kr. aukningu á
árinu 1961. Er þetta meiri aukn-
ing spariinnlána en nokkru
sinni fyrr, og nam hlutfallsleg
aukning á árinu 27%. Jafnframt
jukust veltiinnlán, það er að
segja innstæður á hlaupareikn-
ingum og sparisjóðsávísanabók-
um, einnig mikið eða samtals um
178 millj. kr. Er þetta 18%
'hækkun, en árið 1961 hækkuðu
veltiinnlán um alls 30%.
Útlánaaukiiing banka og spari-
sjóða á árinu 1962 nam 578
millj. kr., en það er um 13%
aukning. Við útlánaaukningu
bankanna þarf að bæta lánveit-
ingum Stofnlánadeildar sjávar-
útvegsins á árinu, þar sem þær
eru jafnótt dregnar frá útlána
liðum bankanna, en þær lækka
skuldir fyrirtækja í sjávarútveg-
inum við viðskiptabankana. Alls
námu útlán Stofnlánadeildar-
innar, sem afgreidd voru 1962,
55 millj. kr., svo að þeim við-
bættum var heildarútlánaaukn-
ing bankanna á árinu 633 millj.
kr., en á árinu 1961 nam út-
lánaaukningin reiknuð á sama
hátt 650 millj. kr. Útlánaaukn-
ingin hefur því orðið mjög svip-
uð bæði árin. Þessi mikla út-
lánaaukning gat átt sér stað
undanfarin tvö ár, án þess að
staða bankakerfisins gagnvart
Seðlabankanum versnaði, vegna
hinnar miklu aukningar innlána.
Þannig jukust spariinnlánin ein
á árinu 1962 um 762 millj. kr. eða
um 129 millj. kr. hærri upphæð
en nam aukningu útlána. Engu
að síður verður þessi útlána-
aukning áhyggjuefni, þegar Iitið
er á hina miklu þenslu í eftir-
spurn, sem átti sér stað á árinu
1962, og hefði strangara aðhald
í útlánum bankanna tvímæla-
laust verið æskilegt til að vega
þar á móti.
Hagstætt ár þjóðarbúinu
Síðastliðið ár hefur þannig
orðið þjóðarbúinu hagstætt, þjóð
arframleiðslan og þó einkum út-
flutningsframleiðslan hefur vax-
ið verulega, og framleiðslugeta
þjóðarinnar hefur verið vel nýtt.
Jafnmikil eða meiri framleiðslu-
aukning hefur nokkrum sinnum
átt sér stað hér á landi síðan
styrjöldinni lauk. í samanburði
við þau ár verður það að teljast
einn mikilvægasti árangur þessa
undanfarna góðæristímabils, að
tekizt hefur að nýta hinar góðu
ytri aðstæður til þess að stór-
bæta stöðu þjóðarbúsins út á við,
skapa traustari grundvöll frjálsra
viðskipta við önnur lönd og búa
í 'hagirin fyrir framtíðina. I
fyrsta sinn eftir Iok styrjaldar-
innar eiga íslendingar nú gjald-
eyrisvarasjóð, er gefur þeim
nokkurt svigrúm til þess að
mæta efnahagsörðugleikum og
áföllum, sem ætíð má búa.. við,
að þjóð háð duttlungum náttúru-
aflamja verði fyrir.
Hins vegar er rétt að hafa i
huga, að hinn hagstæði greiðslu-
jöfnuður við útlönd er ekki ein-
hlítur mælikvarði á heilbrigði
efnahagsástandsins. Þeir hlutir
geta átt sér stað samtímis, sem
síðar verði til þess að raska þvi
jafnvægi, sem náðst hefur og
snúa greiðsluafganginum við út-
lönd upp í halla. Þannig eru þess
nú þegar merki, að innflutning-
ur sé farinn að aukast örar en
gjaldeyristekjur þjóðarinnar, svo
að búast má við því, að greiðslu-
jöfnuðurinn verði óhagstæðari á
því ári, sem nú er hafið, en ver-
ið hefur undanfarin tvö ár. Hin
sívaxandi umfram eftirspurn
eftir vinnuafli og ör aukning
innflutnings á undanförnum
mánuðum eru greinileg merki
efnahagslegrar þenslu.
Xvær orsakir þenslu
Orsakir þessarar þenslu, sem
brátt getur Orðið að ofþenslu,
eru einkum tvær. Annars vegar
er hin mikla tekjuaukning í
sjávarútveginum, en hins vegar
þær launahækkanir, sem átt hafa
sér stað á síðastliðnu ári og það
sem af er þessu ári. Tekjuaukn-
ingin í sjávarútveginum er að
sjálfsögðu merki aukinnar þjóð-
arframleiðslu, enda hefur hún
verið samfara batnandi greiðslu
jöfnuði við útlönd. Engu að síð-
ur verður að hafa gát á því, að
slík tekjuaukning valdi ekki
meiri eftirspurnaraukningu en
framleiðslugeta þjóðarbúsins leyf
ir. í rauninni hefur þetta þegar
gerzt að verulegu leyti hér á
landi á síðastliðnu ári. Tekju-
aukningin í sjávarútveginum hef
ur valdið þenslu í hagkerfinu í
heild og mikilli samkeppni um
vinnuafl. Þetta ástand á vinnu-
markaðnum hefur vafalaust átt
mikinn þátt í þeim kaup- og
tekjuhækkunum, sem orðið hafa
síðustu mánuðina. Þessar launa-
hækkanir eru nú orðnar svo
miklar, að óhjákvæmilegt er að
varpa fram þeirri spurningu,
hvort þjóðarbúið geti borið þær
án alvarlegra áfalla. Ef reyna
á að gera sér grein fyrir þessu,
skipta tvö atriði mestu máli,
áhrif tekjuaukningarinnar á
stöðu þjóðarbúsins út á við og
áhrif launahækkananna á af-
komu útflutningsatvinnuveg-
anna.
Við hvörugu þessu er auðvelt
að gefa ákveðið svar enn sem
komið er. Hér skiptir það í raun-
inni meginmáli, hvort áframhald
verður á hinum miklu og góðu
aflabrögðum, sem einkennt hafa
síðastliðin tvö ár. Enginn veit,
hve lengi þau standa, en sé
gengið út frá þeirri forsendu, að
svo verði, er ástæða til að vöna,
að þjóðarbúið geti tekið á sig þá
eftirspurnaraukningu, sem orðin
er, án verulegrar rýrntmar gjald-
eyrisforðans. Hins vegar er hætt
við, að brátt verði endir bund-
inn á það tímabil greiðsluaf-
gangs, sem þjóðin hefur átt við
að búa nú um skeið. Er það óneit
anlega verr farið, þvi að full
ástæða væri til að reyna að
styrkja aðstöðu og traust þjóð-
arinnar út á við enn betur en
orðið er.
Hin góðu aflabrögð undanfar-
inna tveggja ára hafa tvímæla-
laust styrkt hag verulegs hluta
sjávarútvegsins. Hækkun fisk-
verðs og launa er hins vegar
Flóamanna var haldinn að
Flúðum í Hrunamannahreppi
í gær. Fundinn setti varafor-
maður stjórnar búsins, Sigur-
grímur Jónsson í Holti, í for-
föllum formanns, sr. Svein-
bjarnar Högnasonar. Vara-
formaður minntist í upphafi
máls síns tveggja látinna
starfsmanna, þeirra Eiríks
Jónssonar í Vorsabæ, sem
verið hafði cndurskoðandi
reikninga mjólkurbúsins allt
frá 1935, og Jóns Þorkelsson-
ar á Brjánsstöðum í Gríms-
nesi, sem um langt árabil var
fulltrúi sveitar sinnar á
fundum búsins.
v ÞESSI fundur var 35. aðalfund
ur Mjólkurbúis Flóamaiina og
orðin svo mikil, að fyTÍrsjáan-
legir eru miklir rekstrarörðug-
leikar í fiskiðnaðinum, ef lengra
er haldið áfram á sömu braut.
Jafnframt er útflutningur land-
búnaðarvara ekki hugsanlegur á
samkeppnisgrundvelli með þeim
framleiðslukostnaði, sem nú er.
Launahækkun
Þær launahækkanir, sem orðið
hafa að undanförnu, eru vafa-
laust meiri en æskilegt hefði
verið miðað við framleiðslu-
aukningu, og verður að ' búast
við, að þær hafi í för með sér
versnandi greiðslujöfnuð við út-
lönd og erfiðari rekstur í mikil-
vægum þáttum útflutningsfram-
leiðslunnar. Það hlýtur því að
vera meginverkefni í efnahags-
málurn á næstunni að koma á
festu í kaupgjaldsmálum, þannig
að ekki eigi sér stað kauphækk-
anir umfram það, sem fram-
leiðsluaukning þjóðarinnar leyf-
ir. Hér er um að ræða eitt erf-
iðasta efnahagsvandamál þjóðar-
innar, en til lausnar því skiptir
öllu máli, að launþegar skilji, að
auknar tekjur án freimleiðslu-
aukningar geta ekki til lengdar
fært þeim bætt lífskjör.
Siglufjarðar*
bátar í höfn
Fréttaritarinn á Siglufirði
símaði:
Hér brast á í morgun NA stórhríð
mjög snögglega og má segja að
stórhríð hafi verið í allan dag,
með þeim afleiðingum að fresta
varð keppni í Skíðalandsmóti ís-
lands, sem hefjast átti í dag. Trill
ur, sem voru á sjó hér í morgun
eru allar komnar í höfn, en úti
eru tveir dekkbátar 70 lesta, en
þeir eru ekki taldir í neinni hættu
Búizt er við þeim inn kL 6—7
í kvöld.
Siglufjarðarskarðsvegurinn var
opnaður í gær og lokaðist aftur
fljótlega upp úr hádeginu í dag.
Aðeins einn bíll kom til okkar
yfir skarðið, vöruflutningabíll úr
Reykjavík, eign Birgis Runólfs-
sonar, sem annast vöruflutninga
hér á milli. Eg hafði samband
við Birgi síðari hluta dagsins, því
bíllinn lagði af stað vestur yfir
aftur um 10 leytið í morgun, og
tók ferðin yfir skarðið 3 tíma,
sem er venjulega um klukkutíma
akstur.
Viðræður um fjarskipti
Genf, 9. apríl (AP):
í dag hófust í Genf viðræður full
trúa Rússa og Bandaríkjamanna
um bein fjarskipti milli Moskvu
og Washington.
síðasta ár 33. reikningsár búsins.
’Varaformaður kvað afkomu bús-
inis á árinu góða. Verðgrundvall-
arverð hafði náðst til bænda fyr-
ir mjólkina.
Varafonmaður nefndi til fund-
arstjórnar þá Þorstein Sigurðs-
son á Vatnsleysu og Sigmund
Sigurðsson í Langholti og til f und
arritara Pál Björgvinsson Efra-
Hvoilli og Eggert Ólafsison á Þor-
valdsseyri.
Að lokinni ræðu varaformanns
fluttu fraimkvæmdastjóri mjólk
urbúsins Grétar Símonarson
skýrslu sina og skýrði reikninga
búsins.
Heildar mjólkurmagn búsins
á árinu 1962 nam 34.644,498 kg.
og varð aukningin frá árinu áð-
ur 5,622% eða 1.844.048 kg. Mjódk
uraukning fór fyrst og fremst
til ostagerða en framleitt var
rúml. 85 tonnum meira af oeti
Það þarf að miða stefnuna 1
peninga- og fjármálum við það
að hamla á móti þeirri miklu
þenslu í eftirspurn, sem nú ríkir.
Enda þótt nokkur greiðslujöfn-
uður hafi orðið i fjármálum rík-
isins síðastliðin ár, hefur ríkis-
sjóður ekki með fjármálalegum
aðgerðum hamlað neitt, sem heit
ið getur, á móti vaxandi þenslu.
Eins og útlitið er nú í efnahags-
mádum, má fastlega búast við
þvi, að þörf verði öflugri ráð-
stafana af hálfu rikisins í þvi
skyni að draga úr umfram eftir-
spurn í þjóðarbúinu. Við þær að-
stæður, sem ríkja hér á landi nú,
eru fjármálalegar aðgerðir rík-
isins áhrifarikasta meðalið til
þess að koma í veg fyrir örari
aukningu eftirspurnar en fram-
leiðslugeta þjóðarbúsins leyfir.
Enda þótt tekizt hafi með pen-
ingalegum aðgerðum Seðlabank-
ans að koma á meira jafnvægi
en áður á peningamarkaðnum og
styrkja stöðuna út á við, verður
varla sagt, að stefnan í peninga-
málum hafi haft í för með sér
nokkur samdráttaráhrif, og ekki
hefur tekizt að koma í veg fyrir
þá miklu þenslu eftirspurnar,
sem nú einkennir efnahags-
ástandið. Það enþví sízt ástæða
til þess, eins og nú horfir, að
draga úr aðhaldi í peningamál-
um eða breyta í grundvallar-
atriðum þeirri stefnu, sem fylgt
hefur verið. Jafnframt verður
yfirstjórn peningamálanna að
vera við því búin að gera gagn-
ráðstafanir, gerist þess þörf
vegna hættulegrar þróunar. i
verðlags- eða gjaldeyrismálum,
með auknu aðhaldi um útlán og
öðrum aðgerðum í peningamál-
um.
Sterk aðstaða þjóðarbúsms
Staða þjóðarbúsins er í dag
sterkari en hún hefur verið um
margra ára skeið. Þjóðarfram-
leiðslan er mikil, greiðslujöfn-
uðurinn er sæmilegur, og gjald-
eyrisforðinn skapar nokkurt ör-
yggi gegn áföllum. Ytri aðstæð-
ur eiga því að vera góðar til þess
að mæta vandamálum, sem
framundan eru, ef þenslu og
verðhækkunum er ekki gefinn
laus taumurinn.
Vonandi ber þjóðin gæfu til
þess að leysa þessi vandamál og
stöðva hina nýju verðhækkun-
aröldu, áður en hún ris of hátt
og kollvarpar þvi jafnvægi, sem
hefur náðst. Til þess að þetta
takist þarf örugga stjórn efna-
hagsmála, bæði í fjármálum og
peningamálum, en ekki sízt al-
mennan skilning þjóðarinnar á
þvi, hve mikilvægt efhahagslegt
jafnvægi er sem grundvöllur
uppbyggingar atvinnulífsins og
þeirra bættu lífskjara, sem allir
vilja stefna að.
uim 1.392.638 kg.
Flutningskostnaður að búinn
reyndist pr. lítra 0,3923 kr. og
hafði hækkað um 3,8 aura pr.
lítra. Nettóútborgun pr. lítra
reyndist því 4,4146 kr. -Sem fyrr
segir náðist að greiða verðgrund
vallarverð kr. 4,9005 brúttó til
bænda og komu eftirstöðvamar
88% eyrir til útborgunar í gær.
Að loknum skýrslum .fóru fram
kosningar. Úr stjórn áttu að
ganga Ágúst Þorvaldsson, en var
endurkjörinn. í stjórn eiga nú
sæti: Sr. Sveinbjörn Högnason,
Sigurgrímur Jónsson, Þorsteinn
Sigurðsson, Eggert Ólafsson og
Ágúst Þorvaldsson. Guðjón Jóns
son, Hallgeirsey var kosinn end
urskoðandi.
Ails sóttu þennan fund 63 full
trúan og um 100 gestir auk
þeirra. Var öllum veitt kaffi í
boði búsins.
Sakir rúmleysis í blaðinu verð-
ur nánari frásögn af fundinum að
bíða næsta blaðs svo sem niður-
en árið áður. Seld nýmjólk óx, stöður reikninga og samþykktir.
IVIjólkurbiJ Flóamanna
greiddi verðgrundvallarv.
Aoalfundui búsins haldinn að Flúðum í gæi
AÐALFUNDUR Mjólkurbús