Morgunblaðið - 01.05.1963, Side 17
, ■ Miðvikudagur 1. maí 1(1(53
MOnCVNBT. AÐ1Ð
17
Vinnustöðvun er
óbætanlegt tjón
segja norsku
um skyldu-
Osló, 8. apríl 1983.
(ÞAJMGAÐ til í fyrradag gerðu
(flestir sér vonir um, að mála-
tmiðlun kæmist á í vinnudeil-
*unni. Á laugardaginn síðdegis
•brayttist sú bjartsýni í bölsýni.
(Stöðvun sáttatilraunanna kom
*eins og þruma úr heiðskíru lofti
yfir þjóðina.
Blöðin hérna ræða í dag þetta
(alvörumál í löngum ritstjórnar-
'greinum, og fulltrúar flestra
tstjórnmálaflokkanna hafa látið
1 ljósi álit sitt. Eina ljósglætan
1 málinu er sú, að deiluaðilarnir
liafa ekki notað sér stytzta vinnu
(stöðvunarfrestinn, sem heimill
er samkvæmt lögum. Hann er
íjórir dagar, og ef hann hefði
Verið notaður mundi vinnu-
(stöðvunin dynja yfir þjóðina á
tmorgun (þriðjudag). En eins og
nú horfir má telja vist, að vinnu
‘stöðvun hefjist ekki fyrr en 19.
tapríl. Báðir aðilar hafa tilkynnt
(stöðvun vinnu frá kvöldi þess
tíags.
öll blöðin eru sammála um, að
liag þjóðarinnar sé stefnt í bein-
an voða, ef langvinn stöðvun
(framleiðslunnar hefst. Fjárhag-
Urinn sé svo erfiður fyrir, að
afleiðing vinnustöðvunar hljóti
að verða hrun ýmsra atvinnu-
greina og svo mikill hnekkir
(fyrir alla þjóðina, að hún bíði
Iþess ekki bætur fyrr en eftir
mörg ár.
Ummæli flokksforingjanna eru
ýfirleitt óákveðin, nema for-
íngja vinstrimanna og kristilega
ílokksins, þeirra Bernt Röiseland
ög Kjell Bondevik. Þeir krefjast
þess, að stjórnin taki í taumana
og láti skyldu-gerðardóm skera
)úr deilunni og ákveða launa-
kjörin. Sum blöðin láta í ljósi
Von um, að stjórninni ta-kist að
Bætta aðilana nauðungarlaust, og
yfirleitt er talið, að stjórnin álíti
skyldugerðardóm neyðarúrræði,
sem hún muni ekki grípa til
fyrr en í síðustu lög.
Eins og stendur vofir vinnu-
Stöðvun yfir 25.000 manns, sem
!höfðu sagt upp starfi eftir ár-
angurslausar tilraunir sáttasemj-
ara ríkisins til samninga, og
116.000 manns, sem vinnuveit-
fendasambandið hafði tilkynnt
Vinnustöðvun fyrir. Auk þess má
‘gera ráð fyrir að vinna stöðvist
hjá ca. 10.000 manns, svo að alls
varðar mélið kringum 150.000
manns. í maí á nýr hópur, 71
þús. manns, að semja um kjör
fyrir næstu tvö ár, og ef vinnu-
Stöðvunin sem nú er yfirvofandi
verður gengin í garð þá, má bú-
•ast við að þessi hópur lendi í
sömu fordæmingunni.
Þess má geta að í Alþýðusam-
bandinu (LO) vOru 1961 rúm-
lega 540 þús. skráðir meðlimir,
*en eru nokkru fleiri nú. Fjöl-
mennustu félögin innan LO er
jám- og málmiðaðarmenn (69
þús.), starfsmenn sveitafélaga
•(54,5 þús.), byggingarvinnumenn
'(50,5 þús.) og sjómannafélagið
'(48 þús.).
Stjórnir LO og Vinnuveitenda
félagsins halda fundi í dag, en
(ræða þar ekki annað en hvenær
Vinnustöðvun skuli hefjast. >ar
sfréðu aðilarnir hver um sig, að
Vinnustöðvunin hæfist að kvöldi
*19. apríl. Konrad Nordahl, for-
hiaður LO, lét þess getið í við-
tali í fyrradag að hann mundi
fara í páskafrí á morgun, svo að
Ihann gerir auðsjáanlega ekki
táð fyrir að neitt gerist fyrr en
eftir páska.
„Kyrra vikan" á því ekki að
Verða fyrir neinum truflunum
!af þessari alvarlegu deilu. Þeir
Bem ábyrgðina bera nota hana
Væntanlega til þess að íhuga ráð
Isitt, en allir hugsandi menn eru
í ugg og ótta, eftir að svo alvar-
lega hefur syrt í álinn.
blöðin, kröfur
-gerðardóm
Meðal þeirra 25 þúsunda, sem
1X9 hefur sagt upp starfi fyrir,
er starfsfólk vefnaðar- og tó-
vöruiðnaðar fjölmennast, eða
'11,5 þúsund manns, en næst
k o m a námuverkamenn, alls
4.250. — Fjölmennastir innan
þeirra 116.000, sem atvinnurek-
endur hafa lýst verkbanni á, eru
járn- og málmsmiðir í vélaiðn-
aði: 46.100, byggingaiðnaðar-
menn: 24.000, prentarar: 7.700
(dagblaðaprentarar eru þó und-
anskildir verkbanniinu), starfs-
menn í kemiskri málmvinnslu:
'6.300, starfsfólk niðursuðuiðnað-
ar og hraðfrystihúsa: 4.550. Enn-
fremur íiær verkbannið til 900
starfsmanna áætlunarbifreiða í
Osló og grennd.
Þann 15. apríl og 15. Og 30.
maí renna út kjarasamningar
fyrir 71 þúsund manns. Stjórn
atvinnuveitendasambandsins hef-
ur fengið umboð til þess að boða
verkbann á þennan hóp líka, ef
samningar nást ekki.
Sk. Sk.
Spartacus í
Háskólabíói
HÁSKÓLABÍÓ sýnir um þess
ar mundir stórmyndina
Spartacus, með Kirk Douiglas
í titilhlutverki. Kvikmyndin
er gerð eftir samnefndri sögu
Howards Fasts, sem komið
hefur út í margra milljóna
upplagi á 45 tungum. Kvik-
myndin hlaut fern Óskars-
verðlaun árið 1960.
Kirk Douglas
í hlutverki Spartacusar.
Kvikmyndin Spartacus hef-
ur vakið gífurlegt umtal,
bæði meðan á töku hennar
stóð og eftir að farið var að
sýna hana í kvikmyndahús-
unum Hún er ein íburðar-
mesta kvikmynd, sem gerð
hafði verið á þeim tímum, og
nam heildarkostnaður hennar
yfir 500 milljónum króna.
Margir skipsfarmar af hús-
gögnum, innbú, einkennis-
búningum og vopnabúnaði
voru sendir frá Ítalíu til
Hollywood, þar sem kvik-
myndatakan fór fram, og var
allur fatnaður sniðinn eftir
traustum heimildum um
klæðnað manna á þeim tíma,
er myndin á að gerast.
Eins og kunnugt er er sögu-
svið kvikmyndarinnar Róma-
borg á síðustu öld f. Kr. og
lýsir myndin átökum róm-
verskra hersveita gegn her-
sveitum þraela. Spartacus, leið
toga þræianna, leikur Kirk
Douglas, sem jafrjframt er
framkvæmdastjóri kvikmynd-
arinnar. Leikstjóri er Stanley
Kubrick og framleiðandi Ed--
ward Lewis.
Aðrir leikendur eru: Sir
Laurence Olivier, Jean Sim-
mons, Charles Laughton, Pet-
er Ustinov (sem hlaut Óskar-
verðlaun fyrir leik sinn í
myndinni), John Gavin og
Tony Curtis. Vittoria Novar-
ese, prófessor í sagnfræði Oig
þjóðlífsfræði Rómaveldis
vann sem ráðunautur að gerð
myndarinnar. Alex North,
sem sex sinnum hefur hlotið
Óskarsverðlaunin, samdi tón-
listina og annaðist tónlistar-
stjórn að miklu leyti.
Malbikaðar og steyptar
götur ■ kaupstöðum
AÐALFUNDUR Gatnagerðarinn-
ar s.f. var haldinn miðvikudag-
inn 17. þ.m. í Reykjavík. For-
maður félagsstjórnarinnar, Jónas
Guðmundlsson, gerði grein fyrir
starfsemi félagsins á liðnu ári.
Félagið keypti malbikunartæki,
malbikumarstöð, þjappara og
dráttarbifreið, til að draga tæk-
in á milli staða, þar sem unnið
yrði að mal'bikun.
Á árinu var unnið að malbik-
un með taekjum félagsins í Hafn
arfirði, á ísafirði, á Sauðárkróki
og á Selfossi og malbikaðar ak-
brautir á þesisum stöðum sam-
táls 9117 fermetrar. Olíumöl var
hrærð í tækjunum og lögð á
1080 fermetra akbraut á Sauð-
árkrólki, og því malbikað og olíu-
borið á árinu 10.197 fermetrar.
Auik þess að reka malbikunar-
tæki • annast félagið milligöngu
um kaup á sementi til gatna-
gerðar samkvæm.t samningi við
Semenitsverksmiðju ríkisins. Á
.seinasta ári voru steinsteyptar
götur á Ákranesi, í Borgarnesi,
á Ólafsfirði, í Neskaupstað og í
Hvaragerði samtals um 18.000
fermetrar, þar af voru um 10.000
fermetrar á Akranesi.
Þannig voru á árinu 1962 steypt
ar og malbikaðar akbrautir á
vegum félagsins að flatarmáli
um 28.000 fermetrar.
Unnið er nú að undirbúningi
gatnagerðar í nokkrum kaupstöð
um og kauptúnum á komandi
sumri og jafnframt er í athug-
un að festa kaup á stærri og
afkastameiri malbikunarvél.
í stórn félagsins voru kosnir
Jónas Guðmundsson, formaður
Kjartan Ólafsson og frú Málfríður P. Kristjánsdóttir.
*
Kjartan Olafsson
Stóra-Galtardal
í DAG verður til grafar borinn
að Staðarfelli Kjartan Ólafsson,
fyrrum bóndi í Stóra-Galtardal
á Fellsströnd.
Kjartan var fæddur 1. júlí
1894, og voru foreldrar hans
Ólafur Pétursson, bóndi í Stóru
Tungu, og kona hans, Guð-
björg Jóhannesdóttir.
Kjartan var bóndi í Stóra-
Galtardal frá 1927 — 1959.
Kona hans var Málfríður Peto-
lína Kristjánsdóttir frá Sellátr-
um í Arnarfirði, en hún andað-
ist 9. febrúar 1959. Voru þau
hjón barnlaus, en fóstursonur
þeirra er Gestur Zophonías
Sveinsson, nú bóndi að Grund
á Fellsströnd. Auk þess dvöld-
ust börn og unglingar á heimili
þeirra hjóna um lengri og
skemmri tíma, en þar var jafnan
gott að dveljast ungum sem öldn
um, því að heimilislífið var frið-
sælt og ánægjulegt og hjónaband
þeirra Kjartans og Málfríðar
traust og farsælt svo að hvergi
bar skugga á.
Keflavík vann
Hafnarf j. í sundi
KEFLVÍKINGAR unnu Hafn-
firðinga í bæjakeppni í sundi
sem fram fór í Keflavík á sunnu
daginn, með 48% stigi gegn 38%.
Keppt var í 8 greinum og kepptu
2 frá hvorum í hverri grein.
Auður Guðjónsd. ÍBK vann
100 m bringusund kvenna 1.31.1.
í 100 m bringusundi karla
sigraði Erling Georgsson 1.20.5.
Davíð Valgarðsson vann í 100
r. skriðsundi á 1.01.2 og í 50 m
baksundi á 34.4.
Ásta Ágústsd. SH siigraði í 50
m skriðsundi á 35.3 og í 50 m
baksundi kvenna á 39.8. í boð-
sundi kvenna unnu ÍBK-stúlkur
á 2.08.8 og í 4x50 m fjórsundi
karla vann ÍBK á 2.19.4.
Keppt var um bikar sem Olíu-
samlag Keflavíkur gaf. Hafa
Keflvikingar unnið hann þrisvar
nú en Hafnfirðingar tvisvar.
Sambands íslenzikra sveitar-
félaga, Hafsteinn Baldvinsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, Hálf-
dán Sveinsson, bæj arfulltrúi,
Akranesi, Magnús E. Guðjónsson,
bæjanstjóri Akureyri og Sigurð-
ur í Sigurðsson, oddviti, Sel-
fossi.
Framkvæmdastjóri félagsins
hefur verið ráðinn Stefán Gunn-
laugsson fyrrum bæjarstjóri í
Hafnarfirði. í félaginu eru 19
kaupstaðir og kauptún.
Þegar Málfríður andaðist, brá
Kjartan búi í Stóra-Galtardal og
fluttist til fóstursonar síns að
Grund, þar sem hann dvaldist síð-
an til hinzta dags. Á hásumar-
degi 1960 urðu við Kjartan sam-
ferða til Patreksfjarðar í hópi
Dalamanna, er þangað fóru í
kynnis- og skemmtiför. Undrað-
ist ég nokkuð í fyrstu að sjá
Kjartan í þeirri ferð, þar sem
hann var kunnari að því að una
sér ánægður heima en að taka
þátt i langferðum. Sagði hann
mér þá, að för sinni væri heitið
að Sellátrum í Arna.rfirði, því að
þaðan hefði hann hlotið þá beztu
gjöf, sem lífið hefði gefið sér.
Með þessum orðum minmtist
hann fagurlega hinnar látnu eig-
inkonu, sem reynst hafði honium
trúr lífsförunautur.
Kjartan í Dalnnpi, en svo var
hann að jafnaði nefndur í dag-
legu tali á Fellsströnd, var hinn
mætasti maður í hvívetna og góð-
ur þegn sinnar sveitar. Með þess
um fáu orðum vil ég á útfarar-
degi hans minnast þeirra hjón-
anna sem gamalla sveitunga og
þakka þeim góð kynni um leið
og ég sendi systkinum Kjartans
og öðrum ástvinum hlýjar óskir.
F. Þ.
— Utan úr heimi
Framhald af bls. 12.
stemma stigu við því, að út-
lagarnir gerðu smáárásir á Kú-
banekt land og sovézk skip í
Kúbönskum höfnum eða á leið
til eyjarinnar.
Flóttamannavandamál í Mianii
Nú eru um 150 þús. kú-
banskir útlagar samankomnir
1 Miami og nágrenni á Flórída
og þeir valda vandræðum eins
og alltaf verður þegar fjöl-
mennur hópur manna sezt að
utan heimalands síns. Ýmis
verkamannasamtök gjóta horn
auga til Kúbubúanna, því að
sumir þeirra hafa unnið fyrir
lægra kaup, en samningar
verkamannafélaganna kveða á
um. Þó viðurkenna félögin að
þetta sé í sumum tilvikum
vegna ókunnugleika að’komu-
manna, en ekki vegna þess að
þeir vilji taka atvinnuna af
heimamönnum.
Mikil óvissa ríkir meðal
flóttamannanna. Sumir vonast
til þess að geta snúið aftur
til Kúbu áður en langt um líð
ur, og búa í bráðabirgðahús-
næði, en aðrir ætla augljós-
lega að setjast að í Bandaríkj-
unum fyrir fullt og allt.
Skrifsfofustúlka
óskast nú þegar hálfan eða allan daginn.
HILMAR FOSS
löggiltur skjalaþ. og dómt.
Hafnarstræti 11 — Sími 14824.