Morgunblaðið - 04.12.1963, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.12.1963, Blaðsíða 18
18 Mi.ðvikudagur 4. dcs. 1963 MORGU NBLAÐIÐ Á öðrum stað segir svo, þar sem lýst er fyrirkomulagi á bað- hótelinu eins cig höfundur hugsar sér það: „í anda sá ég hið glæsilega flugvallarhótel Reykjavíkur rísa upp í suðvesturhorni skemimti- garðsins. Veglegasta hótel lýð- veldisins. Úr stáli og gleri, í djörf um bogadregnum línum. Gesta- ■herbergi í norðurálmunni. Veit- inga- og samkomusalir í turn- byggingu í suðvesturhorninu. Gluggar frá gólfi og upp í loft. Útsýn yfir tjörnina, flugvöllinn, Skerjafjörð og Bessastaði til Reykjanesfjalla í suðri. Húsið klætt í grænum kopar og ryðfríu stáli. Skrautlega iyst utan sem innan, með neón- og flúórecent ljósuim. Gistiherbergin með öllum þeim þægindum, sem fyrsta flakks hótel í Englandi og Bandaríkjun- um bjóða upp á. Með póst- og símaafgreiðslu, rakarastofu, skó- fægingu, blaða- og bókasölu. Með kaffistofu, sem er opnuð kl. 7 að miorgninum, m e ð bjórstofu, skrautleigum bar, setustofum, borðsölum, danssal og kannske pálmalundi. Með anddyri út að Bjarkar- götu, er næði að framanverðu upp í gegnum, a.m.k. tvær hæð- ir, og korrídor gegnum húsið úí í skemamtigarðinn. Með fagurlega upplýstum fiskabúrum, felldum inn í anddyrisveggina, gestunum til afþreyingar og börnum til garnans. Með íslenzbum listaverkum á víð og dreif. Málverkum, út- skurði, silfursmíði og mynd- höggvaralist undir björtu ljósi. Sum þessara verka til sölu, ef svo sýndist. Líkt og í hinu fræga Biltmore hóteli í Los Angeles. íslenzk menning á þennan hátt kynnt og íslenzkir listmunir seldir út um heim allan. Með prúðu starfsfólki og góðum kokk um. í kjallaranum hressandi gufu- og loftböð, sjóböð og radioaktiv leðjuböð. Paradís hinna gigtveiku. En aUk þess sérstök fatageymsla og búnirngs- herbergi fyrir svo sem 2000 til 3000 manns. f>ví héðan lægi breiður, sléttur gangstígur, þak- inn hvítum skeljasandi, niður að stærsta upphitaða útibaðstað ver- aldarinnar. Botninn úr innri tjörninni skafinn upp, allt niður í malarlagið, og hann hreinsað- ur, eins og bæjarráðhefir þegar ákvarðað. Allt mýrarvatn ræst burtu, eins og byrjað er á. Sam- bandinu lokað við fremri tjörn- ina, nema til afrennslis. Hvítur sandur í upphækkaðri brekku vestan- og norðanmegin. Raf- magnsgeislaofnar eins og sól- hlífar. Á háum, grönnum súlum, með réttum halla. Til að oma þeim, sem vilja njóta útiloftsins og ljóssins í ríkum mæli. Gos- brunnur úti í miðju vatninu, þar sem tær sjór, sem dælt er úr Skerjafirðinum, blandast heitu laugarvatni. Brunnurinn upplýst ur marglitum kastljósum á kvöld in. Sérstok vél, báruvaki, til að vekja báru á vatninu, er brotn- aði við ströndina. Mér varð hugs að til litla almennings-baðher- bergsins inni í Laugarnesi. með hörðum steinbrúnum og sleipum, fúnum gólfborðum. Sundlaug- anna, „baðkersins“, sem þúsund- uim Reykvíkinga þykir sarnt svo vænt um og geta varla án verið; En hversu margir myndu þá ekki sækja þennan stóra og glæsi laga baðstað í hjarta bæjarins? Jú, hér myndi æska Reykja- víkur eignast marga og holla á- nægjustund og hinar fögru Evu- dætur baka sig í sandinum lið- langt sumarið. En hingað myndiu líka koma gamlir gráskeggjar til að fá sér dýfu og að því loknu innvortis hressingu — og til að gjóta horn- auga! Hér væri gaman að reika um á hlýjum sumarkvöldum, setjast á bekk undir ilmandi birkirunn- um, horfa á ljósadýrðina speglast í vatninu og hlýða á dillandi hlj óðfærasláttinn frá flughótel- inu. Hér yrði Bellevue og Tivoli Reykjavíkur. Augasteinn txírgár- innar, bjartur og hýr í bragði. Ferðamaðurinn, sem um miðs- vctrarleytið kæmi úr aUstri eða vestri og tylti tánum snöggvast á þessa heimskautseyju — sá þyrfti ekki að kvarta. Hlýr vetrarsjótoaðsstaður í innri tjörn inni. Dynjandi skautasveli á fremri tjörninni. Flugnapappír fyrir heimisferðalanga. Auglýs- ingaspjöldin á ferðaskrifstofum og flughöfnum úti um víða ver- öld myndu hrópa himinhátt: „Heimsækið Reykjavík“. „Skoðið hina undraverðu hveraborg norð- urhvelsins" „Syndið undir norð- urljósunum í hlýju radioaktivu vatni“. Þannig yrðu augiýsing- arnar. En fyrst og fremst yrði hér paradísargarður bæjarbúa. Allt þetta flaug mér í hug, þar sem ég sat við útsýnisglugga flughótelsins. Það væri ekki ónýtt að sjá þessa draumsýn rætast. Og hvers vegna ætti hún ekki að rætast? Tjörnina á hvort sem er að hreinsa, hótelið að bygigja. Og sandurinn og heita vatnið eru ís- lenzk hráefni, sem eru fyrir hendi. En bera Reykvíkingar gæfu til að hrinda þessu í framkvæmd? — Því fær tíminn einn svarað.“ ★ Hér að framan hefur verið ilýst hugmynd minni að einstök- um og glæsilegum sjótoaðstað. Kostnaðaráætlunin er auðvit- að löngu úrelt, en hana má yfir- færa og færa til nútíma verð- lags, án mikils kostnaðar. Væri nú ekki hér verkefni verðugt æsku- og ílþróttamönn- um, og öðrurn framfaraöflum til viðfangs og lausnar? . Reykjavík 3. des. 19-63. Gísli Halldórsson. Self Jarnarnes Lögfaksúrskurður Samkvæmt kröfu sveitarstjóra Seltjarnarneshrepps úrskurðast hér með lögtak fyrir ógreiddum útsvör- um, aðstöðugjaldi', fasteignaskatti og vatnsskatti, álögðum 1963 og fyrr, auk dráttarvaxta og kostn- aðar. Lögtök verða framkvæmd fyrir gjöldum þessum að átta dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, verði eigi gerð skil fyrir þann tíma. Sýslumaður Gullbringu- og Kjósarsýslu. Björn Sveinbjörnsson, settur. VBOLET - SÓFASETT HNOTAN húsgagnaverzlun Þórsgötu 1 — Sími 20820. Sendisveinn óskast allan daginn. G. Helgason & IVSelsted hf. Hafnarstræti 19. Afvinnuhúsnœði til sölu Til sölu er íbúð á 1. hæð í húsi, sem stendur ca. 100 m. frá Aðalstræti. Stærð 112 ferm. Hentug fyrir heildsölu, tannlæknastofu, verkfræðistofu eða þess háttar. — Þeir, sem hefðu áhuga leggi inn nöfn sín í umsiagi merkt: „Atvinnuhúsnæði — 3335“ fyrir fimmtudagskvöld. Til solu góð 5 herbergja íbúð á 3. hæð við Rauðalæk. Sér hitaveita. MÁLFLUTNINGS OG FASTEIGNASTOFA Agnar Gústafsson, hrl., Björn Pétursson, fasteignaviðskipti. Austurstræti 14, símar 22870 og 21750. Utan skrifstofutíma 35455. Til sölu hentug bygging fyrir iðnrekstur. . Nánari uppl. gefur ÁGÚST FJELDSTED, HRL. Lækjargötu 2 — Sími 22144. N auBungaruppboð Eftir kröfu Guðmundar Ingva Sigurðssonar, hrl. og dr. Hafþórs Guðmundssonar,hdl., að undan- gengnu fjárnámi, og samkvæmt haldsrétti, verða bifreiðirnar R-9340 (Dodge ’59) og R-13837 (Chevrolet ’51) seldar á opinberu uppboði sem hald ið verður við skrifstofu mína, að Álfhólsvegi 32, í dag miðvikudag 4. des. 1963 kl. 15. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Samkeppní um hændaskóla á Hvanneyri Tilkynning um breytt heimilisfang trún- aðarmanns Dómnefndar. Heimilisfang hans er Hvassaleiti 155 sími 32436. Dómnefndin. íbúð — íbúð Útlendingur óskar eftir að taka á leigu fbúð með húsgögnum. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Há leiga greidd — 3339“. Nýtt! Léttasta dýna í heimi LISTADÚN-DÝNAN MJÖG ÓDÝR. Fallegt ver með rennilás. Auðvelt að þvo. Það er hollt að sofa á dúnmjúkri LISTA- DÚN-DÝNU — hlý án þess að mynda raka. LISTDUN-DÝNAN fæst hjá mörgum húsgagnaverzlunum um land allt. HALLDÓR JÓIMSSOIM HF. Hafnarstræti 18 símar 23995 og 12586.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.