Morgunblaðið - 18.08.1963, Qupperneq 17
Sunnudagur 18. ágúst 1963
MORCUNBLAÐIÐ
17
Vi! kaupa litla íbúð
í Reykjavík eða nágrenni. Útborguu 100 þúsund kr.
Upplýsingar í síma 10875.
Vöruskemma til sölu
Til sölu er ROMY-SKEMMA, óuppsett, með profil-
bogum, gólfflötur 270 ferm. Allar nánari upplýs-
ingar í síma 20456 og 12056.
Gengið inn frá Vonarstræti.
Afgreiöslustarf
Rösk og áreiðanleg stúlka óskast til afgreiðslu-
starfa í sérverzlun í Miðbænum. Til greina kemur
vinna hálfan daginn. Umsókn ásamt upplýsing-
um um aldur og fyrri störf sendist afgr. Mbl. merkt:
„Verzlun — 5357“ fyrir fimmtudag.
Lagerstarf
Reglusamur röskur maður óskast til afgreiðslu-
og lagerstarfa nú þegar eða síðar. Tilb. ásamt uppl.
um aldur og fyrri störf sendist afgr. Mbl., merkt:
„Lager — 5358“ fyrir fimmtudag.
Ödýrir barnaskór
Seljum á morgun og næstu daga barnaskó fyrir
telpur og drengi. — Verð kr. 98,00.
Barnaskór fyrir telpur úr leðri með nælonsóla.
Krónur 150,00.
Uppreimaðir barnaskór úr leðri. Stærðir 24—27.
Krónur 150,00.
Barnaskór uppreimaðir. Stærðir 20—24. Kr. 72,50.
Kaupið ódýra barnaskó meðan birgðir endast.
8kóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100.
— Skógrækt
Framh. af bls. 8
sem virtust hafa lífsvon lengi eft-
ir að hretið var um garð gengið.
Skaðar þeir, sem urðu á öðr-
um trjátegundum af völdum vor-
frostsins, eru varla teljandi.
Nokkrar fjallafurur visnuðu of-
an til í Múlakoti. Toppbrum hafa
farið af nokkrum stafafurum á
Stálpastöðúm. Einstöku rauð-
greni hafa og visnað upp, en
það fyrirbrigði höfum við séð
um nokkur ár, svo að ekki er
víst að kuldakastið hafi grand-
að þeim. Þó má vera að dánar-
talan sé nokkru hærri í rauð-
greni í ár en undanfarið af þess
völdum. En þessi vanhöld í rauð-
greni geetað stafað af vor- eða
haustfrostum eða jafnvel næring-
arskorti.
Skaðar á birki og reyni eru
yfirleitt þannig, að trén ná sér
aftur, því að þau eiga hægt með
að setja ný brum, en sum þeirra
geta kræklast og bæklast af þess-
um skemmdum.
En svo eru til trjátegundir, sem
alls ekki hafa látið á sjá við
kuldana í vor. í því samabndi
má nefna álm og ask frá Noregi,
svo og silfur- og gráreyni ásamt
broddfurunni frá Hallormsstað.
Þessi lauftré eiga öll sammerkt
í því, að þau springa seint út á
vorin, en satt að segja veit ég
ekki hversu broddfuran hagar sér
í því tilliti.
Þegar svo litið er á þessa skaða
í heild, þá kemur greinilega í
ljós, að þær trjátegundir, eða
öllu heldur þau kvæmi tegund-
anna, sem þurfa tiltölulega lít-
inn vorhita til þess að laufgast
og springa út, hafa orðið lang
harðast úti. Hin, sem hreyfa sig
seint á vorin, hafa yfirleitt slopp-
ið, þrátt fyrir þennan geysilega
hitamismun á svo skömmum
tíma.
Og þegar spurt er að því, hverj
um kenna megi um þetta tjón,
svara ég því hiklaust, að það er
fyrst og fremst og svo að segja
einvörðungu fáfræði minni um
að kenna. Ég hef á undanförnum
árum sótt æ norðar eftir sitka-
grenifræi og ekki gætt þess að
hin norðlægari kvæmni þurfa
svo miklu minni vorhita en hin,
sem vaxa sunnar. Ég tel að ég
hefði átt að sækja nokkra aspar-
græðlinga til Corpova og Yaku-
tat í stað þess að binda mig við
svo takmarkaðan stað sem Kenai
vatn. Og þó að við höfum hin
síðari ár sótt sitkafræ til Homer,
og það greni reynzt sæmilega í
áföllunum, þá verðum við víst
enn að flytja- okkur sunnar.
Nú erum við reynslunni ríkari,
og einhvers staðar er sagt, að
reynslan geri mann hygginn en
ekki ríkan, og það er orð að
sönnu.
Tjón Skógræktar ríkisins er
nokkuð, en það er frekar sárara
en að það sé mikið að verðmæt-
um. Hins vegar hafa skógrækt-
arfélög Kjósarsýslu, Rangæinga
og Arnesinga beðið nokkuð tjón
og fáeinir einstaklingar. Skóg-
rækt ríkisins mun á næstu ár-
um reyna að bæta þeim þetta
tjón eftir því sem við verður
komið.
Læt ég svo útrætt um þetta
mál, en þegar nánari athugun
hefur farið fram á tjóninu, verð-
ur skýrt frá henni.
Mikil verðlœkkun á sumarfatnaði
Seljum á morgun með miklum afslætti sumarkápur úr ull og
rayon, einnig svampfóðraðar. — Poplínkápur — Dragtir — Apa-
skinnsjakkar — Stretchbuxur.
Glæsilegt úrval. — Mikill aflsáttur.
FELDU R
Austurstræti 10
RAEL - BROOK
HERRASKYRTAN er heimsþekkt.
Áttunda hver skyrta sem selst í Bretlandi
er:
RAEL BROOK
The Best
in Shirts
Fallegar — Þægilegar — Mikið litaúrval.
Þarf ekki að strauja. — Kaupið það bezta.
Verzlunin G E Y S I R
Reykjavík.
SELUR
RAEL - BROOK
UMBOÐSMAÐUR: JOHN LINDSAY, Austurstræti 14.
Tvíbýlishús
á góðum stað í Reykjavík til sölu. Á 1. hæð er 5
herb. íbúð, sem verður fullgerð í desember n.k. en
á jarðhæð 4ra herb. íbúð, sem er tilbúin undir
tréverk. Húsið fullfrágengið að utan. Lóð standsett.
Upplýsingar (ekki í síma) gefur:
MÁLFLUTNINGS- og FASTEIGNASTOFA
Agnar Gústafsson, hrl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14 II. hæð — Pósthólf 948.
LÆRIÐ
GLUGGA-
skrcytingar í dupant-skólanura
— hinum viðurkennda.
skóla fyrir nýtízku glugga
skreytingar.
Nýtt 4ra mánaða
dagnámskeið byrj-
ar 1. október.
6 og 4ra mánaða ðag-
námskeið byrja
3. janúar 1964.
Færir skreytarar frá
dupont-skólanum eru
staðar eftirsóttir. —
Biðjið um skrá yfir iiátrv-
skeiðin án skuld-
bindinga.
KOIMG GEORGSVEJ 48
KOBENHAVIM. F. G0.42 66