Morgunblaðið - 04.12.1963, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.12.1963, Qupperneq 3
MiðviKudagui 4 des. 1963 MORGUNBLAÐIÐ Talið frá vinstri: Þórir Konráðsson, yfirvélstjóri, Brinkham, skipateiknari, og Steinar Kristjánsson, skipstjóri. Selá - nýjasta skip flotans í FYRRADAG kom til lands- ins nýtt skip, eign Hafskips hf. 'Selá heitir það, og er byggt í Vestur-Þýzkalandi hjá skipa- smíðastöð D. W. Kremersohn í Elmshorn, en sá staður er nœrri Hamborg. Öll skip félagsins hafa verið smíðuð þarna, Laxá, Rangá og nú Selá. Skipið er einnig teikngð af sama manni og hin, Brinkham verkfræðingi, og kom hann með skipinu til landsins nú í boði skipafélagsins. Ms. Selá er búið öllum ný- tízku tækjum, m.a. er það bú- ið sjónvarpsloftneti til augna- yndis fyrir skipshöfnina. Það er 1745 tonn að stærð og 100 tonnum stærra en Rangá. Það hefur 1050 hest- afla Deutz-dieselvél, og reynd ist gapgharði skipsins 12 míl- ur í reynsluferð. 12 manna áhöfn er á skip- inu og er það fátítt á jafnstóru skipi. Skipstjóri er Steinar Krist- jánsson, sem sigldi skipinu hingað og stjórnað hefur öll- um skipum félagsins, nokkurs konar flaggskipotj. félagsins. Yfirvélstjóri er Þórir Kon- ráðsson, en 1. stýrim.aður er Jón Axelsson. Bryti er Árni Björnsson. Það er nýmæli, að skipið er í föstum áætlunarferðum, sem auglýstar eru fyrirfram, Ham- borg, Rotterdam, Hull á 14 daga fresti til Reykjavíkur og hafna úti á landi. Skipið er eingöngu vöru- flutningaskip. Framkvæmdastjóri Hafskips hf. er Sigurður Njálsson, en formaður félagsstjórnar er Gísli Gíslason. Selá var 4 sólarhringa frá Hull. Blaðamaður Morgunblaðs- ins átti stutt samtal við Stein- ar skipstjóra um borð. Hann kvað skipið vera líkt hinum skipum félagsins, Laxá og Rangá, og hefði það reynzt gott sjóskip. Mikill veltingur var á leiðinni, en jafnvel ekki hinn ágæti teiknari, Brink- ham, hefði orðið sjóveikur. í horninu hjá skipstjóra var bókaskápur. Þar mátti líta mikið lesna Biblíu ásamt ýms- um orðabókum. Vafalaust eru þetta nauðsynjahlutir fyrir skipstjóra, sem víða siglir, og er skemmst að minnast viðilr- eignar þeirra Eiríks Kristó- ferssonar og Barrie Ándersons skipherra í þorskastríðinu, sem vógu hvor að öðrum með Biblíuna að vopni. Aðbúnaður skipverja er með ágætum eg skipið í alla staði hið glæsilegasta. Um nafngiftina sagði Sigurð ur Njálsson framkvæmda- stjóri, að valin væru þægileg og stutt heiti. Selá væri að vísu til nálægt Siglufirði, sem væri heimahöfn skipsins, en það gæti alveg eins átt við aðrar ár, meðal annars væri til Selá á Ströndum. Sigurður Njálsson, framkvæmdastjóri, og kona hans. Tímaritið Skák Flugfélag Islands kaupir aðra Cloudmaster-flugvél MILLILANDAFUGFLOTA Flug- félags Islands bætist á næstunni nýr farkostur, Cloudmasterflug- vél, sem félagið hefur fest kaup á. Hin nýja flugvél er af sömu gerð og „Skýfaxi“, sem Flugfé- lagið keypti fyrir tveim árum. Báðar eru flugvélarnar keyptar af norræna flugfélaginu S.A.S. Endanleg ákvörðun um kaupin á hinni nýju Cloudmasterflugvél, var tekin eftir víðtækar athugan- ir á flugvélategundum, sem til greina komu, en sem kunnugt er, takmarkast slíkt við flugvélar, sem nota flugbrautir í styttra lagi vegna takmarkaðra brauta- lengda Reykjavíkurflugvallar. ^ Það voru því aðeins tvær teg- undir, Viscount-skrúfuþotur og Cloudmasterflugvélar, sem um var að velja, en vegna mjög auk- inna flutninga í millilandaflugi Flugfélags íslands hin síðari ár varð að ráði að velja Cloudmast- erflugvél, vegna þess hve miklu fleiri farþega hún getur flutt í hverri ferð. Árið 1956, er Flugfélag fslands ákvað kaupin á Viscountskrúfu- þotunum, var farþegafjöldinn milli landa 15.170, en árið 1962 voru farþegar í millilandaflugi félagsins 35.892. Cloudmasterflugvélin sem Flug félag íslands hefur nú keypt verður afhent félaginu síðar í þessum mánuði og kemur væntan lega til landsins fyrir jól. Samningar um flugvélakaupin fóru fram í Kaupmannahöfn en þangað fóru þeir Jón N. Pálsson, yfirmaður skoðunardeildar, Ás- geir Samúelsson, flugvirki, Jó- hann Gislason, deildarstjóri flug- deildar og Birgir Þórhallsson, deildarstjóri millilandaflugs, sem undirritaði samningana fyrir Flugfélag íslands. London, 2. des. (AP): Margrét prinsessa, systir Bretadrottningar á von á öðru bami sínu i april. Prinsessan, sem er gift Snowdon lávarði, er við beztu heilsu. BLAÐINU hefur borizt október- heftið af tímaritinu „Skák“. — Flytur það margvíslegan fróðleik um skák og skákmálefni. Meðal efnis þess að þessu sinni má nefna: Haustmót Taflfélags Reykjavikur 1963, eftir Þóri Ól- afsson, hagfræðing. Grein er eft- ir Botvinnik um rússneska stór- meistarann Tchigorin. Hvenær verða biðskákir lagðar niður? nefnist önnur grein eftir Þóri Ól- afsson. Friðrik Ólafsson skrifar um „Skák mánaðarins". Grein er eftir rússneska stórmeistarann A. Kotov, sem nefnist: Hvernig á ég að tefla betur? Fjöldi skáka er í blaðinu og margt fleira efni. Ritstjóri „Skákar" er Jóhann Þórir Jónsson, formaður Taflfé- lags Reykjavíkur, en í ritnefnd Friðrik Ólafsson, Ingi R. Jóhanns son og Gunnar Gunnarsson. STAKSTEINAR • Þáttaskll VestmTand, blað Sjálfstæðis- manna á Vestfjörðum, birti ný- lega fdrystugrein undir þessari fyrirsögn. Er þar komizt að orði m.a. á þessa leið; ,Jlreytingarnar á ríkisstjóm - íslands, sem urðu í síðustu viku, hljóta að teljast mikil þáttaskil í íslenzkum stjórnmálum. Nú hverfur frá forystu einhver glæsilegasti og svipmesti stjóm málamáður sem ísland hefur al- ið. Er mikill sjónarsviftir að Ólafi Thors um forystu lands- mála, en hann mun sitja áfram á þingi og er ekki að efa að Sjálf stæðisflokkurinn mun njóta á- fram leiðsögu hans og hollráða, sem byggð eru á mikilli reynslu hans í fjögurra áratuga baráttu íslenzkra stjómmála. Á þeim langa ferli hefur oft staðið styrr um Ólaf Thors en störf hans í þágu lands og þjóðar hafa verið farsæl og jafnvel hörðustu andstæðingar hans hafa kunnað að meta stórbrotinn stjórnmálaforingja og mikinn per sónuleika“. V Tjaldað til einnar nætur í þetta sama tölublað Vestur- lands rita'r Sigurður Bjarnason, alþingismaður, grein undir fyrir sögninni: Stöðvun verðbólgunn- ar eða gengisfelling? Kemst hann m.a. að orði á þessa leið undir lok greinar sinn " ar: „Á næstu vikum verður skorið úr um það, hvort mögulegt reyn ist að tryggja rekstursgrond- völl íslenzkra bjargræðisvega með samræmdum aðgerðum i efnahagsmálum, áin gengiifell- ingar, en með raunhæfum kjara bótum til hinna lægst launuðu, eða hvort fara á enn troðnar slóðir, mæta nýju kapphlaupi kaupgjalds og verðlags, nýrri verðbólguöldu og framkvæma síðan gengislækkun, sem enginn mannlegur máttur gæti þá komið í veg fyrir. Mundi þá enn tjald- að til einnar nætur. Eg er ekki í neinum vafa um, hvorn kostinn Vestfirðingar kjósa í þessum efnum. Þeir kjósa jafn vægis- og framleiðsJusteínuna, sem tryggir uppbyggingu og framfarir, batnandi lífskjör í hyggðarlögum þeirra og um gjör valt landið“. Fólkið vill samkomulag Alþýðublaðið birtir í gær for ystugrein um samninga þá sem yfir standa og tilraunir til þess að koma á og tryggja vinnufrið. Kemst það m.a. að orði á þessa leið: „Viðræður eiga sér stað þessa dagana milli verkalýðshreyfing- arinnar og atvinnurekenda og má segja, að ríkisstjórnin sé þriðji aðili málsins. Fyrir hennar at- beina standa nú fleiri aðilar að samningum en nokkru sinni fyrr °8 þjóðin bíður full eftirvænting ar eftir 10. desember. Engin spurning heyrist oftar en sú, hvað gerast muni þann dag. Þarf ekki að spyrja um afstöðu alls almennings, því nálega hver maður óskar eftir samkomulagi, svo komizt verði hjá áframhald- andi átökum. Það er góður siður að skrifa ekki mikið eða tala opinberlega um samninga, meðan þeir standa yfir. Liggur í eðli málsins, að samningamenn ræðast við í trún aði og leggja síðan niJurstöðu fyrir umbjóðcndur sína, þegar tími er kominn til. Sum blöð hafa að visu tilhneigingu til að lýsa samningunum eins og út- varpsþulur knattspyrauleik, en Alþýðublaðið VÍU hafa annan hátt á“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.