Morgunblaðið - 15.01.1964, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 15. jan. 1964
M BJSAM
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRÁ SJÁLFSTÆÐISMANNA
1
n.f|. fe 4r [fj ■
1 3
ii wM jihu .onB.
KITSTJÓRAR: BIRGIR ÍSU GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON
Hvað getum við gert..?
AÐ VENJU hafa áramótin
orðið til þess, aS þjóðir og
einstaklingar hafa staldrað
örlítið við til að gera sér
grein fyrir afleiðingum lið-
inna atburða, reyna að kanna
stöðu sína og skyggnast til
framtíðarinnar.
f mörgum erlendum blöð-
um hafa birzt greinar, þar
sem ekki er aðeins reynt að
gera sér grein fyrir friðar-
horfunum, heldur ekki síð-
ur reynt að svara spurning-
unni: Hvað getum VIÐ gert
til að bæta friðarhorfurnar í
heiminum?
Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, gerði þessa
spurningu nokkuð að umtals-
efni í áramótaræðu sinni í út-
varpinu. Hann sagði ma.:
„Sjálfir getum við fslending-
ar ekki lagt mikið af mörk-
um til að auka friðarhorfur,
annað en leyfi okkar til þess,
að á landi voru sé haldið
uppi vörnum fyrir málstað
frelsisins. Sú þjóð, sem neit-
aði að tryggja svo sinn eigin
hag og skoðanabræðra sinna,
myndi sýna, að hún skildi
ekki, hvað til friðar og sjálf-
stæðis hennar heyrir.“
Víst er það, að skerfur okk-
ar íslendinga til verndar friði
í heiminum er ekki mikill,
þegar borið er saman við skerf
ýmissa annarra þjóða. Hins-
vegar skortir marga skilning
á því, að okkar framiag til
Atlantshafsbandalagsins og
dvöl hins erlenda vamarliðs
hér á Iandi sé í raun og veru
nokkur skerfur til verndar
friði. Sá skilningsskortur á
oftast rætur sínar að rekja til
þess, að íslendingar eru svo
tiltölulega nýlega komnir mitt
inn í rás heimsviðburðanna,
að mörgum hefur orðið erfitt
að átta sig á þeirri staðreynd.
Hér er að siálfsögðu ekki átt
við andstöðu kommúnista,
sem á sér aðrar og annarlegri
ástæður, er ekki verða gerð
ar að umtalsefni hér að þessu
sinni.
einstakra forystumanna þjóð
arinnar að velta fyrir sér
þeirri spurningu, hvað við
getum gert til eflingar friði
í heiminum, heldur er það nú
orðið umhugsunarefni fyrir
hvern einstakling í landinu.
Þetta er orðið raunhæft við-
fangsefni í íslenzkum stjórn-
málum.
Með stofnun Atlantshafs-
bandalagsins mynduðu hinar
frjálsu þjóðir við Atlantshaf-
ið varnarkeðju gegn árásar-
öflum kommúnismans. AI-
kunn er sú staðreynd, að eng
in keðja er sterkari en veik-
asti hlekkur hennar. Bregðist
eitthvert þátttökuríkið, þá er
voðinn vís.
Svarið við þeirri spurningu:
Hvað getum við gert til
verndar friði í heiminum? —
er því það, að taka fullan
þátt í starfi Atlantshafsbanda
lagsins og veita bandalaginu
þá aðstöðu, sem við sjálf telj-
um nauðsynlega vegna örygg-
is okkar og til tryggingar
friði í heiminum. En þegar
við metum, hvaða aðstöðu
veita skuli, þurfum umfram
allt að varast að draga of
skjótar ályktanir af ástandi
í alþjóðamálum, eins og það
virðist á yfirborðinu vera á
hverjum tíma. — BÍG
STJÓRN Heimdallar, F.U.S.
í Reykjavík hefur gengið frá
starfsáætlun fyrir fyrri hluta árs
ins 1964. Samkvæant þeirri áætl-
un er ráðgerð mjög fjölþætt
starfsemi og má þar t.d. nefna
helgarráðstefnur um þrjá and-
stöðuflokka Sjálfstæðisflokksins,
kvöldráðstefnur, fyrirlestra um
þjóðfélagsmál o.fl.
í heild birtist áætlunin á bls.
11 í Morgunblaðinu í dag.
Ungtr Sjálfstæðismenn
heimsækja Reykjavík
U M næstsíðustu mánaðamót
komu til höfuðstaðarins í viku
heimsókn 3 ungir Sjálfstæðis-
menn utan af landi. Voru
þetta þeir Skjöldur Stefáns-
son úr Búðardal, Unnsteinn
Þorsteinsson, Borgarnesi, og
Hallgrímur Tryggvason frá
Akureyri, en þeir hafa allir
unnið ötullega í félögum sín-
um. Dvölin í Reykjavík var
skipulögð af SUS og kynntust
þeir þremenningarnir m.a.
daglegri starfsemi Heimdallar
F.U.S., áttu viðræður við
nokkra af leiðtogum Sjálf-
stæðisflokksins um ýmsa
þætti þjóðmálanna og flokks-
starfsemina, heimsóttu stofn-
anir o. fl. — Voru þeir ánægð-
ir með dvölina og töldu hana
hafa verið hina fróðlegustu.
Sir Alec Douglas - Home, hinn nýi forsætisráðherra Breta, segin
Æskan vill raunsæi, athafnir og víðsýni
og hún vill ekki láta segja sér fyrir verkum
SÍÐAN skozki lávarðurinn
Home tók við forystu íhalds-
flokksins brezka nú fyrir
skömmu, hefur hann haft í
mörg horn að líta. Ofan á
þunga starfsbyrði forsætisráð
Til skamms tíma gátu fs- herra hlóðst í upphafi erilsöm
kosningasókn í víðlendu kjör-
lendingar treyst þvi, að lega
landsins og f jarlægð þess frá . , . _ ,
öðrum þjóðum gerði það að)dæml norðan Edmhorgar
verkum, að við þyrftum ekki
að velta alþjóðlegum vanda-
málum of mikið fyrir okkur.
Meðferð utanríkismála okk-
ar var og svo lengi í höndum
annarrar þjóðar, að megin-
þorri íslendinga hugsaði lítt
um þau mál.
Nú er þetta breytt. fslend-
ingar hafa á undanförnum
árum þurft að gerast alþjóð-
legri í hugsunarhætti og hafa
þurft að brjóta til mergjar
alþjóðleg vandamál, sem
snerta okkur, ekki síður en
aðrar þjóðir. Þróunin hefur
og smám saman orðið sú, að
við íslendingar höfum tekið
að hugleiða þessi mál og
reynt að gera okkur grein
fyrir stöðu okkar meðal þjóð-
anna. Meðal yngri kynslóðar-
innar hefur starfsemi félags-
samtaka eins og Varðbergs
flýtt fyrir þróuninni í þessum
efnum.
Því er nú svo komið, að
það er ekki aðeins verkefni
en eitt brýnasta úrlausnarefni
hins nýja flokksleiðtoga var
að sjálfsögðu það, að tryggja
sér aðgang að höfuðvígstöðv-
um stjórnmálabaráttunnar —
Neðri málstofunni brezku.
Þegar nýir menn taka sér
stöðu í fararbroddi áhrifamikilla
stjórnmálaflokka, bíður fólk þess
oftast með mikilh eftirvæntingu
að heyra, hvað þeim ligguir
þyngst á hjarta — hverjir séu
meginþættirnir í þeirri stefnu,
sem þeir hyggjast móta fyrir
flokk sinn. Ale^ Douglas-Home,
eins og hinn nýi forsætisráðherra
nú nefnist, eftir að hafa afsalað
sér lávarðstign, sætir ekki undan
tckningu að þessu leyti. Frétta-
menn frá blöðuim og fréttastof-
um um allan heim fylgdu honum
eftir um kjördæmi hans þvert og
endilangt og sátu um hvert
orð, sem hann lét sér úr munni
fara á framboðsfundum og ut-
an þeirra. Hin nýja stjórnar-
stefna er í mótun — og allar vís-
bendingar um hvað hún muni
^-.'jela í sér eru velþegið fréttaefni,
enda framtíð lands Og þjóðar í
húfi — og stundum meira, ekki
sízt þegar stórveldi eiga í hlut.
Fullgildir þegnar þjóðfélagsins
Af því, sem fram hefur komið
í ræðum hins nýja forsætisráð-
herra, er meðal annars ljóst, að
hann hefur gert sér sérstakt far
um að skynja og skilja viðhorf
unga fólksins og virðist hafa full-
an hug á að fylkja því undir
merki flokks síns. „The Sunday
Times“ birti fyrir áramótin frá-
sögn af ræðu, sem Douglas-
Home hafði haldið í kjördæmi
sínu. Þar lýsti hann því meðal
annars yfir, að ef hann fengi
nofckru ráðið, skyldi brezkt
æskufólk í framtíðinni eiga kost
beztu menntunar, sem völ væri
á í heiminum.
— Við skulum varpa fyrir
borð þeim kynstruim, sem sögð
eru algjörlega út í hött um æsku
fólkið, sagði Sir Alec og um
framtíðaráform sín sagði hann
síðan m. a.:
— Menntun, velmegun, tæki-
færi, allt víkkar þetta sjóndeild-
arhringinn — og eru þau verð-
mæti, sem við viljum reyna að
skapa uppvaxandi kynslóð. En
lengra getum við heldur ekki
gengið. Við getum ekki rétt í
hendur hennar landabréf yfir
framtíðina með öllum hennar
krókum og kimum, né heldur
megum við vænta þess að hún
vilji feta slóðir markaðar af
öðrum.
Miklu fremur ber okkur að
hvetja og styrkja unga fólkið til
að ryðja sér sjálft braut inn í
framtíðina. Okkur ber að hvetja
— og ég hvet það — til þess að
skipa sér sess sem fullgildir
þegnar þjóðfélags okkar.
Ekki vandamál — heldur
jákvæða afstöðu
Það vakti mikla athygli, að
forsætisráðherrann skyldi gefa
sér svo gott tóm í einni af aðal-
ræðum kosningabaráttunnar til
að ræða úm æskuna og viðhorf
in til hennar. Er það túlkað sem
öruggt tákn þess, að hann ætli
ungum mönnum aukið rúm í
flokknum og vilji í vaxandi mæli
beita áhrifamætti flokksins til
baráttu fyrir áhuga- og hags-
munamálum yngri kynslóðarinn-
ar.
Hann sagði í ræðu sini, að fólk
talaði stöðugt um æskuna, ræddi
um vandamál hennar og teldi
sig hafa ráð undir hverju rifi.
— En sem faðir fjögurra barna,
allra innan þrítugs, er ég að
verulegu leyti ósammála þessari
afstöðu. Þeim er lítt um það
gefið að láta skipa sér á sér-
stakan bekk, og þau vilja ekki
láta líta á sig sem vandamál. Og
umfram allt kæra þau sig ekki
um að láta segja sér fyrir verk-
Framhald á bls. 17.
Sir Alec flytur ræðu
í kjördæmi sínu.