Morgunblaðið - 17.09.1963, Side 1

Morgunblaðið - 17.09.1963, Side 1
24 síður IViáttlaus mötmæli kommúnista Lyndon B. Johnson, varaforseti Banciaríkjanna, í mannjjröngin n'< á leið frá Háskólabíói að Hótel Sögn eftir fundinn í gær. Til hægri sést á Jónas Árnason, rithöfund, þegar hann afhendir plagg kommúnista. Til vinstri er Erlingur Pálsson, yfirlögreglu- þjónn. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. LYNDON B. JOHNSON, kona hans og dóttir, unnu hugi þeirra íslendinga, sem þau kynntust í stuttri heim- sókn til íslands í gær. Alls staðar þar sem varaforsetinn kom, gerði hann sér far um að hitta fólk að máli, tala við það, og kynnast því. Af frásögnum fréttamanna Morgunblaðsins, sem birtast 1 blaðinu í dag, og þeim myndum sem fylgja, má víða sjá, hveru vel fór á með vara forseta Bandaríkjanna og ís- lenzkum almenningi. Er ó- hætt að fullyrða, að íslend- ingar hafa sjaldan fagnað er lendum gesti jafn innilega og heils hugar og í gær. Hafði fólk orð á því hversu auð- velt Lyndon B. Johnson átti með að komast í gott sam- band við fólkið, sem hann hitti á förnum vegi. Varaforseta Bandaríkjanna var ekki sízt vel fagnað í Há skólabíói, og á leiðinni þaðan að Hótel Sögu. Kommúnist ar höfðu að vísu reynt að efna til mótmæla, en sú til- raun fór út um þúfur. Um 200 manna lið kommúnista stóð við Sögu með vígorða- spjöld og áletranir, en a.m.k. iíu sinnum fjölmennari hóp ur fagnaði forsetanum, m.a. með skiltum, sem á voru letr uð: Velkominn Lyndon John son o. s. frv. Varaforseti Bandaríkjanna gekk inn í hóp kommúnista eins og ekkert væri, enda þótt nokkrir þeirra steyttu hnefa og sýndu sinn innra mann. Heldur þótti frétta- mönnum vandnræðalegir til- burðir fulltrúa kommúnista, þegar þeir afhentu varafor- setanum mótmælaorðsend- inguna, sem þeir kölluðu svo. Varaforsetinp tók við skjal- inu, brosti og hélt áfram leið ar sinnar eins og ekkert væri. Síðan ávarpaði hann mann- fjöldann og lagði áherzlu á mikilvægi íslands og þá mann gildishugsjón, sem hér hefði ríkt. Hann undirstrikaði vin áttu Bandaríkjamanna og ís- lendinga og sagði m.a., að framlag íslands hefði verið mikið, og það væri trúa sín að íslendingar mundu enn bæta drjúgum við þann skerf, sem ,þeir hefðu lagt fram til þeirrar þróunar, sem átt hefur sér stað í heiminu- um. Var forsetanmn fagnað ákaft, meðan hann hélt þessa stuttu ræðu, og af hömlu- lausari hrifningu en við eig um að venjast. Fréttamenn Morgunblaðs- ins fylgdu eftir Lyndon B. Johnson, konu hans og dótt ur í gær og birtast frásagn- ir þeirra og myndir í blað- inu í dag. Hér á eftir er lýs- ing á því sem gerðist í Há- skólabíói og við Hótel Sögu. —★— Þegar varaforseti Bandaríkj- anna, Lyndon B. Johnson, kom frá Háskóla Islands frá gjafa- afhendingunni, til Háskólabíós kl. rúmlega tíu mínútur yfir kl. 17, var kvikmyndahúsið troð- fullt. HVert sseti var setið, og auk þess stóðu menn alls staðar í bíósalnum og anddyri hans. Húsfyllir Þegar fréttamaður Morgun- blaðsihs kom í húsið, var mann- fjöldinn slíkur í stigum og göng- um, að hann komst naumast til sætis síns. Sagði Friðfinnur Ól- afsson, forstjóri Háskólabíós, að vart hefðu færri en 1.500 manns verið í húsinu. .Auk þess voru mörg hundruð manns utan húss- ins, sem hlýddu á ræðu vara- forsetans. Þar af voru um 200 manns, sem stóðu milli Háskóla- bíóss og Hótel Sögu undir borð- um, sem á var letrað t. d. „Hlut- leysi íslands“ „Herinn burt“, „No submarines (= enga kaf- báta). Einnig stóð einn maður undir merki þeirra, sem segjast vera á móti kjarnorkusprengjum. Fundurinn hófst með því, að rektor íslands, Ármann Snæv- arr, prófessor, kynnti varaforset- ann með nokkrum orðum, rakti feril hans og drap á forn Og ný tengsl Ameríku og íslands. Áður hafði Lúðrasveit Reykjavíkur leikið ýmis lög og að lökum, þjóðsöngva beggja ríkjanna, ís- lands og Bandaríkjanna. Lyndon B. Johnson gekk því næst úr sæti sínu og í ræðustól. Var honum fagnað með mjög innilegu og löngu lófataki, sem hann varð að stöðva að lokum. Dynjandi lófaklapp Að ræðunni lokinni, sem birt- ist á bls. 13 í Mbl. í dag, var varaforsetanum fagnað á ný. Meðan hann gekk til sætis dundi Framh. á bls. 17 Kommúnistar húma undir vígorðaborðum sínum milli Há- skólabíós og Hótels Sögu. Meðal þeirra má sjá Þorvald Þórarinsson, hrl. og Þórarin Guðuasou, lækni (með der- húfu), ásamt konum þeirra Skip í nauðum statt suður af íslandi ; MBL. barst í nótt einka- skeyti frá London þar sem sagt var að hið stóra far- þegaskip „Empress of Britain“ væri á leiðinni til aðstoðar rússnesku skipi, sem væri í sjávarháska 700 mílur vestur af Clyde á Skotlandi. Fregnir af at- burðum þessum eru mjög óljósar þar sem brezkar loftskeytastöðvar hafa ekki getað haft samband við skipin vegna fjarlægðar. Samkvæmt þeim upplýs- ingum, sem borizt hafa, ættu skipin að vera í ca. 400 mílna fjarlægð í SSV af Reykjanesi. Mbl. sneri sér til ýmissa aðila í nótt, þar á meðal Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, en enginn hafði heyrt getið um mál þetta. Empress of Britain, sem á leið var til bjargar í nótt, er 25.516 smálesta far- þegaskip, eign Canadian Pacific Steamships Ltd. — Skipið er smíðað árið 1956.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.