Morgunblaðið - 23.07.1963, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.07.1963, Qupperneq 8
8 MORCVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 23. júlí 1963 SKÁLHOLT var í hálfa áttundu öld höfuðstaður íslenzkrar kirkju og kristni. Þar sátu fyrstir á biskupsstóli, síðari hluta elleftu aldar, feðgarnir ísleifur og Giss- i'4‘. Af þeim stóð slíkur ljómi, að líkast þótti sem konungar væru. Síðastir Skálholtsbiskupa, á seinni hluta átjándu aldar, voru feðgarnir Finnur og Hannes, fremstu fræðimenn ís- lands um sína daga. Því fer fjarri, að allir Skál- holtsbiskupar væru jafningjar þessara manna. En dæmi þeirra og margra annarra sýnir, hversu víðfem áhrif bárust um allt þjóð- lífið frá Skálholti. Skálholt var ekki einungis höfuðstað l ■ kirkju og kristni, heldur og í menningu og mörgum landsstjórnarmálum. Biskuparnir réðu og löngum yfir mesta auðsafni, sem þá var á landi hér. Skálholt var þó einungis einn af höfuðstöðum Islands. Biskups- stólarnir voru tveir, á Þingvöll- var dvalið í búðum fáa daga á hverju sumri, framkvæmdavald- ið var löngum laust í reipum og innlendir handhafar þess áttu engan fastan samastað. Verzlun- ararður var fluttur úr landi og vsrnð því ekki til uppbyggingar innanlands. Kraftarnir dreifðust og hvergi myndaðist sá styrkur og framkvæmdageta, sem þétt- býli fylgir. Þetta stuðlaði að veiklun þjóðfélagsins svo að litlu munaði, að það liði með öllu undir lok skömmu áður en hin- um fornu höfuðstöðum hnignaði 3vo, að þeir voru sviftir sinni aldagömlu hefð. Enginn þessarra staða var þó svo rúinn ytri merkjum fornr- ir frægðar sem Skálholt. Af þeim sökum lögðu langa hríð flestir ieið sína hér hjá garði, þótt þeir Bræörahugsjónir kristindómsins verði öfium ófriðar og gereyðingar yfirsterkari ákvarðanir, enda er æskilegt að efld séu ráð kirkjunnar yfir hennar eigin málum. Mér veitist nú sú ánægja og sæmd að lýsa yfir, að ríkisstjórn- in hefur ákveðið að nota þá heimild, sem í lögunum er veitt. Leyfi ég mér því að afhenda biskupnum yfir íslandi afsals- bréf fyrir Skálholtsstað ásamt öllum mannvirk; U n og lausafé, sem í eign ríkisins eru á staðn- um og honum heyra til. Fel ég þjóðkirkjunni umráð staðarins frá þessari stundu og bið hana vel að njóta. Ísí. OStUl fluttur út? SIGUKÐUR Benediktsson, for- stjóri OSTA- og smjörsöl- unnar, skýrði svo frá á blaða- mannafundi í gær að alit til ársins 1962 hefði mjólkurfram- leiðsla og sala mjólkurafurða innanlands haldist í hendur. 1962 hefði hinsvegar verið framleidd- ir 3 milljónir lítra af mjólk um- fram það sem til neyzlu þurftl inananlands, og búast mátti vij að svipuð aukning yrð“enn í ár. Sagði hann að m.a. vegna þessa væri Osta og smjörsalan að þreifa fyrir sér um útflutningsmögu- leika á íslenzkum ostum til Vest- ur-Þýzkalands. Þá sagði Sigurður að gera mætti ráð fyrir aukinni fram- leiðslu á mjólkurdufti og ostum vegna aukinnar mjólkurfram- leiðslu. Aðspurður um hvort íslenzkur ostur væri samkeppmsfær 1 V-þýzkalandi vegna tolla Efna- hagsbandalagsins, sagði Sigurður að ekkert hefði verið minnst á tolla við ísléndinga varðandi þennan fyrirhugaða ostaútflutn- ing, hvernig svo sem á því stæðL Annars væri 2714% tollur á osti í V.-þýzkalandi. Sigurður ságði að mál þetta væri skammt á veg komið og ekki hægt að segja neitt á þessu stigi þess um hve mikinn útflutn- ing yrði að ræða. Taldi hann að skorpurlaus 45% ostur yrði fyrir valinu. Arekstur á Avarp Bjarna Benediktssonar kirkjumála- ráðherra í Skálholtskirkju ferðuðust um hérað og fýsti að sjá hinn sögufræga stað. Sögunnar hjóli verður ekki snúið aftur á bak. íslendingar eiga nú sína höfuðborg og Skál- holt verður aldrei aftur sá höfuð staður þjóðarinnar, sem það var um margar aldir. En það hlýt- ur ætíð að skipa hefðarsess í hugum íslendinga. Þess vegna var það ekki einungis metnað- armál heldur ærusök að veita staðnum þá ytri ásýnd, sem sómi væri að. Það hefur nú tekizt með byggingu dómkirkjunnar, sem verið var að vígja. Hún er í sjálfu sér hið fegursta hús og til þess löguð að endurvekja þær sömu minningar, sem við Skálholt eru tengdar. Því að þótt hér hafi margt gerzt, er það fyrst og fremst kristnisaga ís- labds, sem okkur kemur í hug, þegar Skálholt er nefnt. Þá skiptir ekki máli, þó að hin kaþólska kirkja hafi miklu lengnr en okkar evangelsk- lúterska þjóðkirkja haft biskups- stól í Skálholti. Hin síðartalda er afsprengi og eftir íslenzkum lögum arftaki hinnar fyrri. Siða- skiptin urðu raunar ekki með ljúfu samþykki landsmanna en hafa fyrir löhgu unnið sér hefð í hugum þeirra. Annað mál er, að allir kristnir menn hljóta að fagna þeirri viðleitni, sem leið- togar móður-kirkjunnar hafa nú til eyðingar sundrung innan kristindómsins. Vonandi verður gifturíkur árangur af því frum- kvæði á tímum sívaxandi al- þjóðlegs samstarfs, þegar meira liggur við en nokkru sinni fyrr, að bræðralagshugsjónir kristin- dómsins verði öflum ófriðar og gereyðingar yfirsterkari. Hverju nafni, sem kirkjan hef- ur nefnzt, hefur boðskapur henn- ar verið í meginatriðum hinn sami. Við gerum ekki upp á milli kirkjudeilda, þegar við þökkum kirkjunni fyrir þann skerf, sem hún hefur lagt fram til heilla íslenzku þjóðinni. Mestu skiptir að sjálfsögðu sú sáluhjálp, sem hún hefur veitt ótal einstakling- um. En hún á einnig sinn ómet- anlega þátt í mótun íslenzkrar menningar og þróun hennar á hverju, sem hefur gengið. Á þann veg hefur hún vissulega stuðlað að endurreisn islenzku þjóðarinnar og lýðveldis á Is- landi. í þakklætisskyni fyrir allt þetta samþykkti síðasta Alþingi lög um heimild handa ríkisstjórn inni til þess að afhenda þjóð- kirkju íslands Skálholtsstað og hluti* þau staðfestingu forseta íslands hinn 26. apríl s.l. í lögunum segir m.a.: »1- gr- Ríkisstjórninni er heimilt að afhenda þjóðkirkju íslands end- urgjaldslaust til eignar og um- sjár jörðina Skálholt í Biskups- tungum ásamt öllum mannvirkj- um og lausafé, sem nú eru í eign ríkisins á staðnum, enda veiti biskup íslands og Kirkjuráð eign þessari viðtöku fyrir hönd þjóð- kirkju íslands ög hafi þar for- ræði um framkvæmdir og starf- rækslu. 2. gr. Ríkissjóður skal árlega greiða kr. 1.000.000.00 í sjóð, sem vera skal til áframhaldandi uppbygg ingar í Skálholti og rekstrarfé þeirrar starfrækslu, sem biskup og Kirkjúráð koma þar upp. Stjórn sjóðsins skipar Kirkju- ráð.“ Ég sagði að lögin hefðu verið sett í þakklætisskyni fyrir unn- in verk. Rétt er það. En við Skálholt eru ekki aðeins tengd- ar dýrmætar minningar heldur og bjartar vonir. Þessi lög eru sett í þeirri sann- færingu, að kirkjan kunni betur með Skálholt að fara en nokkur annar. íslendingar treysta þjóð- kirkja sinni til þess að nota þessa eign sína svo, að hún verði á ný óteljandi einstakling- um og þjóðfélaginu öllu til heilla og blessunar. Samkvæmt lögunum er kirkj- unni það í sjálfsvald sett, hvernig hún starfrækir staðinn. í þeim efnum er kirkjan einfær um Landbrotsvegi HOLTI, 22. júlí. — Bifreiða- árekstur varð á sunnudaginn á Landbrotsvegi í V-Skaftafells- sýslu. Fimm manna Chevroletbif reið og Ford Taunus, báðir úr Reykjavík, rákust harkalega saman með þeim afleiðingum, að bifreiðastjóri Taunus-bifreiðar- innar og hjón, sem með honum voru, skárust illa á andliti. í hin- um bílnum voru hjón og skarst konan á enni. Héraðslæknirinn á Kirkjubæjarklaustri gerði að sárum fólksins, sem síðan var flutt í sjúkrabíl til Selfoss. — Fréttaritari. Samningur um tiiraunabann væntanlegur innan tveggja daga Moskvu, 22. júlí (AP-NTB). ÞRIGGJA klukkustunda fundur var haldinn í dag á þríveldarað- stefnunni í Moskvu um bann við tilraunum með kjarnorkusprengj ur Að fundinum loknum ræddust aðalfulltúar þríveldanna, þeir Andrei Gromyko utanríkisráð- herra Bandaríkjanna og Hails- ham lávarður vísindamálaráð- herra Bretlands, við einslega í eina klukkustund. í sameiginlegri yfirlýsingu, er gefin var út að viðræðunum lokn um, segir að frekari árangur hafi náðst um samning um bann við tilraunum í geimnum, í and rúmsloftinu og neðansjávar. Franska fréttastofan AFP hef- ur það eftir heimildum í Washing to: að samningar muni nást inn an tveggja sólarhringa. I yfirlýsingunni frá ráðstefn- unni segir að auk tilraunabanns hafi einnig verið rætt um önnur sameigiruleg hagsmunamál. Talið e að hér sé m.a. átt við gagn kvæman griðarsáttm. milli ríkja Atlantshafsbandalagsins og Var- sjárbandalagsins. Einnig hefur Krúsjeff forsætisráðherra óskað eftir viðræðum um Berlín, gagn kvæmt eftirlit til að fyrirbyggja skyndiárásir og takmörkun á fjárveitingum til hernaðarþarfa. Álitið er að Harriman og Hails- ham lávaður, sem ekki hafa um- boð til að ganga frá samningum um þessi atriði, vilji ganga endan lega frú samningi um tilrauna- hann, en fresta frekari umræðum um aðrar tillögur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.