Morgunblaðið - 15.01.1964, Side 1
24 *íður
Geir Hallgrimsson borgarstjori leikur fyrsta leikinn a Reykjavíkurmótinu í skák. Hann leikur
fyrir Svein Johannessen gegn Michael Tal fyrrverandi heimsme istara. Sjá blaffsíðu 3.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Upplýsingaherferð um
skaðsemi reykinga
Reykingar bannaðar í Eastland, Texas
(Sjá bls. 12 og
13 um við-
brögðin
í Reykjavík)
Washington og Eastland,
14. jan. (NTB).
SKÝRSLA bandarískra vís-
indamanna um áhrif sígarettu
reykinga á heilsu manna hef-
ur vakiff mikla athygli, en þar
segir m. a. að reykingar séu
ein affalorsök krabbameins í
lungum. Ekki hefur þó enn
boriff á því aff sala á sígarett-
um hafi minnkaff. IHnsvegar
er búizt við aff heilbrigðis-
yfirvöldin gangist fyrir því
aff hafin verði kennsla í
unglingaskólum, þar sem bent
er á skaffsemi sígarettureyk-
inga, og vífftsek herferð verffi
hafin gegn sígarettureyking-
um.
í frétt frá bænum Eastland
í Texas segir aff bæjarstjórn-
in hafi nú bannaff sígarettu-
sölu og reykingar innan bæj-
arlandsins. Brot á þesum nýju
reglum varffa allt aff þriggja
ára fangelsi og 1.000,- dollara
(kr. 43 þúsund) sekt.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum í Washington
munu heilbrigðisyfirvöldin
þar, í samvinnu við ýmsar
heilbrigðisstofnanir, standa
fyrir víðtæfcri fræðslu um
skaðsemi sígarettureykinga,
og verður lögð megináherzla
á að ná til skólaæskunnar.
V e r ð u r upplýsingaherferð
þessari hagað svipað og þegar
leitazt var við að fá alla
Bandaríkjamenn til að láta
bólusetja sig gegn lömunar-
veiki fyrir nokfcrum árum.
En sú herferð varð mjög ár-
angursrík. Bent er á, að þótt
s k ý r s 1 a vísindamannanna
dragi ekki í efa skaðsemi
sígarettureykinga, sé ólíklegt
að samþykkt verði lög er miði
að því að draga úr reyking-
um.
Dagblaðið New York Times
skýrir frá því í dag að við-
skiptamálanefnd stjórnarinn-
ar sé að undirbúa miklar tak-
markanir að því er varðar aug
lýsingar á sígarettum. Segir
blaðið að reynt verði að banna
Framh. á bls. 2.
Fiskimálaráðstefnan 1 London:
Undirnefnd vinnur
að tillögum varðandi
fiskveiðilögsögu
London, 14. jan. (AP—NTB) •
Á fiskimálaráðstefnu þeirri
sem fulltrúar 16 Evrópuríkja
sitja um þessar mundir í Lond
on, var í dag skipuð undir- J
nefnd til að gera tillögur um ;
fiskveiðilögsögu og landhelgi
hjá löndum þeim, sem liggja j
nð Norðursjó og Norður Atl- '
antshafi. Fyrir nefndinni ligg
ur tillaga frá Efnahagsbanda
lagsríkjunum sex og Bret-
landi. Talið er að í tillögu
þessari sé gert ráð fyrir 3
mílna landhelgi og 6 til 12
mílna fiskveiðilögsögu, en
tillagan hefur ekki verið birt. j
Varla er búizt við að
brezka tillagan nái fram að
ganga, enda hafa bæði ísland
og Noregur fært út lögsögu
sína í 12 núlur.
Ekfci ber fréttum saman um
efni tillögu þeirrar, sem Bretar
og Efnahagsbandalagslöndin sex
— Frakkland, Vestur-Þýzkaland,
Ítalía, Belgía, Holland og Lux-
embourg — hafa lagt fram. í
sumum fréttum er talið að hér
sé um að ræða sex mílna land-
helgi og 12 mílna fiskveiðilög-
sögu með undanþágum, en 1
öðrum fréttum þriggja mílna
landhelgi, sex milna fiskveiði-
lögsaga, að viðbættum öðrum
sex mílurn, þar sem hefðbundnar
fiskveiðar útlendra fiskiskipa eru
'heimilar samkvæmt nánara sam
komuilagi. En hvort heldur er,
yrðu þessar tillögur til þess að
útiloka rússnesk og pólsk fiski-
sikip flrá víðáttumikiium fiski-
miðum á Norðursjó.
Fulltrúar Norðurlandanna og
írlands hafa allir lagt áhrezlu á
að fá 12 mílna lögsögu viður-
kennda, að minnsta kosti að því
er varðar þau lönd, sem þegar
hafa tekið sér þá lögsögu. Þá
leggja Danir áherzlu á að 12
mílna mörkin fáist staðfest við
Færeyjar og Grænland. Fáist
sú viðurkenning ekki má búast
við að ráðstefnunni ljúki án
samninga. Þá er iíklegt að Bretar
færi út lögsögu sína án samráðs
við aðrar þjóðir, en taki síðan
upp samninga við lönd Efna-
hagsbandalagsins um undanþág-
ur til veiða í ytra sex-mílna belt-
inu.
Enginn fundur verður á ráð-
stefnunni á morgun, en nefndin,
sem skipuð var í dag, mun
kynna sér efni brezku tillögunn-
114 farast í óve&ri
New York, 14. jan. — AP
MIKIÐ óveður hefur geng-
ið yfir austurhluta Banda-
ríkjanna undanfarna tvo
sólarhringa. Hefur vind-
hraðinn komizt upp í 100
km á klst., og snjórinn víða
safnazt í sex metra háa
skafla. Vitað er um 114
manns, sem látizt hafa í ó-
veðrinu.
Skólum hefur víða verið
lokað vegna ófærðar og
einnig flugvöllum og verzl-
num. Um 3 þúsund ferða-
menn urðu að gista á
Kennedy-flugvelli í New
York í nótt eftir að öll um-
ferð um völlinn stöðvaðist
vegna snjóskafla.
í Pennsylvaníu neyddust um
250 nemendur til að gista í
menntaskóla sínum í nótt, og
líkaði það síður en svo illa.
Aðspurður um aðbúnaðinn í
skólanum, svaraði einn af
nemendunum aðeins: „Niður
með snjóplóga. Þetta er mesta
„svíngpartí“ ársins“.
Heldur dró úr snjókom-
unni í dag, en vindhraðinn var
óbreyttur og frost mikið. Þús-
undir ferðamanna komust
ekki leiðar sinnar og urðu að
leita hælis í yfirfullum gisti-
húsum og opinberum bygg-
ingum.
Snjókoman náði allt suður
til Florida, þar sem nú snjó-
aði í fyrsta skipti á sex árum.
Jacqueline Kennedy
þakkar samúðarkveðjur
Washington, 14. janúar
(AP—NTB)
Frú Jacqueline Kennedy,
ekkja Kennedys forseta,
kom í dag í fyrsta skipti fram
opinberlega frá því að mað-
ur hennar var myrtur í Dall-
as í nóvember s.l. Var tilefn-
ið að þessu sinni að þakka
þau átta hundruð þúsund
bréf og samúðarkveðjur,
sem henni hafa borizt víða að
úr heiminum.
Flutti frú Kennedy þafckir sin
ar í ávarpi, sem útvarpað var
frá skrifstofu Roberts Kenne-
dys dómsmálaráðherra, bróður
forsetans heitins.
— „Vitneskjan um það hve vel
Framh. á bls. 2.