Morgunblaðið - 17.04.1963, Síða 14
14
lHORrrnSBL AÐIÐ
Miðvfkudagur 17- april 1963
ÁSTA SIGURLAUG ÞORVALDSDÓTTIR
frá Krossum,
andaðist 11. apríl að heimili sonar síns Blönduhlíð 20. —
Jarðarförin fer fram fimmtudaginn 18. apríl kl. 10,30
frá Fossvogskirkju. Athöfninni verður útvarpað. Blóm
eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast
hinnar látnu er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnaböm.
Eiginmaður minn og faðir okkar
KARLSCHRAM
Hávallagötu 51
andaðist á páskadagsmorgun 14. þ.m. í Bæjarspítalanum.
Unnur Schram og börn.
Faðir okkar
JÓN JÓNSSON
Stóra-Skipholti við Grandaveg
andaðist miðvikudaginn 10. þ. m. Jarðsungið verður
frá Neskirkju fimmtudaginn 18. apríl kl. 2 e.h. —
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Börn hins látna.
Litli drengurinn okkar
PÁLL RÚNAR
sem andaðist 11. apríl verður jarðsunginn frá Kot-
strandarkirkju í dag, 17. apríl. Athöfnin hefst kl.
13,30 á heimili okkar í Hveragerði.
Steinunn Runólfsdóttir,
Ingólfur Pálsson.
Útför
GUÐMUNDAR HELGASONAR
Óðinsgötu 4
verður gerð frá Fríkirkjunni, fimmtudaginn 18. apríl
kl. 1,30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð.
Börn og tengdabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
HJÖRLEIFS KRISTMANNSSONAR
skósmiðs.
Kristín Þorleifsdóttir, Gerður Hjörleifsdóttir,
Hjördís Hjörleifsson, Guðjón Einarsson,
Kristmann Hjórleifsson, Hulda Einarsdóttir,
Helgi Hjörleifsson, Sigrún Gísladóttir,
Ásgeir Hjörleifsson, Hjördís Sigurðardóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, við andlát
og jarðarför systur okkar
MONIKU SIGURÐARDÓTTUR
Reynisstað.
Sérstaklega viljum við þakka Reynisstaðarfjölskyldunni,
einnig Kvenfélagi og Ungmennafélagi Staðarhrepps svo
og Karlakórnum Heimi.
Systkini hinnar látnu.
Þökkum hjartanlega öllum þeim, sem sýndu okkur
hluttekningu við andlát og útför
KRISTRCNAR einarsdóttur
Gunnarssundi 4, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við stofusystrum hennar og
hjúkrunarkonum á þeim sjúkrahúsum er hún dvaldist á.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Eina Guðnadóttir, Matthías Kjartansson,
Þuríður Guðjónsdóttir, Benedikt Guðnason,
Laufey Guðnadóttir, Þorsteinn Eyjólfsson,
Daðey Sveinbjörnsdóttir, Sigurður M. Jóhannsson,
Einar Guðnason og barnaböm.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og hjálpsemi við andiáFog jarðarför sonar
okkar,
FREYS SVERRISSONAR
Sérstakar þakkir viljum við færa sóknarprestinum,
séra Birni Jónssyni, Keflavík, skólastjóra Bjarna Hall-
dórssyni, kennurum og nemendum Gagnfræðaskóla
Keflavíkur.
Sverrir og Fjóla Matthíasson.
Minningarathöfn um son minn
SIGURÐ INGVARSSON
sem fórst 11. marz sl. hefur farið fram. Þakka innilega
hluttekningu.
Margrét Sigurðardóttir.
Jón Sigurbur
Einarsson - Minning
JÓN Sigurður Einarsson Urðar-
stíg 13 hér í borg varð bráð-
kvaddur að heimili sínu aðfara-
nótt 27. marz s.l. á fimmtugasta
aldursári. Jón var starfsmaður í
skipadeild í Vélsm. Héðni h/f og
segja má að hann ynni þar fram
á síðustu stund, því að þremur
tímum eftir að hann yfirgaf
vinnustað sinn var hann burt
kallaður úr þessum heimi. Því
geta vinir og vinnufélagar hans
tæplega trúað því að hann sé
þorfinn af sjónarsviðinu svo
skyndilega.
Hann mun þó eigi hafa gengið
heill til skógar að undanförnu
þó fáir vissu það, því ósérhlífni
og dugnaður var honum í blóð
borið.
Vinnuskerpa, trúmennska, glað
vær og skemmtileg umgengni
voru hans einkenni á vinnustað
auk félagslegra málefna sem
hann lét til sín taka.
Jón Einarsson var fæddur á
Alúðar þakkir fyrir margvíslega vinsemd er mér var
auðsýnd á sjötugs afmæli mínu.
Þórður Kristleifsson.
Ykkur, sem minntust mín á 70 ára afmælinu, með
heimsóknum, gjöfum og skeytum færi ég mínar inni-
legustu þakkir. Sérstaklega þakka ég hjónunum
Magnúsi og Eddu á Lynghaga 7 fyrir þeirra aðstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurður Magnússon, .
Bergstaðastræti 63.
Beztu þakkir færi ég öllum, sem minntust mín á af-
mæli mínu 10. þ.m.
Ellcn Einarsson.
Lokað í dag
frá kl. 3 vegna jarðarfarar Axels Þorbjörnssonar.
Ásbjörn Ólafsson hff.
Grettisgötu 2.
Elskuleg móðir og faðir minn, tengdaforeldrar, systir
Og mágur, amma og afi
MARÍA BRYNJÓLFSDÓTTIR WEST
og KARL WEST
létust í flugslysi 14. þessa mánaðar.
Brynjólfur Brynjólfsson,
Guðrún West Frederiksen, Martin Frederiksen,
og barnabörnin.
Móðir mín, dóttir og systir,
MARÍA JÓNSDÓTTIR
lézt af slysförum 14. þessa mánaðar.
Sigurlaug Halldórsdóttir,
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
Jón Vigfússon,
Esther Jónsdóttir.
Eiginkona mín
KARLOTTA KRISTJÁNSDÓTTIR
andaðist í Landakotsspítala 15. apríl
Gunnar Hestnes
Bróðir okkar
MAGNÚS ÁGÚST SIGURÐSSON
frá Flatey á Breiðafirði
lézt að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn
13. apríl sl.
Systkini hins látna.
Utför
TORFA JÓHANNSSONAR
bæjarfógeta í Vestmannaeyjum
er andaðist í Landakotsspítala 10. ágúst, fer fram frá
Fossvogskirkju, föstudaginn 19. apríl kl. 10,30 f.h. —
Athöfninni verðuT útvarpað.
Ólöf Jónsdóttir,
Kristján Torfason,
Svava Torfadóttir.
Búðum á Snæfellsnesi 19/2 1914.
Foreldrar hans voru Efemía Vig-
fúsdótir frá Kálfárvöllum í Stað-
arsveit á Snæfellsnesi og Einar
Jónsson frá Skammadal í Mýr-
dal V-Skaft. Þau eignuðust 9
börn og komust 6 þeirra til full-
orðins ára, Guðrún, Ingveldur,
Ástveig, Eyjólfur, Vigfús og Jón.
Af þeim lifa nú tveir bræður og
ein systir, Eyjólfur vélstjóri, Vig
fús rafvirkjameistari og Guðrún
húsfrú, öll eru þau búsett hér i
Reykjavík.
Jón ólst upp í Ólafsvík en þang
að fluttu foreldrar hans. Síðar
fluttist fjölskyldan svo til Hafn-
arfjarðar eða árið 1933 og var
Jón þar lengst af foreldrum sín-
um góð stoð, enda eldri systkini
þá farin að heiman. Mestan hluta
ævi sinnar stundaði Jón sjósókn,
fyrst á línubátum og síðar á tog-
urum.
Á stríðsárunum sigldi hann
jafnan sem aðstoðarmaður í vél,
en síðar sem 1. vélstjóri á Kveld-
úlfstogurunum.
En þegar þessi happaskip voru
úr sér gengin, gerðust þessar
hetjur íslenzkra sjómanna starfs-
menn í landi, þar á meðal var
Jón Einarsson. Hann mun hafa
flutzt til Reykjavíkur í lok síðari
heimsstyrj aldarinnar.
Árið 1949 giftist hann eftir-
Ufandi konu sinni Guðrúnu Ásu
Guðjónsdóttur úr Reykjavík og
hafa þau búið hér síðan og eiga
eina kjördóttur Jónínu að nafni
sem nú er 11 ára. Votta ég þeim
mæðgum innilega samúð mína
vegna fráfalls þessa ágæta eigin-
manns og föður. Sambúð þeirra
hjóna var ánægjurík.
1 ársbyrjun 1954 byrjaði Jóa
vinnu í Vélsm. Héðni h/f en
hvarf frá því um 2Vi árs skeið
og vann þá við röralagnir hjá
fyrirtækinu Helga Magnússyni og
Co.
5. júní 1958 hóf hann svo starf
sitt sem viðgerðarmaður í skipa-
deild Vélsm. Héðins h/f og starf-
aði við það til dauðadags.
Verkum hans verður eigi full-
komlega lýst í fáum orðum en
þau reyndust giftudrjúg og munu
tala sínu máli um langan aldur.
Þó Jón yrði ekki gamall maður
á hann margar vinnustundir að
baki trúverðuglega af hendi
leystar.
Við sem kynntumst Jóni á
vinnustað söknum þar fyrst og
fremst sérstaklega góðs félaga
sem var alltaf reiðubúinn að rétta
öðrum hjálparhönd.
Viðmót hans var sem frískandi
vorblær, ákveðnar skoðanir á við
horf lífsins og bar fyrir brjósti
hag þeirra er minnst úr býtum
bera.
Á uppvaxtarárum sínum dvaldi
hann oft hjá frændfólki sínu á
Hamarendum í Breiðuvík á Snæ-
fellsnesi, þar var mannmargt á
heimili og haldnar oft kvöldvök-
ur og þá jafnan bundið mál i
heiðri haft.
Jón mun því snemma hafa tek-
ið virkan þátt í að skemmta meS
kviðlingum, því ljóðelskur var
hann og hagyrðingur góður þótt
hann færi dult með það, einnig
unni hann sönglistinni mjög.
Til hans var jafnan gott að
leita ef botna þurfti vísuparta og
er þess skemmst að minnast að
Framhald á bls. 17,