Morgunblaðið - 05.09.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.09.1963, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 5. sept. 1963 Norðmenn burst- aðir með 9 gegn 0 NORÐMENN fengii í gær eitt- hvert mesta burst í knattspyrnu- landsleik sem um getur á síðari áratugum. Þeir kepptu við Pól- verja í Stettin og unnu Pólverjar með 9 mörkum gegn O. Slík markatala er mjög óvenju leg í knattspyrnu jafnvei þó yfir burðir annars aðiljans séu alger- ir. íslendingar hafa eitt sinn tap- að 8—0 gegn flestum af beztu og hálaunuðustu atvinnumönnum Frakklands. ★ Landliðsmerki í kyrrþey. Fréttamaður NTB-fréttastof- unnar segir að það hafi ekki ver- ið nein kampavínsveizla eftir leikinn og fá hlý orð verið töluð til Norðmanna. Nýliði í norska liðinu Finn Seemann frá Lyn fékk landsliðsmerkið sitt afhent í kyrrþey í veizlulok. ★ Bezti landsleikur Pólverja. En fréttamaðurjnn tekur fram að norski fararstjórinn hafi haft rétt fyrir sér er hann sagði í ræðu að þessi úrslit hefðu ekki orðið vegna þess hve Norðmenn voru lélegir í þessum leik, held- ur vegna þess hve framúrskar- andi vel Pólverjar léku. Einn af nafntoguðustu kna ttspyrnusér- fræðingum Pólverja, Motosczinki sagði að þetta væri bezti lands- leikur sem Pólverjar hefðu leik- ið eftir strið og júgóslavneski dómarinn sagði að lítill vafi léki á því að þetta pólska lið myndi sigra í knattspyrnukeppni Olympíuleikanna í Tokíó. Fréttamaður NTB segir að leik urinn hafi aldrei verið leiðin- legur. Pólverjar skotuðu 3 mörk á fyrsta hálftíma og 3—0 var staðan í hálfleik. Nórska liðið gaf á þeim tíma ekki upp vonina og heldur ekki áhorfendur á bekkjunum. En þeg ar 4—0 kom á 9 mín síðari hálf- leiks brast allt. ic Léleg vörn. Norsku framherjarnir léku sóknarleik allan tím.ann og náðu oft góðum leikköflum, en pólska Norskur dómari Reykja- vík ÞAÐ er Norðmaður sem dæm I ir landsleik íslands og Eng-1 lands í Reykjavík 7. sept. n.k. / Norska knattspyrnusamband- ið hefur valið til starfsins Er-' ling Rolf Olsen sem er félagi | í Skeid. I Syndið 200 metrana vörnin var sem veggur. Hins vegar var norska vörnin afar göt ótt og í hvert sinn sem Pólverj- ar nálguðust hana var stórhætta á ferðum. Skot Pólverjanna voru fram- úrskarandi góð og það kviknaði enginn vonarneisti í brjóstum Norðmannanna við fyrstu mörk- in þrjú því skotin sátu eins og perlur í netinu að baki Sverre Andersen. En þessi byrjun — og leikurinn — allur er skrifaður á mjög lélega vörn. Með betri vörn hefði byrjunin — og leik-. urinn allur — fengið annan svip. Fótboltamenn á ÍSLANDSMEISTARAR KR í knattspyrnu brugðu sér í sundskýlu í gærkvöldi og syntu 200 metrana. Þeim tókst öllum að ljúka við sund- ið og hækkuðu þar með hundraðstölu Reykjavíkur lít- ið eitt. Nú ættu fleiri félags- hópar eða starfshópar að fara saman og reyna við 200 metr- og KR- ana. Það er hressandi skemmtilegt. Það sögðu ingarnir. Sumir vildu ekki stinga sér. Á efri myndinni sjáið þið 11 dagar eítir 360 kokkar laga 661.500 máltíðir 306 KOKKAR frá 140 hótelum eiga að matbúa 661.500 máltíðir fyrir 7200 „íbúa“ frá 105 löndum sem taka sér bólfestu í Olympíu- bænum í Tókíó á sumarleikjum næsta árs. Efniviðurinn sem þeir hafa milli handa er m.a. 70 þús. kg. nautakjöt, 14 þús. kg. svínakjöt, 60 þús. kjúklingar og 720 þús. egg. — Á N Æ G J A Framkvæmdanefnd leikanna gérir allt til að þátttakendur í leikunum verði ánægðir. Fyrir skömmu fór fram æfing í matar- gerð. 600 „tilraunasmakkarar“ fengu boð um að mæta í veizl- una til að reyna matinn. Á mat- seðlinum voru 40 réttir frá 11 þjóðlöndum. Bæði austrænir og vestrænir „veizlugestir" voru á einu máli um að maturinn væri 1. flokks, en töldu hins vegar að gestgjaf- arnir yrðu að læra betur bi’auð- gerðarlist. MATSEÐILL Morgunverður keppenda verð- ur ýmsar tegundir ávaxta og brauðs, egg sem soðin eru á 4 eða 5 mismunandi vegu, svíns- flesk, pylsur, ostur, smjör, á- vaxtamauk, te, mjólk, kakó og kaffi. Hádegisverður verður mjög margvíslegur: Kalt borð og súpa, síðan lax, glóðsteiktur kjúklingur, baunir, franskar kartöflur, ábætisrétttur, ávextir og ostur. Öll framleiðsla fer fram með sjálfsafgreiðslufyrirkomulagi og þátttakendur hafa mjög frjálst val um fæðurétti. En ódýrt verð- ur ævintýrið ekki, því fæðis- kostnaður er 6 dalir (250 ísl. kr.) á dag fyrir hvern þátttakanda. Enska knattspyrnan 3. umferð ensku deildarkeppninnar fór fram s.l. laugardag og urðu úrslit þessi: 1. deild: Aston Villa — Ðiack Burn 1:2 Bolton — W.B.A. 1:2 Burnley — Sheffield W. 3:1 Fulham Birmingham 2:1 Leicester — Arsenal * 7:2 Liverpool — Blackpool 1:2 Manchester M. — Everton 5:1 Sheffield M. — Chelsea 1:1 Tottenham — N. Forest 4:1 Wolverhampton — Stoke 2:1 9 2. deild. Charlton — Middlesbrough 2:4 Derby — Huddersfield 2:0 Grimsby — Southampton 2:2 Leeds — Bury 3:0 Norwich — Leyton O. 1:2 Plymouth — Newcastle 3:4 Portsmouth — Swindon 1:4 Preston — Swansea 3:3 Potherham — Manchester Gity 1:2 Sunderland — NorthamptOD 0:2 EUert Schram (sitjandi) og Gunnar Guðmannsson lauma sér ofan í. Hinir virtust þora að „skalla" vatnið. Svo syntu þeir, sumir meistaralega vel, aðrir með pústum og stunum eins og hvalir væru á ferð. Og allir komu að marki. Þá sást bolti á lofti og það lífgaði nú heldur upp á samkvæmið. Þeir gleymdu að vatn væri í lauginni og léku sér og slóust um stund. Það má sjá íslands- meistarasvipinn á þeim mörg- um er þeir mæna á boltann. Og tökin sem þeir tóku á hver öðrum, félagarnir, voru þau sömu og þeir nota í leyni á erki-óvini sína þegar þeir halda að Einar Hjartarson dómari sjái ekki til þeirra. í I Dæmdur író keppni ævilungt i KEN THOMSON miðvörður | enska 4. deildarliðsins Hertle- { i pool var nýlega dæmdur frá afskiptum af knattspyrnu- | málum og keppni fyrir lífs- tíð. Það var sérstök laganefnd sem dæmdi Thomson í þessa þungu refsingu. Hann viður- kenndi að hafa tekið þátt í ensku getraununum. Slíkt brýtur í bága við mjög ströng ensk lög. Brezk knattspyrnuyfirvöld vilja fyr ir allan mun sýna að hvergi sé blettur á brezku knattspyrnu . getraununum. Thomson má því ekki starfa sem leiðtogi á nokkurn hátt héðan í frá. Drengii keppn í kvöld Drengjameistaramót Rvíkur l frjálsum íþróttum hefst í kvöld á Melavellinum kl. 7. Alls er keppt í 17 greinum á tveimur dögum. Sigurvegari i hverri grein hlýtur titilinn „Drengjameistari Reykjavíkur 1963“. ' Mótið er jafnframt stigakeppni milli félaga og hljóta 6 fyrstu menn í grein stig og félagið er sigrar bikar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.