Morgunblaðið - 04.12.1963, Side 5
MiðvTkudagur 4. des. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
5
11«
Jólabazar Guðspekifélagsins verður
15. des. n.k. Félagar og velunnarar eru
▼insamlega beðnir að koma framlög-
um sínum eigi síðar, en 14. des. til frú
Helgu Kaaber, Reynimel 41, Hann-
yrðarverzlunar Þuríðar Sigurjónsdótt-
ur, Aðalstræti 12 eða í Guðspeki-
íélagshúsið, Ingólfsstræti 21. Allt, sem
minnir á jólin er sérlega vel þegið.
Þj ónustureglan.
Biskupsskrifstofan biður þess getið
Bð gefnu tilefni, að í lögum um prest-
kosningar er svo fyrirmælt, að þriggja
daga kærufrestur skuli líða frá kjör-
dgi og þar til talning átkvæða fer
fram. Það er af þessum orsökum, sem
talning atkvæða í nýafstögnum prests-
kosningum í Reykjavík getur ekki
farið fram fyrr en á fimmtudag.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur —
Jólafundur verður haldinn að þessu
ainni 1 Sigtúni miðvikudaginn 4. des.
kl. 8 e.h. Fundarefni: 1. jólahugleið-
ing 2. Tískusýning barna 3. Hús-
mæðrakennari talar um jólaundir-
búninginn og sýnir fljótt til búna
•mámuni. Allar konur velkomnar
meðan húsrúm leyfir.
Frá Styrktarfélagi vangefinna —
Konur í Styrktarfélagi vangefinna
halda jólafund í dagheimilinu Lyngás
fimmtudagskvöld 5. des. kl. 8.30
Fundarefni: Félagsmál. Jólavaka.
Félagskonur, fjölmennið á fundinn.
Skotfélagar. Æfing í kvöld miðviku
dag. — Stjórnin
Heimilisblaðið Samtíðin desember-
blaðið er komið út, mjög fjölbreytt
•g skemmtilegt að vanda. Efni: Kenne
dy-iðnaðurinn í Bandaríkjunum eftir
Art Buchwald. Kvennaþættir eftir
Freyju. Gangstéttarsaga frá París.
Grein um kvennagullið Ómar Sharif,
hinn glæsilega egypzka kvikmynda-
leikara. Saga gleraugnanna, sem um
þessar mundir eru 100 ára gömul
vppfynding. Tónskáldið og borgar-
stjórafrúin (saga) eftir Petróníus.
Hver er maður? Þeir áttu ótrúlega
brðugt uppdráttar (frásögur um byrj-
unarörðugleika nokkurra heimsfræga
rithöfunda). Margt er í munninn látið
eftir Ingólf Davíðsson. Skákþáttur
eftir Guðmund Arnlaugsson. Bridge
eftir Árna M. Jónsson. Þá eru í blað-
inu skemmtigetraunir, fjöldi skop-
•agna o.m.fl.
Skrifstofa áfengisvarnarnefndar
Reykjavíkur er í Vonarstræti 8 (bak-
hús), opin frá kl. 5—7 e.h. nema
laugardaga, simi 19282.
Skrifstofa Áfengisvarnanefndar
Kvenna er 1 Vonarstræti 8 (bakhús)
©pin á þriðjudögum og föstudögum
kl. 3—5 e.h. sími, 19282.
K.F.U.R. Félagskonur munið bazar
lnn sem verður laugardaginn 7. des.
n.k. Umfram handavinnu og aðra baz-
•rmuni eru kökur vel þegnar.
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins:
Ckoðanabeiðnum veitt móttaka dga-
lega í síma 10260 kl. 2—4, nema laug-
•rdaga.
Skógræktarfélag Mosfellshrepps: —
Munið bazarinn að Hlégarði sunnu-
daginn 8. des. n.k. Margt góðra muna
til jólagjafa. Þeir, sem vildu gefa
muni skili þeim sem fyrst til bazar-
nefndar eða stjórnar.
lamkoma um kvöldið kl. 8,30. Kristi-
legt stúdentafélag sér um samkomuna
©g verður séra Magnús Guðmundsson
ræðumaður.
GAIMALT og Gon
Rýkur enn á Rauðalæk,
rýkur hjá henni Steinku spík,
reykjarsvælan rönun og stæk
rýkur heim í Sigluvík.
Jólagetraun barnanna
í DAG byrjurn við getraunina
börnin góð!
Jólasveinn Morgunblaðsins
er þegar lagður af stað með
jólagjafirnar. Hann er í eðli
sínu mikiLl íþróttamaður og
lagði leið sína suður á völl.
Og niú er spurningin, hver af
þessum þremiur mönnum átti
að fá þessa jólagjöf?
1. SLEGGJUKASTARINN,
2. KNATTSPYRNUMAÐUR-
INN,
3. STANGARSTÖKKVAR-
INN.
Skrifið s>varið niður á get-
raunaeeðilinn, hér fyrir neðan
og geymið hann þar til síðast.
Keunedy forseta Bandarikjanna var víða minnzt, og hérna
í Vesturveri minntist okkar ágæti Ringelberg hans í blómabúð-
inni Rósinni á þennan smekklega hátt.
Andlátsfregn
að eyrum mínum
óvænt barst,
svo sár og hljóö:
Hann er dáinn —■
horfinn sýnum,
hann, sem efst á tindi stóö;
— Ijúfmenniö
meö lífstrú bjarta,
lítilmagnans sTcjól og vörn;
góðmennið
meö göfugt hjarta,
er gleöja vildi jaröarbörn
Frelsishetjan frjálsa, glœsta,
frœkin glimdi störfin við —
átti sér þá hugsjón hæsta
heiminum aö trygýja frið.
Kœrleikans
meö brandi baröist,
besti vinur friöarþings.
Meö heiöarleikans
vopnum varöist,
vann sér hylli almennings.
Vakir sorg um veröld álla.
vonarljósiö hi'arf svo skjótt.
En friðarmerkið mun ei fallc.
meöan sigrar dagur nótt.
Nóv. ’6ð.
Jökull Pétursson.
Husqvama
eldavélasamstæða til sölu.
Uppl. í síma 50635 milli
7—8 á kvöldin.
Sníð kjóla
þræði saman og máta. Við-
talstími firá kl. 4—6 e.h.
Sigrún Á. Sigurðardóttir
Drápuihlíð 48, 2. hæð.
Til sölu Moskwitch ’56
Selst ódýrt. Uppl. í síma
50487 eftir kl. 7.
Rösk og ábyggileg stúlka
óskast.
Álfheimabúðin,
Alflheimum 4.
Frystivélaviðgerðir
Set upp frystikerfi og geri
við kæliskápa. — Simi
20031.
Bazar
Kvenfélags Alþýðuflokks-
ins er í Iðnó uppi í dag og
hefst kl. 1.30.
Húseigendur athugið
Iðnaðarmaður óskar eftir
herbergi nú þegar eða sem
fyrst. Uppl. í síma 22728
eftir kl. 7 e.h.
Rauðamöl
til sölu. Pantanir í síma
23276.
Stúlka óskast
til pökkunar á brauðum í
bakaríi. UppL í síma 33435.
Til sölu
vel með farið sófasebt og
sem nýr svetfnsófi. Taeki-
færisverð. UppL í síma
16841.
Ráðskona
óskast á góðan stað í bæn-
um. Tilboðum skilað fyriir
7/12 á afgreiðslu MlbL,
merkt: „Ráðskona — 3329“.
Ungur, dugleguí'
og reglusamur piltur óskar
eftir að komast í að læira
húsasmíði strax. Tillb. send
ist afgr. Mbl. f. föstudags-
kvöld, merkt: „Húsasmíði
3344“.
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast til skrifstofu og gjaldkerastarfa við
Eðlisfræðistofnun Háskólans. Ensku og dönsku-
kunnátta nauðsynleg. Umsókn með upplýsingum
um fyrri störf og menntun skal senda Eðlisfræði-
stofnun Háskólans fyrir 15. þ.m.
Kynning
Vel efnaður karlmaður fertugur sem á nýtízku
íbúð óskar eftir að kynnast myndarlegri og góðri
stúlku á aldrinum þrjátíu til þrjátíu og sjö ára
með hjónaband fyrir augum. Óska eftir smávegis
persónulegum upplýsingum. — Algerðri þakmælsku
heitið. Tilboð sendist á afgreiðslu blaðsins fyrir
15. desember merkt: „Reglusemi — 3337“.
Eikarbáfur
12 tonna nýyfirfarinn eikar-bátur til sölu. Mjög hag
stæðir greiðsluskilmálar.
SKIP og FASTEIGNIR
Austurstræti 12 II. hæð
Símar 21735 og 51488.
Vélstjóri
Ungur vélstjóri sem verið hefur í siglingum undan-
farin ár óskar eftir atvinnu í landi Margt kemur
til greina. Tilboð sendist Mbl. fyrir 6. þ.m. merkt:
„Vélstjóri — 3333“.
Til leigu
er nýleg glæsileg 5 herbergja íbúð í Vogahverfi.
Stærð 150 ferm. Sér inngangur, sér hiti. Fyrirfram-
greiðsla. Tilboð, er greini fjölskyldustærð og fyrir-
framgreiðslu, sendist blaðinu, merkt: „Sér inn-
gangur — 3286“.