Morgunblaðið - 28.08.1963, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
MifSvncudagur 28. ágúst 1963
Heildarsöltunin meiri
nú en í fyrra
Seyðisfjörður nálgast 100.000 tunnur
Á MIÐNÆTTI aðfaranótt laugar-
dags hafði verið saltað í 411.001
tunnu. Um sama leyti í fyrra
hafði verið saltað í 323.248 tunn-
ur, en alls nam söltunin um haust
ið, 15. sept., 375.213. tunnum .
Kl. 24 á laugardag hafði verið
saltað á eftirtöldum stöðum
(tunnumagnið fyrir aftan):
Siglufjörður . .. ... 67.282
Ólafsfjörður . .. ... 10.937
Dalvík 8.46"
Hrísey 4.577-
Hj ajteypi . .. .. 1.045
Krossanes 44
Grímsey 1.067
Húsavík 8.734
Raufarhöfn ... .. . 72.586
Þórshöfn 1.423
Bakkafjörður . 2.708
Vopnafjörður . . . . 21.842
Borgarfj. eystri 5.151
Seyðisfjörður . .. . 92.009
Neskaupstaður .. 44.853
Eskifjörður . .. ... 20.364
Reyðarfjörður . . .. 16.222
Fáskrúðsfjörður . . 18.072
Stöðvarfjörður 6.579
Breiðdalsvík 3.263
Djúpivogur ... 3.773
Á sunnudag var saltað í 2.128
tunnur á Seyðisfirði, svo að þar
nemur söltun nú 94.138 tunnum.
I>á var saltað : 465 tunnur í
Vopnafirði og 46 tunnur á Borg-
arfirði eystra.
Neskaupstað, 26. ág.
í dag lönduðu hér þessi skip:
W
Hundalíf
er betra
.. eða hvað?
Andstæðingar Nehru, for-
sætisráðherra Indlands, á
þingi, báru í s.l. viku fram
vantrauststillögu á stjórn
landsins. Var tillagan sögð
borin fram, vegna slælegrar
framgöngu stjórnarinnar í
varnar-, utanríkis- og efna-
hagsmálum. Vakti tillagan all
mikla athygli, enda fyrsta
sinnar tegundar á indverska
þinginu í 16 ár.
Tillagan var rædd í 4 daga,<
og báru stjórnarandstæðing-
ar fram ýmís könar gagnrýni
m.a. var Nehru gagnrýndur
fyrir hundahald sitt.
Leiðtogi sósíalista, Ram M
Lohia, sakaði forsætisráðherr
ann um að verja 16 sinnum
meira fé til að ala hund sinn,
en landsbúar hefðu að með-
altali, hver fyrir sig, til að
fæða sig. Sagði Lohia, að
Nehru eyddi dag hvern um
30 kr. (ísl. kr.) í hundinn, en
hins vegar hefðu 270 millj-<
ónir Indverja aðeins 10 kr.
að meðaltali, dag hvern, til
að kaupa mat fyrir.
Á fimmtudag var van-
traustið fellt með 346 atkv.
gegn 61. Kommúnistar sátu
hjá.
Muninn II 150 mál, Stefán Ben
50, Lómur 600, Sæfaxi 650, Helgi
Flóventsson 1000, Hugrún 150,
Tjaldur 200, Oddgeir 500, Heimir
100, Björg 100, Skagaröst 300,
Helgi Helgason 900, Árni Geir
200, Sunnutindur 200, Jón á
Stapa 900 tunnur, Hamravík
1000, Bára 1200, Sigurbjörg 650,
Gullfaxi 300.
Síldarverksmiðjan hefur nú
tekið á móti 175.000 málum, og er
það mesta magn, sem ein verk-
smiðja hefur tekið á móti í sum-
ar. I dag losaði hér danskt skip
600 tonn af salti, og í kvöld var
væntanlegt skip með síldartunn-
ur. — Á.
Kynning á háskólanámi
roxit*:* • • "iniiinnnniMiinBMiiiinnHi wwiiiiuiiii i ■» «
Bifreiðin, sem ók á handriðið á Hólmsárbrú á sunnudagsmorgun.
Ök á Hólms-
SAMBAND íslenzkra stúdenta
erlendis (SÍSE) og Stúlentaráð
Háskóla íslands halda kynningu
á háskólanámi í íþöku við
Menntaskólann nk. miðvikudags-
kvöld. Kynningin er einkum
ætluð stúdentum og Mennta-
skólanemum.
Á kynningunni munu stúdent-
ar við nám heima og erlendis
veita upplýsingar um náms-
greinar sínar, námshætti og
námskostnað. Einnig verða veitt-
ar upplýsingar um styrki og lán
til náms í hinum ýmsu grein-
um Oig löndum. Handbækur og
skólaskýrslur frá flestum há-
skólum, sem íslendingar stunda
nám í, munu liggja frammi gest-
um til afnota.
Auk stúdenta frá Háskóla ísl
lands munu námsmenn frá Norð-
urlöndum öllum, Stóra Bret-
landi, Þýzkalandi, Frakklandi,
Sviss, Tékkóslóvakíu, Póllandi,
Rússlandi og Bandaríkjunum
verða til viðtals. Þær námsgrein-
ar, sem upplýsingar verða veitt-
Indverjar mót-
mæla
FRÁ ÞVÍ í byrjun apríl hafa
kinverskir hermenn a.m.k. tíu
sinnum farið inn á indverskt
land og jafnoft brotið lofthelgi
Indlands, — að því er Nehru,
forsætisráðherra landsins, skýrði
frá í þinginu í dag. Sagði hann
stjórnina hafa sent Pekingstjórn
inni harðorð mótmæli vegna
þessa og ennfremur vegna dreif
ingar kínverska sendiráðsins í
Tel Aviv á andrússneskum áróð-
ursritum.
ar um, eru m.a. guðfræði, lög-
fræði, verkfræði, læknisfræði,
viðskiptafræði, norræna, tann-
lækningar, lyfjafræði, stærð-
fræði, eðlisfræði, hagfræði, arki-
tektúr, jarðfræði, sálfræði, saga,
efnafræði og tónlistarkennsla.
Fyrsta kynning af þessu tagi
var haldin sl. haust og þótti gefa
mjög góða raun.
Til skamms tíma hefur stúd-
entum reynzt mjög erfitt að fá
upplýsingar um háskólanám,
bæði að því er varðar námið
sjálft og eins aðbúnað og kostn-
að á erlendum vettvangi. Með
því að gefa þeim kost á að kom-
ast í persónulegt samband við
námsmenn, sem stunda nám í
viðkomandi greinum og löndum,
fást ferskari og raunhæfari upp-
lýsingar um námshætti en fáan-
leigir eru með öðru móti.
í frairíffaldi af kynningunni
munu SÍSE og Stúdentaráð veita
þá þjónustu, er þau geta í té
látið til þess að auðvelda stúd-
entum námsval. SÍSE hefur opna
árbrú
UM kl. sex á sunnudagsmorgun
ók nýleg bifreið á handriðið á
Hólmsárbrú. Bifreiðin var á
leið austur 0<g lenti fyrst á
brúarhandriðinu vinstra megin.
Við það slengdist hún yfir brú-
argólfið, og skall afturendi
hennar utan í handriðið hin-
um megin. Bifreiðin er mjög
mikið skemmd.
upplýsingaskrifstofu, sem lánar
út handbækur og námskrár er-
lendra háskóla, og upplýsinga-
þjónusta Stúdentaráðs mun
verða með svipuðum hætti og
undanfarið. Einnig er í undir-
búningi hjá Stúdentaráði og
Sambandinu stúdentahandbók,
þar sem upplýsingar verður að
finna um nám heima og erlendis.
Forráðamenn- kynningarinnar
vilja sérstaklega benda fimmtu-
og sjöttubekkjarnemum Mennta-
skólans á, að notfæra þá góðu
þjónustu, sem þessi námskynn-
ing í íþöku mun veita.
Velvakanda hafa borizt tvö
bréf um þjónustu í ríkisskip-
um. í öðru bréfinu er kvartað
undan þjónustunni í „Herjólfi“,
en í hinu er þjónustunni í
„Esju“ hælt. Eru þau bæði birt
hér á eftir.
• Kvartað undan þjónustu
í „Herjólfi“
„Velvakandi góður!
Ég fór um daginn með Her-
jólfi frá Þorlákshöfn (kl. 5 e.h.)
til Vestmannaeyja. Ég kom
svangur um borð og bað þern-
una um kaffi og -brauð. Hún
kvað engar veitingar um borð
fyrr en eftir kl. 7 um kvöldið.
Ég varð hissa; enn meira undr-
andi varð ég, er veitingarnar
reyndust eingöngu vera pylsur
(10 kr. stk.) og gos handlangað
út um lúgu á eldhúsdyrunum.
Þessar veitingar bárust í tal
í Vestmannaeyjum, og kvað
fólk þar þetta þjónustuleysi um
borð í Herjólfi hafa ríkt í allt
sumar og ekki einungis í Þor-
lákshafnar-ferðum, heldur einn
ig í öllum ferðum skipsins
milli Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja.
Mér finnst, sem vafalaust
flestum öðrum, að þessu ófremd
arástandi verði að kippa í lag
tafarlaust og beini hérmeð^
þeim tilmælum til forstjóra
Skipaútgerðarinnar að laga
þennan ósóma strax.
— V.“
• Gott fólk á „Esju“
„Kæri Velvakandi!
Við minnumst alla jafna á
það, sem okkur líkar miður.
Því skyldum við þá ekki virða
það, sem vel er gert, og benda
á það, sem gæti verið til fyr-
irmyndar? — Það er líka
ánægjulegt að minnast þess,
sem gott er, og því langar mig
til að biðja þig fyrir þessar
línur.
Hinn 11. júlí s.l. lagði ég af
stað í eina af hringferðum m.s.
„Esju“ umhverfis landið. Varð
það mjög ánægjuleg ferð, enda
þótt golan væri ekki alltaf hlý.
En við fundum það enn þá bet-
ur en áður, hvað ísland á fjöl-
margt fallegra staða í fórum
sínum, og jafnframt mátti
finna, að það á líka góð'u fólki
á að skipa, þar sem starfslið
m.s. „Esju“ er. Þar virtist vera
valinn maður í hverju rúmi.
Þar var ávallt að mæta hinu
sama prúða og hlýja viðmóti
og fúsum vilja hvers og eins
til að leysa vandamál ferða-
langanna og gefa greic^ svör
við þrálátum spurningum for-
vitinna farþega. Það var eins
og allir væru samtaka um að
veita hina beztu fyrirgreiðslu
og spara ekki fyrirhöfn til að
gera farþegum dvölina sem
þægilegasta. Var þó ærið að
starfa, þar sem allt farþega-
rými skipsins var fullskipað og
víst vel það. Þá var og fæði
á skipinu og allur aðbúnaður
með ágætum. í þessu sambandi
vil ég einnig geta sérstaklega
greiðrar og lípurrar fyrir-
greiðslu starfsfólks á skrifstofu
Sk-ipaútgerðar ríkisins, er ég
hafði kynni af í sambandi við
þessa Esjuför.
Það væri engin þörf að
kvarta, ef allir skipuðu sess
sinn jafn fallega og kæmu
fram.í starfi sínu af þeim skiln
ingi, sem þetta fólk virtist
gera. — S.“
BOSCH
Höfum varahluti
i flestar tegundir
Bosch
BOSCH
startara
«sj dynamóa.
Kaupfélag Eyf., Akureyri.
Veladeild
BOSCH