Morgunblaðið - 15.01.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.01.1964, Blaðsíða 1
24 *íður Geir Hallgrimsson borgarstjori leikur fyrsta leikinn a Reykjavíkurmótinu í skák. Hann leikur fyrir Svein Johannessen gegn Michael Tal fyrrverandi heimsme istara. Sjá blaffsíðu 3. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.) Upplýsingaherferð um skaðsemi reykinga Reykingar bannaðar í Eastland, Texas (Sjá bls. 12 og 13 um við- brögðin í Reykjavík) Washington og Eastland, 14. jan. (NTB). SKÝRSLA bandarískra vís- indamanna um áhrif sígarettu reykinga á heilsu manna hef- ur vakiff mikla athygli, en þar segir m. a. að reykingar séu ein affalorsök krabbameins í lungum. Ekki hefur þó enn boriff á því aff sala á sígarett- um hafi minnkaff. IHnsvegar er búizt við aff heilbrigðis- yfirvöldin gangist fyrir því aff hafin verði kennsla í unglingaskólum, þar sem bent er á skaffsemi sígarettureyk- inga, og vífftsek herferð verffi hafin gegn sígarettureyking- um. í frétt frá bænum Eastland í Texas segir aff bæjarstjórn- in hafi nú bannaff sígarettu- sölu og reykingar innan bæj- arlandsins. Brot á þesum nýju reglum varffa allt aff þriggja ára fangelsi og 1.000,- dollara (kr. 43 þúsund) sekt. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum í Washington munu heilbrigðisyfirvöldin þar, í samvinnu við ýmsar heilbrigðisstofnanir, standa fyrir víðtæfcri fræðslu um skaðsemi sígarettureykinga, og verður lögð megináherzla á að ná til skólaæskunnar. V e r ð u r upplýsingaherferð þessari hagað svipað og þegar leitazt var við að fá alla Bandaríkjamenn til að láta bólusetja sig gegn lömunar- veiki fyrir nokfcrum árum. En sú herferð varð mjög ár- angursrík. Bent er á, að þótt s k ý r s 1 a vísindamannanna dragi ekki í efa skaðsemi sígarettureykinga, sé ólíklegt að samþykkt verði lög er miði að því að draga úr reyking- um. Dagblaðið New York Times skýrir frá því í dag að við- skiptamálanefnd stjórnarinn- ar sé að undirbúa miklar tak- markanir að því er varðar aug lýsingar á sígarettum. Segir blaðið að reynt verði að banna Framh. á bls. 2. Fiskimálaráðstefnan 1 London: Undirnefnd vinnur að tillögum varðandi fiskveiðilögsögu London, 14. jan. (AP—NTB) • Á fiskimálaráðstefnu þeirri sem fulltrúar 16 Evrópuríkja sitja um þessar mundir í Lond on, var í dag skipuð undir- J nefnd til að gera tillögur um ; fiskveiðilögsögu og landhelgi hjá löndum þeim, sem liggja j nð Norðursjó og Norður Atl- ' antshafi. Fyrir nefndinni ligg ur tillaga frá Efnahagsbanda lagsríkjunum sex og Bret- landi. Talið er að í tillögu þessari sé gert ráð fyrir 3 mílna landhelgi og 6 til 12 mílna fiskveiðilögsögu, en tillagan hefur ekki verið birt. j Varla er búizt við að brezka tillagan nái fram að ganga, enda hafa bæði ísland og Noregur fært út lögsögu sína í 12 núlur. Ekfci ber fréttum saman um efni tillögu þeirrar, sem Bretar og Efnahagsbandalagslöndin sex — Frakkland, Vestur-Þýzkaland, Ítalía, Belgía, Holland og Lux- embourg — hafa lagt fram. í sumum fréttum er talið að hér sé um að ræða sex mílna land- helgi og 12 mílna fiskveiðilög- sögu með undanþágum, en 1 öðrum fréttum þriggja mílna landhelgi, sex milna fiskveiði- lögsaga, að viðbættum öðrum sex mílurn, þar sem hefðbundnar fiskveiðar útlendra fiskiskipa eru 'heimilar samkvæmt nánara sam komuilagi. En hvort heldur er, yrðu þessar tillögur til þess að útiloka rússnesk og pólsk fiski- sikip flrá víðáttumikiium fiski- miðum á Norðursjó. Fulltrúar Norðurlandanna og írlands hafa allir lagt áhrezlu á að fá 12 mílna lögsögu viður- kennda, að minnsta kosti að því er varðar þau lönd, sem þegar hafa tekið sér þá lögsögu. Þá leggja Danir áherzlu á að 12 mílna mörkin fáist staðfest við Færeyjar og Grænland. Fáist sú viðurkenning ekki má búast við að ráðstefnunni ljúki án samninga. Þá er iíklegt að Bretar færi út lögsögu sína án samráðs við aðrar þjóðir, en taki síðan upp samninga við lönd Efna- hagsbandalagsins um undanþág- ur til veiða í ytra sex-mílna belt- inu. Enginn fundur verður á ráð- stefnunni á morgun, en nefndin, sem skipuð var í dag, mun kynna sér efni brezku tillögunn- 114 farast í óve&ri New York, 14. jan. — AP MIKIÐ óveður hefur geng- ið yfir austurhluta Banda- ríkjanna undanfarna tvo sólarhringa. Hefur vind- hraðinn komizt upp í 100 km á klst., og snjórinn víða safnazt í sex metra háa skafla. Vitað er um 114 manns, sem látizt hafa í ó- veðrinu. Skólum hefur víða verið lokað vegna ófærðar og einnig flugvöllum og verzl- num. Um 3 þúsund ferða- menn urðu að gista á Kennedy-flugvelli í New York í nótt eftir að öll um- ferð um völlinn stöðvaðist vegna snjóskafla. í Pennsylvaníu neyddust um 250 nemendur til að gista í menntaskóla sínum í nótt, og líkaði það síður en svo illa. Aðspurður um aðbúnaðinn í skólanum, svaraði einn af nemendunum aðeins: „Niður með snjóplóga. Þetta er mesta „svíngpartí“ ársins“. Heldur dró úr snjókom- unni í dag, en vindhraðinn var óbreyttur og frost mikið. Þús- undir ferðamanna komust ekki leiðar sinnar og urðu að leita hælis í yfirfullum gisti- húsum og opinberum bygg- ingum. Snjókoman náði allt suður til Florida, þar sem nú snjó- aði í fyrsta skipti á sex árum. Jacqueline Kennedy þakkar samúðarkveðjur Washington, 14. janúar (AP—NTB) Frú Jacqueline Kennedy, ekkja Kennedys forseta, kom í dag í fyrsta skipti fram opinberlega frá því að mað- ur hennar var myrtur í Dall- as í nóvember s.l. Var tilefn- ið að þessu sinni að þakka þau átta hundruð þúsund bréf og samúðarkveðjur, sem henni hafa borizt víða að úr heiminum. Flutti frú Kennedy þafckir sin ar í ávarpi, sem útvarpað var frá skrifstofu Roberts Kenne- dys dómsmálaráðherra, bróður forsetans heitins. — „Vitneskjan um það hve vel Framh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.