Morgunblaðið - 18.08.1963, Side 14

Morgunblaðið - 18.08.1963, Side 14
14 MORCUNBLAÐIÐ StmmidagTír 18. Sgást 1963 Kserar þakkir sendi ég öllum þeim, sem sýndu mér vinsemd og viríingu á áttræðisaímæli mínu, með heim sóknum, skeytum, gjöfum og hlýhug. — Lifið heiL Eyjólfur Gestsson, Húsatóftum. Innilegar þakkir og kveðjur sendi ég öllum þeim sem á einn eða annan hátt minntust min á sjötugsafmæli mínu hinn 26. júlí sl. Konunum í deildinni minni þakka ég meira en orð fá lýst yndislegt samstarf og stórgjafir nú og oft áður, en ekki sízt þá vináttu og hlýju, sem þær hafa umvafið mig frá fyrstu tið. Þeim og öllum öðrum vinum mínum óska ég blessunar guðs. Sesselja Eldjárn. Velg en RflDI HETTE foppseriemodetl Höfiun fengið nýja sendingu af hinum þekktu Ncrsku RADIONETTE sjónvarpstækjum 'j G. Klelgason & Melsted h.f. Rauðarárstíg 1 — Hafnarstræti 19. Sími 1-16-44. Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir ÁRNI J GÍSLASON Skagfirðingabraut 1, Sauðárkróki sem andaðist á Héraðssjúkrahúsinu á Sauðárkróki 13. ágúst sl. verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn 20. ágúst kl. 2 e.h. Ástrún Sigfúsdóttir, Ragnheiður Árnadóttir, Sigfús Árnason, Pétur Breiðfjörð, Jóhanna Sigríður Sigurðard. Litla dóttir okkar og systir MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR verður jarðsett frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. ágúst kl. 1,30 e. h. Regina Rist, Guðmundur Jóhannsson, • ©g systkinin. Jarðarför mannsins míns GUÐMUNDAR ÞÓRÐARSONAR frá Rauðnefsstöðum fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. ágúst kl. 1,30 e.h. Fyrir hönd vandamanna. Jósefína Njálsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför bróður okkar ÞORBJARNAR GUÐJÓNSSONAR Guðrún Guðjónsdóttir, Jón Guðjónsson. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð vegna and- láts og jarðarfarar. BÓTHILDAR BÚADÓTTUR Fyrir hönd vandamanna. Sigurveig Oddsdóttir. Innilegustu þakkir til allra fjaér og nær, sem sýndu okkur samúð og hluttekningu, við andlát og jarðar- för systur okkar GUÐBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR Borg í Þykkvabæ, sem lézt 17. júlí sl. Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarkonum á sjúkrahúsinu, Selfossi fyrir frá- bæra hjúkrun og alúð, sem hún naut þar í ríkum mæli til hinstu stundar. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna. Ársæll Stefánsson. I. DEILD Kvtattspyrnumöt íslands LAUGARDALSVÖLLUR: í dag, sunnudaginn 18. ágúst, kl. 16:00. Valur — Akranes Dómari: Haukur Óskarsson. LAUGARDALSVÖLLUR: Mánudaginn 19. ágúst kl. 19:30 síðdegis. Fram — KR Dómari: Magnús Pétursson. Línuverðir: Einar Hjartarson og Gunnar Gunnarsson. Mótanefnd. Rýmingasala - Rýmingasala Drengjaskyrtur frá kr. 50,- Telpupeysur frá kr. 60,- Drengjabuxur frá kr. 65,- Telpubuxur frá kr. 60,- Drengjaúlpur frá kr. 150,- Barnaúlpur frá kr. 150,- Drengjavesti frá kr. 40,- Barnasokkar frá kr. 15,- Vinnuskyrtur — Vinnubuxur o. m. fl. Komið og gerið göð kaup Verzl. STAKKUR Laugavegi 99. (Gengið inn frá Snorrabraut). Afgreiöslustúlka Minjagripaverzlun í Miðbænum vantar afgreiðslu- stúlku frá 1. september. Málakunnátta nauðsynleg. Tilboð merkt: „1. sept. — 5360“ sendist afgr. Mbl. fyrir 21. þessa mánaðar. Rauði blæjubíllinn IIUPALA 1962 Super Sport til sölu af sérstökum ástæðum. — V-8, sjálfskiptur, lokað drif, vökva-stýri, útvarp, o. fl. o. fl. Tilboð óskast send Mbl. merkt: „Impala — 5474“ sem allra fyrst. Frá Sjiikrasamíagi Beykjavíkur Frá og með 1. september n.k. hætta eftirtaldir læknar að gegna heimilislæknisstörfum fyrir Sjúkrasamlagið, vegna annríkis við önnur störf: Arinbjörn Kolbeinsson, Kristín E. Jónsdóttir. Þess vegna þurfa allir þeir, sem hafa þá fyrir heim ilislækni, að koma í afgreiðslu samlagsins, Tryggva götu 28, með samlagsbækur sínar hið fyrsta, til þess að velja sér lækni í þeirra stað. Skrá yfir samlagslækna þá, sem velja má um, ligg ur frammi í samlaginu. Sjúkrasamlag Reykjavíkur. Bogi Stein- grímsson LAUGARDAGINN 21. júli var borinn til moldar í Hjarðarhoits- kirkjugarði Bogi Steingrimsson, bifreiðarstjóri, Búðardal, er and- aðist af slysförum aðfaranótt föstudagsins 12. júlí s.l. Bogi Thorarensen Steingríms- son, en svo hét hinn látni íullu nafni, var fæddur að Miklagarði i Saurbæ 18. júní 1922, sonur hjónanna Steingríms Samúeisson ar, bónda þar, , og konu hans Steinunnar Guðmundsdóttur. Óist Bogi upp í Miklagarði og síðar á Heinabergi á Skarðs- strönd, en þar bjuggu foreldrar hans frá 1936 — 1S'57. Æviatriði Boga heitins skulu ekki nánar rakin hér, en hann var eins og sjá má vaxinn upp i Saurbæ og Skarðsströnd, átti þar fjölmarga æskuvini og kunn- ingja og bar mikla tryggð til þeirrar sveitar. Mun um skeið hafa hvarflað að honum að hefja búskap á Heinabergi, er faðir hans brá þar búi, en af því varð þó ekki, m. a. vegna þess að hann treysti ekki heilsu sinni á þeim árum. Hinn hviti dauði hafði gert tilraun til að knésetja hinn unga og gjörvulega dreng, en ekki. tekizt. Virtist Bogi heit- inn vera búinn að endurheimta fulla heilsu hin síðari ár. Enginn vafi er á því, að Bogi hefði orðið fyrirmyndar bóndi, ef hann hefði snúið sér að búskap, enda átti hann ekki langt að sækja það, þar sem faðir hans Steingrimur var annálaður fyrir snj'rti- mennsku og framkvæmdir á búi sínu. Búskapur Boga heitms i Búðardal, þótt í smáum stíl væri og unninn í hjáverkum sýndi það einnig og sannaði, að þar fór enginn meðalmaður í þeiim efn- um. Bogi var búfræðingur að mennt. Bogi kvæntist Unu Svanborgu Jóhannsdóttur í Búðardal, dótt- ur Jóhanns Bjarnasonar, verzluu armanns, og Þuríðar Skúladóttur. Ungu hjónin reistu bú að Sunnu- hvoli í Búðardal. Þau eignuðust 5 börn. Hið elzta þeirra er nú 10 ára að aldri. Við fráfall Boga Steingrimsson ar hefur hið fámenna kauptún Búðardalur misst einn af sinum beztu mönnum. Hann hafði þegar svo ungur að árum unnið mörg störf til heilla og nytja fyrir byggðarlagið. Ég vil sérstaklega þakka honum fyrir að annast bókavörzlu fyrir Héraðsbókasafn Dalasýslu frá fyrstu tíð. Það verk vann hann af alúð fyrir lítið end urgjald. Bogi heitinn var einn af 5 mönnum í nýskipaðri bygg- inga- og skipulagsnefnd fyrir Búðardal, og hafði mikinn áhuga á þeim málum. Sjálfur hóf hann á þessu vori framkvæmdir við byggingu nýs íbúðarhúss, sem áreiðanlega hefði orðið bæjar- prýði, því að Bogi vildi fegra, græða og bæta umhverfi sitt. Það var fagnaðarefni að eiga I vændum aukið samstarf við Boga Steingrímsson, því hann var samvinnuþýður, lipurmenni hið mesta og hvers manns hug- ljúfi. Vinir frá bernsku og æsku- árum, félagar í vegavinnuflokki Jakobs Benediktssonar, en þar hafði Bogi unnið s.l. 15 sumur, samherjar i Vörubílstjórafélagi Dalasýslu, og fjölmargir aðrir, sakna nú vinar í stað. Þeir horfa orðvana á hið opna skarð, er hinn slyngi sláttumaður hjó svo óvænt í raðir þeirra, — þegar björt sumarnóttin breyttist á svipstundu í kalda haustgrímu. Hinni ungu ekkju og börnum hennar sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur, svo og foreldrum og tengdaforeldrum hins látna, og hinum fjölmenna hópi frænda hans og vina. Jarðarför Boga heitins er ein- hver hin allra fjölmennasta, sem sézt hefur hér um slóðir. Það er gleðiefni, þegar góðir menn eign- ast svo rík ítök í hugum og hjört um samferðafólksins, og huggun þeim, sem lifa. •*-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.