Morgunblaðið - 18.08.1963, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 18. ágúst 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðs.lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innaniands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakib.
FRUMHLAUP FRAM-
SÓKNARBLAÐSINS
¥>áðamenn Tímans verða að
njóta þess sannmælis, að
þeir virðast kunna að skamm
ast sín. Eins og Morgunblað-
ið hefur skýrt frá gekk Tím-
inn lengra í árásum á ríkis-
stjórnína en kommúnistablað
ið út af samningaviðræðum
þeim, sem nú fara fram vegna
endurnýjunar olíustöðvar fyr
ir Atlantshafsbandalagið í
Hvalfirði. Nú er blaðið hins
vegar komið í varnarstöðu og
byrjað að afsaka framhleypn-
ina.
En stóru orðin hafa verið
sögð, og hvað sem afsökunar-
beiðni líður, þá vita menn það
nú, að þeir sem ráða Fram-
sóknarflokknum svífast einsk
is í pólitísku brölti sínu og
ganga jafnvel lengra en
kommúnistar í árásum á varn
arbandalag lýðræðisþjóða.
Hið athyglisverðasta við
skrif Tímans er, að blaðið lýs-
ir yfir því, að ekkert sé at-
hugavert við að leyfa banda-
mönnum okkar afnot af Kefla
víkurflugvelli, vegna þess að
hann hafi ekki hernaðarþýð-
ingu, en hins vegar eigum við
umfram allt að neita banda-
laginu um þá aðstöðu, sem
geti orðið því að gagni. í
þeirri yfirlýsingu felst ekki
einungis það, að við eigum
ekki að styrkja bandalagið,
heldur er líka sagt, að her-
varnir landsins eigi að vera
með þeim hætti, að lítið eða
ekkert gagn sé að þeim.
Auðvitað vilja þeir íslend-
ingar, sem studdu aðild að
Atlantshafsbandalaginu og
gerð herverndarsamningsins,
að varnirnar hér séu með
þeim hætti að þær kæmu að
gagni, ef svo illa færi að styrj-
öld brytist út, en fyrst og
fremst á að miða þær — eins
og allar varnir Atlantshafs-
bandalagsins — við það að
hindra styrjöld. Varnir banda
lagsins eiga að vera svo sterk-
ar á hverjum tíma að ofbeld-
ismenn geri sér grein fyrir
fpví, að tilgangslaust sé að
heíja styrjaldarátök, því að
þeir mundu óhjákvæmilega
verða undir. Að þessu hafa
varnir Atlantshafsbandalags-
ins miðað og reynslan hefur
skorið úr um það, að rétt var
stefnt.
I Yfirgangsmennirnir í
Moskvu gera sér nú grein fyr
ir því að þeir geta ekki sigrað
í styrjöld, og þess vegna er
nú loks hægt að semja við
þá. En þessum árangri má
ekki glata. Þess vegna verð-
ur að halda áfram að treysta
yarnir lýðræðisþjóða, þar til
meiri árangur hefur náðst í
samningum við ráðamenn í
Kreml.
VERKFALL
VERKFRÆÐINGA
U'ins og skýrt er frá á öðr-
^ um stað í blaðinu hefur
ríkisstjórnin gefið út bráða-
birgðalög til lausnar verkfalls
verkfræðinga. Verkfall þetta
hefur nú staðið síðan 27. júní
og ekkert miðað í samkomu-
lagsátt, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir sáttasemjara til að
leysa deiluna.
Það er opinbert leyndar-
mál, að mikil átök hafa orðið
í stéttarfélagi verkfræðinga,
enda eru þeir verkfræðingar
margir, sem þreyttir eru orðn
ir á verkfallinu og stífni
þeirfi, sem ríkt hefur. Eng-
inn efi er þess vegna á því,
að fjöldi verkfræðinga mun
fagna þeirri lausn, sem nú er
fengin, með bráðabirgðalög-
um ríkisstjórnarinnar.
Ein af ástæðunum til þess
að óhjákvæmilegt var að
leysa deiluna með löggjöf, er
sú, að verkfræðingar hafa
verið tregir að sækja um stöð
ur hjá ríkisstofnunum, meðan
verkfallið stóð, bæði vegna
þess að þeir hafa gert sér von-
ir um að þeir gætu fengið
hærri laun hjá einkafyrir-
tækjum, í samræmi við kröf-
ur félagsins, og eins vegna
þess að þeim, sem sótt hafa
um stöður, hefur verið núið
um nasir að þeir væru ekki
nægilega stéttvísir.
Eins og menn minnast féll
dómur í máli því, sem verk-
fræðingar höfðuðu á hendur
ríkinu, á þann veg, að ríkis-
stofnunum væri heimilt að
ráða verkfræðinga til starfa,
þótt verkfall stæði yfir, en
samt hafa sárafáir verkfræð-
ingar sótt um stöður hjá rík-
inu.
Ef verkfallið hefði ekki ver
ið leyst á þann veg, sem nú
hefur verið gert, hefði líka
verið ástæða til að óttast, að
ákvarðanir kjaradóms um
kjör ríkisstarfsmanna hefðu
verið í hættu, því að auðvit-
að er út í bláinn að borga
þeim verkfræðingum, sem
vinna hjá einkafyrírtækjum
miklu hærra kaup en þeim,
sem starfa hjá ríkinu.
Af öllum þessum ástæðum
ber að fagna ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um lausn þess-
arar hvimleiðu d°iJu með lög-
gjöf.
mwm
UTAN ÚR HEIMI
Katanga lima
í þrjú smærri ríki
f SÍÐUSTU viku kom
Kasavubu, forseti Kongó, í
heimsókn til Katanga, í
fyrsta sinn — og mátti ekki
seinna vera, að áliti íbúa
fylkisins, því að nú er svo
komið örlögum þessa um-
deilda og óróasama fylkis,
að verið er að liða það sund
ur í þrjú „smáfylki“, er
nefnd verða Norður-Kat-
anga, Suður-Katanga og
Lualaba. Er þess vart að
Tshombe
vænta að fylkið Katanga
verði aftur til sem ein
heild, a.m.k. í náinni fram-
tíð.
Elisabethville verður I S-
Katanga og þar er áformað að
koma á fót sérstöku þingi, er
21 þingmaður sitji og kjósi
það stjórn héraðsins og for-
seta. Ólíklegt þykir, að Tshom
be, fyrrum forseti Katanga,
snúi aftur til Elisabethville í
náinni framtíð. Hann hefur
verið rúinn öllum völdum og
aðstöðu og líklegt er talið, að
hann telji sig ekki geta, sóma
síns vegna, snúið heim og sótt
um embætti á vegum stjórn-
arinnar.
Samfara sundurlimun Kat-
anga-fylkis á stjórn Kongó
við mikla erfiðleika að etja.
Mestu vandamáli mun valda
skipting eigna og tekna milli
hinna nýju héraða. Hefur
námafélagið Union Miniere
fengið skipun frá stjórninni
um að gefa upp í hverju hlut-
falli það hafi haft tekjur af
hinum nýju héruðum, en
stjórn félagsins segir nánast
óhugsandi að komast að raun
um það, þar sem allir reikn-
ingr og skjöl félagsins séu
miðuð við fylkið sem heild. Er
því næsta víst, að eitthvað eigi
eftir að ganga á, áður en fylli-
lega er frá skiptingu fylkisins
gengið — en þessi ráðstöfun
stjórnarinnar mun fyrst og
fremst ætluð til þess að koma
í veg fyrir, að forystumenn
í Katangafylki geti sem heild
skapað andstöðu við Leopold-
ville-stjórnina í líkum mæli
og fyrr.
Að sögn fréttaritara í Elisa-
béthville gætir þar lítillar
hrifningar yfir ætlun stjórn-
arinnar — en heldur ekki
verulegrar andstöðu. Evarista
Kimba, sem nú gegnir emb-
ætti forseta og er sagður hæf-
ur maður, hefur lýst því yfir,
að hann muni ekki gegna for-
setaembætti áfram í Katanga-
fylki sundurlimuðu. En frétta-
menn telja, að meginástæðan
sé sú, að hann eigi vísa ráð-
herrastöðu — e.t.v. stöðu utan
ríkisráðherra — innan stjórn-
arinnar í Leopoldville, þegar
ráðstöfunin um skiptingu Kat-
anga hefur náð fram að ganga.
Þá segja fréttamenn enn-
fremur, að með Kasavubu
hafi komið til Elisabethville
sérlegur sendimaður stjórnar-
innar, Victor Fataki, er eigi að
leggja síðustu hönd á skipt-
ingu fylkisins. Gangi hann
w___I
Kasavubu — forsetl
undir nafninu „böðullinn" í
Elisabethville.
Meðan Kasavubu dvaldist í
Elisabethville var mikið um
dýrðir í borginni, þ.e.a.s. skipu
lagðar dýrðir af hálfu stjórnar
-innar — t.d. íþróttakappleikir,
hersýningar og hljóðfæraslátt-
ur — sem íbúarnir gátu
skemmt sér við þeim að kostn-
aðarlausu. — Andstæðingar
stjórnarinnar reyndu að
benda á að með þessu væri
verið að breiða yfir „aftöku
Katangafylkis", segja frétta-
menn, og bæta því við að það
dyljist engum, að heimsókn
forsetans og allt tilstandið
vegna komu hans, hafi verið
gert til þess að sýna íbúun-
um það svart á hvítu, að
stjórnin í Leopoldville væri
sá aðili, er öllu réði og hefði
tögl öll og hagldir í samskipt-
unum við Katanga.
Loftárás á sykur-
verksmiðju á Kúbu
Miami, 16. ágúst. — AP.
Yfirvöld á Kúbu skýrðu frá
því í dag, að lítil flugvél hefði
gert sprengju- og vélbyssuárás á
sykurverksmiðju í Camaguey-hér
aði á fimmtudagsmorgun og önn-
ur lítil flugvél hefði flogið nærri
olíuhreinsunarstöð við Havana í
morgun og hefði verið skotið á
þá flugvél úr loftvarnabyssum.
Ekkert var sagt um frá hvaða
landi þessar flugvélar hefðu
NÝTT TÍMARIT
IVTýtt tímarit hefur hafið
-*■" göngu sína, það nefnist
Iceland Review og er gefið
út á ensku. Þessu riti er fyrst
og fremst ætlað að kynna ís-
lenzka atvinnuvegi og út-
flutningsframleiðslu lands-
ins, þjóðlíf og menningu ís-
lendinga.
komið, en hermálaráðuneyti
Kúbu sagði að hér væri um að
ræða ræningja, sem væru ,„skipu
lagðir, vopnaðir og stjórnað af
leyniþjónustu Bandarikjanna".
. í tilkynningu ráðuneytisins,
sem birt var í Havanablöðum í
dag, og lesin í útvarpið þar, var
sagt að árásin á sykurverksmiðj-
una hefði verið gerð kíl. 5.05 að
morgni fimmtudags. Hefði flug-
vélin skotið nokkrum skotum og
Rit þetta er mjög smekk-
legt og vel frá gengið. Hug-
myndin er að það komi út
fjórum sinnum á ári. Rit-
stjórar eru þeir Haraldur J.
Hamar og Heimir Hannesson.
Fram að þessu hefur ekk-
ert rit verið gefið út til þess
að kynna íslenzka atvinnu-
vegi og framleiðsluhætti á er-
lendum vettvangi. Þess vegna
ber að fagna þessu nýja riti.
varpað tveimur 50 punda sprengj
um úr 150—200 m hæð. Sagt var
að önnur sprengjan hefði sprung
ið án þess að valda tjóni, en hin
hefði ekki sprungið.
í tilkynningu hermálaráðuneyt
isins var atburðum þessum lýst
svo, að enn einu sinni sýndi það
sig, að „heimsvaldasinnastjórn
Bandaríkjanna" sæti á svikráð-
um við kúbönsku þjóðina.
Báðar flugvélarnar komust
undan án þess að verða fyrir
tjóni.
Afli dragnótabáta
aldrei verið minni
Patreksfirði, 16. ágúst.
HÉR var í dag heitasti dagur-
inn langan tíma, sólskin, heið-
skírt og logn fram eftir degi,
Kalt hefur verið í veðri undan-
farið, hitinn farið niður í 7 stig.
Afli dragnótabáta hefur verið
miklu minni en nokkru sinni
fyrr. Afli hjá trillubátunum hef-
ur einnig verið tregur. Síldveiði-
bátarnir eru ekki enn komnir að
austan. — Trausti.