Morgunblaðið - 04.12.1963, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ
r
Miðvikudagur 4. des. 1963
Ályktanir og tillögur
aðalfunds Bandalags kvenna
Talið frá vinstri: Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Siníóníuhljómsveitarinnar, Proinn-
sías O’Duinn, hljómsveitarstjóri, Árni Kristjánsson, tónlistarstj óri og Vilhjálmur Þ. Gíslason,
útvarpsstjóri.
Siðustu sinfóníutónleik-
arnir fyrir jól annað kvöld
Einleikari verður Jón Nordal — O’Duinn á
íörum til írlands
AÐALFUNDUR Bandalags
kvenna var haldinn í Reykja-
vík dagana 18. og 19. nóvem-
ber 1963. Á fundinum voru
samþykktar ályktanir og til-
lögur um margvísleg málefni,
og birtist hér á eftir úrdrátt-
ur úr þeim:
Barnagæzla
Fundurinn fagnar því, að borg
arstjórnin í Reykjavík hefur
samþykkt að starfrækja á þessum
vetri dagheimili fyrir börn, sem
komin eru yfir barnaheimilisald
urinn, og væntir þess, að ekkj
dragist lengi úr þessu, að fram-
kvæmdir hefjist.
Áfengismál
Fundurinn lýsir ánægju sinni
yfir frumvarpi því um breytingu
á áfengisiögunum nr. 58, sem nú
lig'gur fyrir Alþingi. Sérstaklega
telur fundurinn eftirfarandi at-
riði þýðingarmikil:
1) Að taka upp vegabréfs-
skyldu.
2) Að ökumönnum leigubif-
reiða sé bannað að taka ölvuð
ungmenni til flutnings í bifreið-
um sínum og leyfa þeim áfengis-
neyzlu þar.
3) Að banna unglingum að
bera á sér áfengi inn á veitinga-
staði.
4) Að ungmennum yngri en
18 ára er óheimil dvöl á vín-
veitingahúsi eftir kl. 8 á kvöld-
in.
5) Að gera skal upptækt það
áfengi, sem unglingar innan 21
árs hafa undir höndum.
6) Að þyngd eru sektarákvæði
við brotum á áfengislögum.
Fundurinn bendir þó á, að því
eðeins verði þessi lagabreyting
til bóta, að mjög strangt eftir-
lit verði með því að ákvæðum
hennar sé framfylgt.
Tryggingarmál
Fundurinn Iýsir ánægju sinni
yfir þeim miklu endurbótum á
lögunum um almannatrygging-
ar, sem samþykktar voru á Al-
þiingi á sl. vetri, einkum réttlát-
®r leiðréttingar gagnvart ein-
stæðum mæðrum. Jafnframt
bendir fundurinn á nauðsyn þess
eð hækka elli- og örorkubætur,
svo og barnalífeyri frá því sem
mú er, og greiðslur tryggingar-
stofnunarinnar hækki í fuliu
eamræmi við hækkað kaupgjald
í landinu á hverjum tíma. Fund-
urinn mótmælir því, að starf
heimavinnandi húsmæðra er í
tryggingarlögunum metið til
jafns við elli- og örorkubætur,
og telur eðiilegt að dagpeningar
húsmæðra séu jafnar því lág-
marki, sem launþegum er ætlað
öðrum en fyrirvinnu heimila.
Bamavernd
Fundurinn fer fram á, að ítar-
leg reglugerð um vinnuvemd
barna við lög nr. 29/1947, sem
nú er í endurskoðun, verði látin
fylgja hinum endurskoðuðu lög-
um.
Skólamál
Fundurinn gerði margar álykt
anir í sambandi við skólamál og
eru þessar helztar:
1) Gerðar verði ráðstafanir til
þess að unglingadeildin verði
starfræktar við alla barnaskóla
Reykjavíkur, svo að bömin getj
lokið skyldunámi sínu í einum
og sama skóla.
2) Bygging nýrra kennslueld-
húsa verði hraðað sem mest.
3) Brauðsamlokur verði seldar
í barna- og gagnfræðaskólum
borgarinnar.
4) Hert verði á aga í skólum,
og einkunnir gefnar fyrir reglu
semi og hegðun.
5) Skemmtanalíf aukið innan
skólannia og skóíaskemmtanir
ekki látnar standa lengur fram
eftir kvöldi en reglur um úti-
vist unglinga segja til um.
6) Tekið verði inn í fræðslu-
kerfi rikisins skólastofnun, sem
mennti félagsráðgjafa, starfs-
fólk dagheimila, vistheimila,
dagskóla, leikvalla og tómstunda
heimila. Starfi stofnunin í nán-
um tengslum við Kennaraskóla
íslands.
7) Heimavinna fari fram í skól
anum undir stjórn og eftirliti
kennara.
8) Samvinna skóla og heimila
verði aukin, og skólum gert að
senda í byrjun hvers skólaárs
heimilunum skólareglur, svo for
ráðamenn barnanna viti, hvaða
kröfur skólinn gerir til barnanna
og heimilanna.
9) Heilbrigðum unglingum sé
ekki veitt undanþága frá loka-
prófi skyldunáms.
10) Biskup íslands láti fara
fram athuganir á því, hvort ekki
sé nauðsynlegt að samræma bet
ur en nú er fermingaraldur
barna og skólaskylduna.
Heilbrigðismál
Fundurinn skorar á heilbrigð-
isyfirvöldin að hlutast til um að
sala á sígarettum í stykkjatali
verði bönnuð, þar sem mikil
hætta sé á því að börn læri að
reykja á þann hátt. Einnig skor-
ar fundurinn á Alþingi og ríkis-
stjórn að fullgera tafarlaust
Hjúknmarskóla íslands. Nú bíða
á annað hundrað stúlkna eftir
skólavist, og fyrirsjáanlegt er, að
hjúkrunarkvennaskortur verður
tilfinnanlegur áð-ur en langt um
líður, ef ekkert verður aðhafst í
málinu.
Þá beindi fundurinn því til for
eldra og skóla, að þeir tækjú
siðferðilegt uppeldi unglinganna
fastari tökum en verið hefur og
kennsla verði tekin upp í sið-
fræði og háttvísi í skólum lands-
ins.
Verðlags- og verzlunarmál
Að síðustu komu ýmsar álykt-
anir fram varðandl verðlags- og
verzlunarmál á fundínum, m.a.
um hreinlæti afgreiðslufólks a
meðferð matvæla í matvörubúð-
um, brauðbúðum og mjólkur-
biiðum. Skoraði fundurinn á
borgarlækni að herða á eftirliti
með framleiðslu og meðferð mat
væla, og beindi því til viðkom-
andi aðilja að sjá um að allar
vörur væru merktar, eftirlit yrði
haft með verðlagi, vöruþekking-
arnámskeiðum yrði komið á fót
fyrir verzlunarfólk. I>á vítti fund
urinn harðlega að fyrir gæti kom
ið að vönar stæðust ekki upp-
gefna vigt og tók undir marg-
undirteknar kröfur Neytenda-
samtakana um vörumerkingu
og að pökkun kartafla færi ekki
fram á vegum Grænmetisverzl
u-nar landbúnaðarins. Þá lagði
fundurinn til að matvöruverzl-
anir hefðu opið eitt kvöld í viku
í tilteknum borgarhlutum.
Fundurinn fagnaði samþykkt-
um borgarstjómar frá 28. marz
sl. um byggingu leiguhúsnæðis
og lagði til að framkvæmdir
hæfust án tafar, og lagði til að
ungt fólk, sem væri að hefja bú-
skap gengi fyrir íbúðunum. Skor
aði fundurinn á borgarstjórn að
láta fara fram athugun á því,
hvort ekki væri tímabært að
setja á fót stofnun, sem hefði
milligöngu um sölu og leigu hús-
næðis.
Þá skoraði fundurinn á stjórn
arvöld að aflétta að verulegu
leyti söluskatti og innflutnings-
gjöldum af brýnustu nauðsynja
vömm, og mótmælti afnámi um
hámarksálagningu verzlana á
ýmsum nauðsynjavörum.
Stjóm Bandalags kvenna
skipa: Aðaibjörg Sigurðardóttir,
formaður; Soffía Ingvarsdóttir,
varaformaður og ritari og Guð-
iaug Bergsdóttir, gjaldkeri.
Dakar, Senegal, 2. des.
(NTB):
Forseta- og þingkosningar
fóru fram í Senegal í gær
og er það i fyrsta skipti síðan
landið öðlaðist sjálfstæði 1960
Senghor foirseti og flokkur
hans hlutu hreinan meirihlut?
í báðum kosningunum.
SÍÐUSTtj tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar fyrir jól verða
í Háskólabíói annað kvöld,
fimmtudag. Stjórnandi er Pro-
innsias O’Duinn, sem stjórnar
nú 13. tónleikum sínum hér. Ein
leikari með hljómSyeitinni verð
ur Jón Nordal.
Jón Nordal
Á efnisskrá tónleikanna er sin
fónía nr. 3 í D-dúr eftir Schu-
bert, Hinzta kveðja eftir. Jón
Leifs, en verkið er nú flutt í
fyrsta sinn á tónleikum, en það
hefur aðeins einu sinni verið
sinni verið flutt í útvarpinu, þá
konzert fyrir píaaió og hljómsveit
í A-dur, K488 eftir Mozart, ein-
leikari á píanóið er Jón Nor-
dal, og loks verður flutt sinfónia
nr. 2 í D-Dúr eftir Sibelíus.
Schubert sinfónían verður nú
flutt í fyrsta sinn á tónleikum
hér á landi.
O’Duinn, sem nú heldur heim
til írlands, hefur stjórnað, með
þessum tónleikum, Sinfóníu-
hljómsveitinni í 13 skipti, þar af
5 æskulýðstónleikum. Hann er
væntanlegur aftur til Reykjavík
ur í marzbyrjun og mun hann
stjórna tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitarinnar 5. marz. Auk
þess mun hann stjóma a.m.k. 3
æskulýðstónleikum og væntan-
lega tónleikum, þar sem ein-
göngu verður flutt létt og fjöirug
tónlist.
O’Duinn skýrði Morgunblað-
inu svo frá í gær, að eftir jól
myndi hann stjóma sinfóníu-
Aylesbury, Englandi,
2. des. (NTB):
f dag lauk 18 daga yfirheyrsl
um varðandi járnbrautarrán-
ið mikla í Bretlandi hinn 8.
ágúst sl. Fimmtán menn og
þrjár konur hafa verið ákærð,
og verður mál þeirra tekið
fyrir um miðjan janúar. Alls
komu um 180 vitni fyrir rétt-
inn. Talið er að járnbrautar-
ræningjarnir hafi verið um
30, en ránsfengurinn nam um
300 milljónum króna (ísl.).
hljómsveit írska útvarpsins og
fram til þess tima er hann kæmi
aftur til Reykjavíkur. Lét hann
vel af dvöl sinni hér, bæði sam-
skiptunum við meðlimi hljóm-
sveitarinnar svo og áheyrendur.
Lét O’Duinn þess getið, að
hann teldi sinfóníuhl jómsveit-
ina hafa mjög gott af því, að
leika létta tónlist eins og t.d. eft
ir Gershwin eða lögin úr West
Side Story, enda væri miklu erf
iðara að leika þessa tegund tón-
listar en margt fólk álitL
— Flatey
Frh. af bls. 23
Um hafnarframkvæmdir segir
að árið 1930 Lafi verið byggð
bátabryggja, lengd 1946—7 og
endurbætt 1949. Kostað hafi ver-
ið til bryggjunnar 15 þús. kr.
fyrir 1940 og á áratugnum 1941—
50 666 þús. krónum, en engu síð-
an. Nær bryggjan fram á þriggja
metra dýpi og ráðgert að lengja
hana um 20 m.
Þá segir að í Flatey séu 17 býli
öll með einhverja grasnyt, af
þeim 9 I eyði. Landbúnaður sé
aðeins stundaður til heimilisnota.
Ástæðuna til brottflutnings
fólksins segja nefndarmenn vera
erfið lífsskilyrði og sjósókn á
fengsæl fiskimið einkar erfið sök
um lélegrar hafnarskilyrða. Sam-
göngur eru lélegar og stopulár.
Nefndin sneri sér til Vitamála-
stjórnarinnar og óskaði athugun-
ar og áætlunar um örugga höfn I
öllum veðrum fyrir eyjarskeggja.
Samkvæmt þeirri áætlun mun
hafnargerðin alls kosta sem svar-
ar 3.730.000.00 kr. Ennfremur
segir í skýrslu þremenninganna:
„Bætt hafnarskilyrði er tví-
mælalaust þýðingarmesta atriðið
til að bæta lífskjör þess fólks,
sem enn býr í Flatey, auk þess
mundi góð höfn í Flatey skapa
bátum frá nálægum verstöðvum
mikið öryggi í vondum veðrum,
þegar heimahöfn næst ekki. Á
þetta einkum við báta frá Húsa-
vík, höfnum við Eyjafjörð, svo
og Siglufjörð”.
Þá er í lok skýrslunnar getið
flugbrautar, sem rudd hefir verið
en nú er orðin nothæf fyrir minni
vélar.
Að lokum er lögð áherzla á
þrennt, sem stuðlað geti að á-
framhaldandi byggð eyjarinnar:
Góð höfn, bættar samgöngur og
lúkning flugbrautar.
Með þessu taldi blaðamaður
Mbl. sig hafa aflað sér sæmilegs
fróðleiks um Flatey á Skjálfanda
og lifnaðarhætti þar fyrr, og þó
einkum nú, eftir því sem ritaðar
heimildir greindu.
Með þetta vegarnesti skulum
við í síðari grein stíga upp í
flugvél og halda norður til Flat-
eyjar í fylgd innborins Flatey-
ings, Haraldar Jónassonar, bæj-
arfógtafulltrúa á Akranesi.
vig.
LANCÖME
gerir hina fögru ennþá
fegurri!
Aðeins hjá:
OCÚLUS — SÁPUHÚSINU
og TÍZKUSKÓLA ANDREU.