Morgunblaðið - 28.12.1963, Síða 17
Laugardagur 28. des. 1963
MORGUNBLAÐID
17
Katrín Björnsdóttir
frá Votmúla i Sandvikurhreppi
K.ATRÍN Björnsdóttir fyrrver-
andi húsfrú á Votmúla í Sand-
víkurhreppi er látin. Hún var
fædd 1. september 1882 á Bolla-
stöðum í Hraungerðishreppi. —
Foreldrar hennar voru hjónin
Björn Björnsson og Guðrún
Magnúsdóttir. Þau hjón eignuð-
ust sjö börn, fimm syni og tvær
dætur, og var Katrín ein úr
þeirra hópi. Hina dótturina
misstu þau fimmtán ára gamla,
en þau sex, sem eftir voru urðu
öll dugmikið sómafólk. Af þeim
er nú eftir tveir bræður, Ásgeir
á Selfossi og Ingvar trésmiður,
búsettur í Hafnarfirði.
Katrín ólst upp hjá foreldrum
sínum þar til hún stofnaði sitt
eigið heimili. Foreldrar hennar
fluttust strax til hennar og voru
hjá henni það sem eftir var ævi
þeirra.
Katrín giftist 15. nóvember
1907, Gissuri Gamaelssyni frá
Votmúla, góðum manni, sem
kunni vel að meta hana. Sama
árið reistu þau bú á Votmúla
og bjuggu þar til ársins 1934, þá
fluttust þau að Selfossi og byggðu
þar hús. Þá voru ekki skipu-
lagðar götur á Selfossi, og varð
að gefa hverju húsi nafn. Þau
nefndu húsið sitt Múla til minn-
ingar um þá jörð, sem þau höfðu
búið svo lengi á, og höfðu tekið
mikla tryggð við, enda var Giss-
ur þar fæddur og uppalinn.
Á Votmúla var tvíbýli og stóð
bær foreldra minna rétt við
þeirra bæ og voru þeir aðgreind-
ir sem Austurbær og Vesturbær.
Foreldrar mínir bjuggu í Vest-
urbænum. Fáir lofa einbýlið eins
og vert er segir gamalt máltæki,
en á því vil ég gera undantekn-
ingu. Þetta sambýli var alveg
árekstralaust, og var fremur tal-
inn kostur en ókostur. Það líkt-
ist því meira að vera eitt heim-
ili og vildi hver greiða götu ann-
ars.
Búskapur Gissurar og Katrín-
ar var um margt til fyrirmynd-
ar. Búið var ekki stórt, en snot-
urt. Alltaf var gætt hófs í öllu,
að fara aldrei lengra en geta
goldið hverjum sitt, snyrti-
mennska í öllu og hver hlutur á
sínum stað. Þar var lesinn hús-
lestur hvern helgan dag og sálm-
ar sungnir, því bæði voru þau
hjónin gott söngfólk. Gestrisni og
ar um lengri eða skemmri tíma,
og var hún þeim öllum sem bezta
móðir. Þegar Katrín fann ævi-
kvöldið nálgast tók tún því með
ró og æðruleysi. Hún hafði til-
einkað sér orð sálmaskáldsins:
„Ég ferðast og veit hvar mín för
stefnir á,
ég fer til Guðs himnesku landa.“
Samkvæmt því hafði húh starf-
að og aldrei eitt augnablik efast
um hvert leiðin lægi.
Tilgangur minn með þessum
línum er að flytja henni þakkir
frá mér og systkinum mínum fyr
ir langa sambúð, hjálpsemi við
okkur sem börn og órofa tryggð
alla tíð. Dætrum hennar og okk-
ur var kennt að umgangast hvert
annað sem systkini, og höfum við
alla tíð litið á okkur sem upp-
eldissystkini.
Katrín andaðist 18. nóv. í
sjúkrahúsinu á Selfossi og var
jarðsett 23. nóv. að viðstöddu fjöl
menni og var lögð við hlið manns
síns í Laugardælakirkjugarði.
Með Katrínu er gengin merk
kona, grandvör í orðum og störf-
um, kona sem ekki vildi vamm
sitt vita í neinu.
Ég kveð hana með þakklæti og
söknuði með orðum hins mikla
sálmaskálds: „Far þú í friði, frið-
ur Guðs þig blessi, hafðu þökk
fyrir allt og allt.“
Sigurður Þórðarson.
Bjarni Kjartan Kjartansson
góðvild var hverjum manni sýnd
sem að garði bar. Það þykir víst
ekki frásagnarvert nú til dags að
tala um gestrisni, en þá voru
vegalengdir meiri og önnur far-
artæki, og voru menn oft þurf-
andi fyrir góða aðhlynningu. Því
segi ég þetta hér að Katrín og
aðrar samtíðarkonur hennar
gleymast ekki þeim, sem gest-
risni þeirra nutu, þegar þeir
komu á heimili þeirra oft svang-
ir og illa til reika.
Katrín og Gissur eignuðust
tvær dætur, sem báðar eru bú-
settar á Selfossi, Jónu, gifta Ró-
bert Jensen, starfsmanni hjá
Mjólkurbúi Flóamanna og Guð-
rúnu, gifta Sigursteini Ólafssyni,
starfsmanni hjá Kaupfélagi Ár-
nesinga.
Mann sinn missti Katrín 12.
nóvember 1947 eftir farsæla sam-
búð þeirra hjóna. Eftir það dvaldi
hún hjá dætrum sínum og
tengdasonum, sem hún mat ekki
síður en dæturnar. Hún hafði þá
ánægju að hlúa að barnabörn-
um sínum í bernsku þeirra, enda
naut hún í ríkum mæli umhyggju
þeirra, þegar þau voru orðin full-
orðið fólk.
Katrín var ein af þessum hljóð-
látu konum, sem lét lítið á sér
bera. Hún helgaði heimilinu alla
sína krafta, var trygg og vinföst
og örugg í allri framkomu og
góður fulltrúi sinnar samtíðar.
Oft dvöldu börn á heimili henn-
F. 6. ágúst 1952
D. 30. okt. 1963
Kveðja frá frænku.
ÞÚ ert farinn, litli frændi, horf-
inn svo skyndilega burt af sjón-
arsviði þessa heims. Það er svo
erfitt að átta sig á því að þetta
skuli raunverulega hafa skeð, að
nú sé aldrei framar von á litlum
dreng, sem stundum kom í heim-
sókn, og þá var eins og sólskin
færðist yfir, þegar ljósi kollurinn
þinn birtist í dyrunum, og mér
fannst eins og ég væri einhvern
veginn svo miklu ríkari þessar
stundir, sem þú stóðst við, já,
þú varst eins og sólargeisli sem
kemur — og fer.
Enginn getur misst mikið,
nema sá sem mikið hefur verið
gefið. Þú varst mikil gjöf, því er
missirinn mikill. Þú, sem varst
svo fallegur, hraustur og efnileg-
ur, bæði til sálar og líkama, og
svo skilningsríkur og tillitssam-
ur við þína nánustu.
Það er svo erfitt að skilja
hvers vegna þú varst hrifinn svo
snögglega burt, — en „vegir Guðs
eru órannsakanlegir.“ Máske
hefur þín hreina, saklausa barns-
sál verið of viðkvæm til að
hrekjast í þessum heimi, og nú
finnst mér svo mikil huggun í
þessum orðum: „Drottinn gaf og
Drottinn tók, blessað veri nafn
Drottins.“ Ég trúi því, að almátt-
ugur guð muni nú vissulega sjá
þér fyrir góðum stað í sínum
heimkynnum.
Minningin um þig, litli Bjarni,
minnir á sólbjart sumar, þrungið
angan fagurra blóma.
Farðu sæll til æðri heima,
hafðu þökk fyrir samverustund-
irnar á þessari jörð.
L. B.
Kveðja frá R. J.
Nú sáran harm í brjósti mér ég
ber,
hann búa mun þar alla lífsins
daga.
En ráðsályktun Drottins aldrei er
til einskis gerð, né mönnunum
til baga.
Já, það var sárt að sjá á eftir þér,
og sorgin nýstir ástvinanna
hjörtu.
En það er bót og huggun ætíð er
að eiga minningarnar ljúfu og
björtu.
Þú komst sem geisli í Kópavog til
mín.
Þú komst og vildir gleðja frænku
þína.
Þá brostu við mér blessuð augun
þín.
Þau birtu sendu yfir vegferð
mína.
Þú ötull varst og áttir djarfa lund
og allt sem mátti prýða góða
drenginn.
Þú varst til yndis þessa stuttu
stund
unz sterklega var kippt í lífsins
strenginn.
Og styrkur fórstu inn á starfsina
leið,
á stuttri ævi fékkstu margt að
sýna.
Til náms og lista gatan var þér
greið
til gleði fyrir hana mömmu þína.
Frá móðurhjarta þér ég þakkir
ber
og þúsundfaldar kveðjur allra
hinna.
í hinzta skipti kvatt þó aldrei er
þig aftur megum vinur, sjá og
finna.
Ég ætti að huggast elsku Bjarni
minn,
nú eilíf gleði býr í þínu hjarta.
Því ertu sæll, ég veit það vinur-
inn
og við þú leikur englaskarann
bjarta.
F. K.
Tilkynning frá
Hafnarfjarðarhöfn
Þeir, sem enn eiga ógreidd gjöld til Hafnarsjóðs
Hafnarfjarðar eru áminntir um að gera fullnaðar-
skil fyrir n.k. áramót. Að öðrum kosti geta menn
búist við að lokað verði fyrir afgreiðslu til skipa
þeirra við höfnina án frekari fyrirvara.
Hafnarfrði, 23. des. 1963.
Hafnarstjóri.
Landsmálafélagið Vörður
Landsmálafélagið Vörður
JOLATRÉSSKEMMTANIR
félagsins verða í Sjálfstæðishúsinu, sunnudaginn 29. og mánudaginn 30. desember, kl. 3—7 e.h.
Aðgöngumiðar seldir í skrifstofu Sjálfstæðsflokksins 27. og 28. desember kl. 09.00—17.00 og sunnu-
daginn 29. kl. 11—12 fh og 13—15 eh.
Skemmtinefndin.
4