Morgunblaðið - 25.04.1963, Blaðsíða 24
93. tbl. — Fimmtudagxir 25. apríl 1963
Ólafur Magnússon
með 7660 tunnur
Um 17 þúsund tunnur fengust í f/rrinótt
Framsóknarroenn á þingi.
Hátíðahöld Sumargjafar í dag
Fjölbreyttai inni- og útiskemmtanir
Starísemi íélagsins í.ölbreytt; barna-
heimilum fjölgar að mun
FOŒIRAÐAMENN Sumar-
gjafar boðuðu fréttamenn á
sinn fund í fyrradag og
skýrðu frá hátíðahöldum í
dag, sumardaginn fyrsta.
Hátíðahöldin verða með
svipuðu sniði og verið hefur
undanfarin ár. Efnt verður til
skrú&gangna og útiskemmt-
ana, auk þess, sem skemmt-
Hvöt býður til
kaffidrykkju
ALLIR þingfulltrúar landssam-
bands Sjálfstæðiskvenna og á-
heyrnarfulltrúar eru boðnir til
kaffidrykkju eftir þingið í dag og
aðrar landsfundarkonur, sem eru
staddar í bænum, eru beðnar að
koma til kaffidrykkjunnar kl.
4,30—5.00.
I*aff hefur ævinlega verið siffur
aff landsfundarkonur hittust yfir
kaffibolla meffan á þingstörfum
stæði, en að þessu sinni er ekki
hægt að koma því við á öðrum
tíma, og er vonast til að konur
sjái sér fært aff dveljast við kaffi
drykkjuna um stund að loknu
þingi.
anir verða í flestum sam-
komuhúsum bæjarins.
Að venju kemur Sólskin, bók
barnanna, út í dag. Þá verða
seld merki dagsins, og islenzkir
fánar.
Starfsemi félagsins er nú mik-
il og er mikil fjölgun barna-
heimila fyrirhuguð á næstu ár-
um.
Hátíðahöldin hefjast kl. 12.45
í dag, með skrúðgöngum frá Aust
urbæjarskólanum og Melaskól-
anum. Mætast þær í Lækjar-
götu. Útiskemmtanirnar hefjast
að þeim loknum, og leika þá
lúðrasveitir drengja, flutt verð-
ur ávarp, en síðan verður sung-
ið. —
Inniikemmtanir verða með
fjölbreyttara móti. Verða þær
í Iðnó (kl. 14.00), Háskóiabíó og
Austurbæjarbíó (kl. 15.00) og
Iðnó (kl. 16.00). Auk þess verða
kvikmyndasýningar í fimm
kvikmyndahúsum. Er nánar
greint frá tilhögun í auglýsingu
hér í blaðinu í dag.
Form. Sumargjafar, Ásgeir
Guðmundsson, skýrði frétta-
mönnum nokkuð frá starfsemi
Sumargjafar á undanförnum ár-
um. —
Hún hefur farið vaxandi, og
rekur félagið nú 4 dagheimili og
11. þús. stolið í Herjólfi
ELLEFU þúsund krónum og á
annað þúsund krónum í spari-
merkjum var stolið í gærmorg-
un frá ungum manni, sem var
farþegi með Herjólfi frá Vest-
mannaeyjum til Reykjavíkur.
Ungi maðurinn er Eyfirðing-
ur, sem hafði verið að vinna í
Eyjum. Stolið var því, sem hann
hafði sparað saman.
Farþeginn hafði stungið banka
bók með peningunum og spari-
merkjunum undir kodda sinn, er
hann fór að sofa á leiðinni til
Reykjavíkur.
Þegar hann vaknaði morgun-
inn eftir fór hann í veitingasal
skipsins til að fá sér að drekka,
en láðist að taka peningana með
sér.
Þegar hann kom aftur í klef-
ann var bankabókin og féð horf-
ið. Farþeginn gerði stýrimannin-
um aðvart um stuldinn, og hann
hafði samband við lögregluna.
Það var um það bil, sem komið
var til Reykjavíkur. Flestir far-
þegarnir voru farnir í land, þeg-
ar lögregian kom um borð. Nú er
þjúfsins leitað.
7 leikskóla. Bygging fimmta
dagheimilisins er nú að hefjast,
og verður henni lokið síðar á
þessu ári. Félagið hefur á und-
anförnum árum notið styrks frá
Reykjavíkurborg, og nemur
hann nú árlega um 3 Ks milljón
króna. Auk þess veitir ríkið um
300 þúsund króna árlega til starf
seminnar nú.
Þá hefur Reykjavíkurborg gert
sérstaka áætlun um starfsemi
Sumargjafar, og verða veittar
42 milljónir króna til hennar á
næstu fimm árum.
Skýrði Ásgeir Guðmundsson
svo frá, að á þeim tíma væri
gert ráð fyrir, að heimilum Sum
argjafar fjölgaði að mun, yrðu
jafnvel helmingi fleiri en nú.
í stjórn Sumargjafar sitja nú,
auk formanns, Jónas Jósteins-
son, varaform. og Þórunn Ein-
arsdóttir, ritari. Framkvæmda-
stjóri er Bogi Sigurðsson.
FLESTIR sildveiffibá.tanna fengu
góffann afla í fyrrinótt um 27
sjómilur norff-vestur af Akra-
nesi. Heildaraflinn var um 17
þúsund tunnur. Aflahæstur var
Ólafur Magnússon með 1600
tunnur.
Bátarnlr byrjuðu að kasta um
kl. 10,30 í fyrrakvöld og héldu
þvi áfrarn til klukkan um þrjú
um nóittina, en þá var siíldin far-
in að dýpka á sér.
Héldu bátarnir þá inn með
aflann. Þessir komu til Reykja-
víkur með 12.500 tunnur aHs:
Leifur Eiriksson, 400, Stapafell
760, Sólrún 1400, Akraborg 1400,
Jón á Stapa 600, Víðir SU 800,
Hafrún 150. Halldór Jónsison 400,
Þráinn 200, Ólafur Magnússon
1600 ,Snæfell 350, Hannes Haf-
stein 1000, Sigurður Bjarnason
1000, Margrét 250, Haraldur 600,
Höfrungur II 600 og Sigurpáll
1000.
Til Ólafsvíkur fór Skarðsvík
með 700 tunnur og til Akraness
^ 12 dauðadæmdir.
Bagdad, 24. apríl NTB-AP:
í dag voru dæmdir til
dauða tólf menn, sem höfðu
átt þátt í því að berja niður
samkvæmt fyrirskipun Kass-
ems, fyrrv. forsætisráðherra,
uppreisnina í Mosul 1059. Þrír
aðrir menn voru dæmdir til
lífstíðarfangelsis.
Höfrungur 1100, Skárnir 1000,
Fiskaskagi 800 og Sigurfari 600.
Þetta er þeir bátar sem blað-
inu er kunnugt um að fengu
síld í fyrrinótt, en þeir geta ver-
ið fleiri.
Steinsteypt
sæluhús
fauk
SÆLUHÚSIÐ í Hafursey á
Mýrdalssandi er fokið. Taliff
er aff þetta hafi gerzt
í norffan-stórviffrinu, fyrir
páska. Þakiff virffist hafa svif-í
iff í heilu lagi yfir í gömluZl
réttina, sem er nokkru sunnar J
og ligigur þakiff þar. Veggirn-1
ir hafa hins vegar molazt í
sundur en þeir voru úr
steypuflekum, sem voru bolt-
affir saman. Grunnurinn er
steyptur og stendur óskemmd
ur eftir. Brakiff úr húsinu
liggur á víff og dreif um
kring ásamt ýmsu, sem í hús-
inu var, eins o>g t. d. matvæl-
um, dýnum, kósangastæki
Mikill snjór er ennþá á þess
um slóðum uppi í Hafursey.
Minningarathöfn um
sjómenn af SúJunni
Akureyri, 24. apríl: —
Minningarathöfn um sjómennima,
sem fórust með Súlunni 10.
apríl sl., þá Hörð Ósvaldsison,
Nesjahraun ■ Grafningi
um 1880 ára gamait
Kristbjörn Jónsson, Kristján
Stefánsson, Viðar Sveinsson og
Þórhall Ellertsson fer fram í Ak
ureyrarkirkju n.k. laugardag kL
2 síðd.
Séra Birgir Snæbjörnsson flyt
ur bæn, en séra Pétur Sigurgeirs
son heldur minningarræðu. —
Kirkjukór Akureyrar syngur und
ir stjórn Jakobs Tryggvasonar,
sem einnig mun leika á orgelið.
— Sv. P.
1 NÝÚTKOMNU hefti af Nátt-
úrufræðingnum skýrir Kristján
Sæmundsson frá því að hann
hafi 'nýlega látið C 14 aldurs-
ákvarða í Þýzkalandi gróður-
leifar úr gjallgígunum norðan
við Nesjavelli. En þar er um
að ræða plöntur, sem hafa kaf-
færzt í heitum gosefnum og kol-
azt. Segir að greinilega megi sjá
hversu greinóttir stofnar kvísl-
ast um gjallið næst undirlagi
þess, sem er mold.
Gróðurleifarnar reyndust vera
1880 plús eða mínus 65 ára
gamlar og gefa til kynna að gos-
ið hafi átt sér stað árið 80 e. Kr.
Þess er getið að Þorleifur Ein-
arsson, jarðfræðingur telji ein-
mitt í Hellisheiðarritgerð sinni
að Hellisheiðarhraun III muni
vera 1500—2000 ára. En gos-
sprungan vestan Nesjavalladals-
ins sé í tektonisku framhaldi
gossprungunnar, sem það hraun
Tann frá.
Kjartan Sæmunds-
son, forstj. látinn
KJARTAN SÆMÚNDSSON, for
stjóri Kaupfélags Reykjavíkur og
nágrennis, KRON, varð bráð-
kvaddur í gær.
Kjartan var rúmlega fimmtug
ur að aldri, kvæntur Ástu Bjarna
dóttur.
Kjaradómur
launamá
um
hélt fund í gær
ríkisstarfsmanna
KJARADÓMUR fékk í gær til
meffferffar launamál opinberra
starfsmanna, þar sem samningar
höfðu ekki tekizt milli samninga
nefnda ríkisins og BSRB. Hélt
kjaradómur fund um málið í gær.
Samningar hafa áður tekizt um
að launaflokkar verði 28 og
hvernig ríkisstarfsmönnum verði
skipað í þá.
Samkomulag hefur hins vegar
ekki tekizt um launastigann,
vinnutíma og greiðslur fyrir eftir
vinnu.
Lögum samkvæmt skulu hinir
nýju kjarasamningar opinberra
starfsmanna taka gildi frá og með
1. júlí 1963.
Kjaradóm skipa Sveinbjörn
Jónsson, hrl., formaður; Bene-
dikt Sigurjónsson, hrl.; Svavar
Pálsson, endurskoðandi, tilnefnd
ir af Hæstaréttíf Jóhamnes Nor-
dal, skipaður af fjármáiaráðherra
og Eyjólfur Jónsison, skrifstofu-
stjóri, skipaður af BSRB.
DL Þórffur Eyjólfsson
Heiðursdoktor
vico háskolann
í Helsfnki
f GÆR barst Morgunblaðinu
einkaskeyti frá Helsingfors,
þar sem segir, að dr. Þórður I
Eyjólfsson, hæstaréttardómaxi
hafi verið gerður að heiðuxs-
dioktor við háskólann þar í
borg. Hafi hann veitt nafn-
bótinni viðtöku í gær, viðí
hátíðlega atihöín í háskólan-/|
uim. *