Morgunblaðið - 15.01.1964, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.01.1964, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 15. jan. 1964 MORCU N BLAÐIÐ 3 STAKSTEIIVAR Nona Gaprindashvili heimsmeistari kvenna leikur gegn Trausta Björnssyni. Kornyrkfa og ríkisstyrkur Fyrir tilstuðlan landbúnaðar* ráðherra hafa að undanförnu farið fram umfangsmiklar til- raunir með kornrækt. Hafa til- raunir þessar verið á vegum At- vinnudeildar háskólans og m.a. w framkværr.iar í GunnarsholtL Úr því hefur enn ekki verið skor ið, hve arðvænleg kornrækt gæti orðið í framtíðinni og því sjálf sagt að halda tilraunum áfram, þó að ekki séu allir jafn bjart- sýnir á árangur og hinir stór- huga athafnamenn, sem þegar hafa hafið verulega kornrækt. Reykjavíkurmótið í skák hafið SKÁKMÓT Reykjavíkur 1964 hófst í gærkvöldi kl. 19.30 í Lídó. Fjöldi áhorfenda var saman kominn, er keppnin byrjaði. Ásgeir Þór Ásgeirs- son, forseti Skóksambands fs- lands, flutti ávarp og fagnaði því, að svo ágætir erlendir skákmenn skyldu taka þátt í mótinu. Kvaðst hann vona að Reykjavíkurmótið ætti eftir að vinna sér svipaðan orðstír á alþjóðavettvangi eins og t.d. skákmótið í Hastings. Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, setti mótið. Kvað hann skák göfuga og þroskandi í- þrótt, þar sem báðir keppend- ur hafa jafna stöðu í byrjun, jafnstóran mannafla og engu að treysta nema greind sjálfs sín, kunnáttu og kjarki. — í skák skipti það ekki máli, d4). Hófst þá baráttan á öll- um borðum. „Við skulum vona, að Jo- hannessen kenni þér ekki um, ef illa fer“, sagði Ásgeir. „Við vorum nú búnir að hvíslast svolítið á um leikinn", svaraði borgarstjóri. „Teflið þér?“ spurði frétta- maður Morgunblaðsins borgar stjóra. „Ég get nú varla sagt það. Ég kann að vísu manngang- inn, en þegar ég var í skóla með Ásgeiri var hann orðinn svo góður, að við hinir áttum of litla vinningsmöguleika og tók að leiðast skák. Síðan hef ég lítið teflt“. Spilakvöld Sjálfstæðisfélag Garða- og Bessastaðahrepps heldur spila- kvöld fimmtudaginn 16. janúar nk. í samkomuhúsinu á Garða- holti. Góð kvöldverðlaun verða veitt. — Fjölmennið. Arnessýsla SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Hug- inn í uppsveitum Árnessýslu held ur aðalfund sinn í Aratungu föstudaginn 17. janúar klukkan 21. Fundarefni: Venjuleg aðal- fundarstörf, ræður flytja Ingólf- ur Jónsson, landbúnaðarráðherra, og Sigurður Óli Ólason, alþingis- maður. Salaam í dag, að enn hafi legið lík á götunum þegar þeir fóru frá eyjunni. Auk Bandaríkjamanna flutti tundurspillirinn Manley nokkra Breta, Frakka, Þjóðverja, ítali og Hollendinga frá Zanzibar. Bar mörgum þeirra saman um að hafa séð byltingarmenn klædda kúbönskum einkennisbúningum, og sögðu sumir að svo hefði virzt sem þessir nenn hafi verið forustumenn byltingarinnar. — Nokkrir útflytjendanna frá Zanv.i bar greina einnig frá hryðjuverk um á eyjunni, og segja byltingar menn aðallega hafa misþyrmt blökkumönnum, en látið menn af arabiskum ættum í friði. Öll- um ber saman um að byltingar- Hin rétta stefna Það hefur verið stefna land- búnaðarráðherra að láta hið opin bera styðja ríflega tilraunir með komyrkju til að freigta að fá úr því skorið, hvaða afbrigði henti bezt íslenzkum staðháttum, og hver séu líklegust til að stand- ast bezt mislyndi íslenzkrar veðr áttu. Með framsýnu starfi þraut- góðra ræktunarmanna hefur mikið áunnizt í þessum efnum. En mikið starf er enn óunnið, ef takast á að komast að hald- góðum, óyggjandi niðurstöðum, sem bændur almennt geta byggt á í framtíðinni. Álit búnaðarmálastjóra Svo er að sjá, sem sumir ráða- menn Framsóknar í landbúnað- armálum séu að komast á þessa skoðun — eða hafa máske alltaf haft hana, enda þótt þeir hafi ekki fengið að njóta sín. Til þess benda eftirfarandi ummæli nú- verandi búnaðarmálastjóra, sem birtust í „Tímanum“ skömmu eftir áramótin: „Ég hef aldrei verið bjartsýnn á hana, (þ. e. konræktina) og ég geri ráð fyrir, að nokkuð hafi dregið úr áhuga á henni. Það er að mínum dómi lítil von til þess að ísland vcrði gott kornræktar land. Eg kalla gott, ef hægt væri að rækta nokkurt korn í veðursælustu sveitum með því að leggja sig sérstaklega fram en ég tel lítil líkindi til að bænd- ur hafi hagnað af kornrækt í lengd. Landið er grasræktarland. En það er sjálfsagt að ganga úr skugga um með tilraunum hvort það er vit fyrir bændur að leggja fjármuni sína í korn- rækt“. Úlfaldinn og mýflugan Oft er svo að orði komizt, að einhver reyni að gera úlfalda úr mýflugu, og vita þá allir, við hvað er átt, enda þótt bæði úlfaldi og mýfluga séu notuð þar í óeiginlegri merkingu. Hitt er sjaldnar, að reynt er að gera mýflugu úr úlfaldanum, en þó getur manni ekki dottið önnur líking í hug, þegar þess er minnzt, með hverjum hætti SÍS- herrarnir brugðust við fyrstu fregnunum af olíumálinu. Hinn nýfallni dómur í því er öllum í fersku minni. — Það var eitt vorið fyrir nokkrum árum, þegar sól var hæst á lofti, að aðalfundur SÍS var haldinn í Bif röst i Borgarfirði. í skýrslu sinni gat einn forstjórinn um árásina á hið kæra dótturfélag ESSÓ. Og til marks um það, hve þessar árásir væru ómaklegar — jafn- vel mannvonzkulegar — gat hann þess, að ekki mundi um annað og meira misferli að ræða en láðst hefði að gjalda lög- boðinn toll af einum kassa með nokkrum brúsum af frostlegi!! það voru nú ÖU ósköpin! Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, tekur í hönd Michaels Tal, fyrrverandi heimsmeistara. Milli þeirra stendur Svein Johann- essen. hvort keppandinn væri af smáþjóð eða stórri, heldur að- eins hæfni einstaklingsins. Bauð hann erlendu gestina vel komna til Reykjavíkur og kvaðst vona að dvöl þeirra hér yrði sem ánægjuríkust. Keppendur tóku sér síðan sæti. Átti Svein Johannessen að tefla við Michael Tal, fyrr- verandi heimsmeistara. Lék borgarstjóri fyrsta leikinn fyr ir Johannessen, drottningar- peðinu fram um tvo reiti (d2— Júgóslavneski stórmeistarinn Svetozar Gligoric teflir við Jón Kristinsson. Utlendingar flýja Zanzibar Gruna Castro um aðild að byltingunni Bretcu neita að viðurkenna nýju stjórnina London og Dar es Salaam, Tanganyika, 14. jan. (AP— NTB) DUNCAN Sandys, sam- vcldismálaráðherra Breta, skýrði frá því í neðri mál- stofu brezka þingsins í dag að brezka stjórnin gæti ekki að svo stöddu veitt byltingar- stjórninni á Zanzibar viður- kenningu, því lítið væri enn vitað um byltinguna og bverjir stæðu bak við hana. Bandaríski tundurspillir- Inn Manley kom í dag til Dar es Salaam í Tanganyika frá Zanzibar með rúmlega 60 starfsmenn bandaríska sendi ráðsins og starfsmenn við geimathugunarstöð á Zanzi- bar. Segja Bandaríkjamenn- irnir að meðal byltingamanna hafi verið margir spænsku- mælandi menn, sem búnir hafi verið einkennisbúning- um líkum þeim, er Castro- sinnar nota á Kúbu. í ræðu sinni í brezka þinginu sagði Sandys að skki kaami til greina að veita byltingarstjórn- inni á Zanzibar viðurkenningu fyrr en ítarlegri upplýsingar hefðu borizt um byltinguna. En brezku stjórninni hafði áður bor- izt símskeyti frá Zanzibar, sem undirritað var „John Okelo, yfir- herstjóri lýðveldisins Zanzibar“, þar sem óskað var viðurkenn- ingar Breta. Einniig skýrði Sandys frá því ab Julius Nyerere, forseti Tang- anyika, hafi lýst því yfir að Seyyid Jamshid bin-Abdullah, fyrrum soldán í Zanzibar, sem flýði land um helgina, geti fengið hæli í Tanganyika. Soldáninn er nú um borð í snekkju sinni út af strönd Tanganyika, en var bönnuð landganga í Kenya á mánudag. Nyerere hélt í dag til Nairobi í Kenya til fundar við þá Kenyatta forsætisráðherra Kenya og Milton Obote, forsætis ráðherra Uganda, sem báðir hafa viðurkennt nýju stjórnina á Zanzibar. Ræða þeir um bylt- inguna. í frétt frá Zanzibar segir að Abeid Karume, forseti byltingar- stjórnarinnar, hafi lýst því yfir að byltingunni væri farsællega lokið. Ennfrem-ur segir að nýi forsætisráðherrann, Kassim Hanga, hafi óskað eftir vinsam- legri sambúð við öll ríki, og jafnframt lýst því yfir að bylt- ingarstjórnin skipti ekki ríkjum heims í vini og óvini. Opinberlega hefur verið til- kynnt á Zanzibar að sex menn hafi fallið í byltmgunni og um 200 særzt. En búizt er við að tala fallinna eigi eftir að hækka veru lega. Segja sumir Bandaríkji- mannanna, sem komu til Dar es

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.