Morgunblaðið - 04.12.1963, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.12.1963, Blaðsíða 25
Miðvikudagur 4. des. Í963 MORGU N BLAÐIÐ 25 Helgi Jóhannesson loftsk.m. — Minning í DAG er gerð útför Helga Jó- hannessonar, loftskeytamanns. Hann andaðist hinn 26. f. m. eft- ir erfiða sjúkdómslegu undan- farna mánuði. Helgi vax fæddur 10. maí árið 1900 að Kvennabrekku í Do'.um. Standa að honum sterkir stofnar og eru meðal ættmenna hans margt kunnra og merkra manna. Foreldrar Helga voru séra Jó- hannes L. L. Jóhannsson, prestur að Kvennabrekku, og seinni kona hans, Guðríður Helgadóttir. Helgi ólst upp hjá foreldrum sín- um í stórum systkina hópi; var hann elztur barna séra Jóhann- esar af seinna hjónabandi. Oft minntist hann með hlýju sins stóra æskuheimilis og kynnum af mönnum vestur þar. Naut hann þess jafnan síðar á ævinni að heimsækja æskustöðvarnar. Hann vandist þegar allri al- gengri sveitavinnu, enda snemmá liðtækur og laginn verkmaður. Rúmlega tvítugur leggur Helgi út á nýjar brautir, er hann hef- ur nám í loftskeytafræði hér í Reykjavík. Lauk hann því námi með hinum bezta vitnisburði, enda greindur vel og gjörhugull. Loftskeytafræðin var á'þeim ár- um ung og ný atvinnugrein á landi hér. Margs konar endur- bætur og tæknilegar nýjungar hafa að sjálfsögðu orðið í þessari grein á undanförnum árum og lét Helgi þar ekkert fram hjá sér fara og fylgdist ætíð af áhuga með framförum og tækni í starfs- grein sinni; var einnig á tímabili kennari við Loftskeytaskólann. Um árabil starfaði Helgi ser* loftskeytamaður á ýmsum skip- um, mest á togurum og lengst í skipsrúmi hjá hinum þekktu afla mönnum og sjósóknurum, Tryggva Ófeigssyni og Bjarna Ingimarssyni. Taldi Helgi sér það mikið lán að njóta skipstjórnar þessara ágætismanna, en víst er það einnig að honum gátu þeir fullkomlega treyst, er vanda bar að höndum. Á miðjum síðasta stríðstíma hætti Helgi sjómennsku og rak um skeið í félagi við aðra tré- smíðaverkstæði, en réðist fljót- lega til Landssímans sem gæzlu- maður við Stuttbylgjustöðina á Rjúpnahæð og starfaði þar síð- an meðan heilsa entist. í starfi hans þar gætti ætíð hinna góðu hæfileika hans og árvekni. Árið 1935 gekk Helgi að eiga Dagmar Árnadóttur og var sam- búð þeirra hin farsælasta. Voru þau samhent um að byggja upp fagurt og aðlaðandi heimili, þar sem veitt var af rausn. Reyndist Dagmar manni sínum frábær lífs- förunautur og þá bezt, er mest á reyndi. Þau eignuðust einn son barna, Jóhannes, lögfræðing og háskólaritara, kvæntan Önnu Björgvinsdóttur. Var það Helga mikið ánægjuefni að fylgjast með námi og þroska síns efni- lega sonar og vita honum farn- *st vel. Helgi var hið mesta prúðmenni og átti mikið jafnvægi í skap- gerð sinni. Hann var hávaxinn og hið mesta karlmenni í sjón og raun. í eðli sínu var hann frek- ar hlédrægur og dulur, en fastur fyrir og ákveðinn, ef hann vildi það við hafa. Þegar Helgi nú er kvaddur er margs að minnast, þótt ekki séu raktar hér persónulegar minning ar frá heimilum okkar eða ferða- lögum. Vinfesta hans og tryggð verður okkur, sem hann þekkt- um, ætíð minnisstæð. Venzlafólk og vinir þakka hon- nm mikilsverða hjálpsemi og drengskap. Mikill harmur er kveðinn við fráfall þessa góða manns, er öll sín störf vann af sérstökum dugnaði og skyldu- rækni. Fylgja honum þakkir og hlýjar kveðjur okkar samferða- manna hans. Agnar Ludvigsson. í DAG, er ég kveð vin minn, Helga Jóhannesson, loftskeyta- mann, verður huganum ósjálfrátt reikað til okkar fyrstu kynna. Það var fyrir rúmum 15 árum að kynni okkar hófust. Ég var nýkominn úr skóla, reynslu- laus og fákunnandi um flest það er að starfi okkar laut. Helgi hins vegar var reyndur og mjög vel fær í sínu starfi eftir rúmlega tveggja tuga starf, bæði á sjó og í landi. Það kom í hlut Helga að kenna mér og leiðbeina fyrstu vikurnar. í því starfi komu skýrt fram hans mikli persónuleiki og greind, ásamt ríkum skilningi á aðstæðum. Það var ekki verið að að miklast yfir kunnáttunni. Allt sem skipti máli, var að reyna að kenna þeim unga manni, sem honum var falið að annast, sem bezt það sem hann kunni, og vissi réttast, þannig var Helgi Jó- hannesson í hverju því starfi, sem hann tók að sér. Ætíð full- ur starfsorku og vilja til að gera sitt bezta. Með okkur Helga tókst fljótlega vinátta sem jókst eftir því sem árin liðu. Enda þótt 30 ára aldursmunur væri á milli okkar, man ég aldrei eftir að þess gætti í samræðum okkar. Þegar tveir menn vinna langtimum saman við vinnu, þar sem oft gefst tækifæri til umræðna, þá gefur augaleið að oft var rætt um margvísleg viðfangsefni. Oft vorum við sammála, en oft vor- um við líka ósammála, og héld- um ákveðið fram ólíkum skoð- unum. Aldrei hafði slíkt nein á- hrif á vináttu okkar. Ef við gerð- umst hvassyrtirr þá var sársauki okkar ekki út af orðum hvors annars, heldur yfir því ef orð hvors um sig hefði sært hinn. Þannig var vinátta okkar og skilningur. Helgi var mikill láns- maður í lífi sínu. Hann var ætíð mjög heilsuhraustur, og átti gott heimili, sem hann var hreykinn yfir. Konu sinni, Dagmar Árna- dóttur, unni hann mjög og dáði. Þá unni hann mjög syni sínum, Jóhannesi, sem ætíð uppfyllti þær óskir og vonir er til hans voru gerðar. Ég vil fyrir hönd okkar samstarfsmanna Helga færa þeim innilegar samúðar- kveðjur. Ingólfur Jónsson. Útiverustaður fyrir æskulýð Reykjavíkur Æskulýðsráð leitar hans í nágrenni bæjarins ÆSKTJLÝÐSRÁÐ er nú að byrja að vinna að því í samvinnu við borgarverltfræðing og skipu- lagsstjóra Reykjavíkur að koma upp æskulýðsbúðum í nágrenni Reykjavíkur, þangað sem æsku- fólk gæti skroppið og notið úti- veru við leiki og íþróttir. Mbl. spurðist fyrir um þetta hjá sr. Braga Friðrikssyni. Hann sagði að á Norðurlöndum hefði Leikföng í miklu úrvali komin. Fjarstýrðir bílar Fjarstýrðir kranar Rafmagnsbílar Rafmagnsjárnbrautir Rugguhestar Bangsar Dúkkur margar gerðir Verðið hagkvæmt. Jakob Jónasson Minning EINKENNILEGT er mannanna líf, einn fer frá okkur gamall, annar er tekinn frá okkur ungur. Það var mér því þungbær raun, er ég frétti að þú hefðir verið tek inn frá okkur, Jakob minn. Þú, með þína skapfestu, ró- lyndi og dugnað. Öllum þessum kostum varst þú gæddur og ótal- mörgum fleiri, og kom það bezt fram er þú háðir, æðrulaus, þína vonlausu baráttu við óþekktan sjúkdóm. Jakob Jónasson var fæddur í Reykjavík 24. 11. 1936, sonur hjónanna Guðbjargar Guðjóns- verið komið upp fyrir æsku fólk svokölluðum „Friluft“-stöð um fyrir æskufólk, þar sem að- stæður væru til að fara í fjall- göngur, sigla, stunda íþróttir o.s.frv. Og þannig staður teldi æskulýðsráð að gæti komið að góðum notum hér í nágrenni Reykjavíkur. Þar yrði lítið um húsakost, nema ein aðalbygging. Þetta yrðu ekki eiginlegar sum- arbúðir, heldur útiverustaður sem hægt væri að skreppa til á kvöldin og um heigar. Æskulýðsráð bar hugmyndina upp við borgarráð, sem hefur falið því að hefja undirbúning í samráði við borgarverkfræð- ing og skipulagsstjóra. Og nú væri sem sagt byrjað að svipast um eftir stað sem hentaði fyrir þessa starfsemi í um 50 km radi- us frá Reykjavík. að auglýsing í stærsta og útbreiddasta blaðinu borgar sig bezt. Söknum vér í sorgar dölum sorgin lyftir oss til hæða. Hug vorn ber til hærri landa hrannir þar sem engar brotna þig ber heim til þráðra stranda þair sem eilíf gleði drottnar. Farðu sæll til föður húsa fagna þú í dýrðar ljóma. Engla fjöld þér yndi vekur, ert nú laus við heimsins dróma. Kveðja börn og konan unga, kveðja systkin, faðir, móðir. Berum við sonur, söknuð þungann. Systkin, börn og konan góða. dóttur og Jónasar Jakobssonar, myndhöggvara, og var hann elzt- ur 7 barna þeirra. Snemma varð hann hagleiks- maður og lék honum flest í hendi, fékk hann áhuga á bifvélavirkj- un og hóf nám í þeirri iðn, en varð að hætta námi sökum sjúk- leika. Starfaði síðan um tíma í Gefjun-Iðunni, Akureyri, þar sem hann kynntist eftirlifandi konu sinni, Jonnu Holmer. Flutt- ust þau hjónin síðan til Reykja- víkur, hvar Jakob starfaði til dauðadags í Nýju skóverksmiðj- unni. Þau hjónin eignuðust tvö börn, Jónas, 5 ára, og Hildi Elvu, eins árs, bæði hin mannvænleg- ustu börn. Þung hafa verið spor eiginkon- unnar ungu er hún mátti ganga — dögum saman — á spítalann til hans er hún unni svo mjög, en þá sýndi hún hversu skapfesta, sjálfstjórn og óendanleg ást fá á- orkað á raunarinnar stund. Jonna mín, megi algóður Guð styrkja þig og blessuð börnin þín, tengdaforeldra og systkini hins látna í ykkar miklu sorg. í. B. E.s. Ég vil að endingu bera fram sérstakar þakkir f.h. venzla fólks til Árna Björnssonar læknis, Svo og annarra lækna og hjúkr unarfólks Landsspítalans, sem stunduðu hinn látna af sérstakri alúð unz yfir lauk. Hinzta kveðja til okkar elskaða Jakobs Jónassonar. Frá eiginkonu, börnum, foreldrum og systkinum. Hallast nú að hinzta beði hann, sem áður sporin hvatti. Lék þá allt í hagri hendi, hug vorn allra jafnt hann gladdi. Nú er hann í dýrð hjá Drottni, dvelur þar hjá engla skara, Ijúft hann hafði lífið fundið lausnin var að mega fara. Hann var bundinn þungum þrautum, þegar dró að hinztu stundu, en sem fyrri alltaf var hann öruggur í hug og lundu. Hann sem varla kvarta kunni kjarkurinn bar hann yfir þrautir Hann er farinn hinzta sinni hljóður gengur lífsins brautir. Nú er hann í himinsölum hnlninn xrotfnq rirntíinc; ATLAS KÆLISKÁPAR, 3 stærðir Crystal Kiny Hann er konunglegur! glæsilegur útlits hagkvæmasta innréttingin stórt hraðfrystihólf með „þriggja þrepa“ froststill- ingu it 5 heilar hillur og græn- metisskúffa A: í hurðinni er eggjahilla, stórt hólf fyrir smjör og ost og 3 flöskuhillur, sem m.a rúma háar pottflöskur ★ segullæsing ic sjálfvirk þíðing it færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun A innbyggingarmöguleikar ATLAS FRYSTIKISTUR, 2 stærðir Kæliskápar leysa geymsluþörf heimilisins frá degi til dags, en frystikista opnar nýja möguleika. Þér getið aflað matvælanna, þegar verðið er lægst og gæðin bezt, og ATLAS frystikistan sér um að halda þeim óskertura mán- uðum saman. Þannig sparið þér fé, tima og fyrirhöfn og getið boðið heimilisfólkinu fjölbreytt góðmeti allt árið. ATLAS GÆÐI OG 5 ÁRA ÁBYRGB Lang hagstæðasta verðið! Sendum um allt Iand. O. KORNE HAMiEM Simi,f2606 • Suöurgöfu .10- Rcykjavik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.