Morgunblaðið - 09.01.1964, Síða 13

Morgunblaðið - 09.01.1964, Síða 13
Fimmtudagur 9. ían. 1964 13 liíUOnGUNBLAÐIÐ NYARSFRETTIR hverjuan viðvart. Þegaar Brown kom aftur, var hann bundinn og keflaður á ný, en ræningjarnir höfðu sig á brott. Eva Gabor fékk taugaáfall og dvelur nú í sjúkrahúsi. EKKI hafði töppuim fynr ver- ið skotið úr kampavínsflös.k- unum um áramótin í Frakk- landi, en kosin var ný fegurð- ardirottning þar í landi. Krýn- ingin fór fram í fjörugum ný- ársfagnaði í París. Sú sem fyrir valinu varð, heitir Arlette Deduc, rúmlega tvit- ug sýningarstúlkci, 1 j óshærð Ungfrú Frakkland 1964 og döfakeygð. Og srvo við lít- um á málstokkinn, þá kemiur í ljós, að hæð hennar er 1,69 metri, og ummál: 89-62-91. ★ En í Englandi bar það helzt tíðinda, að Mandy Rice- Davies efndi til nýársfagnaðar og meðal boðsgesta voru: Profumo fyrrum hermálaráð- herra og Denning dómarL Hvorugur mætti. Mandy hefur undanfarið verið að skrifa ævisögu sína, ^ sem er væntanleg í byrjun þessa árs. Ber bókin titilinn: „After Dennings — Mandy Report“. — Vinkona hennair, hin umtalaða Christine Keel- er, mætti hinsvegar nýju ári í kvennafangelsi. ★ Finnska sjónvarpið bauð áhorfendum sínum að sjá nýstárlegan þátt milli jóla og nýárs, sem nefndisit: Syngj- andi sendiherra. Ameriski sendiherrann í Finnlaindi Carl T. Rowan birtist á skermin- um, ásamt karlakór (sem all- ir voru starfsmenn sendiráðs- ins), og sungu þeir nofakra jólasálma — á fisnnsku. Finn- arnir voru yfir sig hrifnir af þættinum. Hinn söngelski sendiherra (sem er blöfatou- maður) komst nýlega í heirns- fréttirnar skömmu eftir dauða Kennedys forseta, þeg- ar Pierre Salinger blaðafull- trúi Hvíta hússins lýsti því yfir, að hann mundi aldrei vinna fyrir Johnson forseta. Var þá almennt talið að Rowan yrði skipaður eftir- maður hans. Salinger skipti þó um skoðun, og Rowan var kyrr í Finnlandi, þar sem hann nýtur mikilla vinsælda. ★ Áramótin eru lí&a tími gift- inga og trúlofana. Að þessu sinni vakti það mesta athygli, þegar söngdrottningin á Broad way, Ethel Merman, tilkynnti, að hún ætlaði að gifta sig í júlí næstkomandi — í fjórða sinn. Og sá hamingjusami væri Ernest Borgnine, sem er fræigur kvikmyndaleikari og hlaut á sínum tíma óskars- verðlaunin fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Marty“. Ethel Merman verður 55 ára í næsta mánuði. Fyrrver- andi eiginmenn hennar eru: William Smith, uimboðsmað- ur, Robert Levitt, dagblaðs- framkvæmdastjóri og Robert Six, flugfélagsframifavæmda- stjóri. Ernest Borgnine er heldur enginn viðvaningur heldur í þessurn efnum. Hann hefur áður verið kvæntur stúlku frá Brooklyn, Rlhoda Kemins að nafni, og ennfremur mexí- kanskri leikfaonu, Katy Jur- wm Ann-Margret ■SiiSS Ethel Merman og unnustinn I : ....... '| VAÍAV.'X.'VA'. V..VA'.. iR Rowan syngur í sjónvarpið ando, og var hjónaband þeirra æði stormasamt. Hann er 46 ára að aldri. Bæði segja þau, að þetta sé fyrsta, sanna ástin. ★ Frá Madrid bárust þær fregnir á annan dag nýárs, að leikkonan Claudia Cardinale hefði verið hætt komin, þegar eldur varð laus í tjaldi sem leikkonan var stödd í. Claudia var að leika í kvifamyndinni „Circus World“ og hápunkt- ur myndarinnar var eldsvoði. En vegna óhagstæðs veðurs varð eldsvoðinn einum of raunverulegur, og logandi segldúkur feyktiist inn á svið- ið. Claudia tók til fótanna og hið sama gerði Rita Hayworth (sem í myndinni leikur móð- ur Claudiu), eiginmaður henn ar Henry Hathaway (sem er stjórnandi mymdarinnar), — John Wayne og 75 tæknifræð- ingar. Fílar og ljón forðuðu sér undan eldinum og það var mikið verk að korna þeim fyrir í búrum sinum á ný. — Jöhn Wayne sagði eftir á: „Það eina sem skynsamlegt var að gera, var að hlaupa, og sækja handslöfakvitækin. Við vorum heppin að þau voru tiltæk'— annars er ómögulegt að segja hvernig farið hefði. ★ Sá atburður gerðist í Miami, Florida, laugardagskvöldið milli jóla og nýárs, að Eva Gabor, sem er yngst hinna frægu Gabor-systra, var rænd geysiverðmœtum demants- hring, 38 minni demöntum og smávegis fjárupphæð. Ránssagan er svohljóðandi: Þegar Eva Gabor kom í íbúð sína í Racquet Club skömmu eftir miðnætti, ásamt Riohard Brown, var hún barin með byssuskefti í ennið. Hún hljóðaði, en var bundin og kefluð. Sömu meðferð féfak Brown. Ræningjarnir létu nú greip- ar sópa um íbúðina, rifu eyrn arlokka og aðra skartgripi af Evu. Síðan leystu þeir Brown og skipuðu honum að sækja verðmætan trúlofunar- hring, sem Gabor geymdi í eld- og þjófvarðri hirzlu hót- elsins. Héldu þeir Evu sem gísl og sögðu að hún yrði höfðinu styttri, ef hann kæmi ekki einn aftur eða gerði ein- af léttara Sænsk-ameríska leiifafaonan Ann-Margret var efakert á- nægð á gamlársdag. I>ann dag afihentu blaðakonur í Holly- wood henni „súra eplið“, þ.e.a.s. hún væri ósamstarf- þýðust allra leikkvenna borg- arinnar þetta árið. Ann-Margret upplýsti, að hún hefði átt yfir 185 viðtöl við blöð og tímarit, setið fyrir hjá ljósmyndurum, sem út- bjuggu myndaseríur af henni, 32 sinnuim, tvisvar farið í auglýsingaferðir vegna frum- sýningar kvikmyndarinnar „Bye, Bye, Birdie“ og einu sinni farið til Evrópu og hald- ið þar blaðamannafund. — Það væri því ósanngjarnt að láta hana nú bíta í súra eplið. ★ Johnson Bandarikj aforseti sneri dóttur sinni, Lyndu Bird, í hring, svo blaðamenn í Johnson City gætu séð kjól- inn hennar. Forsetinn keypti kjólinn handa henni í Finn- landi í haust, þegar þau voru þar á ferðalagi, og sniðið er mjög í tízku í Bandaríkjunum meðal skólastúlkna um þessar mundir. Johnson sýnir blaðamönnum Lyndu Bird í finnska kjólnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.