Morgunblaðið - 28.08.1963, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.08.1963, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 28. ágúst 1963 MORCU N BLAÐIÐ 13 í'uUtruar á aðalfundi Skógræktarfélags íslands í Lystigarðinum á Akureyri. Verndun birkigróðurs Svohljóðandi tillaga um vernd un birkigróðurs var einnig sam- þvkkt: „Aðalfundur Skógræktarfélags íslands vill árétta samþykkt að- alfundar. 1961 um verndun birki- gróðurs ug leggur sérstaka á- herzlu á það, að framfylgt sé þeirri grundvallarstefnu skóg- ræktarlaganna frá 1955, að vernda og friða birkigróður landsins. Skorar fundurinn á landbúnaðarráðherra og skóg- ræktarstjóra að hlutast til um að þessari stefnu sé fylgt fram og ítarlegri ákvæði lögtekin, ef svo reynist, að núgildandi laga- ákvæði veiti eigi næga heimild til að firra skógarspjöllum.“ Framh. á bls. 17 * Aðalfundur Skógræktarfélags Islands á Akureyri: Auknar tilraunir með skjólbelti, vernd og ÞEGAR 27. aðalfundur Skóg- ræktarfélags íslands var sett- í Skíðahótelinu í Hlíðar- ur fjalli fyrir ofan Akureyri 16. þ. m., grúfði dimm þoka yfir Akureyri og hinum fögru Helgl Jónasson, grasafræð- ingur og bóndi á Gvendar- stöðum í Köldukinn — hann er einn merkasti grasafræð- ingur í bændastétt, hefur safnað miklum fróðleik um islenzkar jurtir og skrifað margar ritgerðir. V þyggðum Eyjafjarðar. Skíða- hótelið stendur í 480 metra hæð og er útsýnið þaðan mik- ið og frítt í björtu veðri. Þeg- ar á daginn leið bráðnaði þok- an fyrir heitri síðsumarsól og blasti nú við höfuðstaður Norðurlands og grösugar, þéttbýlar sveitir austan Eyja- fjarðar. Hafði formaður Skógræktarfélagsins, Hákon Guðmundsson, hæstaréttar- ritari, þá orð á því, að þessi dagur mætti teljast táknrænn um starf skógræktarmanna. Þeim hefði stundum mætt þoka erfiðleika og vonbrigða á liðnum tíma. En hún væri nú að greiðast í sundur og hverfa fyrir nýrri og bjart- sýnni trú á landið og rækt- unarmöguleika þess. „Gróð- urinn er undirstaða lífs og hyggðar í landinu,“ sagði for- maðurinn. Hið nýja skíðahótel þeirra Ak- ureyringa er hin myndarlegasta bygging og merkileg nýjung í gistihúsahaldi hér á landi. Á vetr um er afbragðs skíðafæri í ná- grenni gistihússins, þaðan er að- eins 2ja klukkutíma gangur á Vindheimajökul, og á sumrum er þar tilvalinn dvalarstaður með fögru útsýni og fjölbreyttum möguleikum til þess að ganga á fjöll og njóta útivistar. friðun birkigróðurs landsins Hinn nýi Vaðlaskógur Aðalfundur Skógræktarfélags- ins hófst kl. 10 f.h. á föstudag og stóð fram til hádegis á sunnudag. Á föstudag og laugardag voru farnar ferðir um Eyjafjörð, Lysti garðurinn á Akureyri skoðaður ásamt gömlu gróðrarstöðinni og hinni nýju trjáræktarstöð Skóg- ræktarfélags Eyfirðinga á Kjarna. Ennfremur var skoðaður hinn nýi Vaðlaskógur, sem gróð- ursettur hefur verið gegnt Ak- ureyrarkaupstað austaumegin Eyjafjarðar. Hafa nú verið gróð- ursettar þar um 180 þúsund trjá- plöntur, þar af nær 100 þúsund Fjórir skógræktarfrömuðir, talið frá vinstri: Hákon Guðmundsson, formaður Skógræktarfé- lags íslands, Guðmundur Karl Pétursson, yfirlæknir, formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga, Steindór Steindórsson, menntaskólakennari, og Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri. Nokkrir fulltrúar á aðalfundinum, talið frá vinstri: Ragnhild- ur Helgadóttir, ísafirði, Ólafur Ólafsson, Valdastöðum, Samúel Jónsson, ísafirði, Jón Sigurðsson Yz'a-Felli og Ingigerður Sig- urðardóttir úr Mosfellssveit. Þórarinn Þórarinsson, skóla- stjóri á Eiðum, stjórnar söng í Lystigarðinum á Akureyri. barrtré. Sérstaka athygli vekur þar þróttmikill lerkilundur, sem gróðursettur var 1951. Eru tré hans nú orðin 4—5 metra há. Telja sumir það nú vera einn þróttmesta lerkilund á landinu. Munu vera í honum 2500—3000 tré. Auknar tilraunir með skjólbelti Aðalfundurinn samþykkti nokkrar tillögur um skógræktar- mál. Lýsti því m.a. yfir, að hann teldi nauðsynlegt að tilraunir með skjólbelti verði auknar til muna og skoraði á Alþingi og ríkisstjórn að auka framlög í því skyni. Þá var samþykkt svohljóðandi tillaga: „Fundurinn lýsir yfir ánægju sinni og þakklæti til ríkisstjórn- arinnar vegna kaupa á jörðinni Mógilsá á Kjalarnesi fyrir til- raunastöð í skógrækt. Telur fund urinn höfuðnauðsyn fyrir skóg- ræktina í landinu að tilrauna- stöðin komist upp sem fyrst og þar geti hafizt sem fyrst sem allra víðtækastar tilraunir.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.