Morgunblaðið - 28.12.1963, Síða 13
Laugardagur 28. des. 1963
MORGUNBLADID
13
SJJ
til að auðvelda fólksflutningfana mikiu milli borgarhlutanna í Berlín.
Austur þýzkir landamæraverðir ganga frá einu aí nýju hliðunum, sem gerð voru i múrinn
HVAÐ TEKUR VIÐ?
Oft er spurt í Berlín: Hvað
tekur við eftir 5. janúar, en þá
er fyrirhugað að hætta að gefa
út vegabréf. Sumir vona að
austur-þýzk yfirvöld sjái sig
um hönd og heimili áfram
heimsóknir, því búast má við
að óánægjuraddir heyrist í
Austur-Berlín jafnt og í Vest-
ur-Berlín ef múrnum verður
jafn vandlega lokað á eftir
sem fyrr. Andrúmsloftið í
Berlín er sem stendur allt
annað en verið hefur, og meir
að segja landamæraverðirnir
austur-þýzku fá stundum hlý-
legar kveðjur frá íbúum Vest-
tur-Berlínar.
FLÓTTAMAÐUR
DREPINN
Ekki hefur þó verið árekstra-
laust með öllu á borgarmörk-
unum. Á jóladag vildi það til
að átján ára piltur frá Austur-
Berlín, Paul Schultz, reyndi
að flýja yfir múrinn til Vest-
ur-Berlínar. Landamæraverð-
ir sáu til hans þegar hann var
að klifra upp á múrinn og
skutu hann til bana. Hefur
Margar sögur hafa verið
skráðar um endurfundina í
Berlín, bæði um gleði og sorg.
31eði yfir endurfundum og sorg
þegar skilnaðarstundin renn-
ur upp og óvissa ríkir um
næsta tækifæri til fjölskyldu-
fágnaðar. Sumir verða einnig
að bíða án árangurs eftir heim
sóknum ættingja.
Bið'röð við eina skrifstofuna í Vestur Berlin þar sem vegabréf voru afgreidd.
drápinu verið harðlega mót-
mælt bæði í Berlín og Bonn.
Meðal annars fór bandaríski
sendiherrann í Bonn á fund
sendiherra Sovétríkjanna þar
í borg til að mótmæla dráp-
inu á þeirri forsendu að skot-
hríð austur-þýzku landamæra
varðanna hafi stofnað manns-
lífum í Vestur-Berlín í hættu.
En árekstrar hafa ekki áhrif
á flóksstrauminn til Austur-
Berlínar. Allir vilja nota sér
þetta fyrsta tækifæri til að
hitta ættingja, sem þeir hafa
ekki séð síðan 13. ágúst 1961.
■-------------♦
Á þessum þremur myndum sjást faguaðarfundir í Austur
Berlín þegar ættingjar frá Vestur Berlín komu þangað í
heimsókn í fyrsta skipti siðan í ágúst 1961 að múrinn var
reistur.
hafa heimsútt Austur-Berlín
Iíveikt á jólatré
Frederiksbergs
HAFNARFIRÐI — Kveikt
var á jólatré vinabæjarins
Frederiksberg nokkru fyr-
ir jól að viðstöddu fjöl-
menni. Fyrst léku lúðrasveitir
(Hafnarfjarðar og drengja), þá
tók til máls Ludvig Storr aðal-
ræðismaður Dana hér á landi,
og afhenti hann tréð, en dönsk
kona tendraði ljósin. Bæjar-
stjóri, Hafsteinn Bald'vinsson,
þakkaði gjöfina o-g bað ræðis-
manninn færa gefendum kærar
þakkir fyrir hið myndarlega
jólatré. Við athöfnina söng
Karlakórinn Þrestir.
Jólatréð er á Thorsplani við
Strandgötuna. Einnig er jóla-
tré efst á Hamrinuim og sést
langt að.
Kandidata-
styrkur til
náms í U.S.A.
námstyrkja fyrir háskólamennt-
aða menn á Norðurlöndum til
framhaldsnáms við æðri mennta-
stofnanir í Minnesota, einkum
ríkisháskólann eða Mayo-lækna-
skólann. Var fyrsti styrkurinn
veittur íslenzkum námsmanni.
FYRIR tveimur árum hóf Ottó
Bremer stofnunin, að tilhlutan
Valdimars Björnssonar, fjármála-
ráðherra Minnisota-ríkis, að veita
árlega nokkra fjárupphæð til
Samskonar styrkur, að upphæð
$2.500, verður veittur til náms á
næsta ári (1964—65). Styrkurinn
er til eins árs, en við Mayo-stofn-
unina eru möguleikar á fram-
haldsstyrk í tvö ár til viðbótar.
Umsækjendur skulu hafa lokið
háskólaprófi í grein sinni, en til
greina koma einnig þeir, er ljúka
slíku prófi á þessu ári.
Nánari upplýsingar verða veitt
ar í skrifstofu Islenzk-ameríska
félagsins, Hafnarstræti 19, á
þriðjudögum kl. 5—6.30 e.h. (sími
17266), og þar fást og umsóknar-
eyðublöð.
(Frá Íslenzk-ameríska félaginu)