Morgunblaðið - 28.12.1963, Blaðsíða 23
Laugardagur 28. des. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
23
Erhard heimsækir
Johnson í Texas
Viðræðufundir hefjast á búgarði
forsetans í dag
Bonn og Houston, Texas,
27. des. AP — NTB
IXDWKi Erhard, kanzlari V-
Þýzkalands, hélt í dag frá Bonn
áleiðis til Texas þar sem hann
mun hitta Johnson forseta, og
eiga við hann viðræðufundi á
búgarði forsetans. Hefjast fund-
irnir á morgun og standa í tvo
ðaga. Með kanzlaranum fór Ger-
hard Schröder, utanríkisráðherra
og fleiri þýzkir ráðamenn. Var
Erhard væntanlegur til Elling-
ton herflugvallarins skammt frá
Houston seint í kvöld.
Áður en Erhard lagði af stað
ræddi hann við blaðamenn og
sagðist vera sannfærður um að
fundirnir með Bandaríikjaforseta
myndu verða hinir gagnlegustu.
Myndox þeir verða til þess að
styrkja samstarfið milli ríkjanna
og varnir hins frjálsa heirns.
Á Ellingtonflugvelli var ráð-
gert að Dean Rusk, utanríkisráð
Iherra, tæki á móti kanzlaranum,
sam hugðist gista í Houston í
xiótt, og halda síðan flugleiðis
til Austin, Texas, og búgarðs
forsetans.
MikLar öryggisráðstafanir hafa
verið gerðar í Houston vegna
feoniiu kanzlarans þangað í kvöld.
Hefur lögreglan t.d. ekki viljað
gefa upp hvaða leið kanzlarinn
muni aka frá Ellingtonflugvelli
til gistihúss síns 1 hjarta Houst-
on.
Johnson, forseti, átti í dag við
ræður við ýmsa nánustu ráð-
gjafa sína og var umræðuefnið
ástandið í alþjóðamálum. Mun
þetta vera liður í undirbúningi
forsetans að taka á móti hinum
þýzika kanzlara.
— Jack Ruby
Framh. af bls. 1
myndir af Ruby í bliðarherbergi.
Allar myndavélar voru rannsak-
! aðar af lögreglunni áður en ljós-
! myndarar fengu að koma nærri
Ruby.
Leitað var á öllum þeim, sem
í réttarsalnum voru, er upp
komst að eitt vitnanna, dansmær
in Karen Lynn Bennet, hafði
falið litla skammbyssu í tösku
sinni. Ekki gat hún gefið neina
skýringu á því.
Er Brown dómari hafði hafn-
að kröfu verjenda Ruby, lýstu
þeir því yfir að þeir myndu fara
frarn á að mál Ruby verði ekki
tekið fyrir af dómstóli í Dallas,
1 „vegna þess að ekki sé hægt að
fá óhlutdrægan dóm í Dallas
vegna fyrrverandi og núverandi
' skrifa blaðsins Dallas News um
! málið.“ Brown dómari kvaðst
jmundu athuga þessa nýju kröfu
I lögfræðinga Ruby.
Ivan Assen Georgiev, — sakað ur um njósnir fyrir Bandaríkin.
Myndin var tekin er hann ávarpaði Allsherjarþing SÞ fyrir
tveimur árum.
Kortið sýnir staðarákvörðun Hugrúnar (hvíti krossinn) og staðinn, þar sem SIF fann hana
(dökkur kross).
— Hugrúi
run
Framh. af bls. 24
af ýsu og þorski í Cuxhaven
fyrir 25 þús. mörk. Um borð
eru 9 menn.
Lengsta leitarflug SIF
Morgunblaðið hafði í gær
tal af Garðari Pálssyni, skip-
herra, yfirmanni SIF, flug-
vélar Landhelgisgæzlunnar.
Frásögn hans fer hér á eftir:
— Við lögðum af stað laust
eftir kl. 13 og höfðum þá þær
upplýsingar, að Hugrún væri
150 sjómílur suðaustur af
Vestmannaeyjum. Goðafoss,
sem álitinn var næsta skip
við Hugrúnu, var kl. 9 um
morguninn klukkustundar
siglingu frá Vestmannaeyjum
og tók stefnu á bátinn. Var
búizt við, að hann yrði kom-
inn á vettvang kl. 7 um kvöld
ið. Um 40 mínútum eftir flug-
tak fórum við framhjá Goða-
fossi, 70 sjómílur frá Vest-
mannaeyjum. Skömmu síðar
barst ný staðarákvörðun frá
Hugrúnu, þar sem skipsmenn
sögðust vera 30 mílum austar
en þeir höfðu haldið í fyrstu.
Síðan gáfu þeir þriðju staðar-
ákvörðunina, 20 mílum aust-
ar en þá síðustu.
— Flogið var yfir alla stað-
ina og þá hafin skipuleg leit,
þannig að við flugum í fer-
hyrninga, en hvorki sáum
Hugrúnu né urðum hennar
varir í ratsjánni. Um kl. 15
fundum við ekkó í ratisjánni,
en þar reyndist vera á ferð
brezkur togari.
— Loftskeytatæki þau á
Hugrúnu, sem við hefðum
getað miðað, voru biluð. Loft
skeytamaður okkar var í stöð
ugu sambandi við bátinn, og
sagði skipverjum að flytja
krystal í einu tækjanna um
sæti. Var það gert og skömmu
síðar eða kl. rúmlega 18
heyrðum við Hugrúnu
koma inn á 1700 kílóriðum.
Tókst okkur þá að miða bát-
inn og flugum beint til hans.
Höfðum við verið 80 mílur
suður af honum.
— Þegar við komum yfir
bátinn, gerðum við staðar-
ákvörðun, með aðstoð lórans
og konsúls. Reyndist Hugrún
þá vera 110 sjómílur frá þeim
stað, sem gefinn hafði verið
upp í fyrstu. Tilkynntum við
nú Goðafossi þetta, gáfum
honum stefnuna og sveimuð-
um þarna yfir til kl. 20, en
þá urðum við að halda heim-
leiðis vegna eldsneytisskorts.
Áður hafði Flugstjórn sagt
okkur, að varnarliðsflugvél
Nathole 6, væri á leiðinni, og
mundi hún halda sig yfir Hug
rúnu unz Goðafosis næði þang
að, sem áætlað var kl. 01.10.
Við flugum framhjá Goða-
fossi u-m kl. hálf níu, en þá
átti hann eftir 75 mílur að
bátnum. Kl. rúmlega tíu um
kvöldið lentum við svo á
Reykjavíkurflugvelli eftir
lengsta leitarflug, sem SIF
hefur farið L
— Oeirðir
Framh. af bls. 1
Sendiherra Bandaríkjanna í
Búlgaríu, frú Eugenie Anderson,
er stödd í Washington þessa dag-
ana til skrafs og ráðagerða við
utanríkisráðuneytið, en unnið
hefur verið að undanförnu að því
að bæta sambúð Bandaríkja-
manna og Búlgaríu. Átti Búlgaría
frumkvæðið að því.
Bandaríska stjórnin tilkynnti í
dag að hún hefði harðlega mót-
mælt atburðinum við sendiráðið
fyrr um daginn og krafizt skaða-
bóta frá búlgörsku stjórninni
vegna þeirra spellvirkja, sem
unnin voru.
Jafnframt sagði blaðafulltrúi
utanríkisráðuneytisins, Richard
I. Phillips, að réttarhöldin yfir
Georgiev væru sýndarmennska
ein.
Georgiev kom fyrir réttinn í
annað sinn í dag, en hann hefur
játað að hafa stundað njósnir
fyrir bandarísku leyniþjónust-
una, CIA. Er hann sagður hafa
þegið nær hálfa aðra milljón
dollara af leyniþjónustunni.
Réttarhöldin í dag snerust eink
um um fé það, sem Georgiev á
að hafa þegið, og þá tæknilegu
hluti, sem hann á að hafa fengið
frá CIA til njósnanna.
Georgiev sagði í réttinum að
hann hefði aldrei þegið peninga
til eigin nota en viðurkenndi
hins vegar að hafa skemmt ást-
konum sínum fyrir það fé, sem
hann hefði fengið fyrir njósnirn-
ar. Hefði hann m.a. greitt flug-
far milli New York og París
þrisvar sinnum fyrir eina ást-
konuna, og hefði hún einnig þeg-
ið fé af Bandaríkjamönnum fyr-
ir tilstilli hans.
Georgiev sagði að önnur ást-
kona hans, frú Rosa Aronova,
sem búsett var í ísrael, hefði
fengið frá sér 30 þúsund dollara,
og fyrir þá peninga hefði hún
m.a. heimsótt Bandaríkin.
Tilheyrendur í réttarsalnum
fóru að skellihlæja er Georgiev
skýrði frá því, að einn hinna
bandarísku aðila, sem hann hafði
samband við, hafi kvartað undan
því að peningum bandarískra
skattborgara væri eytt til þess
að skemmta ástkonum hans. Sagð
ist Georgiev þá hafa svarað því
til, að hann væri sammála Castro,
forsætisráðherra Kúbu, um að
bandarísk heimsvaldastefna væri
asnalegasta tegund heimsvalda-
stefnu, sem til væri. Georgiev
lýsti þeim Bandaríkjamönnum,
sem hann átti viðskipti við, sem
hreinum fíflum, „idiotum", um
allt varðandi kommúnisma.
Georgiev skýrði frá því að
Bandaríkjamenn hefðu sam-
í GÆR var Jóhannes Snorra-
son yfirflugstjóri hjá Flug-
félagi íslands heiðraður við
hátiðlega athöfn í danska
ændiráðinu. Var honum veitt-
ur riddarakross Dannebrogs-
orðunnar fyrir brautryðjenda
starf í flugi til Grænlands og
á Grænlandi. Jóhannes er
fyrstur íslenzkra flugmanna
til að annast þetta flug og
tU nýlundu telst skiðaflug,
sem hann fór til austurstrand-
ar Grænlands á síðasta vetri
og verður aftur í vetur.
Mynd þessi var tekin við
afhendingu orðunnar í gær.
Frá vinstri: Örn Ó. Johnson
forstjóri F.Í., frú Petersen og
sendiráðsritari B. Petersen,
sem orðuna afhenti, Jóhannes
Snorrason og frú hans og
Ludvig Storr ræðismaður og
frú hans. Ljósm. Ól. K. M.
þykkt að greiða fyrrnefndri frú
Aranova, sem eitt sinn var sam-
starfskona hans, 310 dollara á
mánuði, þar sem hann, Georgiev,
hafi fundið hjá sér siðferðislega
skjrldu til þess að sjá henni fyrir
lífsviðurværi. Var Georgiev þá
spurður hvort honum hefði einn-
ig borið siðferðisleg skylda til
þess að sjá öðrum konum fyrir
lífsviðurværi, svaraði hann því
til að hann hefði aðeins haft „sam
band“ við þær. Önnur ástkona,
Delcheva að nafni, hafði þó
einnig fengið peninga, sagði
hann. Þá kvaðst Georgiev einnig
hafa notað af greiðslum Banda-
ríkjamanna til þess að styrkja
aldraða móður sína heima fyrir
meðan hann dvaldist erléndis.
Georgiev sagði að Bandaríkja-
menn hefðu látið honum í té ým-
is símanúmer og heimilisföng í
New York, París, Múnchen og
Lausanne, og sagt að hann gæti
leitað þangað ef hann lenti í vand
ræðum. Þegar Georgiev var hand
tekinn í september sl. sagðist
hann í fyrstu hafa haldið að að-
ferðir búlgörsku lögreglunnar
væru svipaðar og 1950. Kvaðst
hann hafa haldið að hann yrði
píndur til sagna, og neyddur til
þess að undirrita ýmis plögg, sem
myndu skaða ættingja hans og
vini. En hann kvað sér hafa ver-
ið komið þægilega á óvart. Hann
hefði fengið rúmgott herbergi í
fangelsinu og tækifæri til þess
að ræða vandamál marxismans
og tefla skák. „Ég átti mörg fróð-
leg samtöl við þá, sem rannsök-
uðu mál mitt. Þeir voru vakandi,
gáfaðir og mannlegir."
Þá kvaðst Georgiev ekkert
skilja í því hvernig honum hefði
dottið í hug að svíkja föðurland
sitt. „Hvernig á ég að finna það
hugrekki, sem til þarf, svo ég
geti slegizt í hóp landsmanna og
föðurlandsvina?“ spurði hann, og
bætti því við að þetta væri ástæð
an til þess að hann hefði ákveðið
að segja alla söguna.