Morgunblaðið - 01.08.1963, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 01.08.1963, Qupperneq 17
Fimmtudaffur 1. Seúst 1963 ÍUORGUWBT. 4ÐIÐ 17 100 ára miniiing Sr. Árni Björnsson prófastur í DAG 1. ág. 1963 eru 100 ár liðin frá fæðingu þessa merka manns. Fyrir sakir margra og sumra mikilla minninga undir- ritaðs, sem við hann eru bundn- ar, allt í frá bernsku minni á Norðurlandi og síðan um árauga bil sem samstarfsmanns, allt til þess að hann fimmtugur flutti til Suðurlands, hlýt ég að minn- ast hans nú á aldarafmælinu. — Eftir ástæðum er varla afsökun- arvert að margt af því, er hér kann að verða skrifað niður hafi á sér nokkuð pérsónulegan blæ. Séra Árni (svo var hann gjarn ’ast nefndur) er fæddur að Höfn- um á Skaga í Húnavatnssýslu 1. ág. 1863. Ólst þar upp frá 6 ára aldri. Björn Sigurðsson faðir hans, síðar bóndi á Tjörn í sömu aveit, var bróðir Árna stórbónda í Höfnum. En þeir bræður voru synir Sigurðar bónda í Höfnum, hins vitra manns og konu hans Sigurlaugar Jónsdóttur frá Gili í Svartárdal I sömu sýslu. Var hún af hinni svokölluðu Ytri- Eyjarætt. En frá þeirri ætt er einnig kominn karleggur Háa- gerðisættar, sem Björn á Veðra- móti er kominn af. Móðir sr. Árna, Elín Jónsdóttir var sunn- lenzk, frá Eyrarbakka, merk kona enda af góðum ættum. Er eigi unnt að rekja ætt hennar hér með vissu. Hún er fædd 7. nóv. 1833. Hefir því þrítug alið þennan son. Sr. Árni var til mennta settur af fóstra sínum og föðurbróður. Varð stúdent 1885 með I. eink. og cand. theol. 1887. Fékk hann sama ár veitingu fyrir Reyni- staðarklaustursprestakalli í Skagaf. og fluttist þangað þegar Bjó fyrst að Fagranesi á Reykja strönd undir Tindastóli. Þar var þá prestssetur og kirkja, þar til að kirkja var reist á Sauðár- króki 1892. Fluttist þá prestur- inn til Sauðárkróks, enda þjón- aði hann einnig Reynistaðar- kirkju. Hætti hann þá að mestu búskap á Fagranesi og innan skamms að öllu. Enda biðu hans „víðar dyr og verkmiklar" á Sauð árkróki, sem þá var nokkuð vax- andi kauptún. Barátta var framundan — bæði inn á við og út á við. Hann hlaut frá öndverðu starfi sínu þarna að berjast harðri baráttu persónulega gegn hinum mikla bölvalda samtíðarinnar. Sá styr endaði með glæstum sigri hins unga prests — í krafti Krists. — Eftir 5 ár frá kirkjubyggingunni eða árið 1897 reis I.O.G.T. stúka á staðnum. Hún kom að honum sem ákveðnum byrjandi sigur- vegara. Hann varð einn aðal- stofnandi hennar, með Regluboð anum S. Á. Gíslasyni. Og strax varð hann svo aðalstarfandi hennar, virtur og elskaður. Mátti með sanni heita „sómi hennar sverð og skjöldur" og mesti starfsmaður öll þau 16 ár er liðu frá því hún hóf störf, og þar til hann flutti burtu. Það voru góð viðskipti á báðar hliðar, og gæti verið dýrmætt fordæmi mörgum af oss, er nú berum ábymðina skýlausa og þunga, — Stúku- systkini hans hörmuðu líka svo burtflutnings hans suður ' að Görðum, að einn félaginn fann ástæðu til þess í skilnaðarsam- sætinu að varpa fram þessum hughreystingarorðum: Minn- umst hins fornkveðna að „víðar er Guð en í Görðum“. — En um' margt fleira og mjög mikilvægt varð sr. Árni forystumaður á Sauðárkróki, er hann hafði kom ið sér fyrir vel og á öruggar lagg ir. Auk síns aðalstarfs sem prests og andlegs leiðtoga var nú margt veraldlegt við að fást. Hann stjórnaði ungum sparisjóði stað- arins. Var sýslunefndarmaður um langt skeið. Einnig hrepps- nefndaroddviti, eftir að kauptún ið varð sérstakur hreppur 1907 Formaður skólanefndar barna- skólans fyrsta, er stofnaður hafði verið 1882, sex árum fyrir komu hans til prestakallsins. Hélt hann því starfi svo áfram til burt- fararárs. Oft hafði hann kennslu á höndum við gamla skólann og skólastjórn síðustu árin fyrir 1908 er hið gamla skólahús og skólakerfi var lagt niður og nýtt skólahús undir nýjum lögum og stjórn nýs ungs skólastjóra tók til starfa, þar sem hann þó fylgdist með af áhuga og í sam- starfi. Frá þessum tíma og reyndar fyrr, mátti sr. Árni heita höfuð- klerkur prófastsdæmisins og skipaður prófastur frá 1908. Nú kemur bráðlega hinum miklu þáttaskilum, sem áður var drep- ið á. Sr. Árna var veifct Garða- prestakall á Álftanesi 1913. — Þangað hlaut hann að hverfa með mikla fjölskyldu sína og frá öllum störfum, vinum og sam starfsmönnum. Þar syðra varð svo verksvið sr. Árna æ síðan, og þaðan komu þau hjón síðan börnum sínum til skólamennt- unar og menningarþroska. Enda mun það hafa verið markmið þeirra vitru og góðu hjóna frá byrjun með þessari miklu ráð- breytni og erfiða búferlaflutn- ingi. Við nýjar aðstæður tók starfið að sjálfsögðu á sig nýjar myndir. Og önnur og ný verk- efni kölluðu að. En einnig þar vann sr. Árni álit og traust. Hann starfaði mikið í Hafnar- firði sem í öðrum sóknum sínum. Varð formaður í K.F.U.M. þar, og vann þar gott starf meðal ungra manna. Árið 1916 var hann skipaður prófastur í Kjal- arnesprófastdæmi. — Þung( starfsins hlaut að miklu leyti að færast úr fámennum sveitasókn- um til vaxandi kaupstaðar. Hann fluttist því frá Görðum til Hafnarfjarðar 1928. Aðsetur hans var svo þar, þar til yfir lauk. Hann lézt í Hafnarfirði 1932. Sr. Árni Björnsson var frem- ur hár maður vexti, flatvaxinn og herðibreiður, baraxla og ryð vaxinn. Höfuðlagið var fallegt. Andlitið var frítt en fremur stór leitt, bjart og svipmikið einkum um brúnir og ennið breitt, hátt og hvelft. Augun gráblá, nokk- uð stór, oftast mild, en gátu gef- ið sterkt tillit. Bjarthærður og oftast langhærður. Útlitið allt ekta germannskt, (eins og ég hefi það gleggst séð á norskum vega- vinnumönnum djúpt inni í Upp- löndum Noregs). Hann var mað- ur höfðinglegur í sjón og hógvær í framkomu og gekk hægt. Sem kennimaður var hann kostgæt- inn flytjandi Orðsins. Ræður hans jafnan innilegar Krists- predikanir, ósjaldan með vörm- um innskotum mæltum af munni fram, því að hann var vel máii farinn og skáldmæltur. End aði stundum ræður sínar með heitu bænarversi. Eru mér enn 1 minni eftir 70—75 ár sumar spurningar hans, setningar úr ræðum og vers. — Ýmsar ritgerð ir hans og ræður eru prentaðar á ýmsum stöðum. (K.F.U.M blað Barmi 24. bls. 57. — D. ísl. kirkes. ’32. — o. víðar.) Minningar mínar ýmist skemmtilegar eða alvarlegar um sr. Árna sem prest, sálusorgara, samstarfsmanns og vin, væn freistandi að skrifa um í löngu máli. En eigi veiður það gjört hér. Þær minningar ná yfir langt tímabil allt frá því að ég var 5 ára drengur á Heiði í Göngusk., að ég sá tvo menn koma gangandi með hattana í höndunum utan yf ir Laxárdalsheiði á snjóbjörtum skínandi vordegi og heyrði ein- hvern segja: „Nýi presturinn ungi er að koma“. Man glöggt hve fal- legur mér þótti hann, er hann var að skafa af sér snjóinn í bæjar- dyrunum með borðhníf. En faðir minn, frændi hans stóð hjá. Eftir hinum manninum man ég alls ekkert. Man fyrsta barnaprófið á Fagranesi (líkl. 1892) er hann lét halda, og ég 9 ára tók þátt í. Man messur þar vetrinum áður og heimsóknir okkar þangað tveggja elztu Veðramótsdrengja, er við fengum að fara til „góða fólksins“. — Friðrik Friðriksson ungur latínuskólapiltur var þar líka um hríð, sem skjólstæðing- ur og vinur prestsins, sem var aðeins 5 árum eldri. Man barna- prófin á Sauðárkróki í „gamla skólanum" næstu vorin. Þar að- ungur maður mágur prestsins, einnig latínuskólapiltur, Jóhann Sigurjónsson frá Laxamýri, sem mér leizt vel á, og sem sagði „fari hann gangandi“, þegar prófdóm- andi, er hann var sendur til kom ekki strax! Ég man heimsóknir á prestsheimilið fyrr og síðar. Man vináttu föður míns og prestins í sorg og gleði. Man ljóst fermingu mína og Gunnlaugs Claessens tveggja saman um haust, sem var óvanalegt, en varð að ske, því að báðir áttu að fara burtu, (sinn í hvora átt) komandi vetur til skólanáms. — Alveg sérstaklega er djúpstæð minnig þess, er móðir stóra hópsins á Veðramóti, Þor- björg Stefánsd. lá á líkfjölum og sr. Árni kom gagngert (og gangandi?) upp að Veðramóti og heilsaði föður mínum í bæjar- dyrum með klökkum huga og faðmaði hann að sér. Ég hafði ekki séð slíkt fyrr með fullorðn um karlmönnum. Þá minnist ég með gleði og þökk, er ég síðar ungur námsmaður erlendis í ára dvöl þar, fékk bréf frá honum innilegt og kristilegt. Beinlínis einsk. sálusorgun. Mig uggir, að minna sé nú orðið um það há- leita starf presta en var, er við „aldamótamennirnir" vorum að alast upp. Og eins um húsvitj- anirnar. Er þess þó engu síður þörf nú en þá, nema fremur sé. — Heimkominn (1908) tók ég svo við skólastörfum og stjórn af sr. Árna og nú í nýjum skóla, sem hann hefir vafalaust manna mest beitt sér fyrir að byggður stóð og tilbúinn. Hlaut svo hvað leið einnig að taka við starfinu fyrir bindindismálið, er hann varð að flytja burt. Og þá einnig við sveitarstjórnarsfcörfunum, er hann hafði haft og kröfðust átakastarfs þá, og þó enn frek- ar seinna. Má nærri geta, eink- um um skólamálin, hvers virði það var fyrir byrjandi kennara þótt „nýbakaður" væri frá ágæt- um skóla að njóta styrks og skiln ings og samstarfs frá reyndum, velviljuðum og víðsýnum per- sónuleika og hjálpar hans til þess að koma fram ýmsum kröf- um nýs tíma og nýrra kennslu- hátta. Enda unnum við ein- drengið saman, og stofnuðum í félagi til fyrsta ungmennaskóla starfs staðarins, og þar vann hann með mér fyrstu 5 árin og um leið þau síðustu ár sín ''nyrðra. —- í minningum frá þeim árum mætti ég kunna hon- um miklar þakkir um opinber störf, andleg og efnisleg, og einnig um hluttekningu í einka- málum. — Mörg og dásamleg tækifæri hlýtur góður, sannur prestur að eiga um leiðir að hjörtum sóknarbarna sinna, sem koma vilja fram í einlægni og kærleika. Kona sr. Árna varð 1894 Líney Sigurjónsdóttir frá Laxamýri. Var það vissulega ein hin mesta gæfa hans að eiga slíka konu. mikilhæfa og menntaða. Varð hún honum mikilsverður lífs- förunautur sem eiginkona, hús- freyja og móðir margra barna. Hún var í sannleika styrkur og stoð manns síns í miklu starfi hans. Við barnauppeldið nutu þau einnig mikils styrks systur hans, Sigurlaugar. Kraftar hinn- ar fögru konu og indælu sálar virtust helgaðir fjölskyldunni sem hjálparkraftar.Tvo br.æður átti sr. Árni einnig: Sigurður al- bróðir hans, gagnfræðingur frá Möðruvöllum 1890. Vann hann með bróður sínum á Skr. um hríð, og annars einnig við barna kennslu út í sveit. Síðar varð hann kaupm. í Reykjavík og brunamálastjóri staðarins um langt skeið. Þekktur dugnaðar- og drengskaparmaður. Má ég minnast hans með mikill þökk, sem míns góða vinar og trausta fulltrúa míns um langt skeið um í DAG á fimmtugsafmæli Daní el Þórhallsson, útgerðarmaður á Siglufirði. Fæddur er hann 1. ágúst 1913 í Höfn í Hornafirði, sonur merkishjónanna Þórhalls Daníelssonar útgerðarmanns og kaupmanns þar og konu hans Ingibjargar Friðgeirsdóttur. Ólst Daníel upp á hinu mikla rausnar- og myndarheimili for- eldra sinna, gekk ungur í sam- vinnuskólann og lauk þaðan prófi. Gerðist hann síðan starfs maður hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri, en flutti um tvítugt til Siglufjarðar þar sem hann gerðist starfsmaður síldarverk- smiðja ríkisins. Síðar gerðist hann gjaldkeri Bæjarútgerðar Siglufjarðar þar til hann hóf sjálfstæðan atvinnurekstur sem útgerðarmaður og síldarsaltandi. Daníel er bjartsýnn og ötull at vinnurekandi og hefir því áunn ið sér trauSt og vinsældir hinna mörgu viðskiptavina sinna, jafnt verkamanna, sem sjómanna. Samfara erilsömu og oft áhættu sömu starfi hefir hann þó gefið sér tíma til að taka virkan þátt í sönglista- og söngskemmtana- starfi. í vöggugjöf hlaut hann gullfagra og bjarta tenorrödd og margir samferðamenn standa í þakkarskuld við hann fyrir þátt töku í viðkvæmum kveðjustund um ættingja og vina. Verður slíkt aldrei metið að verðleik- um. Um það leyti sem Daníel kom til Siglufjarðar hóf karlakórinn Vísir öfluga sókn sína á sviði sönglistarinnar, fyrst og fremst fyrir forgöngu Þormóðs heitins Eyjólfssonar. Er engri rýrð varp að á hina mörgu og ágætu söng kiafta þessa kórs þótt þvi sé slee ýmis sveitarmál o. fl. er reka þurfti í Rvík. Þeir bræður voru svilar. Snólaug frá Laxamýri var kona Sigurðar. Var það honum mikil gæfa. Meðal margra vel gefinna og merkra barna þeirra er lögreglustjóri Reykjavíkur. Björn Einar Helgason var ann ar bróðir sr. Árna ( frá síðara hjónabandi frú Elínar). Hann dó á bezta skeiði norður þar. Efni- legur ungur maður og fagur. En börn sr. Árna og maddömu Líneyjar eru: Björn E. lögfræðingur, löggilt- ur endurskoðandi Rvík. Sigur- jón sóknarprestur við Hallgríms- kirkju Rvík. Snjólaug frú gift Gunnlaugi Stefánssyni kaupm. Hafnarfirði. Páll framkvæmda- stjóri heildverzl. Haraldar Árna- sonar Rvík. Elín frú. Var gift Friðfinni Stefánssyni smið Hafn- arfirði. — (Hún er er látin), Árni héraðslæknir í Grenivík við Eyjafjörð. Þorvaldur tannsmiður Rvik. Sigurlaug hjúkrunarkona gift Skafta Benediktssyni í Lónir austur (þekkt útvarpskona hér), Margrét frú gift Þórði Jóns syni smið og afgr.manni Rvík. Helga frú gift Skúla Þórðarsyni sagnfræðingi 'Rvík. Ingibjörg frú gift Björgvin Bjarnasyni iðn aðarmanni Rvík. öll eldri börnin þekkti ég sem dugleg og elskuleg skólabörn frá Sauðárkróki. Áhrifa þessara prófastshjóna, er auk mikils ævi starfs, hafa lagt slíkan skerf til framtíðarinnar mun vissulega gæta um ófyrirsjáanlega langan tíma í lífi kynslóðanna um aldir. Prestafélagsritið 14. ár bls. 66—71 geymir eftirmæli sr. Árna. ið föstu, að þar var Daníel Þór hallsson í fremstu víglínu. Með hinni fáguðu og björtu rödd sinni söng hann sig inn 1 hjörtu áheyrenda. Söngur hans er borinn uppi af ást til sönglist arinnar sjálfrar, en ekki af lofi því sem hann að verðleikum hlaut fyrir hann — og þennan vitnisburð bera honum allir hans söngfélagar. Á unga aldri kvæntist Daníel hinni ágætu konu sinni Dagmar Sigurðardóttur Fanndal og ber hið myndarlega heimili þeirra vott um þann myndarbrag sem þau hjón tóku að erfðum hvort frá sínu heimili. Þau eiga fjögur mannvænleg og uppkomin börn, Þórhall, Sigurð, Soffíu og Ingi- björgu. Á þessum merkisdegi munu söngbræður og vinir þeirra hjóna senda þeim öllum árnaðar óskir. — E. S. eftir Dr. Jón Helgason. Rvík. 1. ágúst 1963 Jón Þ. Björnsson frá Veðramóti. Daníel Þórhallsson útgerðarm. - 50 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.