Morgunblaðið - 28.12.1963, Side 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 28. des. 1963
Móðir okkar
KRISTÍN SIGMUNDSDÓTTIR
Lindargötu 34,
andaðist 24. des. — Fyrir hönd systkinanna.
Marteinn Pétursson.
Sonur minn
SIGURÐUR HJAUTI JÓNSSON
sem lézt 24. desember verður jarðsimginn frá Kefla-
víkurkirkju mánudaginn 30. desember kl. 2 e.h.
Helga Egilsdóttir.
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður
og ömmu
JÓNÍNU KRISTÍNAR ÞORSTEINSDÓTTUR
fyrrum húsfreyju að Efra-Apavatni
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. desember
kl. 1,30. — Blóm vinsamlega afþökkuð.
Guðmundur Ásmundsson.
börn, tengdabörn
og bamabörn.
Útför mannsins mins
INGVARS INGVARSSONAR
Lynghciði 6, Selfossi,
fer fram frá Selfosskirkju mánudaginn 30. þ.m. kl. 2.
Guðrún Jónasdóttir.
Jarðarför eiginmanns míns og föður okkar
SVEINS ÞORLÁKSSONAR
fyrrverandi símstöðvarstjóra Vík, Mýrdal,
sem andaðist 22. des., fer fram frá Víkurkirkju, mánu-
daginn 30. des. — Athöfnin hefst með húskveðju kl.
13.00. — Blóm afþökkuð.
Eyrún Guðmundsdóttir og böra.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURJÓNS GUÐMUNDSSONAR
Svanhildur Sigurjónsdóttir, Sigurjón Sigurjónsson,
Kristín Halldórsdóttir, Guðmundur Sigurjónsson,
Snjáfríður Sigurjónsdóttir, Kristján Hákonarson,
Lára Magnúsdóttir, Kristmundur Sigurjónsson,
Erla Sigurjónsdóttir, Egill Valgeirsson,
Kristín Sigurjónsdóttir, Jakob Jakobsson,
Árni Sigurjónsson og barnaböm.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall
móður minnar
HELGU ÞURÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
hjúkrunarkonu.
Baldur Sveinsson.
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlut-
tekningu við andlát og útför konu minnar og móður
ÖNNU MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR
Guðmundur Guðmundsson,
Björn Guðmundsson.
Ég þakka öllum sem hafa auðsýnt mér vinsemd og
hluttekingu við andlát og útför móður minnar
BERGLJÓTAR RUNÓLESDÓTTUR
frá Hólmi í Landbroti.
Hilmar B. Ingvarsson.
Þökkum innilega sýndan vinarhug og hluttekningu
við útför
INGÓLFS ÞORKELSSONAR
Selvogsgötu 6, Hafnarfirði.
Guðrún Benediktsdóttir,
börn og tengdabörn.
Jólaskrey tingar á Akureyri.
Hvít idl um allt land
U M allt land voru hvít jól að
þessu sinni, a.m.k. einhverja
dagana. Jólahald var með
eðlilegum hætti alls staðar,
nema hvað færð var erfið
sums staðar. Mikið er orðið
um jólaskreytingar með ljós-
um í sveitum og kaupstöðum
og var slíkt með mesta móti
að þessu sinni. Mbl. hafði
samband við fréttaritara sína
um allt land og fara fréttir
þeirra af jólunum hér á eftir:
Á Akranesi
AKRANESI, 27. des. — Jóla-
stjarnan á Sementsverksmiðj-
unni sindrar og tindrar. Fagur-
skreytt jólatré gleður auga bæj-
arbúa á Silfurtorgi og kemur
mönnum í jólaskap. Talið er að
þetta sé alfegursta jólatré sem
sézt hefur í þessum bæ. Jóla-
tréð er jólagjöf frá Tönder, vina-
bæ Akranese í Danmörku. Ann-
að jólatré er á völlunum fyrir
framan sjúkrahúsið og þriðja
við gagnfræðaskólann og fjórða
stóra jólatréð er við Hótel Akra
nes. Jólaskreytingar í búðum og
við hús einstaklinga er með
mesta móti í ár. — Oddur.
Á Snæfellsnesi
STYKKISHÓLMI, 27. des. — Á
aðfangadag var hér stormur og
snjóhraglandi og hélzt það veð-
ur einnig á jóladag, en á annan
jóladag var frost og gott veður.
Samgöngur voru sæmilegar. Nú
er hér komið mikið hvassviðri.
Messað var hér í kirkjunmi á
aðfangadag og einnig hjá hvíta-
sunnusöfnuðinum og í kaþólsku
kirkjunni var miðnæturmessa.
Þar var einnig messað á jóla-
dag.
Skreytingar voru með mesta
móti hér og jóhn hátíðleg.
— FréttaritarL
Á Vestfjörðum
ÍSAFIRÐI, 27. des. — Talsverð
snjókoma var um hátíðarnar við
íisafjarðardjúp og hefur sett nið-
ur nokkurn snjó, en þó varla
til baga, enn sem komið er. Byl-
ur og dimmviðri var fram eftir
degi í dag. Víða í bænum hafa
verið sett upp jólatré og ljósa-
skreytingar óvenju miklar. Frá
vinabæ ísafjarðar í Danmörku,
Hróarskeldu, barst nú eins og
undanfarin ár stór og fallegt jóla
tré og var kveikt á því á Austur-
velli á Þorláksmessu.
Jólatrésiskemmtanir eru í al-
gleymingi. — H. T.
Á Sauðárkróki
SAUÐÁRKRÓKI, 27. des. — Hér
byrjaði að snjóa á jólanóttina,
og snjóaði alla nóttima og tals-
vert á jóladag. Snjór er mein
að vestanverðunni í Skagafirði,
en færð hefur ekki teppzt til
muna.
Jóiahald var með venjulegum
hættL Ungmennafélagið hafði
barnaskemmtanir að venju í
gær. jón.
Á Siglufirði
SIGLUFIRÐI, 27. des. — Á að-
fangadag gerði allmikla úrkomu
og hélt áfram á jóladag. Má
segja að sjaidan hafi kyngt hér
niður svo miklum snjó á svo
skömmum tíma. Snjóskriða féll
úr Strákum á 3 hús, og er sagt
frá því annars staðar. Snjókoma
var það mikil að öll eðlileg bif-
reiðaumferð torveldaðist alger-
lega. í morgun var strax hafizt
Þökkum af alhug virðingu og vinarþel við andlát
og jarðarför íöður okkar,
EINARS JÓNSSONAR
Stykkishólmi.
Axel Einarsson og systkini.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu og vin-
semd við andlát og jarðarför
ÖNNU MÖRTU LÁRUSDÓTTUR
Kársnesbraut 75
Önundur Jósefsson, Ólafur Önundsson,
Bergþóra Magnúsdóttir, Sigurður Ólafsson.
handa um að ryðja götur og
verður haldið áfram í dag. Þetta
hafði þó ekki áhrif á venjulegt
jólahald. Við erum vön snjón-
um hér fyrir norðan og komumst
milli húsa.
Hér er stórt jólatré á Ráðhús-
torgi, gjöf frá vinabæ Siglu-
fjarðar í Danmörku, Herning á
Jótlandi. Stórar jólastjörnur
prýða líka kirkjuna og sjúkra-
húsið. Venjulegar jólaskreyting-
ar eru við helztu göturnar. Þetta
er sérlega fallegt, því mjög
dimmt er yfir. — Stefán.
Á Akureyri
AKUREYRI, 27. des. Hér voru
afar friðsamleg jól og fögur,
óhöpp engin svo vitað sé og
kirkjusókn mikil. Á aðfangadags
kvöld var logndrífa og mjög jóla
legt um að litast. En á jóladag
gerði norðan fjúk. f gær var hin3
vegar bezta veður, logn og bjart-
viðri.
Bærinn var að vanda skreytt-
ur með ijósum og grenisvedgum
og umferð mikil á Þorlák&messu
kvöld. íkviknanir urðu engar og
voru þetta einhver rólegustu
jól, sem lögreglan man. Hún
þurfti aðeins að hafa afskipti
af einum ölvuðum manni að
kvöldi annars jóladags. — Sv. P,
Á Húsavík
HÚSAVÍK, 27. des. — Ágætt veð
ur var á aðfangadag, en hvítt
yfir, en á jóladaginn skipti irni
og gerði blindhríð, svo að setti
mikla skafla í bænum og varð
allt ófært um bæinn þangað til
í gær að ýtt var af aðalgötunni
vegna mjólikurflutninga úr sveit-
inni. En mirma hefur snjóað
framundan á götum. Og er nokk
uð greiðfært nema í Aðaldals-
hreini, þar sem voru töluverðir
skaflar, en lausdr fyrir og kom
mjólk úr flestum sveitum. Ennþá
er þó ófært á Tjörnesið.
Hér héldu menn venjuleg jól.
— Skreytingar eru með meira
móti hjá einstaklingum.
— FréttaritarL
Á Hólsfjöllum
GRÍMSSTÖÐUM, 27. des. —
Snjólétt hefur verið í vetur og
tíðarfar gott. Um jólin snjóaði
svolítið og færð versnaðL
Póstur var fluttur yfir öræfin
fyrir jólin, farnar þrjár póstferð
ir austur yfir og gekk veþ nema
hvað bíll bilaði í síðustu ferð-
inni. Vegurinn um Grímsstaði 1
Möðrudal var fulllagður í vetur
og tók 14 ár að leggja hann. Og
Framh. á bls. 11
Hjartanlegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem minnt-
ust mín á sextugsafmæli mínu hinn 7. des. sL með heim
sóknum, gjöfum og kveðjum.
Guðmundur Halldórsson,
Brávallagötu 40.
Ættingjum mínum og vinum, sem minntust mín
á 70 ára afmæli minu 5. þ.m., með skeytum, heimsókn-
um og gjöfum, flyt ég mínar innilegustu þakkir.
. Guðrún Guðnadóttir.