Morgunblaðið - 25.04.1963, Side 5
Fimmtudagur 25. apríl 1963
MORGVViBLAÐlÐ
5
E X O D TJ S
Bandarísk, Laugarásbíó,
220 mínútur.
Leikstjóri: Otto Preminger.
Otto Preminger er leikstjóri, sem
J>ekkir tækni kvikmyndarinnar út
í yztu æsar og kann vel að not-
færa sér hana, e<n liggur ekki sér
lega mikið á hjarta. Hann nýtur
sín bezt í myndum — sérstaklega
glæpamyndum, sbr. Anatomy of
Murder — þar sem áherzla er
lögð á yfirborðskalda og óhlut-
læga, nánast anatómiska, með-
ferð efnisins. Algjört hlutleysi
Premingers gagnvart kvikmynda
persónum sínum er megin ein-
kenni hans, skírskotun til skyn-
seminnar en ekki tilfinninganna.
Þetta er af sumum talið bera
vott um að Preminger hafi enga
eamúð með persónum sínum og
að hlutleysi hans beri vott um
kaldlyndi. En Preminger virðist
fyrst og fremst leitast við að
leggja málin fyrir áhorfandann
ón þess að taka afstöðu sjálfur
eða reynað að þrengja sjónar-
miðum sínum upp á hann, heldur
láta hann sjálfan um að taka af-
stöðu.
Og sannleikurinn er líklega
einnig sá að Preminger þekki, í
flestum tilfellum, takmörk sín.
Því þegar tilfinningamálin koma
til kvikmyndasögunnar, endar
hann æði oft út á braut ósann-
færandi og innantóms tilfinninga
vafsturs. Og það er á þeirri hálu
braut sem hann rennur á rassinn
með Exodus. Atriði, sem krefjast
innileika og sannra tilfinninga,
eins og þegar Karen hittir föður
sinn geðveikan eftir misþyrming
ar nazista, missa marks vegna
máttleysis og ósannfæringar. Það
eru m.a. þau atriði þar sem hann
aetlar að spila á tilfinningarnar,
patríótisma og meðaumkvun, sem
epilla kvikmyndinni, sem fyrir
ýmssa annarra hluta sakir, sem
6Íðar verða nefndir, er oft nokk
uð góð til áhorfunar, þótt löng
sé. En lítum nú 4 hvernig Prem
inger, sem sjálfur er Gyðingur,
sér sögu hins nýja ísraels, en gef
ur þó full lítinn gaum að vanda
málum Arabanna, sem fyrir voru
í landinu og búnir að vera þar
öldum saman:
Ártalið er 1947. Bandarísk
hjúkrunarkona, Kitty Fremont
(Eva Marie Saint), er stödd á
Kýpur. Þar sér hún búðir, sem
Bretar hafa kyrrsett í um 30 þús.
Gyðinga, sem reynt hafa að kom
ast frá Evrópu til Palestínu, sem
er undir umboðsstjórn Breta.
Hún tekur að sér hjúkrunarstörf
þar og kynnist ungri stúlku,
Karen (Jill Haworth), sem vonar
að finna föður sinn í ísrael, og
Dov Landau (Sal Mineo), uþg-
um, bitrum manni frá Ghettóinu
í Varsjá, Haganah, tekst að
smygla fjölmennum hóp úr búð-
unum um borð í gamalt grískt
skip og sigla því til Palestínu. Eo
Gyðingar eru einnig klofnir.
Haganah samtökin trúa því að
sjálfstæði verði aðeins fengið
með friðsamlegum aðgerðum, en
Irgum samtökin vilja aðeins
beita hermdarverkum gegn Bret-
um. Og Dov, sem nazistar hafa
unga ríki hefur verið, en mynd
Premingers er ekki sérlega mark
vert tillag til skilnings á henni.
Preminger reynir í þessari
þriggja og hálfs tíma maraþon-
epík í Superpanavision og Techni
color að spanna yfir þjóðflutn-
inga Gyðinga til Palestínu og alla
tilorðningu ísraels, án þess að
ýfa upp nokkur sár og leggur sig
fram við að mpðga engan, hvorki
Breta né aðra. Og til að hafa allt
með sem aukið getur aðdráttar-
afl og fjldahylli þessarar milljóna
fjárfestingar, er tvöfaldri ástar-
historíu blandað saman við. Sal
Mineo og Jill Haworth fyrir tán
ingana og Paul Newman og Eva
Marie Saint fyrir unglinga eldri
en tvítugt.
Það sem ber myndina uppi er
ágætur leikur, bæði hjá Newman
og Saint og sér9taklega sýnir
Opatoshu minnisstæðan leik sem
leiðtogi Irgun. Einnig er kvik-
myndu Sam Levitts mikið augna
gaman og sömuleiðis stjórn Prem
ingers á atriðum eins og æsandi
Paul Newman, Alexandra Stewart og Eva Marie Saint eru
meðal fjölda leikenda í „Exodus“.
notað bæði til einkaþarfa og til
að sprengja grafir handa gas-
myrtum Gyðingum, gengur í Iirg
un samtökin og verður brátt einn
helzti sprengingameistari þeirra.
Hann og Akiva (David Opotoshu)
frændi Ara og leiðtogi Irgun, eru
ásamt fleirum handteknir og
dæmdir til dauða. En Irgun og
Haganah taka höndum saman og
ná þeim úr fangelsinu, með þvi
að sprengja það bæði utan og
innan frá.
29. nóvember 1947 samþykkja
Sameinuðu þjóðirnar að landinu
skuli skipt og Ísraelsríki stofnað.
á Gyðinga og myndinni lýkur á
Samstundis hefja Arabar árásir
byrjun langrar baráttu — sem
varla er enn lokið — fyrir tilveru
hins nýja ríkis.
Engum ætti að dyljast hvílíkt
afrek barátta Gyðinga fyrir sínu
útbrotinu úr fangelsinu, sem er
sérlega vel unnið og spennandi
atriði, með því bezta sem sézt
hefur af slíku á risatjaldinu.
Preminger hefur vikið frá
Hollywood-tækninni að því leiti
að hann kvikmyndar allt á raun
verulegum stöðum, en ekki fyrir
tilbúnu sviði, en þó að það sé
án efa kostur, að öðru jöfnu, und
irstrikar þetta umhverfisraunsæi
aðeins miklu meir óeðlilegan
Hollywood-stælinn á leikendun-
um, t.d. stífpressaðar buxur, ný-
stífaðar skyrtur og allir líta út
eins og þeir væru nýkomnir út
af hárgreiðslustofu, hvað sem á
gengur. Þetta var góð og gi'ld
vara fyrir einum eða tveimur ára
tugum, en nú á tímum sívaxandi
kvikmyndaraunsæis gengur það
varla lengur.
Pétur Ólafsson.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er í Rvík. Askja er væntanleg
til Rotterdam í dag.
H.f. Jöklar: Drangjökull fór í gær
frá Vestmannaeyjum áleiðis til Riga
€>g Hamborgar. Langjökull kom til
Akureyrar í gær frá Murmansk. Vatna
jökull fer í dag frá Rvík áleiðis til
Bremerhaven, Cuxhaven og Hamborg-
»r.
Hafskip h.f.: Laxá «r í Gautaborg.
Hangá er í Rvík. Prinsesse Irena fór
frá Gdynia 23. þm. til Rvíkur. Nina
hleður í Gautaborg.
Loftleiðir h.f.: Eiríkur rauði er vænt-
•nlegur frá NY kl. 09:00. Fer til Lux-
emborgar kl. 10:30. ^Cernur til baka frá
Luxemborg kl. 24:00. Fer til NY kl.
01:30. Snorri Sturluson er væntanlegur
frá Helsingfors og Osló kl. 22:00. Fer
til NY kl. 23:30.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í dag. Vænt-
anleg aftur til Rvíkur kl. 22:40 í
kvöld. Vélin fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 1 fyrramálið.
lnnanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga tii Akureyrar (2 ferðir), Egils-
Staða, Kópaskers, Vestmannaeyja og
X>órshafnar. Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2- ferðir), ísa-
fjarðar, Fagurhólsmýrar, Hornafjarð-
ar og Sauðárkróks.
H.f. Eimskipafélag íslands: Brúar-
toss fer frá Dublin 24. tU NY. Detti-
foss kom til Rvíkur 20. þm. frá Rott-
erdam. Fjallfoss fer frá Rvík 24. þm.
til Akureyrar. Goðafoss fór frá Kefla-
vík 21. þm. til Gloucester. Gullfoss
er í Kaupmannahöfn. Lagarfoss fór
frá Hangö 20. þm. væntanlegur til
Rvíkur síðdegis á morgun 25. þm.
Mánafoss kom ,til Rvíkur 21. þm. frá
Stykkishólmi. Reykjafoss fer frá Ant-
verpen 24. þm. til Leith og Hull. Sel-
foss kom til Rotterdam 24. þm. Trölla
foss kom til Rvíkur 19. þnx. frá Ant-
werpen. Tungufoss er í Helsinki. Anni
Nubel fór frá Hull 20 þm. til Rvíkur.
Anne Bögelund fór frá Gautaborg 20.
þm. til Rvíkur. Forra lesar í Vents-
pils. Ulla Danielsen lestar í Kaup-
mannahöfn.
Málverkasýningu Jóns Ferdínandssonar í Bog-asal Þjóðminja-
minjasafnsins, sem ljúka átti síðastliðinn sunnudag, var fram-
lengt, og lýkur henni í dag. Aðsókn að sýninguni hefur verið
góð og allmargar myndir selzt, meðal annars seidust 6 myndir
fyrsta daginn.
Vörubíll óskast má ekki kosta meira en 40—50 þúsund. Uppl. í sima 19455 eða 19446. Tíl sölu Einbýlishús við Grettis- götu. Ræktuð eignarlóð. Uppl. í síma 36499, kl. 7—9 í kvöld og næstu kvöld.
Chevrolet sendiferðabifreið til sölu í gangfæru standi. Uppl. í síma 50883. Glæsilegur Grundig radíófónn með segulbandi, fjögurra hraða plötuspil- ara, plötu- og segulbands- geymslu og vínskáp er til sölu að Fjölnisvegi 4. Verð kr. 17.000,00.
Stúlka óskast á gott sveitaheimili, má hafa með sér barn. Uppl. í síma 36429. Óska að fá leigðan sumarbústað í nágrenni Reykjavíkur eða Hafnar- fjarðar. Uppl. í sima 36930 næstu daga.
Fullorðin kona einhleyp, óskar eftir stofu ' og eldhúsi eða eldunar- plássi. Uppl. í síma 12054. ATHUGIÐ 1 að bori'ö saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu, en öðrum blöðum.
HÚSEIGENDUR
S7 EINGIRÐINGAR
Vorannirnar eru að byrja.
Pantið girðingar tímanlega.
Mörg falleg mynstur af háum og lágum
girðingum fyrirliggjandi.
v
Sendum út um allt land.
Afgreiðslum girðingar samstundis.
MOSAIK hf.
Þverholti 15 — Sími 19860.
Glæsileg íbúð til sölu
5 herbergja efri hæð í nýju húsi með sér inngangi
og sér hita á einum fallegasta stað í austurborginni.
Lysthafendur leggi nöfn og símanúmer á afgr. blaðs-
ins fyrir 5. maí n.k. merkt: „Fagurt útsýni — 6876“.
Skaftfellingafelagið
í Reykjavík heldur skemmtifund í Skátaheimilinu
(gamla salnum) iaugardaginn 27. apríl kl. 9 e.h.
Félagsvist — Dans.
Skaftfellingar mætið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
Komið. Og
Igjfí skoðið
Prinzinn.
-JMHSríf-
Verð kr: 119.700.
FÁLKIIMN HF.
Laugavegi 24 — Reykjavík
Söluumboð á Akureyri:
• Lúðvík Jónsson & CO.