Morgunblaðið - 28.12.1963, Síða 16
MORGUNBLAÐID
Laugardagur 28. des. 1963
ie
Fríkirkjan í Hafnarfiröi 50 ára
Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafn-
arfirði var stofnaður 20. apríl
1913, að nýafstöðnum prests-
kosningum í Garðaprestakalli.
Að stofnun safnaðarins stóðu
um 100 kjósendur.
Stofnfundurinn var haldinn í
Góðtemplarahúsinu o<g fór þar
fram fyrsta guðsþjónusta safn-
aðarins, á sumardaginn fyrsta.
Prestur var ráðinn sér Ólafur
Ólafsson, þáverandi fríkirkju-
prestur í Reykjavík. Var séra
Ólafur viðurkenndur mælsku-
maður og einn af merkustu
klerkum prestastéttarinnar á
sinni tíð.
Fyrstu safnaðarstjórnina skip-
uðu þessir menn:
Jóhannes J. Reykdal, verk-
smiðjueigandi, og var hann for-
maður nefndarinnar, en aðrir í
stjórninni voru Jón Þórðarson
frá Hliði, Oddur ívarsson, síðar
póstmeistari, Egill Eyjólfsson,
skósmiður og Davíð Kristjáns-
son, trésmiðameistari.
Á fyrstu fundum safnaðar-
stjórnarinnar var rætt um að
byggja kirkju fyrir söfnuðinn og
á stjórnarfundi þann 15. ágúst
er skýrt frá því að valinn hafi
verið staður fyrir væntanlega
kirkju á fögrum stað við Linnet-
stíg og þá liggur fyrir tilboð frá
Ih.f. Dverg, þar sem boðizt er
til að byggja kirkjuna fyrir kr.
7.900.— og var það tilboð sam-
þykkt.
Var þegar hafizt handa uoi að
byggja grunninn og síðan kirkj-
una og er ekki að orðlengja það
að kirkjan er tilbúin snemma í
desember og fer vígsla hennar
fram sunnudaginn 14. des. 1913.
Eru því 50 ár liðin síðan kirkj-
an á hólnum við Linnetsstíginn
var byggð. Var afmælisins
minnzt á vígsludaginn 14. des.,
sem bar upp á laugardag með
samsæti í Alþýðuhúsinu í Hafn-
arfirði, en hátíðaguðsþjónusta
var flutt í kirkjunni sunnudag-
inn 15. des.
Það þótti talsvert merkilegur
viðbuður í okkar litla bæ, þeg-
ar kirkjuklukkurnar hljómuðu
í fyrsta sinn i Hafnarfirði og
kölluðu menn til tíða, en Hafn-
firðingar höfðu um aldir orðið
að sækja kirkju að Görðum á
Álftanesi og fram að síðustu
aldamótum um ógreiðfæra
götutroðninga.
Veður var ágætt á vígsludag-
inn og löngu áður en
kirkjan var opnuð fór fólk að
streyma til hennar og fylltist
kirkjan þegar, svo hvert rúm
var skipað út úr dyrum og mér
var tjáð að út úr henni hafi
verið talið og það reyndist 7-800
manns.
Söngflokikur fjölmennur hafði
verið æfður fyrir messuna og
stjórnaði honum og lék á orgelið
Friðrik Bjarnason tónskáld, en
hann var organisti Fríkirkjunn-
ar fyrsta árið. Jón Þórðarson frá
Hliði var meðhjálpari og las kór-
bæn, en séra Ólafur Ólafsson
flutti predikun og vígði kirkj-
una. Var þess; fyrsta kirkjuat-
höfn mjög hátíðleg og eftir-
minnileg þeim sem þar voru
staddir.
Um kvoldið var srvo haldið
samsæti í Góðtemplarahúsinu.
Söfnuðurinn var svo heppinn
að njóta starfa séra Ólafs Ólafs-
sonar fyrstu 17 árin, en þá varð
hann að segja starfinu lausu
sökum elli og lasleika.
Þá tók við prestþjónustu í
söfnuðinum ungur og glæsilegur
guðfræðingur, Jón Auðuns frá
ísafirði, sem nú er þjókunnur
klerkur og er nú Dómprófastur
í Reykjavíkurprófastsdæmi og
þjónar Dómkirkjusöfnuðinum í
Reykjavík. Hann var prestur
Fríkirkjunnar í 16 ár. Þriðji
prestur safnaðarins er núver-
andi prestur, séra Kristinn Stef-
ánsson. Hann er mikill gáfu- og
tnælskumaður og er þjóðkunnur
maður fyrir störf sín að málefn-
um Góðtemplarareglunnar á ís-
landi og er nú Áfengisvarnaráðu
nautur ríkisstjórnarinnar.
Hann hefir þjónað þessum
söfnuði í rúm 17 ár og gert það
með mikilli prýði.
Hefir söfnuðurinn verið hepp-
inn að fá hvern ágætis prestinn
eftir annan í þessi 50 ár sem
söfnuðurinn hefir starfað.
Það hefir margt á dagana drif-
ið í þessi 50 ár síðan kirkja þessi
var reist.
Fjárhagslegir öruðleikar hafa
stundum blasað við en úr þeim
hefir ævinlega ræst, því söfn-
uðurinn hefir átt fórnfúsa menn
og konur, sem hafa oft lagt ríf-
lega fram fé til styrktar kirkju
og söfnuði.
Miklar o* fjárfrekar breyt-
ingar hafa farið fram á kirkju-
húsinu á þessum árum.
Árið 1931 var kór kirkjunnar
endurbyg'gður og stækkaður.
Síðan hefir kirkjan, sem áður
var þiljuð að innan með panel,
verið öll klædd með harðviði og
rafmagnshiti settur í hana, en
áður var hún hituð með kola-
ofni. Þá hefur forkirkjunni ver-
ið breytt mjögt til bóta, en það
varð að gera til þess að hægt
Séra Olafur Ólafsson
væri að koma fyrir pípuorgeli,
sem er hinn vandaðasti gripur.
Og loks á s. 1. ári hófust nokkrir
menn og konur, sem fermdir
voru fyrir 30 árum, handa um
að fá stóla í kirkjuna í stað
bekkjanna sem áður voru og
þóttu alltaf óþægilegir til að
sitja á, og gáfu til þess mikið
fé. I sambandi við þessar breyt-
ingar var svo kirkjan að innan
máluð á s. 1. ári.
Alt þetta og margt fleira sem
ekki er hér upptalið hefir kostað
mikið fé, svo hundruðum þús-
unda skiptir, en allt þetta hefur
blessast og greiðst úr fjárhags-
legum erfiðleikum með Guðs-
hjálp og góðra manna og þó að
dálitlar skuldir hvíli riú á söfn-
uðinum vegna þessara mörgu
aðgerða, þá verða einhverjir nú
eins og áður til að rétta fjárhag-
ihn við með gjöfum, og áheitum.
Innan safnaðarins er starfandi
kvenfélag og hefir það starfað í
tugi ára.
Það er orðið mikið fé sem það
er búið að leggja til kirkjunnar
á ýmsan hátt. Það hefir unnið
mjög að þvi að prýða kírkjuna
að innan, teppalagt gólf og kór-
inn, gefið altarisbúnað og messu-
klæði og fyrir nokkrum árum
lét það gera forkunnarfagran og
vandaðan hökul.
Ég ætla mér ekki þá dul að
telja upp allt það sem kvenfélag
safnaðarins hefir, gefið til kirkj-
unnar, en það er mikið. Núver-
andi formaður er frú Matthildur
Sigurðardóttir.
Þá er starfandi Bræðrafélag
innan safnaðarins og er það
sömu sögu um það að segja að
það hefir styrkt safnaðarstarf-
semina með drjúgum fjárfram-
lögum og svo hefir það beitt sér
fyrir því að lagfæra og prýða
lóðina umhverfis kirkjuna.
Formaður bræðrafélagsins er
Þórður Þórðarson, bæjarfultrúi.
Minningarsjóður á vegum
kirkjunnar var stofnaður, til
minningar um frú Guðrúnu Ein-
| arsdóttur er lengi var formður
kvenfélagsins og andaðist árið
1938.
| Hefir þessi sjóður oft hlaupið
undir bagga þegar fjárfrekar
aðgerðir hafa verið framkvæmd-
. ar, enda hafa safnaðarmeðlimir j
Imunað sjóð þennan þegar þeir \
minast látinna vina og vanda-
manna og fært honum minnigar-
gjafir.
Það hafa margir orðið til þess
að leggja hönd á plóginn til
þess að viðhalda starfi fríkirkju-
safnaðarins á þessum liðnu ár-
um og væri gaman að geta nafna
þeirra bæði karla og kvenna, en
þess er ekki kostur hér. En þó
vil ég ekki ljúka við þessar linur
svo að ég minnist ekki tveggja
manna er mjög hafa komið þar
við sögu.
Jón Þórðarson frá Hliði tók
við formennsku safnaðarstjórn-
arinnar á öðru starfsári safnað-
arins og gegndi því á meðan
heilsa og kraftar leyfðu, og svo
var hann meðhjálpari og um-
sjónarmaður kirkjunnar allt til
þess að kraftar hans biluðu.
Safnaðarstjórn Fríkirkjusafnaða-ins talið frá vinstri: Gísli Sigur-
geirsson, Guðjón Magnússon form., Jón Sigurgeirsson, Jónas
avdttlsson, Guðjón Jónsson.
Séra Jón Auðuns
Hann unni mjög þessari kirkju
og fórnaði kröftum sínum fyrir
hana.
Hinn maðurinn er Guðmund-
ar Einarsson, trésmíðameistari.
Hann var einn af stofnendum
safnaðarins og hefir komið mjög
við sögu þar. Hann var einn af
þeim er beittu sér fyrir byggingu
kirkjunnar í upphafi og það hafa
engar breytingar farið fram í
kirkjunni síðan svo að hann
Séra Kristinn Stefánsson
[hafi ekki verið með í ráðum og
| lagt þar hönd á plóginn og tekið
Mtið gjald fyrir. Þessum félög-
’ um s'vo og öllum er lagt hafa
' lið til eflingar og til að breyta
og prýða kirkjuna á liðnum ár-
um eru færðar þakkir á þessum
merku tímamótum. í kirkjunni
! starfar nú 16 manna blandaður
kór og er organiati frú María
Gísladóttir Neumann.
| Færðu kórfélagar kirkjunni á
s. 1. ári kyrtla að gjöf sem söng-
fólkið klæðist við allar kirkju-
legar athafnir.
Meðhjálpari er Kristinn J.
Magnússon, roálarameistari, og
er hann einnig umsjónarmaður
kirkjunnar.
Safnaðarstjórnina skipa nú:
Guðjón Magnússon, skósmíða-
meistari, og er hann formaður
safnaðarstjórnar og hefir verið
s. 1. 25 ár. Aðrir í stjórn eru:
Jón Sigurgeirsson, fulltrúi, gjald
keri„ Gísli Sigurgeirsson, heil-
brigðisfulltrúi, ritari, Jónas
Sveinsson, forstjóri, varaformað-
ur og Guðjón Jónsson, kaupmað
ur, varagjaldkeri.
Hálf öld er liðin síðan klukkur
þessarar kirkju kölluðu menn og
konur til tíða í fyrsta sinn.
Þær kalla ennþá unga og
gamla til húsa Drottins og gera
framvegis um ókomin ár.
Fríkirkjusöfnuðurinn býður
öllum Hafnfirðingum gleðilegra
jóla og góðs og farsæls nýs árs.
Gísli Sigurgeirsson.
Landskjörstjórn
og yf irkjörstjórnir
HINN 11. des. sl. kaus Alþingi
landskjörstjórn og yfirkjörstjóm
ir allra kjördæma landsins. Fóru
þessar kosningar þannig:
Landskjörstjórn
í landskjörstjóm voru kjörnir
af A-lista: Einar B. Guðmunds-
son, Björgvin Sigurðsson og Ein-
ar Arnalds. Af B-lista: Sigtrygg-
ur Klemenzson og Vilhjálmur
Jónsson.
Varamenn af A-lista: Gunnar
Möller, Páll S. Pálsson og Jón
Ingimarsson. Af B-lista: Guðjón
Styrkársson og Jón Grétar Sig-
urðsson.
Yfirkjörstjórn Vesturlands-
kjördæmis.
Kjörnir af A-lista: Hinrik Jóns
son, Jón Sigmundsson og Sveinn
Guðmundsson. Af B-lista: Þór-
hallur Sæmundsson og Þórður
Tómasson.
Varamenn: Friðrik Þórðarson,
Hjörtur Ögmundsson og Bjarni
Ólafsson. Af B-lista: Húnbcigi
Þorsteinsson og Magnús Sigur-
björnsson.
Yfirkjörstjórn Vestfjarða-
kjördæmis
Kjörnir af A-lista: Magnús
Amlín, Guðmundur Karlsson og
Þorgeir Hjörleifsson. Af B-lista:
Björgvin Bjarnason og Grímur
Arnórsson.
Varamenn af A-lista: Jónatan
Einarsson, Einar Steinþórsson og
Elías H Guðmundsson. Af B-
lista: Jón Á. Jóhannsson og Jón
Sigurðsson.
Yfirkjörstjóm Norðurlands-
kjördæmis vcstra.
Kjörnir voru af A-lista: Guð-
brandur ísberg, Sigurður
Tryggvason, Sveinn Þorsteinsson.
Af B-lista: Jóhann Salberg Guð
mundsson og Indriði Guðmunds-
son.
Varamenn af A-lista: Eyþór
Hallsson, Bjartmar Kristjánsson
og Kristján C. Magnússon. Af B-
lista Jóhann Jóhannsson og Sig
urður Gíslason.
Yfirkjörstjórn Austurlands-
kjördæmis.
Kjörnir af A-lista: Eirlendur
Bjönsson, Margeir Þórormsson og
Emil Jónasson. Af B-lista: Lúð-
vík Ingvarsson og Þorsteinn Sig
fússon.
Varamenn af A-lista: Reynir
Zoega, Guðlaugur Jónsson og
Guðmundur Vilhjálmsson. Af B-
lista: Guðmundur Þórðarson og
Óskar Helgason.
Yfiréjörstjórn Beykjanes-
kjördæmis.
Kjörnir af A-lista: Guðjón
Steingrimsson, Ólafur Bjarnason
og Asgeir Einarsson. Aí B-lista:
Björn Ingvarsson og Þórarinn
Þórarinsson.
Varamenn af A-lista: Kristinn
Wium, Hákon Kristjánsson og
Jóhann Þorsteinsson. Af B-lista:
Ilelgi Ólafsson og Ásgeir Sig-
urðsson.
Yfirkjörstjóm Norðurlandskjör-
dæmis eystra.
Kjörnir af A-lista: Ragnar
Steinbergsson, Einar Jónsson og
Sigurður Helgason. Af B-lista: Jó
hann Skaftason og Brynjólfur
Sveinsson.
Varamenn af A-lista: Þórhall-
ur Snædal, Guðmundur Þ. Bene-
diktsson og Sigurjón Jóhannes-
son. Af B-lista: Þórhallur Björns-
son og Steingrímur Bernharðs-
son.
Yfirkjörstjórn Suðurlands-
kjördæmis.
Kjörnir af A-lista: Freymóður
Þorsteinsson, Páll Björgvinsson
og Guðmundur Daníelsson. Af B-
lista: Páll Hallgrímsson og ísak
Eiríksson.
Varamenn af A-lista: Asgeir
Eiriksson, Einar Oddsson og Páll
Þorbjörnsson. Af B-lista: Sig-
geir Lárusson og Sveinn Guð-
mundsson.
Yfirkjörstjórn
Reykjavíkurborgar.
Kjörnir af A-lista: Kristján
Kristjánsson, Páll Lindal og
Eyjólfur Jónsson. Af B-lista;
Sveinbjörn Dagfinnsson og Ben«
dikt Sigurjónsson.
Varamenn af A-lista: Hörður
Þórðarson, Guðmundur Vignir
Jónsefsson og Lúðvík Gizurar-
son. Af B-lista: Jónas Jósteins-
son og Jónas Ólafsson.
HILMAR F05S
lögg. skjalaþ. og dómt.
Hafnarstræti 11 — Sími 14824
Lynghaga 4 Sími 19333