Morgunblaðið - 28.12.1963, Side 9
Laugardagur 28. des. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
9
Gísli Kristjánsson
fyrrv. útgerðarmaður sjötugur
12. DESEMBER varð Gísli Krist-
jánsson 70 ára þó okkur vinuna
hans finnist það ekki trúlegt,
eftir útliti að dæma gæti hann
eins verið 50 til 60 ára, svo vel
ber hann aldurinn, en það er
kúnstin að eldast án þess að
verða gamall. Gísli er fæddur
12. desember 1893 í Sandhúsi í
Mjóafirði og voru foreldrar hans
Kristján Jónsson verzlunarstjón
og kona hans María Hjálmars-
dóttir. Það var fyrirmyndar-
heimili um allan þrifnað. GLsli
fór ungur að taka þátt í störf-
um heimilisins, faðir hans hafði
bæði útgerð og landbúskap. Um
og eftir síðustu aldamót var
margt ungt fólk að alast upp í
Mjóafirði, og var þar gott félags
líf og mörg félagssamtök t. d.
ungmennafélagisskapurinn fór
um huga þeirra sem ungir voru,
eem andblær batnandi tíma,
og vakti hjá þeim framkvæmda
þrá og var Gísli þar virkur þátt-
takandi. Ég minnist þess hvað
hann var fylginn sér á glímuæf-
ingum, þá dró hann ekki af sér,
enda var áhuginn mikill.
Á þessum árum var á Mjóa-
fi'rði mikið athafnalíf þar var
mikil útgerð og sótti margt fólk
þangað atvinnu á sumrin. Þá
etörfuðu þar líka 2 hvalstöðvar
af miklum krafti og þurfti þar
margt fólk til starfa- við þann
mikla atvinnurekstur.
Gísli var ekki gamall þegar
hann fór að sækja sjóinn, enda
stóð hugur hans til þess. Hafið
heillaði að sækja gull í greipar
Ægis. Það er ekki heiglum hent,
það útheimti dugnað og fyrir-
hyggju, því dætur Ægis sýna
ekki alltaf mikla blíðu.
Árið 1919 flytur Gísli á Norð-
fjörð og hóf þar útgerð nokkru
síðar. Hann gerði þar út mótor-
bát og var hann sjálfur formað-
ur og sjóinn sótti hann af mikl-
um dugnaði og gekk útgerðin
vel, en ekki var allaf mikið
sofið.
Gísli giftist 26. maí 1923 Fann
eyju Ingvarsdóttir Pálmasonar
ajþingismanns á Ekru á Norð-
firði, og var það hans mikli ham
ingjudagur, hún hefur skapað
honum gott heimili og verið hon
um samhent í öUu.
Þau hafa eignast 6 börn sem
öll eru uppkomin, 3 dætur og
3 synir prýðilega vel gefin og
myndarleg, enda hafa þau sýnt
það við nám og starf. Nokkru
eftir að Gísli giftist byggði
hann stórt og myndarlegt hús
sem hann nefndi Bjarg, og var
það táknrænt fyrir hann allt
hans starf er traust enda er mað-
urinn traustur og drengur góður.
Útgerð hans varð með árun-
um umfangsmeiri með stærri bát
um. Þá hætti hann formennsku
enda mikið starf að sjá um út-
gerðina. Hann tók mikinn þátt
í félagsmálum útgerðarmanna.
Þar var hann áhugasamur og til-
lögu góður um allt sem mátti
vera henni til hagsbóta eða
annan hátt.
Gísli var kosinn í bæjarstjórn
Neskaupstaðar og átti þar sæti
í nokkur ár og sýnir það að
trausts hefur hann notið enda
alltaf öruggur til starfa. Gísli
var með útgerð á Norðfirði til
1945, þá flytur hann sig með bú-
setu og útgerð til Akureyrar.
Kunningjarnir sögðu að hann
væri að flytja til að vera nær
síldinni, þá var útgerðin að
miklu leyti miðuð við síldveið-
arnar. Gísli var með útgerð á
Akureyri til 1955, sem hann rak
með miklum dugnaði en þá flyt-
ur hann til Hafnarfjarðar og
byggir þar myndarlegt hús við
Herjólfsgötu 22, þar er fallegt
útsýni til hafsins þar kann Gísii
vel við sig.
Það er gott að koma á heimili
þeirra hjóna og njóta þar gest-
risni þar líður öllum vel. Þá líð-
ur tíminn fljótt maður verður
þess ekki var að Elli kerling hafi
náð á Gísla neinum tökum.
Okkar kynni eru orðin löng. Þau
eru frá okkar æskudögum frá
því við vorum saman í barna-
skóla, og þá var lífið leikur og
áhyggjur ekki til.
Við hjónin óskum Gísla hjart-
anlega til hamingju með sjötugs
afmælið.
Jón I. Jónsson.
Guðjón Eyjólísson
löggiltur endurskoðandi
Hvcrfisgötu 82
Sími
Útboð
Tilboð óskast til sölu á 185 tonnum af steypu-
styrktarjárni til hitaveituframkvæmda í Reykja-
vík. Útboðsskilmála má vitja í skrifstofu vora
Vonarstræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
ISorden's vonir
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
HAFNARBÚÐIN, Akureyr!
Ung/ingsstúlka
óskast til afgreiðslustarfa frá 1. jan. n.k.
Flugeldar — Blys
Margar tegundir sveiflublys, fallhlífar-
blys, sólir og stjörnuljós.
Hjartarbúð
Lækjargötu 2.
Stúdentar
Jólagleði fyrir börn stúdenta verður
haldin ^ð Gamla Garði sunnudaginn
29. des. og hefst kl. 3 e.h.
S. H. í.
ár
Odýrustu japönsku hjólbarðarnir
*|, . ,i . y. Hjólbarðaviffgerð
lllSíhlilStfiflT* Vpr7,un,n Ölfusá Stefnir, flutningadeild Biörn Guffmundsson Marteinn Karlsson Ármanns Björnssonar Friffgeir Steingrímss.
Ultf IUOI U Selfossi Akureyri biuimg. 14, ísafirði Óiafsvik Keflavík. Kaufarhoin.
GIÍIVIIMÍVIIMIMtJSTOFAIM H.F.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 18955.