Morgunblaðið - 18.08.1963, Blaðsíða 1
24 siður og Lesbók
Þessa mynd fékk Mbl. símsenda í gær. Þar er fegurðardrottningin frá í fyrra, Tania Verstak
frá Ástralíu, að krýna Guðrúnu Bjarnadóttur frá íslandi, sem kjörin var fegursta kona heims
árið 1963 á hinni miklu fegurðarsamkeppni á Langasandi í Californíu.
Guðrún Bjarnadóttir nr. 1
á Langasandi
Undrun hennar var ósvikin,
segja fréttamenn
— Já, ég elska hann, sagði
Guðrún. Og hvað heitir hann
svo? — Það verðið þið að finna
út sjálfir, svaraði fegurðardísin
prakkaralega. — Hann er fransk-
ur, en hefur amerískan ríkis-
borgararétt. Ég hitti hann í Par-
ís.
Framh. á bls. 23
Ben Bella
fyrirskipar
fjöldahandtökur
Skæruliðasveitir |
myndaðar í Kabýla-t
fjöllum, en for- \
sætisráðherrann þó;
sagður fastur t
í sessi \
Algeirsborg, 17. ágúst. — AP
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum í Algeirsborg, að
Ben Bella, forsætisráðherra
Alsír, hafi í nótt látið fara
fram fjöldahandtökur and-
stæðinga sinna. Fregninni
fylgir, að hópur andstæðinga
forsætisráðhertans, menn,
sem enn leika lausum hala,
hafi flúið til Kabýlafjalla, og
hafi myndað þar skæruliða-
sveitir.
. Handtökur þessar eru sagðar
hafa farð fram í Orleansville, og
við rætur Kabýlafjalla, í nótt,
sem leið.
Margir þeirra, sem handteknir
voru, eru sagðir meðlimir í sam
tökum þeim, er nefnast „Féder
ation de France*, þ.e.a.s. „franska
armi“ þjóðfrelsishreyfingarrinn-
ar, sem reynzt hefur Ben Bella
erfiður viðureignar.
Skæruliðasveitirnar eru þegár
sagðar hafa látið til sín taka á
svæðinu milli Dra E1 Mizan og
Tizi Ouzou. Fyrir þremur dög
um kom þar til átaka milli her
manna stjórnarinnar og hóps, sem
talið var að ynni að því að steypa
stjórn Ben Bella, — að undirlagi
ráðamanna fsraels.
Fregnir, sem borizt hafa af
bardögum nú, herma, að skæru
liðar þeir, sem • nú láta til sín
taka, kunni að vera samstarfs-
menn þeirra, sem Ben Belia hef
ur nefnt „flugumenn fsrael“.
Ferrhat Abbas, sem mikið hef
ur komið við sögu síðustu daga
í Alsir, er nú sagður hafa tekið
lokaákvörðun sína. Hann segist
munu hætta þingsetu og flytjast
frá Algeirsborg.
Abbas var áður þingforseti, en
sagði af sér því starfi. Þingsæt
inu hugðist hann þó í fyrstu
halda. Undanfarna daga. hafa
málgögn Ben Bella og útvarpið
í Algeirsborg haldið uppi nær lát
lausum árásum á Abbas, og
stefnu hans. Undirrót þess er
öðru fremur skýrsja, sem Abbas
lét birta um stjórnarhætti Ben
Bella. Er forsætisráðherramv
þar sagður fylgjandi einræði.
Fréttamenn í Algeirsborg telja
að þrátt fyrir andspyrnu þá, sem
Ben Bella mætir nú, og farið hef
ur harðnandi undanfarna daga,
þá sé forsætisráðherrann enn fast
ur í sessi. Megi sín þar e.t.v. ekki
minnst, að andstæðingar Ben
Bella séu nú margir landflótta,
eða í felum til fjalla.
herjar
í Póllandi
Varsjá, 17. ágúst — AP.
BÓLUSÓTTARFARALDUR
sá, sem skýrt var frá að kom-
ið hefði upp í Póllandi, fyrr
í sumar, breiðist enn út~
Síðustu daga hefur sjúk-
dómstilfellum fjölgað, og .er
tala sjúkra nú 115. Um 100
sjúklinganna búa í Wroclaw
(Breslau) héraði, 9 í Opole,
5 í Lodz og 1 í Gdansk.
Ekki er getið í fréttum um
heildartölu látinna, en 7
þeirra, sem létust, höfðu ekki
verið bólusóttir við veikinni.
JHorgtmltlatsiw
V
w
Fjárreiöur Kongólýö-
veldisins rannsakaðar
Í— Youlou sakaður um fjármálaóreiðu |
— Ný stjórn hyggst vinna gegn spillinguj
Einkaskeyti frá Langa-
sandi í gær:
GIJÐRÚN Bjarnadóttir, tví-
tug stúlka frá Keflavík, sem
ber titilinn Ungfrú Island,
varð nr. 1 í alþjóðlegu feg-
urðarsamkeppninni hér á
Langasandi á föstudagskvöld.
Ungfrú ísland var tekin fram
yfir 86 aðra keppendur og
heiðrinum fylgja 10 þús. doll-
ara verðlaun eða rúmlega 430
þús. ísl. kr.
Fegursta stúlka í heimi, að dómi
dómnefndarinnar er Norður-
landastúlka með rauðbrúnt hár,
tem á sér ást í leynum og ber
nafn, sem enginn getur borið
fram.
Undrun hennar yfir úrslitun-
um var ósvikin. Hún hélt ekki í
fyrstu að hún hefði unnið, því
hún þekkti ekki nafn sitt, eins
og stjórnandinn, Lorne Green
leikaxi, bar það fram, þegar hann
-lýsti yfir sigri hennar. Annars
segir hún á góðri ensku að þetta
sé auðvelt nafn, en þegar hún
ber það fram er eins og stein-
völufoss falli í íslenzkan fjörð,
segir í fréttaskeytinu frá AP.
FRÍSKLEG, ÓSPILLT SVEITA-
STÚLKA.
Heimkynni fegurðardrottning-
arinnar er 800 íbúa þorp, á ís-
landi, Ytri-Njarðvík. Hún lítur
út eins og frískleg, óspillt sveita-
stúlka, er há og tignarieg, ber
sig eins og prinsessa og mælist
að ummáli á mikilvægustu stöð-
um 95 — 57,5 — 95 cm. og hún
vegur um 57 kg.
Þrátt fyrir þetta eðlilega útlit,
kemur Guðrún til keppninnar
frá París, þar sem hún hefur
verið tízku fyrirsæta.. Og hún
á sér leyndarmál. — Jú, ég á
vin, játaði hún fyrir gæzlukonu
sinni frú Swanson svo iýsti hún
honum með flóði af ísienzkum
orðum. — Það sem hún á við,
er að hún elskar harux útskýrði
frú Swanson.
Brazzaville, 17. ágúst. — AP
ALLT var með kyrrum kjör-
um í Brazzaville í dag. Stjórn
sú, áem nú hefur verið skip-
uð í lýðveldinu, hefur þegar
t-ekið til starfa. Fyrsta verk-
efni hennar er að ganga úr
skugga um fjárhagsaðstöðu
ríkisins.
Forsætisráðherra stjórnar-
innar, sem aðeins er sögð
munu sitja til bráðabirgða,
hefur skýrt frá því, að fyrir-
skipuð hafi verið allsherjar
athugun á fjárreiðum ríkis-
ins.
Ráðherrann, Alphonse Mass-
Framh. á bls. 23
fylgir blaðinu í dag og er ofnl
hennar sem hér segir:
Bls.:
1 Þættir frá Hannesi á NúpstaB,
eftir séra Gísla Brynjólfsson.
2. Svipmynd: Ayub Kban.
3. Fjársjóður sjóræningjans, smá
saga eftir Aksel Sandemose.
— Farandi fjaðrir, ijóð eftir
Eggert Laxdal.
4. Kennedy í upphafi síðari hálf
leiks, eftir Viggo E. Steen-
strup.
5. Eftirmæli um öldugjálfur, eft-
ir Matthías Johannessen.
— Rabb, eftir SAM.
6. Vin í eyðimörkinni, eftir J6-
hann Guðmundsson, flugum-
ferðarstjóra.
7. Lesbók Æsknnnar.
8. Rómverska kirkjan og aðxar
kirkjudeildir, eftir séra Kristj-
án Búason.
9. Tækni og vísúidi: Geimfarl
eltist um 55 ár á 3 millj. ár-
um á leið til And'omeda vetr-
arbrautarinnar og heim, eftir
Gísla Halldórsson, verkfræð-
ing.
10. Fjaðrafok
11. — — —
13 „Sprengjan, sem aldret
sprakk.**
15. Krossgáta.
16. Elzta neðanjarðarlestin er alri-
ar gömul.